Morgunblaðið - 24.06.1994, Qupperneq 16
16 FÖSTUDAGUR 24. JÚNÍ 1994
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Reuter
Klippum
beitt á O. J.
Simpson
Los Angeles. Reuter.
FYRIRTÆKI í Los Angeles,
sem dreifir myndum með ýmsu
fræðslu- og kennsluefni, hefur
neyðst til að snyrta sumar
þeirra dálítið til. Er ástæðan
sú, að í þeim kemur fram
íþróttamaðurinn og kvik-
myndaleikarinn O.J. Simpson
en hann er nú sakaður um að
hafa myrt tvær manneskjur.
Kris Winter, forstjóri Mentor
Media, segir, að raunar sé búið
að selja nokkur þúsund eintök
af myndbandinu með Simpson
og svo einkennilegt sem það
sé, þá virðist flestir vilja halda
því.
Sjónvarpsstöðin KCET í Los
Angeles ætlar að sýna myndina
á laugardag og þá með Simp-
son, sem áður var hampað sem
brosandi ímynd alls hins besta
en er nú í fangelsi sakaður um
að hafa myrt fyrrverandi eigin:
konu sína og vin hennar. í
myndinni kemur fram margt
frægt fólk og fyrir það allt er
lögð ákveðin siðferðileg próf-
raun.
Eins og fyrr segir hafa nokk-
ur þúsund eintök af myndinni
verið seld samtökum og skólum
í Bandaríkjunum og 13 öðrum
löndum en stjörnumar tóku
ekkert fyrir vinnu sína.
BÁTKÆNA með hóp Manilabúa
flýtur framhjá olíunutningabíl,
sem drepist hefur á í vatns-
flaumnum sem verið hefur á
Filippseyjum undanfarna daga.
Nær vatnið fullorðnum í mitti í
VÍTALÍ Tsjúrkín, sérlegur sendi-
maður Rússlandsstjómar í Júgóslav-
íu fyrrverandi, varaði í gær við alvar-
legum afleiðingum þéss, að stríðsað-
ilar í Bosníu höfnuðu nýrri, alþjóð-
legri friðaráætlun. Sagði hann, að
áætlunin væri „síðasta tækifærið til
að semja um frið“.
Tsjúrkín sagði á fréttamanna-
fundi á grísku eynni Korfú, að stríðs-
aðilar í Bosníu virtust ekki enn hafa
tekið pólitíska ákvörðun um að reyna
að semja, heldur vildu þeir halda
áfram að beijast. „Hafni þeir á hinn
bóginn þeim tillögum, sem nú er
verið að vinna að, þá munu þeir
komast að því fullkeyptu," sagði
Tsjúrkín. Hann er á Körfú í fylgd
með Borís Jeltsín, forseta Rúss-
lands, og Andrei Kozyrev utanríkis-
ráðherra þar sem þeir munu undir-
rita samninga um samstarf Rúss-
lands og Evrópusambandsins.
Samkvæmt friðaráætluninni, sem
Bandaríkin, Rússland og Evrópu-
sambandið eru að vinna að, er gert
ráð fyrir, að múslimar og Króatar
Flóð á
Filippseyjum
fái 51% lands í Bosníu en Serbar
49%. Þeir ráða hins vegar 72% lands-
ins nú. Búist er vioð, að áætlunin
verði formlega samþykkt á fundi
iðnríkjanna sjö í Napólí 8.-10. júlí
en Rússar, sem eru þar ekki á með-
al, munu þó eiga þar sinn fulltrúa.
Kozyrev, utanríkisráðherra Rúss-
lands, sagði á miðvikudag, að Rúss-
þeim hverfum höfuðborgarinn-
ar sem lægst liggja. Hafa yfir-
völd neyðst til að flytja fjölda
fólks á brott frá heimilum sinum
vegna þess að ár hafa flætt yfir
bakka sína.
ar kynnu að fallast á, að vopnasölu-
banni á múslima í Bosníu yrði af-
létt, höfnuðu Serbar friðaráætlun-
inni, og Warren Christopher, utan-
ríkisráðherra Bandaríkjanna, sagði,
að höfnuðu múslimar einir áætlun-
inni, myndi Bandaríkjastjórn bregð-
ast við með því að draga úr refsiað-
gerðum gegn Serbíu.
