Morgunblaðið - 01.07.1994, Qupperneq 36
36 FÖSTUDAGUR 1. JÚLÍ 1994
MORGUNBLAÐIÐ
LfTTi
Vinninqstölur
miðvlkudagínn:; 29. júní1994
| VINNINGAR FJÖLDI VINNiNGA UPPHÆÐ A HVERN VINNING
H ® af 6 3 58.111.400
C1 5 af 6 ILŒ+bónus 1 3.207.920
IkK 5 af 6 6 114.944
|Ef 4 af 6 580 1.891
[ri 3 af 6 H*JB+bónus 2.098 224
á ísi.: 5.464.316
UPPLVS94QAR, SÍMSVAftl 91-S81511
LUKKUUNA »10 00 - TEXTAVARP 451
BI«T MEO FYRIflVARA UM PRENTVlLLUfl
; og Svíþjóðar
Hvað er
hamingja?
Laugardaginn 2. júlí kl. 16.00 til 1
Páll Skúlason og Vilhjálmur Árnason halda fyrirlestra
um hamingjuna á Hótel Eddu, Menntaskólanum að
Laugarvatni.
Þeir munu segja frá kenningum heimspekinga, fjalla
um viðhorf íslendinga og greina frá eigin niðurstöðum
um eðli hamingjunnar og á hvaða forsendum menn geti
talist hamingjusamir.
Á eftir fyrirlestrunum gefst tækifæri til fyrirspurna og
umræðna.
Sjávarréttarhlaðborð
í tilefni af fyrirlestri um hamingjuna.
Ljúffengir og freistandi réttir frá leyndardómum
undirdjúpanna.
Allir matargestir fá uppskrift af hamingju.
Opnumkl. 18.00.
Sjávarréttarhlaðborðið verður endurtekið 9. júlí.
Menntaskólanum
Laugarvatni
Sími: 98-61118. Fax: 98-61237.
G
A
£
G
A
E
G
A
£
G
A
£
G
A
E
G
A
E
G
A
£
G
AEG kostar minna en þú heldur.
Mjög hagstætt verð á eldavélum, ofnum,
helluboráum og viftum.
Á nálægt
20.000
íslenskum
heimilum
eru AEG eldavélar.
Engin eldavélateaund
er ó fleiri heimilum.
Kaupendatryggð við
AEG er 82.5%*
Hvað segir þetta þér
um gæði AEG?
*Samkvæmt markaðskönnun
Hagvangs í des. 1993.
A
E
G
A
£
G
A
E
G
A
£
G
A
£
G
A
£
G
A
£
G
A
£
G
A
E
G
A
£
G
A
£
G
Eldavél
G" Competence 5000 F-w:
60 cm. Undir- og yfirhiti,
blástursofn, bástursgrill, grill,
A geymsluskúffa.
* Verdkr.62.900r
B R Æ Ð U R N I R
DJ QRMSSONHF &
Lógmúla 8, Sími 38820
Umbobsmenn um land allt
A
G AIG AEG AEG AEG AEG AEG AJEG AEG A£G AEG AEG AEG G
ÍDAG
BRIDS
l)m.sjón liuóm. P á 11
Arnarson
ÞAÐ ER hægt að stara lengi
á öll spilin sín án þess að
koma auga á vinningsleiðina
í sex laufum suðurs. Ekki
vegna þess að hún sé flókin,
heldur óvenjuleg.
gefur; allir á
Norður
♦ KDG5
V Á1085
♦ 764
♦ 82 . .
Austur
♦ Á74
V D7632
iiiiii; r9
Suður
♦ -
V K94
♦ Á83
♦ ÁKD10765
Vestur Norður Austur Suður
- - 1 hjarta Dobl
Pass 2 hjörtu Pass 6 lauf
Pass Pass Pass
Útspil: hjartagosi.
Vandamálið er ekki skortur
á slögum, heldur innkomum
í blindan. Sagnhafi getur nota
hjartaásinn til að trompsvína
fyrir spaðaás, en hvemig á
hann að komast inní borð til
að taka spaðaslagina?
A hjarta. Hann tryggir sér
aðra innkomu með þvi að
drepa hjartagosann á ásinn
og henda kóngnum undir
heima!!
Einfalt, um leið og maður
sér það.
