Morgunblaðið - 14.05.1994, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 14.05.1994, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ MINIMINGAR LAUGARDAGUR 14. MAÍ 1994 39 SIGURÐUR ÓLAFSSON -I- Sigurður Ólafsson vélstjóri, * Hjarðarhaga 13, Reykjavík, fæddist 16. mars 1923 í Reykja- vík og ólst þar upp. Hann lést 20. apríl síðastliðinn. Sigurður var sonur hjónanna Unu Þor- steinsdóttur frá Kvöldroðanum í Reykjavík og Ólafs Sigurðssonar frá Núpi í Dýrafirði. Sigurður lauk járnsmíðanámi frá Stál- smiðjunni í Reykjavík 1942 og fékk síðar meistararéttindi í þeirri iðn. Vélstjóranámi lauk hann 1946 frá Vélstjóraskóla ís- lands. Að námi loknu hóf Sigurð- ur störf hjá Skipaútgerð ríkisins og sigldi á strandferðaskipum rikisins til ársins 1954 þegar hann gerðist yfirvélstjóri á drátt- arbátnum Magna við Reykjavík- urhöfn. Á Magna starfaði Sig- urður meðan það skip var í notk- un, en fór síðan til Hitaveitu Reykjavíkur og vann þar til síð- ustu áramóta er hann lét af störf- um. Sigurður kvæntist árið 1945 Guðrúnu Ástríði Ingvarsdóttur. Guðrún er dóttir Þórðar Ingvars Ásgeirssonar bónda frá Geitagili í Örlygshöfn og konu hans Bjar- neyjar Valgerðar Ólafsdóttur, þau hjón eru bæði látin. Guðrún og Sigurður eignuðust þijú böm, Ólaf múrarameistara, Bjarneyju Sigrúnu húsmóður og Ásgeir rafvirkjameistara, öll búsett í Reykjavík. Útför Sigurðar var gerð frá Neskirkju mánudaginn 2. maí. ÞAÐ VAR miðvikudaginn 20. apríl að faðir minn varð bráðkvaddur. Það varð mér mikið áfall því daginn eft- ir átti að ferma dóttur mína. Um morguninn höfðu pabbi og mamma komið heim til mín til að hjálpa okk- ur við að undirbúa fermingardaginn. Þau fóru síðan heim fljótlega eftir hádegið. Þennan morgun fórum við feðgar í snúninga vegna undirbún- ings dagsins og ekki minnist ég þess + Helga Guðmundsdóttir fæddist á Patreksfirði 13. september 1908. Hún lést í Reykjavík 16. apríl 1994. For- eldrar hennar voru Anna Helga- dóttir og Guðmundur Ólafur Þórðarson. Útför Helgu var gjörð frá Fossvogkirkju föstu- daginn 22. apríl sl. að viðstöddu fjölmenni. VIÐ ANDLÁT okkar kæru félags- systur, frú Helgu Guðmundsdóttur, hefur enn einn hlekkurinn brostið í keðju okkar Hvítabandskvenna. Þeim „fullorðnu" Hvítabandskon- um fækkar óðum, sem settu sér- stakan svip á fundi félagsins með nærveru sinni og þátttöku í félags- störfum. Það er alltaf sárt að sjá á bak þeim, sem maður hefur virt og átt góða samleið með. En það er lögmál lífsins, að heilsast og kveðjast. Þeg- ar merku mannlífi lýkur verður eyða í hugum þeirra, er til þekktu. Hún Helga skilur svo sannarlega eftir skarð, sem vandfyllt verður. Það var mikið vinfengi með Helgu og þeim systrum Arndísi og Þuríði Þorvaldsdætrum, svo og Jónu Er- lendsdóttur mágkonu þeirra. Sem gestur þessara ágætu félaga kom hún á fundi félagsins, og trúlega hefur það orðið kveikjan að því, að hún gjörðist félagi í Hvítabandinu. Með glæsimennsku sinni og ljúfri framkomu vakti hún strax athygli okkar. Heima á Patreksfirði lét Helga félagsmál til sín taka. Hún