Ný áætlun um Bosníu
„síðasta tækifærið“
Korfú. Reuter.
TVÍBURAR í hópi flóttamanna sem yfirgáfu Sarajevo í fyrradag.
Fornmunaránið í Moesgárd á Jótlandi vekur upp vondar minningar
Munir geta
lent í bræðslu
Kaupmannahöfn. Morgunblaðið.
RÁNIÐ á fornmununum frá Mo-
esgárd á Jótlandi hefur vakið upp
óþægilegar minningar í Danmörku.
Árið 1802 var merkustu fornminj-
um Dana, Gullhornunum svoköll-
uðu, rænt og þau brædd upp. Nú
eru menn hræddir um að sama
muni verða um hinn næstum
tveggja kílóa þunga gullhring, sem
rænt var fyrir nokkrum dögum.
Önnur hugmynd er svo að hringur-
inn hafi verið pantaður af safnara,
en furðu vekur að auk hans var
stolið nokkrum öðrum munum, sem
ýmist voru forngripir eða afsteyp-
ur. En spurningin er einnig hvernig
eigi að koma í veg fyrir svona rán
og hvort aukin gæsla muni leiða til
aukinnar hörku ræningjanna.
Tryggingarfélagið, sem tryggði
sýningarmunina hefur lofað um
1,25 milljónum íslenskra króna í
verðlaun fyrir upplýsingar, sem
leiða til að hlutirnir verði endur-
heimtir. Sú upphæð er heldur hærri
en hugsanlega væri hægt að fá
fyrir gullið á svörtum markaði.
Þó Tisso-hringurinn sé einn af
megin fornmunum Dana stenst
hann þó engan samanburð við Gull-
hornin. Hringurinn er talinn frá því
um 900, en fannst 1977. Eins og
svo margir aðrir danskir fornmunir
fannst hann, þegar bóndi nokkur
var að plægja akur sinn. Gullhornin
eru hins vegar talin vera frá 5. öld.
Þegar þeim var rænt úr dýrgripa-
geymslu kóngsins voru þau brædd
að vörmu spori. Ef Tisso-hringnum
var stolið vegna gullsins er senni-
legt að hann fari sömu leið. Það
er varla mögulegt fyrir þjófana að
koma honum í verð í heilu lagi, því
til þess er hann alltof þekktur. Hins
vegar gæti hann hafa verið pantað-
ur af safnara úti í heimi.
Þegar þjófarnir höfðu brotið sér
leið í gegnum múrsteinsveggi safns-
ins liðu aðeins fjórar mínútur þar
til menn voru komnir á vettvang.
Sá tími dugði þeim til að brjóta
nokkra sýningarbása, taka hringinn
og nokkra aðra muni, bæði forn-
gripi og afsteypur, svo þeir virðast,
ekki hafa verið sérlega vel að sér
um innihald básanna. Líklega hefur
viðvörunarkerfíð þó ekki farið í
gang um leið og þeir komust inn,
heldur hafa þeir skriðið eftir gólfinu
og þar með komist fram hjá ljós-
skynjurunum. Kerfið fór hins vegar
af stað, þegar þeir lögðu til atlögu
við básana.
Stolnu hlutirnir voru á sýningu,
sem nýlega var opnuð á safninu og
átti að sýna ýmsa merka muni, sem
almenningur hefur fundið af tilvilj-
un. Ekkert var út á öryggisgæslu
sýningarinnar að setja. Danska
þjóðminjasafnið hafði lánað ýmsa
muni á sýninguna og samþykkt þær
öryggisráðstafanir, sem þar voru.
