Morgunblaðið - 24.04.1994, Síða 17

Morgunblaðið - 24.04.1994, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24. APRÍL 1994 17 I i í Tískuskóla Andreu lærðu dömur að ganga á pöllum. „Fæstar leikkon- ur kunna að hreyfa sig fallega á sviði,“ segir frúin. skóm. Leikkonur eru þar engin und- antekning. Fæstar kunna að hreyfa sig fallega á sviði, og hreint ekki á háum hælum. Það eru aðeins örfáar sem hafa gert það með þokka, eins i og til dæmis Sigríður Hagalín og Helga Jónsdóttir.“ - Fyrir mörgum árum voru konur svo ódannaðar að þær fóru út á götu með rúllur í hárinu, síðan voru þær í æfingagöllum úti að versla, hvorugt þetta þótti fínt, en hefurðu tekið eftir nokkrum nýjum ósið hjá þeim? „Ég man það nú ekki í svipinn," segir hún. „En ég hef aldrei átt æfingagalla, ég hef ofnæmi fyrir i þeim. | Mér finnst einkum áberandi hvað kvenfólk er feitt núna. Kannski er það rangt mataræði. Fólk er líka síborðandi, úti á götu og hvar sem er. Reykjandi líka. Og að fara í ís- lenskt kvikmyndahús er eins og að koma í hænsnabyrgi. Við fórum í fyrra á frumsýningu franskrar kvik- myndar. Þar sem við sitjum þama koma vel klædd hjón inn í salinn, og eru ekki bæði með kók og popp- kornspoka í höndunum! Ég veit ekki ■ hvað franski sendiherrann hefur haldið. * Ég get nú kannski nefnt það, að þegar fólk gengur inn eftir sætaröð og þarf að láta viðstadda standa upp fyrir sér, á það að snúa baki frá fólkinu en höfðinu að, og biðjast afsökunar. Fólk er svo héralegt hér á landi og hrætt við að vera öðruvísi. En það er einmitt svo | gaman að vekja eftir- tekt með fallegri fram- ' komu.“ Borðhald Margir halda því fram að á íslandi sé að vaxa upp heil kynslóð sem kunni ekki mannasiði, hvað þá borðsiði. Beiti gaflinum eins og garðskóflu, sötri, smjatti og þurrki sér um munninn með fingrunum eða á er- minni. Þess utan kunni hún ekki að heilsa, sé athyglissjúk og sígjamm- andi. Ófögur lýsing. En hvenær á að bytja að kenna börnum manna- siði að mati Andreu? „Strax meðan þau eru á koppn- um,“ segir hún án hiks. „Þá eigum við að hjálpa þeim við að þvo sér um hendurnar til að þau venjist þeirri athöfn frá upphafi. Síðan verður að kenna þeim að sitja til borðs. Það er farsælt veganesti að I heiman að kunna borðsiði. í kringum tíu ára aldur ættu þau Daman sem elskar dýr og ætlaði að búa í sveit. „En það vildi mig enginn bóndi.“ að kunna að nota hníf og gaffal. Það er ágætt ráð að setja pappírs- blað undir handleggi þeirra og láta þau halda blaðinu meðan þau borða. Þeim finnst það spennandi og reyna að missa ekki blaðið. Það er svo gaman að kenna böm- um ýmsa siði. Ég er hissa ef fólk hefur ekki áttað sig á því. Það er mikill ósiður þegar börn venjast á það að rífa upp ísskáp- inn í tíma og ótíma, eða horfa upp á fjölskyldu sína gleypa í sig matinn hingað og þangað og á hlaupum. Borðhald er ein mikilvægasta stund fjölskyldunnar. En mér fínnst það alveg út í hött að skella allri skuldinni á skólana. Kennararnir eiga ekki að kenna börnum mannasiði, það eru fyrst og fremst foreldrarnir sem eiga að gera það. Þankagangurinn er ekki réttur þegar uppeldi er annars vegar. Hér er fólk að eignast börn .jafnvel á fyrstu árum sínum í framhaldsskóla og ætlast svo til að þjóðfélagið ali þau upp. Mér finnst við stundum ekki nógu góð hvert við annað, menn snúa sér ekki í hringi fyrir aðra nema að gera eitthvað fyrir sjálfa sig í leið- inni. Þetta er einhver vöntun.