Morgunblaðið - 06.05.1994, Síða 44
44 FÖSTUDAGUR 6. MAÍ 1994
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK
Afmæli
Islendingar
í veislu Margit
Francis Bell úr
Nágrönnum látinn
►ÁSTRALSKI leikarinn Francis
Bell, sem lék pípulagningamann-
inn Max Ramsay í fyrstu átján
sjónvarpsþáttunum af Nágrönn-
um, fannst í vikunni látinn fyrir
utan byggingu í Auckland á Nýja
Sjálandi. Bell, sem var fimmtug-
ur, mun hafa látist af völdum
falls ofan úr byggingunni. Sam-
kvæmt upplýsingum lögregluyf-
irvalda hafði hann leitað lækn-
inga á geðdeild um nokkurt
skeið.
HÓPUR fólks frá frá Stokkhólmi sem klæðir sig í anda ísfólks-
ins þegar það hittist færði afmælisbarninu tréskúlptur að gjöf.
Fjör í veislunni
„Þetta var vægast sagt vel útil-
átið, því það var ekki nóg með að
hún byði okkur í veisluna heldur
borgaði hún einnig ferðirnar fyrir
okkur,“ sagði Reynir. „Veislan
stóð yfir frá kl. 19 til kl. 2 um
nóttina og þar var mikið um dýrð-
ir. Meðal skemmtiatriða var hópur
lítilla púka sem komu fram með
tilþrifum líkt og var við opnun
ólympíuleikanna í Lillehammer. I
hópnum var meðal annars dóttur-
sonur hennar. Einnig tók fjöl-
skylda hennar sig til og söng og
dansaði, m.a. rússnesk lög, en sjálf
segist Margit hafa verið Rússi í
fyrra lífi.
Bladkompaniet sem gefur bæk-
ur hennar út í Noregi gaf henni
samsvarandi 500 þúsund ísl.
króna, sem hún afhenti strax hús-
dýravinafélagi í Bergen. Sýnir það
hvaða hug hún ber til dýra.“
Er væntanleg í sumar
Margit Sandemo kom fyrst til
íslands árið 1988 og hefur komið
hingað á hveiju ári síðan. Hún er
einnig væntanleg í sumar í tengsl-
um við norska samkeppni um
bókaflokkinn Galdrameistarann.
Sá heppni kemur hingað í fylgd
Margit.
47 bækur haf verið gefnar út á
íslandi um ísfólkið og seldust að
jafnaði 6.000 eintök af hverri bók,
að sögn Reynis. Innan tíðar er
væntanleg 13. bókin af 15 um
Galdrameistarann.
TONYU HARDING
BOÐIÐ AÐ GERAST
ROKKSONGKONA
SKAUTADROTTNINGUNNI Tonyu Harding hefur aldrei staðið
eins margt til boða og eftir að hún játaði sig seka um að hafa
átt aðild að árás á keppinaut sinn Nancy Kerrigan í vetur. Tilboð-
in eiga það sameiginlegt að fjárupphæðirnar sem um er- rætt eru
alltaf verulegar.
Það nýjasta var sett fram sl. miðvikudag, en þá var henni boðið að
gerast söngvari í pönk-rokkhljómsveitinni „The white trash debutant-
es“ sem mætti útleggja Frumraun hvíta hyskisins. Þeir sem standa að
hljómsveitinni sveija og sárt við leggja að hér sé ekkert grín á ferð-
inni, hins vegar renna á mann tvær grímur þegar kemur í ljós, að hljóm-
sveitin samanstendur af 78 ára gamalli ömmu og þremur klæð-
skiptingum.
Hljómsveitarmeðlimir segjast vera að semja við lögfræðing
Tonyu og til að gera tilboðið enn meira
aðlaðandi hafa þeir samið lag tileink-
að Tonyu, „Don’t mess with Tonya
Harding“. Hins vegar vildu lögfræð-
ingar Tonyu ekkert segja um málið.