starfaði mikið í kvenfélaginu Sif og var m.a. formaður félagsins um árabil. Virkan þátt tók hún í störfum slysa- varnafélagsins fyrir vestan. Eftir að þau hjónin, Helga og Adolf Hall- grímsson, ioftskeytamaður, fluttu til Reykjavíkur, störfuðu þau bæði með félögum í Barðstrendingafé- að hægt væri að sjá að neitt amaði að pabba, en hann var sú manngerð sem kvartar aldrei. Um morguninn ræddum við um sumarbústaðinn sem var þeim mömmu báðum kær. Það stóð til hjá pabba og mömmu að fara austur á Þingvelli á föstudaginn því þar voru mörg verkefni sem pabbi hafði áformað að vinna og undirbúið. Það var segin saga að þegar ein- hver í fjölskyldunni þurfti á aðstoð að halda þá var pabbi alltaf reiðubú- inn að hlaupa undir bagga og veita alla þá aðstoð og hjálp sem hann gat í hvaða formi sem var. Jafn bóngóð- an og hjálplegan pabba held ég að sé ekki hægt að hugsa sér. Hann studdi alltaf dyggilega við bakið á bömum sínum og fjölskyldum þeirra. Hann var alltaf reiðubúin til að leggja lið ef hann mögulega gat. Það var myndaður bridsklúbbur í fjölskyldunni sem kom saman hálfs- mánaðarlega yfir veturinn og spil- aði. Mér fínnst eins og það sé allt búið núna því pabbi var driffjöðrin og tengiliður okkar hi'nna. Ég held að við verðum að halda þessu áfram í hans anda með það fyrir augum að hafa gaman af þessu og koma á góðra manna fundi. Nú þegar mamma er orðin ein þurfum við að sjá svo um að hún fái notið lífsins eins vel og unnt er og hún eigi marga ánægjudaga. Elsku, besti pabbi minn, ég á þér mikið að þakka. Ég á um þig margar góðar minningar sem ég mun varðveita um ókomna framtíð. Ég bið algóðan Guð að styrkja mörrimu og okkur öll á þessum erfíðu tímamótum. Ásgeir Sigurðsson. Ó, guðir, þér, sem okkur örlög vefíð svo undarleg. Það misstu allir allt, sem þeim var gefið, og einnig ég. (Steinn Steinarr) laginu. Þegar hún svo gjörðist fé- lagi í Hvitabandinu var það ómetan- legur fengur fyrir félagið að fá slíka konu sem Helgu til starfa. Helga sat í stjórn Hvítabandsins, var vara- formaður og gegndi einnig störfum formanns. Á 95 ára afmæli félags- ins, árið 1990 var hún gjörð heiðurs- félagi. Það var mjög gott að starfa með Helgu. Hún var raunsæ og réttsýn í skoðunum sínum, samvinnuþýð og jákvæð, ekki síst þegar rætt var um málefni til styrktar þeim sem stuðn- ings þurftu með. Helga var blíð og hjartahlý, sú manngerð, sem ekki mátti neitt aumt sjá eða vita af, án þess að reyna að bæta úr því böli. Helga og Adolf voru mjög sam- rýnd og samhent hjón. Hann lést 21. ágúst 1992. Við fráfall hans missti Helga einstaklega natinn og umhyggjusaman lífsförunaut. Adolf sýndi á ýmsan hátt að hann var velunnari félagsins okkar, og því voru kynni okkar af þeim öðlings- manni með ágætum. Við, sem vorum svo lánsamar að kynnast Helgu og starfa með henni að félagsmálum, svo og með öðrum mikilhæfum Hvítabandskonum, sem nú eru horfnar sjónum okkar, höfum for- sjóninni margt að þakka. Þetta voru dýrmætar og lærdómsríkar sam- verustundir sem við áttum. Á næsta ári minnumst við Hvíta- bandsins 