Sýningin var ekki vöktuð allan sól-
arhringinn, þar sem safnið hefur
ekki fjármagn til þess.
Stjórn Moesgárd hefur nú
áhyggjur af að þeim veitist erfitt
að fá lán frá öðrum söfnum, því
þetta er í annað skiptið á tveimur
árum að stolið er úr safninu, sem
liggur í skóglendi utan við Arósa.
I fyrra var stolið eftirgerð gullhorn-
anna, sem voru þar á sýningu, en
þau fundust aftur. Þá var einnig
lofað verðlaunum fyrir að finna
gripina. Maður nokkur gaf sig fram
og sagðist hafa fundið þau, en hann
var síðan ákærður fyrir að hafa átt
þátt í ráninu á þeim. Eftir þetta
var eftirlitskerfið bætt og til þess
varið sem samsvarar 2,5 milljónum
íslenskra króna. En það dugði ekki
til í þetta skiptið. Danskir safna-
menn segja að ástandið sé almennt
gott á dönskum söfnum, hvað ör-
yggi varðar, en þó sé ómögulegt
að sjá við þjófum, sem leggi á sig
að rannsaka alla möguleika á rán-
um. Sumir eru auk þess hræddir
við að hert gæsla leiði til að þjófar
muni fremja vopnuð rán, þar sem
mannslífum gæti verið stofnað í
hættu. Aðrir vilja hækka fundar-
laun fyrir gripina.
Efnahags-
batií
Finnlandi
AUKNING varð á innanlands-
framleiðslu í Finnlandi um 1,6%
á ársgrundvelli fyrstu þijá
mánuði þessa árs og er það í
fyrsta sinn frá árinu 1990 sem
efnahagsbati verður. Finnskur
efnahagur hefur orðið illa úti
vegna hruns Sovétríkjanna en
fjórðungur útflutnings á níunda
áratugnum var til nágrannans
í austri.
Giscard íhu g-
ar framboð
VALERY
Giscard
d’Estaing,
fyrrum forseti
Frakklands,
kvaðst í gær
ekki útiloka
framboð í for-
setakosning-
unum á næsta
ári. Giscard, sem er 68 ára og
leiðtogi Lýðræðissambandsins
(UDF), var forseti frá 1974 til
1981.
Fagna friðar-
samstarfi
PÓLSK og rúmensk stjórnvöld
fögnuðu í gær fréttum um að
Rússar hefðu undirritað samn-
ing um friðarsamstarf við Atl-
antshafsbandalagið. Sögðu þau
hann mikilvægt skref til að
koma á jafnvægi í Evrópu.
Sex slasast í
nauðlendingu
ÞOTA frá United Airlines nauð-
lenti í gær í Toronto er eldur
kom upp í einum hreyfli. 285
manns voru um borð og slösuð-
ust sex er vélin var rýmd.
Samdráttur
hjá Rothmans
BRESKI vindlingaframleiðand-
inn Rothmans tilkynnti í gær
að hann hefði ákveðið að loka
verksmiðjum sínum í Hollandi
og Þýskalandi í hagræðingar-
skyni. Jafnframt tilkynnti fyrir-
tækið um jákvæða rekstrarþró-
un þrátt fyrir minni hagnað á
milli ára en verið hefur.
Fay sakaður
um gróðafíkn
YFIRVÖLD í
Singapore
neituðu því í
gær að Mich-
ael Fay hefði
verið pyntaður
er hann var
hýddur í fang-
elsi í Singap-
ore fyrir að
hafa úðað
málningu á bíla. Segja yfirvöld
að hann hyggist græða stórfé
á því að selja kvikmyndarétt
að sögu sinni.
Missti hand-
legg í sirkus
TVEGGJA ára gamalt barn
missti annan handlegginn og
slasaðist illa á hinum er það
teygði sig inn í búr tígons, af-
kvæmi ljóns og tígrisdýrs, í
sirkus í Austurriki í gær.