Morgunblaðið - 24.06.1994, Page 1
64 SÍÐUR B/C
140. TBL. 82. ÁRG.
FÖSTUDAGUR 24. JÚNÍ 1994 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Hernaðar-
íhlutun Frakka
hafin í Rúanda
Ekki er ljóst hvort tekst að
tryggja liðsstyrk frá fleiri ríkjum
París, Kigali. Reuter.
FYRSTU frönsku herdeildirnar héldu til Rúanda í gær, og hófst þar
með umdeild hernaðaríhlutun Frakka í landinu. Markmiðið er að
koma í veg fyrir að fleiri óbreyttir borgarar verði myrtir. Að sögn
fransks embættismanns var hermönnunum vel tekið þar sem þeir
komu. Frakkar reyna nú ítrekað að fá stuðning bandamanna sinna
við aðgerðina. Einungis Senegal hefur heitið að leggja til mannafla.
Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna
samþykkti í gær, að Frakkar sendu
herlið til Rúanda til að stöðva mann-
drápin í landinu. Talið er að um
hálf milljón manna hafi látið þar
lífið. Það var svo klukkan 13.00 í
gær að „Græna aðgerðin" hófst.
Franskir hermenn fóru yfir landa-
mærin frá Zaire til bæjarins Cyang-
ugu, þar sem um sjö þúsund manns
af tútsíættbálknum mun vera hald-
ið föngum á íþróttaleikvangi.
Mættu engri mótspyrnu
Alls var áætlað að um 600 menn
færu til Rúanda í gærkvöldi, en um
helgina muni um tvö þúsund bæt-
ast í hópinn. Uppreisnarmenn i
Föðurlandsfylkingu Rúanda, sem
er aðallega skipuð tútsímönnum,
höfðu hótað því að franskir her-
menn yrðu meðhöndlaðir sem inn-
rásarlið og drepnir, en hermennirn-
ir sem fóru til Rúanda í gær mættu
engri mótspyrnu af hálfu uppreisn-
armanna.
Franskir stjómarerindrekar
þrýstu í gær á bandamenn sína
með að veita stuðning við aðgerð-
irnar. Loforð um eiginlegan liðs-
auka í Rúanda hafa ekki fengist
nema frá Senegal, sem mun senda
200 manna lið í kjölfar frönsku
hermannanna í dag eða á morgun.
Frakkar segjast binda vonir við að
á leiðtogafundi Evrópusambands-
ins, sem hefst á Korfu í dag, fáist
ioforð um frekari liðsstyrk.
ítalir og Egyftar, auk Guinea-
Bissau og Ghana, hafa sagst reiðu-
búnir að senda mannskap, en hafa
þó ekki gefið afgerandi heit þar um.
Bandaríkjamenn, Belgar, Hollend-
ingar, Portúgalir og Spánverjar
munu leggja til flutningavélar, auk
lyfjabirgða.
IAEA fundar um skilyrði sem setja skuli N-Kóreu
Bandaríkjastjóm viU
viðræður sem fyrst
Washington, Vín. Reuter.
FULLTRUI Bandaríkjastjórnar fundaði í gær með yfirmönnum Alþjóða
kjarnorkumálastofnunarinnar (IAEA) um hvaða skilyrði Norður-Kóreu-
menn verði að uppfylla til að sannfæra þjóðir heims um að þeir vinni ekki
að smíði kjarnorkusprengju. N-Kóreumenn hafa lagt til að viðræður þeirra
og Bandaríkjamanna hefjist 8. júlí í Genf. Dee Dee Myers talsmaður
Bandaríkjaforseta, sagði að Bandaríkjamenn vildu hefja viðræður sem
fyrst, en óljóst hvort þeir samþykkja dagsetninguna.
Norður-Kóreumenn tilkynntu í
fyrradag að þeir hefðu frestað
kjarnorkuáætlunum sínum og varð
það til þess að Bandaríkjamenn
hafa slegið á frest undirbúningi
refsiaðgerða í öryggisráði Samein-
uðu þjóðanna. Þrátt fyrir þetta
virtist afstaða Norður-Kóreu-
manna blendin, því í fréttum frá
opinberri fréttastofu þeirra segir
að stjórnvöld gagnrýni IAEA harð-
lega fyrir að troða á rétti Norður-
Kóreu.