100 ára. Við, sem nú erum starfandi, getum ekki sýnt okkar kæra félagi meiri sóma en að reyna að feta í fótspor þeirra baráttu- kvenna, sem gengnar eru, en unnu svo lengi sem stætt var að félags- málum af hugsjón og fórnfýsi. Á kveðjustund þökkum við sóma- konunni Helgu Guðmundsdóttur fyr- ir samfylgdina og biðjum Guð að blessa hana og ástvini hennar alla. F.h. Hvítabandskvenna, Arndís E, Þórðardóttír. Þær voru ófáar stundirnar sem við afi og amma eyddum saman á Þingvöllum. Þar kenndi afi mér allt sem ég kann um veiðar enda afi minn hin mesta aflakió og var eins- konar alfræðiorðabók í veiðifræðum. Á Þingvöllum leið afa vel. Þar gat hann bardúsað allan daginn, en þannig mun ég muna best eftir hon- um. Ef ég ætti í nokkrum orðum að lýsa afa myndi ég lýsa honum sem rólegum manni, sem var sinn eigin herra, og spekingi. Hann var vinur allra og hafði áhuga á því sem var að gerast í kringum mig og alla aðra sem voru honum nánir. Hann hafði mikinn áhuga á íþróttum, stundaði sundlaugarnar og fótboita- leiki. Hann var öðlingsmaður mikill og hans verður sárt saknað. í hjarta mínu er mikil reiði, mikil sorg, en þó mest af öllu mjög mikill söknuður. Hví þurfti afi að deyja núna? Það er mjög erfitt að frétta það einn sólríkan veðurdag að afí sé dáinn. Hann sem ekki einu sinni var veikur. Ég hafði verið að tala við hann þarna um morguninn og það lá svo vel á honum. Hann var að spauga við mig um það hvort ég væri ein af þeim fjórða hverjum nemanda sem félli á samræmdupróf- unum í ár. Það var fyrir tilstuðlan hans afa að ég fór að læra tónlist og get ég aldrei þakkað honum nægilega vel fyrir það. Ef tónleikar stóðu fyrir dyrum mátti alltaf treysta á að afí kæmi og hefði gaman af, sama hvað var á dagskránni. Þó hafði ég mest gaman af því að spila fyrir hann á píanóið mitt heima í stofu. Þó að afi væri ekki sprenglærður tónlist- arsérfræðingur hafði hann alltaf góðar ráðleggingar á reiðum hönd- um; Ég þakka afa allar þær sælu stundir sem við áttum saman og ég er fegin að ég kynntist honum eins vel og ég gerði. Eg á mínar minning- ar um hann og þær fær enginn tek- ið frá mér. Elsku amma, góður guð styrki þig á þessum erfiðu tímum. Guðný Inga Ásgeirsdóttir. Engin orð geta tjáð þá hryggð og samúð, sem við viljum votta Guð- rúnu, börnum þeirra hjóna og barna- börnum, vegna þessa óbætanlega missis. Tapið er sárt, því hver maður sem Sigurð þekkti fann að þar fór sannur og traustur maður. Sigurður ólst upp á Grettisgöt- unni, næst eistur í hópi fimm systk- ina. Elst var Ásta og á eftir Sigurði komu Gyða, Gunnar og Ólafur. Þá voru erfiðir tímar og strax í barn- æsku okkar skall heimskreppan á. Auraráð voru því takmörkuð og þeg- ar langar fjarverur heimilisföður á togara bættust við, komu mannkost- ir „stóra bróður“ best í ljós, þeir kostir sem fylgdu honum ævilangt. Eins og ætíð var og ætíð verður komu upp ótal vandræði og óhöpp í græskulausum æskuleikjum okkar. Þá var gott í fjarveru föður að geta rakið raunir sínar fyrir Sigga. Hæg- ur og rólegur gaf hann sér tíma til að