Morgunblaðið - 23.04.1994, Side 55
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR LAUGARDAGUR 23. APRÍL 1994
5é
HANDKNATTLEIKUR / URSLITAKEPPNIN
URSLIT
SOKNARNYTING
íþróttahúsið við
Strandgötu. fyrsti
leikur t undan-
úrslitum Islands-
mótsins, föstu-
daginn 22. apríl
1994
Haukar- Víkingur 25:23
íþróttahúsið við Strandgötu í Hafnarfírði,
íslandsmótið í handknattleik, 1. leikur i
undanúrslitum 1. deildar karla, föstudaginn
22. apríl 1994.
Gangur leiksins: 1:0, 1:1, 3:1, 3:3, 4:4,
6:4, 7:5, 7:8, 9:8, 10:11, 11:12, 13:12,
13:13, 15:14, 15:16, 18:16, 20:19, 22:19,
22:21, 24:21, 25:22, 25:23.
Mörk Hauka: Sigurjón Sigurðsson 6, Hall-
dór Ingólfsson 5/1, Petr Baumruk 5/2,
Páll Ólafsson 2, Aron Kristjánsson 2, Pétur
Vilberg Guðnason 2, Þorkell Magnússon
2, Jón Örn Stefánsson 1.
Varin skot: Bjarni Prostason 13/1 (þaraf
4 til mótheija), Magnús Ámason 3 (þaraf
eitt til mótheija).
Utan vallar: 8 mínútur.
Mörk Víkings: Slavisa Cvijovic 8, Bjarki
Sigurðsson 6/2, Gunnar Gunnarsson 4,
Birgir Sigurðsson 3, Friðleifur Friðleifsia^-
2.
Varin skot: Reynir Reynisson 12 (þaraf 4
til mótheija).
Utan vallar: 4 mínútur.
Dómarar: Stefán Amaldsson og Rögnvald
Erlingsson.
Áhorfendur: 1.150.
Knattspyrna
Þýskaland
Wattenscheid - Kaiserslautern....0:2
- (Sforza 85., Hengen 90.). 12.000.
Werder Bremen - Köln.............3:1
(Neubarth 21., Rufer 32., 90.) - (Steinmann
45.). 25.555.
Frakkland —
Mónakó - Cannes..................2:0
(Ikpeba 40., Klinsmann 52.). 5.000.
Haukar Víkingur
2f
Mófk Sóknir %
Mótk Sóknir %
Loky lok og læs
Morgunblaðið/Kristinn
BJARNI Frostason lék í marki Hauka í seinni hálfleik og átti stórleik. Hvað eftir annað varði hann úr opnum færum og
hér tekur hann gott skot frá Gunnari Gunnarssyni, þjálfara Víkings.
Langskot
Gegnumbrot
Hraðaupphlaup
Hom
Lfna
VW
KNATTSPYRNA
Marseille
í 2. deild
Franska meistaraliðið Mar-
seille var í gær dæmt til að
leika í 2. deild næsta tímabil og
Bemard Tapie, forseti félagsins,
og Jean-Pierre Bernes, fram-
kvæmdastjóri, voru úrskurðaðir í
ævilangt bann frá franskri knatt-
spymu.
Knattspymusamband Frakka-
lands tók þessa ákvörðun í kjölfar
mútumála undir lok síðasta
keppnistímabils. Þrír leikmenn,
Jean-Jacques Eydelie hjá Mar-
seille og Christophe Robert og
Jorge Burruchaga hjá Valencien-
nes, áttu hlut að máli og voru
þeir dæmdir í keppnisbann til 1.
júlí 1996. Hins vegar geta þeir
sótt um að leika utan Frakklands
eftir 1. júlí í sumar, en leyfí þess
efnis verður háð samþykki Al-
þjóða knattspymusambandsins.
Marseille fær að taka þátt í
Evrópukeppni tryggi félagið sér
þar sæti. Liðið átti að mæta
Montpellier í átta liða úrslitum
frönsku bikarkeppninnar í dag,
en leiknum var frestað.
Þannig vörðu þeir
Markvarslan í gærkvöldi (innan sviga eru varin skot, en knötturinn
aftur til mótheija):
Bjarni Frostason, Haukum - 13/1 (4); 5(2) langskot, 2 gegnum-
brot, 3 (1) úr homi, 2 (1) af línu, 1 víti.
