Morgunblaðið - 24.06.1994, Blaðsíða 20
20 FÖSTUDAGUR 24. JÚNÍ 1994
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Huliðs-
vættirí
Slunkaríki
SÝNING á myndum Erlu Stefáns-
dóttur hefst í Slunkaríki á ísafirði
á Jónsmessu föstudaginn 24. júní.
Þar verða 24 vatnslitamyndir sem
lýsa verum sem Erla fann þegar
hún fór um ísaijörð með Kolbrúnu
Leifsdóttur landslagsarkitekt til að
vinna að huliðsvættakorti fyrir
þetta svæði.
í fréttatilkynningu segir að Erla
búi yfir mjög sérstæðum hæfileik-
um og næmi, hún sjái og skynji
margt sem öðrum er hulið. „Hún
segist sjálf túlka innra líf á bams-
legan og einfaldan hátt með mynd-
um sínum, annars hafi hún það starf
að kenna bömum á píanó og full-
orðnum á lífíð. Hún ber djúpa ást
og virðingu fyrir náttúmnni og seg-
ir að ef fólk gerði sér almennt grein
fyrir lífsmagni hennar og þeim ver-
um sem byggja landið með okkur,
myndum við lifa í betri samhljómi
við okkur sjálf og jörðina.
Sýningin í Slunkaríki er opin
fímmtudaga til sunnudaga kl. 16-18
og henni lýkur sunnudaginn 17. júlí.
Listahátíð í dag
Dieter Roth sýnir í Nýlistasafn-
inu, John Greer í Gallerí 11, Sig-
urður Guðmundsson á Sólon Is-
landus, Hja Kabakov í sýningar-
salnum Annarri hæð, Rudy Antio í
Gallerí Úmbm, Kristján Guð-
mundsson í Gallerí Sævars Karls
og Joel Peter Witkin á Mokka.
Á Kjarvalsstöðum stendur yfír sýn-
ingin íslensk samtímalist en Lista-
safn íslands speglar tímabilið frá
alþingishátíð til lýðvelsisstofn-
unnar. íslandsmerki og önnur
súlnaverk Siguijóns Ólafssonar
em í safni hans og verk Jóns Engil-
berts í FÍM-salnum og í Norræna
húsinu. í sama húsi em einnig verk
sex ungra gullsmiða. Leifur Kald-
al gullsmiður sýnir í Stöðlakoti og
loks er ný finnsk glerlist í Ráðhúsi
Reykjavíkur. í Ásmundarsal sýna
íslenskir akrkitektar hugleiðingar
sínar um Mannvirki-landslag-
rými.
Dagskrá Klúbbs Listahátíðar á
kaffíhúsinu Sólon íslandus heldur
áfram. í kvöld leikur Skárra en
ekkert
MÓTETTUKÓR Hallgrímskirkju.
Söngför Mótettukórsins um Mið-Evrópu
Hljómdiskar
á þrotum eftir
óskabyijun
MÓTETTUKÓR Hallgrímskirkju
syngur í dag á opnunartónleikum
Hljómbogans, sönghátíðar á „Wi-
ener Festwochen“ í Vínarborg.
Söngför kórsins um Mið-Evrópu
hófst í Bonn á þjóðhátíðardegi Is-
lendinga og strax fyrsta kvöldið
vom keyptir upp hljómdiskamir
sem teknir höfðu verið með í ferð-
ina. Hér fylgir frásögn Gísla Sig-
urðssonar af upphafí hennar.
Ferðin hófst 17. júní með þjóð-
söngnum í íslenska sendiráðsgarð-
inum í Bonn, borginni þar sem
Klais-orgel Hallgrímskirkju var
hannað og smíðað. Þama voru
saman komin helstu stórmenni úr
íslensk-þýsku viðskiptalífi í norð-
urhluta Þýskalands, yfírmenn
Flugleiða og ferðamálaráðs, náms-
menn, íslendingar búsettir í
grenndinni, sendinefnd Þjóðleik-
hússins, með Haf Ólafs Hauks
Slmonarsonar á leiklistarhátíð í
borginni, og hinn sérstæði hópur
Þjóðyeija sem gengur undir nafn-
inu íslandsvinir, áhugasamir menn
með glampa í augum og „Die
Edda“ og Wagner á vörum í bland
við perlur íslenskrar náttúm sem
þeir hafa heimsótt á ótal ferðum
sínum til íslands.