hlusta á mann, og þótt hann væri eins og jafnan fátalaður var líkt og áhyggjurnar og vandræðin leystust upp í nálægð hans og einlæg samúð hans létti öllum áhyggjum. Mikið var þá gott að sitja hjá stóra bróður. Þessum eiginleika hélt Siggi alla ævi og oft sá ég fullorðna menn, sem höfðu jafnvel ekki þekkt hann mjög lengi, leita ráða hjá honum nákvæmlega á sama hátt. En árin liðu. Táningsárin tóku við og Sigurður fór að æfa fijálsíþróttir og hlaup og sýndi þar bæði keppnis- skap og dugnað. Alla ævi fylgdist hann af áhuga með flestum íþrótta- atburðum og aldrei sá ég þennan jafnlynda mann æsa sig upp nema uppáhaldsliðið hans Valur ætti í ein- hverjum erfiðleikum, sérstaklega þegar Albert kunningi hans og átrúnaðargoð lék með. Ein mesta gæfustund var þegar hann giftist eftirlifandi konu sinni Guðrúnu Ástríði Ingvarsdóttur. Þeg- ar þau Guðrún og Sigurður giftust þurftu þau (eins og ungt fólk hefur alltaf þurft) að eignast eigið hús- næði. Og fljótlega hófu þau bygg- ingaframkvæmdir á Hjarðarhaga 13 hér í bæ og eftir mikið erfiði og ótrúlega mikla vinnu komu þau sér upp stórri og góðri íbúð. Auðvitað var allt í skuldum, en böm þeirra hjóna, hvort öðru myndarlegra, gerðu stritið létt og þá taldi Sigurð- ur sig ríkan mann. Sigurður átti smá sumarbústað við Þingvallavatn og árum saman unnu hjónin við að stækka hann og laga, þau breyttu líflitlum gróðri úthaga í blómagarð og þar gerði Guðrún næst- um því kraftaverk. Þangað komu barnabörnin í heimsókn til þeirra hjóna og þegar hann kenndi þeim og lék sér við þau var erfitt að sjá hver skemmti sér best. Hitt leyndist engum hve börn hændust að honum og hvað bömunum hans „afa“ þótti innilega vænt um hann. Góði bróðir, kallið kom ailt of fljótt og allt of snöggt. Á þriðjudagskvöldi sátum við í gufubaði og röbbuðum saman. Meðal annars um hvað gott þú ættir núna að geta dvalið lang- dvölum í bústaðnum, sem kominn væri í gott lag og þú hættur vinnu. Um miðnættið á heimleið af spila- kvöldi ræddum við um það lán, hve vel þú hefðir náð þér eftir hættuleg veikindi og uppskurð, sem þú gekkst undir fyrir allmörgum ámm. Nú væri ekkert því til fyrirstöðu að dvelj- ast sumarlangt við Þingvallavatn. Ekki grunaði mig að þetta væri okkar síðasta samverustund. Síð- degis daginn eftir kom elsti sonur þinn og sagði mér að þú værir látinn og það var reiðarslag, sem skilur eftir opið sár hjá okkur hjónunum. Kæri bróðir, við þökkum þér fyrir samfylgdina í þessi mörgu ár og biðjum guð að gefa Guðrúnu og allri ykkar fjölskyldu styrk til að bera þennan óbærilega kross. Ég veit að sá guð, sem lætur enga efnisögn hverfa að eilífu, en aðeins umbreyt- ast, mun þaðan af síður láta manns- sálina hverfa. Þess vegna veit ég, kæri bróðir, að einhvern tíma og einhvers staðar eigum við öll eftir að hittast á ný. Hvíl í friði, kæri bróðir. Gunnar. HELGA G UÐMUNDSDÓTTIR Frá Guöspeki- fólaginu Ingólfwtrastl 22. Áskrtftarsfml Ganglera er 39673. Aðalfundur Islandsdeildar Guð- spekifélagsins verður haldinn í húsi félagsins í dag, laugardag- inn 14. maí, kl. 