Fundað fyrir luktum
dyrum í Vín
Robert Gallucci, aðstoðarut-
anríkisráðherra Bandaríkjanna,
átti fund í gær með Hans Blix,
aðalframkvæmdastjóra IAEA, og
fleiri starfsmönnum stofnunarinn-
S-Afríka
aftur í SÞ
New York. Reuter.
SUÐUR-Afríka hlaut aftur sæti á
allsheijarþingi Sameinuðu þjóðanna
(SÞ) í gær eftir 20 ára fjarveru.
Suður-Afríku var vísað af alls-
hetjarþinginu árið 1974 vegna að-
skilnaðarstefnu minnihlutastjórnar
hvítra og hefur sætisröð merkt
landinu staðið auð þar til í gær.
Sendinefnd Suður-Afríku gekk
til sætis í þingsalnum eftir að álykt-
un um að aflétta brottvísun landsins
úr „samfélagi þjóðanna" hafði verið
samþykkt.
ar, fyrir luktum dyrum í höfuð-
stöðvunum í Vín. Gallucci er sér-
legur fulltrúi Bandaríkjaforseta
vegna deilunnar um kjarnorku-
áætlun Norður-Kóreu. Að sögn
talsmanns IAEA hafa Norður-
Kóreumenn ekki enn haft sam-
band við stofnunina.
Svipað eftirlit og í
S-Afríku og írak
Samkvæmt heimildum í Vín
hyggst IAEA koma á svipuðu eft-
irlitskerfi og í Suður-Afríku og
írak og sagði Blix að því yrði kom-
ið á í áföngum. Suður-Afríkubúar
undirrituðu slíkan samning árið
1991 og í apríl sl. staðfesti Blix
að tilkynnt hefði verið unt allt
auðgað úraníum sem fyrirfyndist
í landinu. Taldi hann það dæmi
um vel heppnað eftirlit. Samein-
uðu þjóðirnar komu á eftirliti í
írak í kjölfar Persaflóastríðsins
1991 og í febrúar var tilkynnt að
allt geislavirkt efni, sem tilkynnt
hefði verið um, hefði verið flutt
úr landi.
Reuter
*
Vonir Itala
glæðast
ÍTALIR sigruðu Norðmenn með
einu marki gegn engu í E-riðli
Heimsmeistarakeppninnar í
knattspyrnu í gær. Norðmaðurinn
Lars Bohinen á hér í höggi við
Roberto Baggio í fyrri hálfleik.
Dino Baggio skoraði mark ítala.
■ Tíu ítalir / B2.
Reuter
Rútskoj situr við skriftir
FYRRUM varaforseti Rússlands, Alexander Rútskoj, er nú tek-
inn til við að skrifa bók. Ekki fylgir sögunni hvers konar bók
hann er að skrifa, en heimilispáfagaukurinn fylgist nteð. Rútskoj
er talinn vera sá maður sem helst getur sameinað stjórnmálaand-
stæðinga Borisar Jeltsíns, forseta Rússlands.
Hættaá
stj órnarkreppu
Hata von-
asteftír
stuðningi
sósíalista
Tókýó. Reuter.
TSUTOMU Hata forsætisráðherra
Japans mistókst í gær að semja
við sósíalista um stuðning við
minnihlutastjórn hans. Er talið að
fátt geti komið í veg fyrir að til-
laga um vantraust á stjórn hans
verði borin upp
á þingi.
Hata ræddi
við Tomiichi
Murayama
leiðtoga sósíal-
ista í tæpa
hálfa klukku-
stund í gær en
fundurinn var
árangurslaus,
að sögn náins
samverka-
manns forsæt-
isráðherrans.
Ráðgert var að
leiðtogarnir
myndu freista TsutomuHata
þess að ræðast við að nýju í dag
en stjórnarleiðtogar gátu þó ekki
staðfest að svo færi.
Fyrr í gær rauf stærsti stjórnar-
andstöðuflokkurinn, Ftjálslyndi
flokkurinn, níu vikna vopnafrið á
þingi með því að leggja fram tillögu
um vantraust á stjórn Hata. Þar
segir að stjórn hans standi ótraust-
um fótum, skorti bæði stöðugleika
og kjark til að koma málum til leið-
ar og hefði mistekist að afla sér
trausts á alþjóðavettvangi.
Óljóst er hvenær vantrausts-
tillagan kemur til atkvæða en taki
sósíalistar afstöðu gegn henni
stendur Hata hana af sér. Takist
honum ekki að fá Murayama til
liðs við sig er stjórnin að líkindum
fallin og ný stjórnarkreppa blasir
við.