“ Ég vildi ekki vera tengda- dóttir þín, segir Halldór við mig Riddaramennska Við ræðum í framhaldi af þessu um uppkomin börn, giftingar og sambúð. Aður fyrr var það siður að foreldrar brúðarinnar byðu foreldr- um brúðgumans heim fyrir brúð- kaupið, en hvað eiga menn nú að gera þegar ungt fólk býr sundur og saman án þess að nokkur gifting sé í sjónmáli? „Þú átt við þegar það býr saman í opinberum hórdómi eins og Bryn- leifur Tobíasson kennari sagði eitt sinn! Ef fólk hefur áhuga á að kynnast geta foreldrar stúlkunnar boðið for- eldrum piltsins heim þegar þau sjá að það er nokkum veginn ömggt að sambandið verði varanlegt. En ég er alveg á móti því að fólk sé að taka kærustur eða kærasta inn til sín. Að stúlkur eða piltar flytji inn á mánn í mánuð eða svo og gangi í allt. Það er bara foreldrum sjálfum að kenna þegar það kemur fyrir. Ég er gamaldags, en það er ekki af því ég er gömul, heldur hef ég alltaf verið svona. Ég vildi ekki vera tengdadóttir þín, segir Halldór við mig. En ég er viss um að ég verð góð við hana! Ég er til dæmis alveg á móti því að fólk sem býr saman fari út hvort í sínu lagi. Það er allt annað mál að fara út að borða án makans, en ekki á skemmtistaði. Hvað á kven- fólk líka að vera að flækjast á skemmtistaði og láta aðra karla vera að abbast upp á sig? Það býð- ur bara hættunni heim.“ - Þá erum við komnar að karl- mönnunum, Andrea. Ungar konur segja að íslenskir karlmenn séu leið- inlegir egóistar sem kunni sig ekki. Þær segjast til dæmis oft sjá karl- menn strunsa út á undan konunum á veitingastöðum. Konan er rétt að teygja sig í veskið þegar þeir eru komnir út í dyr. Ög við fínni borð- hald sitja þeir sem fastast þegar daman stendur upp og fer fram? „Þegar daman stendur upp, á herrann að gera það einnig," segir frúin með festu. „Hann á alltaf að standa upp þegar hún stendur upp. í kvikmyndahúsi á hann að ganga á undan og halda niðri sætinu fyrir dömuna, og þegar hún hefur fengið sér sæti, sest hann. Ég veit ekki hvers vegna íslensk- ir karlmenn hafa fengið svona slæmt orð á sig. Kannski ættu kon- ur að gera meiri kröfur til þeirra en hvernig á nú karlmaður til dæm- is að geta opnað bílhurð fyrir konu ef hún er komin út meðan hann er enn að borga bílinn? Við verðum að gefa þeim tækifæri til að sýna okkur riddaramennsku en vaða ekki áfram eins og naut í flagi.“ Munaður Því miður hafa íslenskir karlmenn ekki notið leiðsagnar Andreu en vera má að þeir njóti fræðslu henn- ar í framtíðinni ef hún lætur verða af því að gefa út bók um mannas- iði. Andrea er þó ekki alveg hætt að kenna því stundum tekur hún konur í einkatíma. Skólastofan er enn fyrir hendi, eða pallurinn sem dömurnar gengu á forðum, og það er vissara að vera vel til hafður í þessu húsi því speglarnir góðu eru á sínum stað, vægðarlausir að vanda. „Ég hef alltaf sagt að konur ættu að vera vel til hafðar jafnvel þótt þær séu heimavinnandi. Það er víst orðinn munaður að vera húsmóðir nú til dags. Ég kann vel við það starf, mér finnst gaman að elda og að leggja á borð.“ Svo sest hún í húsmóðursætið við enda borðsins og segir hugsandi: „Hvað skyldu annars margir kunna að skála á Islandi? Og hve margir vita að enginn má setjast fyrr en húsmóðirin hefur fengið sér sæti? Annars ætlaði ég alltaf að verða bóndakona. Ég er mikið náttúru- barn, er bijáluð í öll dýr og var allt- af í sveit. En það vildi mig enginn bóndi.“ Að þeim orðum sögðum kemur tíkin Táta inn af svölunum aftur, lokar hæversklega á eftir sér og gengur til húsmóður sinnar. Hún veit örugglega hvað bændur fóru á mis við. Bókunarstaða í Bókunarstaða í aðrar brottfarir Sértilboð á RAUÐUM BROTTFÖRUM rennur út l.maí Mallorca 30. maí 6. júní 13. júní 27. júní 6 sæti laus örfá sæti laus örfá sæti laus laus sæti Portúgal i Wkjmj -ÍllÍlflllíiÍ 18. maí 25. maí 1.júní 15. júní 29. júní örfá sæti laus uppselt 9 sæti laus örfá sæti laus laus sæti Pantaðu sóiarlandaferðina fyrir 1. maí - og fjöiskyldan sparar þúsundir króna. ^IÍRVAL-IÍTSÝN Lágmúla 4: sími 699 300, íHafnarfiröi: stmi 65 23 66, i Keflavík: sími 13400, viö Ráðhúslorg á Akureyri: sími 2 50 00 - og bjá umboðsmönnum um land alll. Mallorca 23. maí uppselt 20. júní uppselt 11. júlí uppselt 19. sept. laussæti Portúgal 15. júní 9sætilaus 29. júní örfá sæti laus 6. júlí laus sæti 21. sept. laus sæti

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.