Morgunblaðið - 06.05.1994, Side 12

Morgunblaðið - 06.05.1994, Side 12
12 FÖSTUDAGUR 6. MAÍ 1994 MORGUNBLAÐIÐ Sjö ára bömfá hjálma KIWANISKLÚBBURINN Kald- bakur á Akureyri afhendir öllum börnum á Akureyri sem fædd eru 1987 reiðhjólahjálma í versl- unarmiðstöðinni Sunnuhlíð á morgun, laugardaginn 7. maí, en þar stendur nú yfir slysa- vamavika. Um 200 börnum verða að þessu sinni gefnir reið- hjólahjálmar og er þetta í fjórða sinn sem klúbburinn gefur öllum 7 ára börnum slíka hjálma. Böm úr skólunum norðan við á eiga að mæta á tímabilinu 10-16 en úr öðram skólum frá kl. 13-16. Greifa- torfæran GREIFATORFÆRAN verður haldin í Malargrúsunum ofan Akureyrar á morgun, laugardag, og hefst hún kl. 13.00. Einar Gunnlaugsson sem tvívegis hef- ur sigrað skilaði Greifamönnum bikamum með eftirsjá í vikunni, en kvaðst reyndar vera staðráð- inn í að sigra í þriðja sinn. Hádegis- tónleikar BJÖRN Steinar Sólbergsson organisti Akureyrarkirkju held- ur hádegistónleika i Akureyrar- kirkju á morgun, laugardaginn 7. maí, kl. 12. Á efnisskrá eru verk tengd páskum og uppstign- ingunni. Lesarar á tónleikunum era Viðar Eggertsson leikhús- stjóri og sr. Birgir Snæbjöms- son. Eftir tónleikana verður boð- ið upp á léttan hádegisverð í Safnaðarheimili Akureyrar- kirkju. Aðgangur er ókeypis. Vítaskota- keppni Á VÍMUVARNARDEGI Lions á íslandi sem er á morgun, laugar- daginn 7. maí, efna Lionsklúb- barnir á Akureyri til vítaskot- keppni í körfubolta fyrir nem- endur 8., 9. og 10. bekkjagrunn- skólanna í bænum. Hún hefst kl. 14.00 við Hamar, félagsheim- ili Þórs við Skarðshh'ð. Þegar sigurvegari hefur verið krýndur verður boðið til grillveislu. Útgáfutón- leikar í 1929 HLJÓMSVEITIN Blackout efnir til útgáfutónleika í skemmti- staðnum 1929 laugardagskvöld- ið 7. maí. Hljómsveitina skipa Jóna de Groote söngkona, Leifur Hammer gítarleikari, Hreiðar Júlíusson trommur og Stefán Sigurðsson bassaleikari. Húsið verður opnað kl. 23. AKUREYRI Byggingafulltrúi skorar á hönnuði og verktaka við Hjallalund 20-22 Bætt verði úr göllum í lofti til að forðast slys BYGGINGAFULLTRÚI Akureyrarbæjar hefur skorað á þá sem komu nálægt byggingu fjölbýlishúsanna við Hjallalund 20 og 22 að kanna í sameiningu nú þegar ástand allra lofta í húsunum, en komið hefur í ljós að múrfyllingar í raufum á samskeytum forspenntra steinsteyptra loftplatna eru með þeim hætti að stykki úr þeim hafa losnað og sprung- ur á samskeytum myndast víða. Neytendafélag Akureyrar og ná- grennis fór þess á leit við embætti byggingafulltrúa að mál þetta yrði kannað eftir að einn íbúi í húsinu tók um hálft kíló af múr niður úr lofti íbúðar sinnar en hann var laf- laus og við það að falla niður á gólf. Vildi félagið að fyrirbyggð yrði yfirvofandi hætta á slysum og jafnvel dauðsföllum í húsinu af þessum sökum. Tveir starfsmenn byggingafull- trúa hafa athugað loft nokkurra íbúa og leiddi skoðunin þeirra í ljós að full ástæða væri til að gera ráð- stafanir til að fyrirbyggja að múr- fyllingar í loftaplötum falli úr sam- skeytum þeirra. Komið í veg fyrir hrun Byggingafulltrúi hefur í bréfi til Húseigendafélagsins í Hjallalundi 20-22 lagj; fyrir eigendur íbúða í húsinu að bæta nú þegar úr þeim ágöllum sem eru á frágangi sam- skeytanna og fyrirbygggja þá hættu sem stafað getur af falli lausra múrfyllinga úr þeim. Þá hef- ur hann einnig sent verktaka, múrara, hönnuðum og steypustöð eða þeim sem hlut eiga að máli varðandi bygginguna bréf þar sem skorað er á þá að kanna ástand allra lofta í húsinu og einnig með hvaða hætti unnið var að múrfyll- ingunni og hver sé orsök framkom- ins galla. Vill byggingafulltrúi að lögð verði áhersla á að koma í veg fyrir hugsanleg slys af völdum hrans úr múrfyllingunni og skorar hann á aðila málsins að sinna nú þegar beiðni húseigenda um