Austur
hættu.
Vestur
4> 1098632
V G
♦ 1052
♦ G94
VELVAKANDI
Svarar í síma 691100 frá 10-12 og 14-16
frá mánudegi til föstudags
Tapað/fundið
Lambhúshetta
tapaðist
BARNALAMBHÚS-
HETTA úr pijónasilki frá
N áttúrulækningabúðinni
tapaðist á leiðinni frá Hans
Petersen, Bankastræti, og
að Kjötbúð Péturs í Aust-
urstræti. Hafi einhver
fundið hettuna er hann
vinsamlega beðinn að
hringja í síma 28339.
„Picknic“-karfa
PICKNIC-karfa með
tveimur lokum sem haldið
er saman með borða fannst
fyrir ofan Varmadal á
Kjalarnesi fyrir nokkru.
Upplýsingar í síma
666700.
Úlpa fannst
SVÖRT drengjaúlpa
fannst við Elliðavatn 27.
júní sl. Eigandi má hafa
samband í síma 52254.
Gleraugu töpuðust
KVENGLERAUGU
töpuðust annaðhvort við
Hótel Sögu eða Lönguhlíð
fyrir rúmri viku. Finnandi
vinsamlega hringi í síma
15386.
Úr tapaðist
ÓLARLAUST barnaúr
tapaðist í fjörunni nálægt
Gróttu sl. þriðjudagskvöld.
Hafí einhver fundið úrið
er hann vinsamlega beðinn
að hringja í síma 31089.
Jakki tapaðist
LJÓSGULBRÚNN leður-
jakki með leðurkraga varð
viðskila við eigandann í lok
apríl. Viti einhver um
jakkann er hann beðinn
að hafa samband í síma
31089.
Næla tapaðist
SILFURNÆLA, sem er
eins og fiðrildi í laginu,
tapaðist 24. eða 25. júní
sl., annaðhvort við Kefla-
víkurflugvöll eða í miðbæ
Reykjavíkur. Finnandi
vinsamlega hringi í síma
12906.
Hálsmen tapaðist
MERKT gullhálsmen tap-
aðist 17. júní niðri í miðbæ
Reykjavíkur. Finnandi
vinsamlega hringi í síma
875060.
Gieraugu fundust
TVENN gleraugu, önnur
brún og hin gyllt, fundust
við Elliðavatn fyrir
nokkru. Upplýsingar í
si'ma 814142.
Bakpoki tapaðist
FREKAR lítill svartur og
grár bakpoki í merkinu
NIKE tapaðist í Öskjuhlíð
sl. þriðjudag. í honum var
bamapeysa o.fl. Finnandi
vinsamlega hringi í síma
22691 eftir kl. 19.
Farsi
„Éqheldafc lAÉséumekki híartioa^
tnkoL d móhi hCtffjinQjuSskuin ryrír
t/(si*vala.\/erMé&iið snitL/'
Pennavinir
NÍTJÁN ára finnsk stúlka
með áhuga á bókmenntum,
tónlist og útreiðum:
Afiia Löhönen,
Voisalmentie 13 D 29,
53920 Lappeenranta,
Finland.
FRÁ Ghana skrifar 24 ára
stúlka með áhuga á tónlist,
fiskveiðum, frímerkjum,
póstkortum og íþróttum:
. Nann Ama Hanson,
c/o Postbox 1152,
Oguaa Town,
Central Region,
Ghana.
NÍU ára tékknesk stúlka
með áhuga á bókalestri,
hestum og ensku:
_Celestyna Krausova,
507 81 Lazne Beloh.
65,
Czech Repuhlic.
BANDARÍSKUR 44 ára
karlmaður sem segist
hvorki reykja né neyta
fíkniefna. Margavísleg
áhugamál:
Danny Lee Tetrick,
c/o Virginia Cotton,
13405 Hinchbrook
Blvd,
Louisville,
Kentucky,
40272-1319,
United States.
NORSKA 21 árs stúlku
með þriggja ára gamalt
bam langar að komast í
sveitavist á íslandi. Er
menntuð í landbúnaðar-
fræðum:
Togje Filseth,
Kremlegrenda 31,
N-1352 Kolsás,
Norge,
SAUTJÁN ára finnsk
stúlka með margvísleg
áhugamál, vill skrifast á
við 17-25 ára pilta eða
stúlkur:
Sirpa MykkSnen,
Savonkatu 30 B 21,
74100 Jisalmi,
Finland.
