Morgunblaðið - 14.05.1994, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR14.MAÍ 1994 43
FRÉTTIR
Fjölum-
dæmaþing
Lionsfélaga
LIONSFÉLAGAR hér á landi
halda dagana 13.-14. maí sitt 39.
fjölumdæmisþing. Fundarstaður-
inn er íþróttahúsið í Þorlákshöfn
og Hótel Örk, Hveragerði. Við
þingsetningu léku 10 íslensk ung-
menni sem valin hafa verið í Nor-
rænu hljómsveitina spila. „Orkest-
er Norden“ er sameiginlegt verk-
efni Lionshreyfingar Norðurland-
anna í samvinnu við Samband
norrænufélaganna á Norðurlönd-
um. Strax að loknum tónleikunum
hófst sjálft fjölumdæmisþingið
þar sem Lionsmenn ræða þaú
verk sem þeir eru að ljúka, verk-
efni sem framundan eru, auk al-
mennra málefna hreyfingarinnar.
■ KÓPA VOGSSKÓLI og For-
eldrafélag Kópavogsskóla efna
til fjölskylduhátíðar sunnudaginn
15. maí í tilefni 45 ára afmælis
skólans og árs íjölskyldunnar.
Hátíðin hefst í Kópavogsskóla kl.
13 og lýkur kl. 18. Á þeim tíma
verður starfrækt kaffihús. Þar
mun foreldrafélagið annast sölu
veitinga á vægu verði og nemend-
ur flytja tónlist og sitthvað fleira.
í íþróttahúsi kl. 14 verður
skemmtidagskrá. Þar munu nem-
endur sýna dans, íþróttir o.fl. og
Skólahljómsveit Kópavogs leikur.
Skemmtidagskráin í íþróttahúsinu
verður endurtekin kl. 16. í skóla-
portinu verður komið fyrir ýmsum
leiktækjum.
■ 25. LANDSÞING Slysa-
varnafélags íslands er haldið í
Reykjavík dagana 13.-15. maí
nk. Björgunarverðlaun verða af-
hent á þinginu. Á landsþinginu
verður fyrst og fremst rætt um
málefni Slysavarnafélags íslands
og má þar nefna m.a. tillögu að
breyttum lögum félagsins. Gert
er ráð fyrir að tæplega 200 full-
trúar víða af landinu sæki þingið.
■ FYRRI hluta lýðveldis-
göngu Útivisfar lýkur nk. sunnu-
dag 15. maí. Þá verða teknir fyr-
ir atburðir ársins 1934. Farið hef-
ur verið mánaðarlega frá áramót-
um og rifjaðir upp atburðir sem
gerðust á hundrað ára tímabili frá
1894 til 1944. Á lýðveldishátíðinni
á Þingvöllum 17. júní tekur Úti-
vist þátt í dagskrá þjóðhátíðar-
nefndar. Sunnudag 15. maí verða
rifjaðir upp merkir atburðir í
Rangárvallasýslu árið 1934 undir
leiðsögn fróðra manna. Lagt verð-
ur af stað frá Ingólfstorgi kl.
10.30 með viðkomu á Umferðar-
miðstöðinni og við Árbæjarsafn.
Frítt fyrir börn 15 ára og yngri
í fylgd með fullorðnum.
■ ODDUR Albertsson, skóla-
stjóri í Reykholtsskóla, heldur
sunnudaginn 15. maí kl. 16 erindi
í Norræna húsinu sem hann
nefnir Menntun: Baráttan gegn
blekkingu. Oddur Albertsson hef-
ur verið skólastjóri í Reykholts-
skóla í 2 ár og hefur próf í heim-
speki og kennslufræðum. Hann
hefur starfað við lýðháskóla og
kynnt sér alþýðumenningu á
Norðurlöndum áður en hann hóf
núverandi starf. Að loknu erind-
inu verða almennar umræður.
Allir eru velkomnir og aðgangur
ókeypis.
■ ALÞJÓÐLEGUR fjölskyldu-
dagur er sunnudaginn 15. maí.
Af því tilefni munu félagasamtök
í Hafnarfirði verða með uppá-
komur víðsvegar um bæinn. í
fréttatilkynningu segir að Hafn-
aríjarðarbær muni bjóða bæjarbú-
um frítt í sund og fría veiði í
Hvaleyrarvatni og að í hádeginu
verði efnt til grillveislu á plönun-
um fyrir framan Þjóðkirkju og
Hafnarborg.