Hörður Áskelsson stjórnaði
kómum í nokkrum ættjarðarlögum
og leit eftir því að kórfélagar létu
ekki bjóða sér annað en ávaxta-
safa og sódavatn því að í miðri
veislu var hann rokinn með hópinn
í Munsterkirkjuna í hjarta borgar-
innar þar sem átti að haida fyrstu
tónleika ferðarinnar um kvöldið. Á
meðan síðustu möppudýrin úr
þýska stjórnkerfinu héidu frá
vinnu og veltu fyrir sér yfírvofandi
flutningi skrifræðisbáknsins til
Berlínar hitaði kórinn upp í kirkj-
unni og beið þess með eftirvænt-
ingu hvort einhver kæmi að hlusta
þetta kvöld.
Mótettukór Hallgríms-
kirkjuer í tónleikaför
um Mið-Evrópu og hér
segir Gísli Sigurðsson
bókmenntafræðingur
frá upphafí hennar.
Og viti menn, þegar dró að aug-
lýstum tónleikatíma dreif að fólk
úr öllum áttum og hálffyllti kirkj-
una. Á efnisskránni voru, að lokn-
um þjóðsöngnum í tilefni dagsins,
útsetningar nokkurra íslenskra
tónskálda á þjóðlögum við Passíu-
sáima Hallgríms Péturssonar,
Heyr himna smiður og Til þín,
Drottinn hnatta og heima eftir
Þorkel Sigurbjömsson, Ave Maria
eftir Hjálmar H. Ragnarsson, og
síðasta verkið fyrir hlé; nýsaminn
Óður til kærleikans eftir Pál Pamp-
hicler Pálsson við stef úr Fyrra
Kórinþubréfi Páls postula, sem
kórinn frumflutti í "or á Listahátíð
í Reykjavík og vakti ekki minni
hrifningu nú en þá. Eftir hlé fengu
áheyrendur tækifæri til að hlýða
á kunnuglegra efni úr sínum
heimshluta; þýskar og franskar
mótettur frá tímum barokks og
rómantíkur. Þær féllu ekki síður í
góðan jarðveg en íslenska dag-
skráin og eftir tvö aukalög tók
Hörður Áskelsson þann kost að
láta hópinn ganga syngjandi út á
torg þar sem hann hélt áfram með
léttari dagskrá á meðan uppnumd-
ir tónleikagestir keyptu nær upp
hljómdiskabirgðir kórsins sem
höfðu verið ætlaðar fyrir alla ferð-
ina.
Léttari tónn
Eftir konsertinn streymdi fólk
að Herði og óskaði honum til ham-
ingju með þennan létta og hreina
tón sem honum tækist að laða fram
úr söngfólki sínu og væri svo ólík-
ur hinum þunga þýska söngstíl.
Ýmsir höfðu á orði að þýskir kórar
gætu margt að þessu lært — og
með það voru þeir roknir að fylgj-
ast með opnunarleik heimsmeist-
aramótsins í knattspyrnu þar sem
Þjóðveijar áttu í brösum með lið
Bólivíu sem voru íslenska iandslið-
inu lítil fyrirstaða á Laugardals-
vellinum um daginn eins og menn
muna.
Kvöldið eftir söng Mótettukór-
inn í Kristskirkju í Freiburg, sex
klukkutímum sunnan við Bonn í
Svartaskógi, og naut þar frábærr-
ar gestrisni hins þekkta Bach-kórs
borgarinnar. Orgelleikarinn
Hannfried Lucke kom til móts við
kórinn frá Liechtenstein. Hann var
aðeins þrítugur að aldri en hefur
þegar unnið til alþjóðlegra verð-
launa fyrir orgelleik sinn og spilað
á hljómleikum og upptökum beggja
vegna Atlants- og Kyrrahafs; gerði
meira að segja ferð til íslands
síðastliðið haust og tók þar upp
hljómdisk með hinu nýja Klais-org-
eli Hallgrímskirkju. Lucke spilaði
með kórnum í sálumessu Frakkans
Maurice Duruflé (1902-1986),
sem bættist nú við dagskrána á
kostnað íslenska hlutans, Inga Rós
Bragadóttir, sópran frá Vínarborg,
og Michael Jón Clarke, baritón frá
Akureyri.
Bach-kórinn hafði skipulagt allt
út í hörgul og kynnt tónleikana
rækilega í blöðum og útvarpi.
Þýska ríkisútvarpið sendi tækni-
menn sem tóku konsertinn upp til
útsendingar og á eftir fór allt á
sömu leið og í Bonn; öllum flytjend-
um var rækiiega fagnað. Menn
hrifust af hljóm kórsins og ná-
kvæmni áður en þeir keyptu leif-
arnar af hljómdiskunum frá Bonn;
sumir gerðu líka ráðstafanir til að
útvega sér nótur af íslensku verk-
unum til flutnings með þýskum
kórum. Meðlimir Bach-kórsins
dáðust sérstaklega að því að allt
nema Sálumessan væri sungið án
undirleiks — sem þeir töidu aðeins
á færi þrautþjálfaðra sönghópa —
og kórinn þakkaði fyrir sig með
nokkrum eftirlætislögum áður en
rokið var í símann til að panta
aukaskammt af hljómdiskum frá
íslandi til að senda í veg fyrir
kórinn í Vínarborg.