Magnús Arnason, Haukum - 3 (1); 2 (1) langskot, 1 af línu.
Reynir Reynisson, Víkingi - 12 (4); 5 (1) langskot, 2 (1) hraðaupp-
hlaup, 3 (1) úr horni, 2 (1) af línu.
KORFUKNATTLEIKUR
UM HELGINA
Handknattleikur
LAUGARDAGUR
Undanúrslit karla:
Hlíðarendi: Valur- Selfoss.16.30
SUNNUDAGUR
Vikin: Víkingur - Haukar....20
MÁNUDAGUR
Selfoss: Seifoss - Valur......20
Blak
SUNNUDAGUR
Úrslitakeppni kvenna, 4. leikur:
Austurberg: ÍS - Víkingur.....20
Júdó
fslandsmótið f júdó fer fram í KA-húsinu á
Akureyri í dag og hefst kl. 13 og stendur
fram til kl. 17.
íþróttir fatlaðra
Norðurlandamót fatlaðra í borðtennis fer
fram i Austurbergi í dag og á morgun.
Keppni hefs báða dagana kl 9. Liðakeppn-
inni lýkur í dag en á morgun verður keppni
einstaklinga.
Fimleikar
Landskeppni milli íslands og Skotlands
verður í dag í íþróttahúsinu Kaplakrika.
Keppt verður í karla og kvennaflokki í
áhaldafímleikum. Keppnin er bæði iiða- og
einstaklingskeppni og haldin samhliða Seni-
ormóti FSl. Landskeppnin hefst kl. 13.30
Unglingameistaramót FSÍ verður haldið
á morgun á sama stað. Um sextiu keppend-
ur, piltar og stúlkur, taka þátt í mótinu og
koma frá Gerplu, Ármanni, Stjömunni,
Björk, Fimleikafélagi Keflavíkur og Gróttu.
Mótið hefst kl. 13.30.
Körfuknattleikur
Undankeppnin fyrir körfuknattleikskeppn-
ina á landsmóti UMFÍ í sumar verður hald-
in að Laugarvatni um heigina. Fjórtán lið
leika þar um átta sæti á landsmótinu og
eru sex lið úr úrvalsdeildinni, þannig að hér
verður um mikla keppni að ræða.
Badminton
Keppni ( 2. og 3. deild verður í Laugardals-
höllinni í dag og á morgun. Keppni hefst
báða dagana kl. 10 árdegis.
Borðtennis
Stóra Víkingsmótð verður í TBR-húsinu á
morgun og hefst kl. 10 með tvíliðaleik, en
keppt verður I 8 flokkum.
Golf
Fyrsta opna golfmótið hjá Keili verður hald-
ið á Hvaleyrinni í dag og veður ræst út frá
kl. 9.
S/L púttmótið verður í Golfheimi á
sunnudagskvöldið og hefst kl. 20. Þar eiga
tveir efstu úr púttmótum vetrarins þátttöku-
rétt og keppt er um tvær utanlandsferðir.
Þeir sem ekki hafa tryggt sér þátttökurétt
geta tekið þátt í síðasta púttmóti vetrarins
sem verður á sunnudaginn, áður en úrslita-
mótið hefst um kvöldið.
Skemmtileg sumar-
byijun í Firðinum
HAUKAR byrjuðu sumarið eins og þeir enduðu veturinn — með
sigri. Hann fékkst samt ekki átakalaust, því Víkingar gáfu hvergi
eftir í gærkvöldi og voru marki yf ir í hléi í fyrsta undanúrslita-
leik liðanna í 1. deild karla, sem fór fram í Hafnarfirði. Hins veg-
ar mættu gestirnir ofjarli sínum í seinni hálfleik, þar sem var
Bjarni Frostason. Hvað eftir annað varði hann úr opnum færum
og þó baráttan stæði nær allt til loka munaði mest um, þegar
piltur varði vítakast i stöðunni 19:17 um miðjan hálfleikinn, og
síðan úr horni tæpum sjö mínútum fyrir leikslok, en þá leiddu
Haukar 22:21. í bæði skiptin tvíefldust heimamenn og Sigurjón
Sigurðsson, sem var frábær í vörn sem sókn, gerði tvö mörk í röð
í kjölfar síðara tilviksins og þar með voru úrsíitin ráðin.
