Morgunblaðið - 06.05.1994, Qupperneq 40
40 FÖSTUDAGUR 6. MAÍ 1994
MORGUNBLAÐIÐ
Dýraglens
Ljóska
HEFURDUÞAOk TIUHUMNG.
UUU/A& éG STANOl ÞAKKA
OG AO ÞO ÆTrnPA£> ____
S/TJ/t t>Aé>
IT L00K5
LIKE THE
EIGHTH
HOLE AT
PEBBLE
BEACH..
Ovænt! Eg skreytti
matinn þinn með
litlum fána!
Lítur út eins og
áttunda holan á
Steinvöluströnd...
i:-:\
I 5URPKISE!
© 1994 Uníted Feature Syndicate. Inc
3-/6
SSjI DECORATED
tOUR. DINnER
Trl UilTH A LITTLE
V PLAö! ,
BREF
TÍL BLAÐSINS
Kringlan 1103 Reykjavík • Sími 691100 • Símbréf 691329
MENNTASKÓLINN á Akureyri.
Þakkað fyrir sig
Frá Hauki Sigurðssyni:
ÞESSA DAGANA er verið að
senda áskrifendum fimmta og síð-
asta bindið af Æviskrám MA-
stúdenta 1927-1973. Útgefandi
er Steinholt í Reykjavík. Þetta
bindi nær til árganganna 1969-
1973. Vel hefur tekist til með þetta
ritverk sem vert er að þakka.
Það var mjög eftirminnileg
stund í Akureyrarkirkju 17. júní
1983. Undirritaður var þá 25 ára
stúdent þegar ungur maður úr
hópi tíu ára stúdenta kvaddi sér
hljóðs og mæltist honum skörulega
þegar hann sagði að árgangur
hans ætlaði að gefa skólanum
æviskrár allra MA-stúdenta frá
upphafi til 1973. íslendingar hafa
ekki dugað vel að ljúka stórum
útgáfuverkum og ég neita því ekki
að fyrsta hugsun mín er ég heyrði
um þessa óvenjulegu gjöf var efi
um að verkinu yrði lokið. En allt
hefur það gengið framar öllum
vonum, bindin hafa borist áskrif-
endum með jöfnu millibili eftir að
fyrsta bindi kom 1988.
Ekki er hægt annað en dást að
þrautseigju þeirra MA-stúdenta
1973 að koma þessu verki frá sér.
Einkum þegar haft er í huga að
verkið hefur allt verið unnið í
aukavinnu, ritstjórn hefur senni-
lega ekki haft ráð á starfsmanni.
Verkið er þannig upp byggt að
fyrst er getið foreldra viðkomandi
og einnig bæði föður- og móður-
foreldra, fæðingardags þeirra og
-árs, starfa og búsetu. Hygg ég
að æði tafsamt hafí tíðum verið
að afla þessara staðreynda, marg-
ir látnir, ýmsir stúdentar búsettir
erlendis og hefur þá eflaust þurft
að leita í kirkjubækur ef vitneskja
lá ekki á lausu hjá ættingjum.
Síðan er getið náms- og starfsfer-
ils. Auðvitað hlýtur það alltaf að
verða nokkuð misjafnt hvað menn
vilja tíunda af slíku. Þá eru nefnd
félags- og trúnaðarstörf, ritstörf
og opinberar viðurkenningar.
Einnig tilgreindur maki og aðrir
barnsfeður og -mæður ef þeim er
til að dreifa. Þá er í lokin einn
skemmtilegasti þátturinn, skyld-
leiki við MA-stúdenta, en þar hafa
menn verið missnarpir að senda
inn upplýsingar eins og gengur
og gerist.
í slíku ritverki hlýtur alltaf að
verða nokkurt misræmi um efn-
isatriði. Hitt stendur eftir hversu
vel verkið hefur tekist. Bækurnar
eru í smekklegu bandi og prentun
öll falleg. Þá hefur mikil vinna
verið lögð í prófarkalestur, maður
sér varla nokkra stafvillu í þessu
mikla safni. Gera verður ráð fyrir
einhveijum staðreyndavillum og
með síðasta bindi fylgja nokkrar
leiðréttingar á blaði.
Oft má skynja að norðanstúd-
entar bera hlýjan hug til síns
gamla skóla. Skólinn var lengi það
lítill að samskipti nemenda urðu
oft náin og heimavist varð annað
heimili manna. Ég minnist heldur
ekki annars frá mínum skólaárum
en notalegt samband væri milli
kennara og nemenda. Ætla má
að lengi vel hafi allir nemendur
vitað nöfn á skólasystkinum sín-
um. En það hefur að sjálfsögðu
breyst þegar nemum tók verulega
að fjölga á sjöunda áratugnum.
En á móti því vinnur útskriftarat-
höfnin 17. júní sem er orðin að
sannkallaðri þjóðhátíð. Og þetta
ritverk verður enn til að styrkja
bönd norðanstúdenta.
Þá er ekki annað eftir en að
þakka stúdentum 1973 fyrir rit-
verkið. Sérstaklega ber að nefna
ritstjórann Gunnlaug Haraldsson,
safnvörð á Akranesi, sem verið
hefur ritstjóri alls verksins og
unnið sitt verk af stakri kost-
gæfni. Kannski verður einhver
framtakssamur árgangur til að
halda verkinu áfram?
HAUKUR SIGURÐSSON,
MA-stúdent 1958
Gagnasafn
Morgnnblaðsins
Allt efni sem birtist í Morgun-
blaðinu og Lesbók verður
framvegis varðveitt í upplýs-
ingasafni þess. Morgunblaðið
áskilur sér rétt til að ráðstafa
efninu þaðan, hvort sem er
með endurbirtingu eða á ann-
an hátt. Þeir sem afhenda
blaðinu efni til birtingar teljast
samþykkja þetta, ef ekki fylg-
ir fyrirvari hér að lútandi.