Morgunblaðið - 24.06.1994, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 24. JÚNÍ 1994 17
ERLENT
Ekkí borið skugga á
samskipti landanna
Antonio Badini, sendi-
— —
herra Italíu á Islandi,
telur að lykillinn að betri
samskiptum þjóðanna
felist í menningarsam-
skiptum, eins og fram
kemur í viðtali Urðar
Gunnarsdóttur.
„ÞRÁTT fyrir að samskipti þjóð-
anna séu góð og ekki hafi borið
skugga á þau, teljum við að enn
megi bæta þau,“ segir Antonio
Badini, sendiherra Ítalíu á íslandi,
með aðsetur í Ósló. Badini kom
hingað til lands í margþættum til-
gangi, til að vera viðstaddur há-
tíðahöld á Þingvöllum í tilefni 50
ára afmælis íslenska lýðveldisins,
til að veita viðtöku íslensk-ítalskri
orðabók sem út kom á þriðjudag,
vegna afhendingar háþrýstiklefa
sem er til lækninga á Borgarspítal-
anum, til viðræðna við rektor Há-
skóla íslands og til að bæta enn
samskipti þjóðanna, fyrst og
fremst í tengslum við menningar-
mál.
Þetta er önnur ferð Badinis til
Islands, hingað kom hann í fe-
brúarmánuði sl. til að afhenda
embættisbréf sitt. Badini segir
ferð sína nú mun árangursríkari
enda hafi honum gefist tími til
setja sig betur inn í málefni land-
anna tveggja á því tæpa hálfa ári
sem liðið er.
„Ég tel að lykillinn að betri
samskiptum þjóðanna og varan-
legri, felist í menningarsamskipt-
unum. Með því tekst okkur að ýta
undir ferðalög á milli landanna,
þau auka skilning þjóðanna hvorr-
ar á annarri og það
getur svo ýtt undir
enn frekari viðskipti/
Það munum við án efa
leggja áherslu á þegar
frá líður en nú eru það
fyrst og fremst menn-
ingarsamskipti. Við
höfum t.d. lagt mikla
áherslu á tengsl skóla,
annars vegar Háskóla
íslands og hins vegar
háskólanna í Flórens,
Genúa, Pavia og Si-
enna. Samstarfið við
Flórens og Sienna er
nú þegar hafið, í júlí
fer Ágúst Einarsson,
frá viðskipta- og hagfræðideild
Háskóla íslands, til Sienna til að
kynna sér hvernig mögulegum
samskiptum deilda háskólanna
geti verið háttað. Þá eru kennara-
skipti á milli háskólans hér og
háskólanna í Sienna og Flórens
hafm, auk þess sem ítalskur lektor
kennir nú við Háskóla íslands,"
sagði Badini.
Hann telur íslenskrítalska orða-
bók, eftir Paolo Tucci, sem út kom
í gær hjá bókaforlaginu Iðunni,
vera mikilvægt skref í átt að frek-
ari samvinnu háskólanna, og
kveðst vonast til þess að ekki verði
þess lengi að bíða að ítölsk-íslensk
orðabók komi út. Tungumála-
kunnátta sé besta leiðin til að
auka og bæta samskipti landa og
grundvöllur þess að þjóðirnar
kynnist tungumálum hver annarr-
ar.
Sjóherinn styrkir
háþrýstiklefa
Á mánudag var tekinn formlega
í notkun háþrýstiklefi á Borgar-
spítalanum sem ítalir hafa gefið
íslendingum en kostnaði við rekst-
ur hans er skipt á milli íslands
og Ítalíu. Eru það
fyrst og fremst einka-
fyrirtæki, auk ítalska
sjóhersins, sem greiða
fyrir klefann. Verður
svo til áramóta 1996
en þá verða íslensk
stjórnvöld að taka
ákvörðun um fram-
haldið. Að sögn Bad-
inis er fyrst og fremst
að þakka áhuga ít-
alsks læknis, Calce-
donios Gonzales, sem
fékk mikinn áhuga á
því að íslendingar
fengju háþrýstiklefa í
kjölfar kynna við ís-
lenska lækna á læknaráðstefnu.
Segir Badini að samstarfið um
klefann, sem hófst fyrir rúmu ári,
með minni klefa, hafi gefist mjög
vel og að það kunni að ýta undir
enn frekara samstarf á sviði
læknavísindanna.
Viðskipti í jafnvægi
Viðskipti á milli _ landanna
tveggja eru í jafnvægi, íslendingar
flytja aðallega fisk og kísilgúr til
Ítalíu en flytja aðallega inn vélar,
bíla, matvæli og aðra neysluvöru
frá Ítalíu.