Víkveiji skrifar...
Samkeppni útvarpsstöðvanna
um hlustendur hefur verið hvað
hörðust á tímanum 9-12 á morgn-
ana. Undanfarin sumur hafa þeir
Jón Axel og Gulli á Bylgjunni ver-
ið lang vinsælastir og ekki þýtt
fyrir hinar stöðvamar að keppa
við Bylgjuna. En í sumar bregður
svo við að Bylgjan hefur fengið
mjög skæðan keppinaut sem er
þátturinn Górillan á Aðalstöðinni.
Þar láta þeir Davíð Þór Jónsson
og Jakob Bjarnar Grétarsson dæl-
una ganga um allt og ekkert. Lík-
lega er þetta vinsælasti morgun-
þátturinn í dag, a.m.k. þar sem
hlustendur ná í allar stöðvar.
Aðalstöðin hefur verið að sækja
í sig veðrið að undanförnu. Hún
stofnaði unglingarás, X-ið, sem
hefur fengið umtalsverða hlustun
hjá yngstu kynslóðinni. Og nú
heyrir Víkverji að stöð sem útvarpi
eingöngu sígildri tónlist sé í
burðarliðnum hjá Aðalstöðinni.
Þá hefur Aðalstöðin verið fund-
vís á vinsælt efni og jafnframt
frumlegt, t.d. að fá hljómsveitina
Sniglabandið til að sjá um þátt og
spila í beinni útsendingu. Þetta
reyndist svo vinsælt efni að hin
ríkisrekna Rás 2 keypti Snigla-
bandið til sín. Ekki í fyrsta né
væntanlega síðasta sinn sem það
gerist.
xxx
að vakti athygli Víkveija að í
fyrrakvöld þurfti leikur í bik-
arkeppni KSÍ að fara fram á gervi-
grasvelli. Þetta var leikur Leiknis
við íslands- og bikarmeistara
Akraness. Gervigrasvellir eru góðir
til síns brúks þegar ekki er hægt
að keppa á venjulegu grasi. En að
geta ekki boðið liðum upp á venju-
legan grasvöll um hásumar í 100
þúsund manna borg er auðvitað
hneykþli.
xxx
Umferðarmál höfuðborgar-
svæðisins komust í brennidep-
il í kjölfar umferðarteppunnar
miklu á 17. júní. Þúsundir fengu
tækifæri til að gaumgæfa smáat-
riði vegaframkvæmda meðan bíla-
lestin sniglaðist um Höfðabakka
og Vesturlandsveg, sem nú er upp-
nefndur Flöskuháls. Ýmsum hefur
verið eignaður vafasamur heiður
af þessu öngþveiti Islandssögunn-
ar, en Víkveija grunar að vega-
kerfið og guðfeður þess eigi þar
riflegan skerf. Það er löngu tíma-
bært að framlög til þjóðvegagerðar
í þéttbýli við Faxaflóann verði í
sanngjörnu hlutfalli við skattana
sem heimtir eru af umferðinni á
þessu svæði. Ef til vill þurfa þing-
menn Reykjavíkur og Reykjaness
að stíga sem snöggvast úr lands-
föðurhlutverkinu og potast betur í
þágu eigin kjördæma við úthlutun
fjár og vegaframkvæmda.
xxx
Grafarvogshverfið og ört vax-
andi ný hverfi þar norður af
eru líkt og eyja í umferðarhafinu.
Tengsli nær 8.000 íbúa „í land“
eru um tvær tvístefnugötur. Það
er löngu tímabært að hafist verði
handa við gerð brúar, eða jarð-
ganga undir Kleppsvíkina til að
greiða fyrir umferð. Sú krafa er
studd bæði öryggissjónarmiðum og
þörf fyrir greiðar samgöngur. Mik-
ið er byggt í nágrannasveitarfélög-
um norðan höfuðborgarinnar og
Hvalfjarðargöng munu enn auka
umferðarálagið á þessu svæði. Það
kallar á fyrirhugaða lagningu þjóð-
vegar með ströndinni og norður
yfir Kollafjörð fyrr en ætlað er.