Við bjóðum 15 gerðir af eldhúsviftum. Þrjár breiddir: 50, 55
eða 60 cm. Hvítar, svartar eða stál. Þú getur valið um
„venjulegar" (frá kr. 6.990,-), hálfinnbyggðar (frá kr. 11.950,-),
með útdregnum glerhjálmi (frá kr. 11.950,-) hálf-háfformaðar
(frá kr. 23.620,-), til innbyggingar í háf (frá kr. 8.090,-) o.fl.
TURBO vifturnar fást 2ja, 3ja eða með stiglausum hraða, og
hámarksafköstin eru 280-510 m3 áklst., eftir gerðum.
Ofangreint verð miðast við
staðgreiðslu.
Kolsía (fyrir innblástur) kostar
kr. 930,- aukalega.
/rOmx
HÁTÚNI6A REYKJAVÍK SlMI (91)24420
Nýjar bækur
■Bolli Gústafsson vígslubiskup
á Hólum, hefur tekið saman á bók
Ljóðmæli Bjöms Halldórssonar í
Laufási. Úr bréfum séra Björns
og öðrum heimildum hefur Bolli
tekið saman og ritað sögu hans,
sem birt er í bókinni, og nefnir
Upprisuskáld.
Björn Halldórsson var fæddur á
Skarði í Dalsmynni í Suður-Þing-
eyjarsýslu árið 1823. Hann varð
stúdent frá Bessastöðum 1844,
guðfræðingur 1850 og prestur í
Laufási frá 1852 til æviloka 1882
og er jafnan kenndur við þann
stað. Ljóð hans hafa ekki áður
birst á bók ef undan eru skildir
sálmar í Sálmabók og nokkur ljóð
í safnritum.
í fréttatilkynningu segir: „Séra
Björn í Laufási er eitt af kunnustu
sálmaskáldum vorum. Hann var
eitt skáldanna í nefnd þeirri er
stóð að gerð Sálmabókar 1886 sem
er tímamótaverk í íslenskum bók-
menntum.
Ljóðmæli Björns leiða í ljós að
yrkisefni skáldsins hafa verið fjöl-
breytt og virðist hann ósjaldan
hafa ort sér til hugarhægðar eða
sér og öðrum til gamans. Þá dylst
engum að honum hefur oft verið
mikið í huga, þegar hann orti af
ríkri frelsisþrá og stundum í
Göngudagur
fjölskyldunnar
Ungmennafélagar um land allt. Sunnudagurinn 26. júní er
Göngudagur
fiölskyldunnar
Þá gefst gott tækifæri til að fá stimpil í Lýöveldishlaupinu.
Göngum saman á ári fjölskyldunnar.
UNGMENNAFELAG
ÍSLANDS
ádeilu- og baráttuham. Þar að
auki var hann fágætlega snjall og
mikilvirkur bréfritari."
Um útgáfuna á ljóðmælum séra
Björns ritar Bolli m.a. í eftirmála:
„Tildrögin eru þau helst, að fyrir
tveimur áratugum settist ég að í
Laufási við Eyjafjörð. Hver, sem
þar býr, kemst varla hjá því að
verða snortinn af sögu staðarins
og þeirra mörgu andans manna,
bæði skálda og fræðimanna, sem
þar hafa setið. Þar ber Björn Hall-
dórsson hátt. Svipfagur burstabær
hans og björt kirkja með gullin-
sniði, sem hann lét reisa, minna
sífellt á þá listrænu alúð, sem
hann var gæddur... Ég hef notið
þess að sitja til borðs með gömlú
fólki, sem minntist þess enn, þeg-'
ar afar þess og ömmur sögðu frá
samskiptum sínum við Björn. Þau
leiftur ósvikinnar aðdáunar höfðu
mikil áhrif á mig og sú hugsun
varð sífellt áleitnari, að ekki mætti
dragast öllu lengur að safna sam-
an ljóðum hans.“
Skálholtsútgáfan gefur bókina út.
Ljóðmæli Björns Halldórssonar í
Laufási er 290 blaðsíður. Prent-
smiðja Hafnarfjarðar sá um setningu
og umbrot. Steindórsprent-Guten-
berg prentaði. Bókin kostar 2490
krónur. Menningarsjóður styrkti út-
gáfuna.