Fjöldi ítalskra ferðamanna hef-
ur farið yfir 5.000 manns á ári
en var eitthvað minni á síðasta
ári. „Það hefur komið mér á óvart
hversu vel ítalskir ferðamenn eru
kynntir hér og hversu víða þeir
hafa farið, ég kom í Vík í Höfða-
brekku um helgina og þar voru
tveir af sex ferðamönnum frá ítal-
íu. í Vestmannaeyjum blöktu fán-
ar þeirra landa sem flestir ferða-
mennirnir voru frá, við hún, og
ítalski fáninn var þeirra á meðal.
Það er náttúrufegurðin og fram-
andleikinn sem dregur þá hingað,“
sagði Badini.
Antonio Badini
BORÍS Jeltsín Rússlandsforseti umkringdur fréttamönnum við kom-
una til Korfu á Jónahafi.
Borís Jeltsín
seimii' við ESB
Korfu. Reuter.
BORÍS Jeltsín Rússlandsforseti
kom í gær til grísku eyjunnar
Korfu til þess að undirrita sam-
starfssamning Rússa við Evrópu-
sambandið (ESB) en leiðtogafund-
ur þess hefst á Korfu í dag.
Jeltsín sagði að samkomulag
Rússa og ESB væri sögulegt og
myndi verða til þess að treysta
viðskiptaleg, efnahagsleg og póli-
tísk tengsl þessara aðila. „Það
gerir ráð fyrir samstarfi tveggja
jafnrétthárra aðila á grundvelli
gagnkvæmra hagsmuna,“ sagði
Jeltsín. Hann sagði að samkomu-
lagið tæki tillit til þess að Rússar
gengju í gegnum efnahagslegt
breytingaskeið.
Jeltsín sat óformlegan kvöld-
verð með leiðtogum ESB-ríkjanna
í gærkvöldi en gert var ráð fyrir
að hann undirritaði samstarfssam-
komulagið árla í dag. Af hálfu
ESB undirrita það Jacques Delors
forseti framkvæmdastjórnarinnar
o g leiðtogar sambandsríkjanna 12.
I föruneyti Jeltsíns til Korfu
voru einnig Andrej Kozyrev utan-
ríkisráðherra Rússlands og Vítalí
Tsjúrkín aðstoðarutanríkisráð-
herra og sérlegur fulltrúi Rússa í
málefnum fyrrverandi sambands-
ríkja Júgóslavíu.
Harðnandi
árásir
á Aden
Kúveit. Reuter.
ELDFLAUGUM og sprengikúlum
var í gær skotið á borgina Aden í
Suður-Jemen, þegar norðanmenn
gerðu hörðustu sókn sína á borgina
frá því stríðið braust út. Læknar á
sjúkrahúsi í Aden sögðu um 130
manns hafa særst og fallið fyrir
hádegi í gær. Fórnarlömb ófriðarins
kæmu á sjúkrahúsið í tugatali.
Haft var eftir Abdel-Rahman al-
Jifri, varaforseta Suður-Jemen, á
miðvikudag, að um 200 manns hafi
fallið og um 700 særst í árásum
norðanmanna á borgina undan-
farna viku.
„Sjúkrahúsið ræður ekki við
þetta. Særðir liggja á gólfinu í an-
dyrinu. Þetta er villimennska,"
sagði læknir á sjúkrahúsi í Aden,
þat' sem lyfjabirgðir, vatn og sjúkra-
rúm eru orðin af skornum skammti.
Alþjóðasamtök Rauða Krossins
sögðu í yfirlýsingu í gær að tala
óbreyttra borgara sem hafa orðið
fyrir barðinu á stríðinu í Jemen
væri mikið áhyggjuefni.
íbúar í Aden sögðu að harðir
bardagar hafi geysað á vígstöðvum
norðan við borgina. Þá hefðu
sprengikúlur lent á flugvellinum,
sem norðanmenn ráðast á daglega
til þess að koma í veg fyrir að her-
flugvélar sunnanmanna komist í
loftið. Einnig hefði sprengjum verið
varpað á höfnina, sem er eina opna
samgönguleiðin til og frá borginni.
---------\
NÓATÚN
VERÐHHUN
á folaldakjöti
meðan bkgðir endast
NÓATÚN
Nóatún 17 — S.617000, Rofabæ 39 — S. 671200, Laugavegi 116 — S. 23456,
Hamrabong 14, Kóp. — S.43888, Furugrund 3, Kóp. — S. 42062,
Þverholti 6, Mos. — S. 666656, JL-húsinu vestur í bæ — S. 28511,
Kleifarseli18 —S. 670900
)