Steinþór
Guöbjartsson
skrifar
Leikir þessara liða voru skemmti-
legir og spennandi í vetur og
sama var upp á teningnum í gær-
kvöldi. Stemmningin
var aldeilis frábær í
troðfullu íþróttahús-
inu við Strandgötu
og leikmennirnir léku
við hvem sinn fingur. Spilið gekk
hratt og yfirleitt kerfisbundið fyrir
sig, en varnimar voru sterkar og því
gekk dæmið ekki ávallt upp. Eins
var Reynir Reynisson frábær í marki
Víkings í fyrri hálfleik og áður er
getið frammistöðu Bjarna Hauka-
manns eftir hlé.
Sem fyrr var breiddin aðal Hauka
— þegar einn fann sig ekki tók ann-
ar við. Páli ólafssyni var tvisvar vik-
ið af velli í fyrri hálfleik og þó seinni
brottvísunin hafi orkað tvímælis lét
hann það ekki á sig fá, stjórnaði
spilinu sem herforingi eftir hlé og
tók tvisvar af skarið, þegar mikið lá
við. Vömin var þétt með Siguijón
sem besta mann, en Petr Baumruk
var einnig sterkur — og full harður
á stundum.
Vamarleikur Víkings var einnig
góður lengst af og sóknarleikurinn
markviss með þrenninguna Gunnar
Gunnarsson, Bjarka Sigurðsson og
Slavisa Cvijovic í fararbroddi. Birgir
Sigurðsson var öflugur í fyrri hálf-
leik, en var vel gætt eftir hlé og
komst þá ekki á blað.
„Þetta var eins og ég bjóst við,“
sagði Jóhann Ingi Gunnarsson, þjálf-
ari Hauka. „Barátta allan tímann.
Bjami gaf okkur aukinn styrk og
spurningin var hvort okkur tækist
að halda út. Það tókst í þessari hrinu
og fyrri hálfleikur er búinn, en sá
seinni er eftir og ég á von á eins
skemmtilegum leik í Víkinni á sunnu-
dagskvöld enda eru þetta mjög jöfn
lið.“
Gunnar Gunnarsson, þjálfari Vík-
ings, var ánægður með leikinn, „en
við nýttum ekki færin í seinni hálf-
leik og hleyptum Bjama inní leikinn.
Annars kom mér á óvart að allt í
einu var farið að dæma ruðning á
hornamenn og ég er ósáttur við þijá
slíka dóma sem við fengum á okkur,
þó það sé okkur en ekki dómurunum
að kenna hvemig fór. Við skoðum
hvað fór úrskeiðis, tökum á móti
þeim í Víkinni og ætlum að mæta
hingað aftur á þriðjudag."
Badalona Evrópumeistari
Spænska félagið Joventut frá
Badalona varð á finimtudag
Evrópumeistari í körfuknattleik eft-
irað hafa sigrað gríska liðið Olymp-
iakos í úrslitum í Tel Aviv í ísrael,
59:57. Leikurinn var mjög spenn-
andi og bæði lið léku frábæran
varnarleik og má sem dæmi nefna
að Grikkirnir skoruðu ekki stig síð-
ustu fimm og hálfa mínútu leiksins.
Staðan var 56:57 fyrir gríska lið-
ið þegar 17 sekúndur voru eftir en
Comelius Thompson hitti úr þriggja
stiga skoti og kom Badalona yfir.
Zarko Paspalj, einn besti ieikmaður
Olympiakos, fékk vítaskot þegai
4,8 sekúndur voru eftir, en hitti úi
hvonigu skotinu.
„Eg hélt ég myndi deyja á meðar
Paspalj var á vítalínunni," sagd
Thompson, hetja sigurveganna, eft
ir leikinn, en Badalona var ekk
talið líklegt til afreka fyrir keppn
ina. Liðið vann samt Barcelona
undanúrslitum og síðan Olympia
kos. Þess má geta að rúmlega 3.001
Grikkir fóru með liðinu til ísrael
og sáu leikinn en stuðningsmeni
spænska liðsins vom um 70 talsinf