15.00. Dagskrá: Venjuleg aðalfundar- störf. Lagabreytingar. Spíritistafélag íslands Anna Carla Ingva- dóttir, miðill, verður með fyrir- huguð námskeið í andlegum fræð- um. Byrjað frá grunni. Námskeiðin standa í 12 stundir og' taka 3 daga. Hámarksfjöldi 10 til 12 manns. Reynt verður að fara út í per- sónulegar leiöbeiningar fyrir hvern og einn. Verð 4.500 kr. Nánari upplýsingar veittar í sima 40734. Opið kl. 10-22 alla daga. Euro og Visa. Hvítasunnukirkjan Ffladelfía Aðalfundur safnaðarins verður í kvöld kl. 19.00. Dagskrð vikunnar fromundan: Sunnudagur: Almenn samkoma kl. 16.30. Ræðumaður Hafliði Kristinsson. Miðvikudagur: Skrefið kl. 18.00. Sjónvarpsupptaka kl. 20.00. auglýsingor Dagskrá hvítasunnumóts í Reykjavík dagana 20.-23 maí: Föstudagur 20. maí: Samkoma í umsjón ungs fólks kl. 20.30. Laugardagur 21. maí: Fræðsla kl. 13.00-16.00. „Hlut- verk mitt“. Almenn samkoma kl. 20.30. Mikil tónlist. Sunnudagur 22. mai: Samkoma frá miðvikudagskvöldi send út á RÚV kl. 11.00. Almenn samkoma kl. 16.30. Samvera kl. 21.00 þar sem saga hvitasunnufjölskyldunnar er sögð í máli og myndum. Mánudagur 23. maí: Útvarpsguðsþjónusta kl. 11.00. Það eru allir hjartanlega vel- komnir að taka þátt f þessum samkomum. FERÐAFELAG ÍSLANDS MÖRKINNI 6 ■ SÍMI 68253’* Dagsferðir sunnud. 15. maí: 1) Kl. 10.30 Botnssúlur. Gengið frá Hvalfirði á vestursúluna. Frá- bært útsýni, skemmtileg göngu- leið. 2) Kl. 13.00 Fjölskylduganga að Tröllafossi (í Leirvogsá). Gengið frá Hrafnhólum að Tröllafossi. Létt gönguleið. Verð kr. 1.100. Frítt fyrir börn að 15 ára aldri. Brottför frá Umferðarmiðstöö- inni, austanmegin og Mörkinni 6. Miðvikud. 18. maí - lýðveld- isgangan, 5. áfangi. Sandskeið - Draugatjörn. Brottför kl. 20.00 (um 1’/> klst. ganga). Lengri ferðir um hvítasunnu: 1) Snæfellsnes - Snæfellsjökull 2) öræfajökuil - Skaftafell 3) Skaftafell - Öræfasveit 4) Þórsmörk 5) Tindfjöll - Emstrur - Þórsmörk. Fimmvörðuháls. Brottför laugar- dag (21. maO kl. 8.00. Farmiðar og upplýsingar á skrifstofu F,l. Opiðhús Þriðjudaginn 17. maí verður kynningarfundur í risinu, Mörk- inni 6, kl. 20.30. Kynntar verða ferðir um hvítasunnuna. Farar- stjórar svara fyrirspurnum. Kaffi á könnunni. Ferðafélag (slands. UTIVIST Hallveigarstig 1 • sinn 614330 Dagsferð sunnua. 15. maf Kl. 10.30 Lýðveldisgangan Rifjaðir verða upp atburðir árs- ins 1934 í Rangárþingi. M.a. verður farið í Fljótshlfð, komið við á Breiöabólsstað og gengið með Markarfljóti að nýju brúnni. Lagt af stað frá Ingólfs- torgi, komið við á BSÍ og Árbæj- arsafni. Verð kr. 2000/2200, fritt fyrir börn 15 ára og yngri í fylgd fullorðinna. Útivistarferðir um hvfta- sunnu 20.-23. maí: Snæ- feHsnes - Snæfellsjökull Gengið verður á Snæfellsjökul og farið um áhugaverða staði á Snæfellsnesi. Gist I svefnpoka- plássi á Arnarstapa. Fimmvörðuháls Gist verður I Fimmvörðuskála og gengið á skíðum út á Eyja- fjalla- og Mýrdalsjökul. Básar við Þórsmörk Fjölbreyttar gönguferðir og góð gistiaðstaöa. Útivist. —- —■
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.