úrbæt- ur. Þá fer byggingafulltrúi fram á að skýrslu um skoðun, fyrirbyggj- andi aðgerðir og úrbætur verði skil- að fyrir 13. maí nk. Morgunblaðið/Jónas Skilja eftir sár í landinu Grýtubakkahreppi - Algengt er að farið sé á jeppum á snjó yfir Leirdalsheiði og í Fjörður og kemur ekki að sök meðan frost er í jörðu. Svo virðist sem jeppa- eigendur hafi ekki áttað sig á að komið ervor. Um síðustu helgi fóru a.m.k. þrír jeppar um svæðið og skildu eftir sig ljót för í land- inu og miklar skemmdir sem blasa við vegfarendum sem fara um þjóðveginn. Eftir að leiðinni var lokað í fyrravor fóru bílar um og stórsá á melum eftir för þeirra og munu þær skemmdir verða sjáanlegar á næstu árum en þær eru í Grenjárdal sem liggur frá Grenivík á móts við Trölladal. Aftur líf á Laugalandi Eyjafjarðarsveit - Nýju lífi hefur verið blásið í húsakynni gamla húsmæðraskól- ans á Laugalandi í Eyjafjarðarsveit en þar hefur í vetur verið starfandi þróunar- setur. Námskeið hafa verið haldin þar en markmiðið er að endurvekja margvíslegt gamalt handverk. Uppskera vetrarstarfs- ins var sýnd og kynnt almenningi á opnu húsi nýlega sem fjöldi fólks nýtti sér. Beiðni hefur borist frá ístex um að komið verði upp prjónahópi á þróunarsetrinu til að leggja fyrirtækinu lið en það annar vart eftirspurn eftir prjónavörum. Bryn- dís Símonardóttir veitir þróunarsetrinu forstöðu en þar verður starfsemi í gangi í allt sumar. Sólveig Klara Káradóttir er Morgunblaðið/Benjamín ein þeirra sem tekið hafa þátt í starfinu en hún er við vefstólinn og þá var Katrín Ulfarsdóttir önnum kafinn við að vefa mottu sem væntanlega mun prýða húsa- kynni Laugalands í framtíðinni en synir hennar, tvíburarnir Halldór Rafn og Úlfar Bjarki, fylgjast með mömmu sinni af mikl- um áhuga. Framsókn vill atvinnuskrifstofu Hyggst endurheimta forystuna FRAMSÓKNARFLOKKURINN stefnir að því að-endurheimta forystu sína í stjórn Akureyrarbæjar eftir kosningar. Meginmarkmið kosninga- baráttunnar verður að fá þann styrk sem þarf svo ekki verði fram hjá flokknum gengið við myndun meiri- hluta í bæjarstjóm Ákureyrar á næsta kjörtímabili. Flokkurinn stefnir að því að fella núverandi meirihluta og fá 5 menn kjörna í bæjarstjóm en hefur nú 4. Þetta kom fram í máli Jakobs Bjömssonar efsta manns á lista flokksins fyrir bæjarstjómarkosning- ar og bæjarstjóraefnis flokksins á blaðamannafundi í gær þar sem stefnuskrá listans var kynnt. Atvinnumálin skipa veigamikinn sess í stefnuskránni og sagði Jakob að áhersla yrði lögð á þann mála- flokk sérstaklega. Eitt af stefnumál- um flokksins er að stofna sérstaka atvinnuskrifstofu og ráða til starfa á henni 2-3 starfsmenn til að annast framkvæmd þeirra mála sem nefndir. samþykkir að fela skrifstofunni. Að- alhlutverk atvinnumálanefndar verði að fara í umboði bæjarstjómar með stjórn atvinnumála bæjarins og einn- ig að vera henni til ráðuneytis í at- vinnumálum almennt. „I því alvarlega atvinnuástandi sem við búum við er nauðsynlegt að skipuleggja atvinnumálin betur, töfralausnir era vissulega vand- fundnar, það vita menn, en við mun- um með öllum ráðum reyna að vinna bug á atvinnuleysinu," sagði Jakob. „Við höfum þá trú að fjölmargir möguleikar séu fyrir hendi sem þarf að nýta, það þarf að laða fram þann kraft sem býr í atvinnulífinu sjálfu.“ Frambjóðendur Framsóknar- flokksins telja mörkin á milli starf- semi Iðnþróunarfélags Eyjafjarðar, atvinnumálanefndar og jafnvel fleiri aðila sem koma nálægt atvinnumál- um óljós og vilja þau skýrari. Þannig yrðu Iðnþróunarfélaginu sköpuð tækifæri til að vinna í meira mæli að nýsköpun í atvinnumálum en nú er. „Það hefur ekki verið nægilega markvisst unnið í þessum málaflokki í heild," sagði Guðmundur Stefáns- son frambjóðandi flokksins.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.