■ KVENNALISTINN í Kópa-
vogi hefur opið hús í dag, laugar-
daginn 14. maí, kl. 10-13 í
Hamraborg 7. Frambjóðendur
Kvennalistans í Hafnarfirði koma
í heimsókn, Ulla Magnússon
kynnir SOS-barnaþorpin á Ind-
landi og frambjóðendur Kvenna-
listans í Kópavogi verða á staðn-
um. Kvennalistinn í Kópavogi efn-
ir til fjölskyldugöngu sunnudag-
inn 15. maí. Lagt verður af stað
kl. 13 frá kosningaskrifstofu
Kvennalistans, Hamraborg 7. Á
laugardag verður Kvennalistinn í
Kópavogi með sölubás í Kolaport-
inu kl. 10-16.
■ NÁTTÚRUGRIPASAFNIÐ
á Seltjarnarnesi gengst fyrir
fuglaskoðun fyrir alla fjölskyld-
una laugardaginn 14. maí kl.
13.30 á sunnanverðu Seltjarnar-
nesi. Komið verður saman við
Bakkatjörn. Öllum er heimil þátt-
taka og er fólki bent á að taka
með sér sjónauka ef kostur er.
■ / BISKUPSTUNGUM verður
ýmislegt um að vera fyrir fjöl-
skyldur á alþjóðlegum degi fjöl-
skyldunnar. Fjölskyldumessa
verður í Skálholtskirkju kl. 11
árdegis, þar munu börn syngja
og aðstoða við helgihaldið. Kl.
14-18 verður samfelld dagskrá í
Reykholti. Sýningar á listmunum
barna og fullorðinna verða í leik-
skóla, grunnskóla Bergholti fé-
lagsmiðstöð aldraðra og í félags-
heimilinu Aratungu. Ýmis dægra-
dvöl og leikir verða utanhúss og
innan s.s. boltaleikir, borðtennis,
boðhlaup og sund. Skemmtiatriði
og almennur söngur verða í Ara-
tungu og þar verða einnig kaffi-
veitingar. í Lukkuleik fjölskyld-
unnar eru margir vinningar í boði.
Sérstaklega blómum skreytt sam-
göngutæki, Tungna- Skreppur
verður í förum á svæðinu.
■ PER Ariansen, lektor við
Háskólann í Osló, heldur fyrirlest-
ur í Félagi áhugamanna um heim-
speki laugardaginn 14 maí kl. 14
í stofu 101 í Odda. í fréttatil-
kynningu segir að í fyrirlestrinum
fjalli Per Ariansen um heimspeki
umhverfisins, þ.e. heimspekilegar
spurningar sem vakna í kringum
umhverfismál með einhveijum
hætti. Einnig fjallar hann um
hvernig verðmætamat og um-
hverfismál tengjast og hvemig
umhverfisvandamál snerta sið-
ferðileg vandamál. Fyrirlesturinn
verður fluttur á ensku.
■ Á VEGUM Fóstrufélags ís-
lands fór fram atkvæðagreiðsla í
júní 1993 þar sem fóstrur völdu
á milli starfsheitanna fóstra og
leikskólakennari. Niðurstaðan
varð sú að yfirgnæfandi meiri-
hluti valdi starfsheitið leikskóla-
kennari. í lögum um leikskóla
sem samþykkt voru frá Alþingi
7. maí 1994 er starfsheitið leik-
skólakennari komið í stað fóstra
áður. Á aðalfundi Fóstrufélags
íslands, sem haldinn verður í dag,
14. maí, í Skúturmi í Hafnarfirði,
mun fóstrustéttin breyta starfs-
heiti sínu og einnig heiti á stéttar-
félaginu.
Vordagar haldnir í
Húsasmiðjunni
VORDAGAR standa nú yfir í Húsa-
smiðjunni, en þar er viðskiptavinum
fyrirtækisins boðið upp á vörukynn-
ingar, auk skemmtunar og uppá-
koma af ýmsu tagi. Þetta er í fjórða
sinn sem Húsasmiðjan efnir til vor-
daga.
A vordögum er lögð megin-
áhersla á að kynna fyrir fólki ýmis-
legt sem viðkemur sumarbústöðum
og garðvinnu. Við Húsasmiðjuna í
Skútuvogi verða til sýnis fimm hús
sem eru hálf- eða fullkláruð. Þar
eru einnig leiktæki fyrir garðinn
ásamt ýmsu sem snýr að garðinum
og viðhaldi hans.
í tengslum við dagana verður
efnt til getraunaleiks þar sem
nokkrir ferðavinningar verða í verð-
laun.
- kjarni málsins!
sr
Sjáanlegur
árangur
eftir 15 daga
Byrjaðu strax!
Cellulite burt!
einkunn
'mnr
Þorsteinn Sæberg Sigurðsson
skólastjóri Arbæjarskóla
Alfreð Eyjólfsson
skólastjóri Austurbæjarskóla
Helgi Arnason
skólastjóri Rimaskóla
Steinunn Armannsdóttir
skólastjóri Alftamýrarskóla
Hjalti Jónasson
skólastjóri Seljaskóla