Morgunblaðið - 29.04.1994, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 29.04.1994, Blaðsíða 44
44 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. APRÍL 1994 Háskólabíó STÆRSTA BIOIÐ. ALLIR SALIR ERU FYRSTA FLOKKS. HASKOLABIO SÍMI 22140 'SCHER ★★★ Al. M&L v CANNES1993 MIKE LEIGH besti leikstjórinn DAVID THEWLES besti aðalleikarinn BLAR „Þetta einstaka listafólk hefur skilað afar tregafullri en engu að síður einni bestu mynd ársins. *** S.V. MBL Sýnd kl. 5 og 7 Stórmynd frá Bertolucci leik- stjóra Síðasta keisarans. AÐALHLUTV.: KEANU REEVES, BRIDGET FONDA OG CHRIS ISAAK. Sýnd kl. 5 / NAFN! FÖÐURINS ★ ★★★ A.l. MBL ★ ★★★ ,k. EINTAK HH PRESSAN ★ ★★★./' Ö.M. TÍMINN ROBOCOP er mættur aftur í nýrri, hraðri og harðri mynd sem þykir mesta bomban í seriunni. Bönnuð innan 16 ára. Sýnd kl. 7 og 11.10 Leikstjóri Steven Spielberg Bönnuð innan 16 ára. Sýnd kl. 5.15 og 9 Nýr greiðslumáti í kvikmyndahúsum. Háskólabió ríður á vaðið - þú átt góða mynd VÍSA Fjögur ungmenni freista gæfunnar í leit að frægð og frama. Aðalhlutv. River Phoenix og Samantha Mathis. Sýnd kl. 9 og 11.10. Snilldarmynd um ungan snilling. Aðalhlutverk: Ben Kingsley, Joe Mantegna, Laurence Fishburne og Max Pomeranc. Sýnd kl. 5 DYLAN - DON'T LOOK BACK HREYFIMYNDAFÉLAGIÐ þakkar fyrir sig í vetur og sendir ykkur inn í .V ’SP i .. frægustu og áhrifamestu tónlistar- mynd allra tíma. Don't Look Back fylgir Bob Dylan eftir á tónleika- feröalagi hans um Bretland árið 1965, þegar hann var að breytast í " - alheimsstjörnu. .r P.s. Tetsuo II og The Terroriser frest- ast fram a siðsumar. . Svört kómidía um sérvitringinn Johnny, andhetju níunda áratugarins sem kemur til Lundúna og heimsækir gömlu kærustuna henni til mikilla leiðinda. Hann sest að hjá henni, á í ástarsambandi við meðeiganda hennar og gerir þar með líf allra að enn meiri armæðu. Einnig blandast inn í þessa ringulreið sadískur leigusali sem sest ein- nig að í íbúðinni og herjar á kvenpeninginn með afbrigðilegum kynórum. Sýnd kl. 5 og 9. Bönnuð innan 16 ára. Atriði úr myndinni Líf þessa drengs. Sambíóin sýna mynd- ina Líf þessa drengs Þrír af aðalleikurum myndarinnar, Tara Fitzgerald, Sam Neill og Hugh Grant, í hlutverkum sínum. Andleg miðstöð opnuð SAMBÍÓIN hafa tekið til sýninga kvikmyndina Líf þessa drengs eða „This Boy’s Life“ sem byggð er á samnefndri bók Tobias Wolff sem kom út árið 1989 og hlaut þá mik- ið lof gagnrýnenda, segir í frétta- tilkynningu. Með aðalhlutverk fara Ellen Barkin, Robert De Niro og Leonard DiCaprio. Myndin gerist í Bandaríkjunum á sjötta áratugnum, á tímum bjart- sýni. Stríðinu var lokið, viðskipti blómstruðu og ménnirnir voru komn- ir heim. Caroline Wolff er ein af þessum bjartsýnu, fráskilin og ferð- ast um landið í leit að betra lífi. Með henni er sonur hennar, Toby, en fyrr- verandi maður hennar og eldri sonur búa á austurströndinni. Það reynist Caroline hins vegar erfitt að finna hamingjuna og þau þvælast þar til þau hitta Dwight Hansen sem hrífst af Caroline. Hann biður hennar og býðst einnig til þess að taka Toby að sér og láta hann flytja inn hjá sér og þremur börnutn sínum fram að brúðkaupi. Toby dreymir hins vegar um að lifa lífi sínu eins og bróðir hans gerir, sem gengur í Princeton- háskóla, en í raunveruleikanum neyðist hann til að búa í smábæ undir harðri stjóm tilvonandi stjúp- föður. Með drauma sína að leiðar- ljósi ákveður Toby að flýja þetta líf og sanna manndóm sinn í leiðinni. Laugarásbíó sýnir mynd- ina Ogrun LAUGARÁSBÍÓ hefur hafið sýn- ingar á myndinni Ögrun eða „Sir- ens“ með Sam Neill, Tara Fitzger- ald og Hugh Grant í aðalhlutverk- um. Leiðtogar kirkjunnar í Sidney í Ástralíu eru yfir sig hneykslaðir á röð málverka eftir hinn umdeilda listamann Normann Lindsey. Biskup landsins ákveður að reyna að koma í vég fyrir að verk Lindseys komi fyrir sjónir almennings en það hefur frést að Lindsay ætli að halda sýn- ingu á þeim á næstunni. Ungur enskur millistéttarmaður, Anthony Campion, og kona hans, Estella, eru nýlega komin til Ástraiíu og hyggjast setjast að á búgarði vestur af Sidney. Biskupinn ákveður að tilnefna Anthony sem sendimann sinn og biður hann að koma við í húsi listamannsins og freista þess að fá hann til að hætta við hina fyrir- huguðu sýningu. Þegar þau hjónin koma til íverustaðar Lindsays verður bilun í lestinni sem ferðast með þau og eina ráð þeirra er að fá að gista í nokkrar nætur í húsi Lindsays. Ásamt Lindsay dvelja í húsinu þrjár ungar, fallegar konur sem sitja fyrir hjá listamanninum. Þessar ungu kon- ur hafa allt aðra lífssýn en millistétt- arhjónin frá Englandi og innan skamms verður Estella fyrir miklum áhrifum frá þeim. PÍRAMÍDINN, andleg miðstöð, tekur til starfa í Dugguvogi 2, Reykjavík, laugardaginn 30. apríl og verður af því tilefni opnunar- hátíð, sem hefst ki. 14. I fréttatilkynningu segir, að meðal þeirra sem starfa í Píramídanum séu Ragnheiður Ólafsdóttir, sem er með áruteikningar og lesi úr þeim, hug- læknar séu Erling Kristinsson og Ellen Sveinsdóttir, að Guðríður Har- aldsdóttir lesi úr tarotspilum og talnaspeki, Anna Þormóðsdóttir lesi úr bolla og spilum, Ann Coupe, breskur sambandsmiðill, vinni á öll- um tíðnisviðum, breski miðillinn Fi- ona Surtees stjórni þróunarhringjum og hjálpi fólki að tengjast leiðbein- endum sínum. Innan Píramídans verður verslun Pálínu og Kristins með vörur tengdar andlegum málum. Þuríður Sigurðar- dóttir verður með svæðanudd og Stúdíó Hönnu Bjarkar Wium kynnir ilmolíunotkun (aromtheraphy).

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.