Peningar streyma að
Staðreyndin er sú að skauta-
drottningin fyrrverandi hefur aldrei
haft jafn mikla peninga milli hand-
anna og eftir að henni hefur verið
úthýst frá skautakeppni. Hún
hefur þegar samið um gerð sjón-
varpskvikmyndar sem fjallar um
feril hennar. Þá hefur hún komið
fram í ýmsum sjónvarpsþáttum,
bæði skemmti- og samtalsþátt-
um. Nýlega fékk hún boð frá Japan
um að verða atvinnuglímumaður og
var upphæðin tvær milljónir dollara
nefnd í því sambandi. Þá hefur tímarit-
ið Playboy óskað eftir samningi við hana
og fleira mætti nefna.
Sljörnudýrkun
Svo virðist sem bandarískt þjóðfélag hungri það
mikið í stjörnur, að sama er hvort viðkomandi
hafi leitt af sér gott eða slæmt. Þannig hafa aðdá-
endur sent fjöldamorðingjanum Jeffrey Dahmer
samsvarandi tæpri milljón isl. kr. og í könnunum
um vinsælasta fólkið hefur þurft að gera ráð fyrir
ýmsum ódæðismönnum á listum. Einnig má nefna
aðdáendahópa sem safnast hafa í kringum fólk
eins og Lorenu og John Bobbitt (hún skar undan
honum), Joey Buttafuco og Amy Fisher (hún gerði
tilraun til að myrða eiginkonu hans), Eric og Lyle
Menendez (sem myrtu foreldra sína) og fleiri mætti
nefna.
Ævisaga Miu
Farrow væntanleg
►NÆSTA verkefni leikkonunn-
ar Miu Farrow verður ekki kvik-
myndaleikur heldur hyggst hún
snúa sér að skráningu ævisögu
sinnar Woody Allen til mikillar
skelfingar, að því er sögur
herma. Bókin er að vísu stutt
komin en efniviðurinn virðist
nægur. „Ef heldur áfram sem
horfir verður þetta eins og
þriggja binda ævisaga Bertram
Russels áður en ég kemst að
unglingsárunum,“ sagði Mia fyr-
ir stuttu í samtali við tímaritið
Empire. Blaðamaðurinn ræddi
við hana á Irlandi meðan á tökum
myndarinnar „Widows Peak“
stóðu yfir. Hann gerir grín að
því að hefði hann þegið pund í
hvert skipti sem einhver bað
hann að nefna ekki Woody Allen
í samtalinu við Miu væri hann
orðinn ríkur maður. Mia ákvað
hins vegar að hafa dóttur sína
Dylan viðstadda til þess að
tryggja að blaðamaðurinn nefndi
ekki föður barnsins á nafn. Dylan
hefur þurft að leita sálfræðings
til að komast heil út úr skilnaðar-
máli foreldra sinna,
að því er Mia seg-
Sandemo
MARGIT Sandemo, höfundur
bókaflokkanna um ísfólkið og
Galdrameistarann, varð sjötug 23.
apríl. I tilefni afmælisins gaf Blad-
kompaniet út bókina Kjære Marg-
it! og norska pressan fjallaði í
máli og myndum um rithöfundinn.
í tilefni dagsins var haldin
um 150 manna veisla á hót-
eli í Fagernes. Meðal gesta
Pólveijar, Norðurlandabú-
ar auk íslendinganna
Reynis Jóhannssonar frá
bókaútgáfunni Reykholti
og Anna og Arngrímur
’*r~ Hermansson frá ferða-
skrifstofuni Addís, sem
hefur séð um ferðir Marg-
it hér á landi.
’***> v'
Margit ásamt eig-
inmanninum
Asbjorn Sandemo.
Þau hafa verið glft
í tæp 50 ár.
Stefanía
eignaðist
dóttur
FJÖLGUN varð í furstaætt-
inni í Mónakó síðastliðinn
miðvikudag, en þá eignuð-
ust Stefanía prinsessa og
Daníel Ducruet unnusti
hennar rúmlega ellefu
marka dóttur, sem nú hefur
fengið nafnið Pauline.
Henni virtist hafa legið á í
heiminn, því hennar var
ekki vænst fyrr en um miðj-
an mánuðinn. Stóri bróðir
Pauline, sem reyndar er
ekki nema sautján mánaða,
heitir Louis.
Stefanía og unnustinn
Reuter
/..
HASKÓLABIO
SÍMI22140
Háskólabíó
FRUMSYNING I DAG
UACKPEáT
Þeir ollu mesta æði sem runnið hefur
á æsku Vesturlanda. Heimurinn
hefur aldrei séð annað eins.
FOLK