Morgunblaðið - 05.07.1994, Page 6
6 C ÞRIÐJUDAGUR 5. JÚLÍ 1994
HM I KNATTSPYRNU
MORGUNBLAÐIÐ
Reuter
Kennet Anderson lék vel gegn
Saudi Arabíu; skoraði tvívegis og lagði
upp fyrsta markið fyrir Martin Dahlin.
Svíar í 8-
liða úrslit í
fyrsta sinn
síðan ’74
SÆNSKA miðherjaparið, Mart-
in Dahlin og Kennet Anders-
son, var í essinu sínu, þegar
Svíar unnu Saudi Arabíu 3:1 í
16 iiða úrslitum í Dallas ífyrra-
dag. Andersson gerði tvö mörk
og lagði eitt fyrir Dahlin, sem
lagði upp annað fyrir félaga
sinn. Dahlin hefur þar með alls
gert 20 mörk fyrir Svíþjóð og
er markahæstur sænskra
landsliðsmanna, en Thomas
Brolin er með 19 mörk.
Svíar náðu strax undirtökunum
og fengu óskabyijun, en voru
2:0 yfir í hléi. Svíar gáfu eftir und-
ir lokin og varamaðurinn Fahd al-
Ghashayan minnkaði muninn, en
Andersson innsiglaði sigurinn í
næstu sókn.
Saudi Arabía gaf ekkert eftir,
leikmennirnir voru snöggir sem fyrr
og sköpuðu sér nokkur marktæki-
færi, en Thomas Ravelli var þeim
erfíður í markinu og lánið lék ekki
við þá.
Síðast svo langt 1974
Svíþjóð komst síðast í átta liða
úrslit í HM í Þýskalandi 1974 og
Tommy Svensson, þjálfari, var
ánægður. Hann sagði að Svíar
hefðu ekki vanmetið mótheijana
eins og önnur lið hefðu greinilega
gert. „Ég held að önnur lið hafi
ekki tekið þá eins alvarlega og við.
Við kynntum okkur þá rækilega og
vissum hvernig við áttum að taka
á þeim. Við vissum að framheijarn-
ir væru mjög snöggir og við vissum
að við yrðum að koma í veg fyrir
að miðjumennimir næðu að gefa
langar sendingar. Eins urðum við
að vera mjög varkárir í vörninni
og við leystum þetta allt með sóma.“
Þá sagði hann mikið atriði að hafa
miðheija eins og Dahlin og Anders-
son. „Allir mótheijar okkar verða
að gæta sín á þeim.“
Argentínumaðurinn Jorge Solari,
þjálfari Saudi Arabíu, sagði að hið
unga lið sitt hefði ekki haft nægan
tíma til að undirbúa sig og geja
það sem þurfti til að sigra Svía. „Ég
varð að velja um að leika einfaldan
sóknarleik eins og áður eða byggja
á varnarleik. Vegna tímaskorts
valdi ég fyrri kostinn, en Svíþjóð
er með sterka vörn og markið í
byijun hafði mikið að segja.“
Martin Dahlin hefur komist áfram með mikilli vinnu
Draumurinn
að veruleika
Stórhættulegt
framherjapar
Martin Dahlin, hinn stór-
hættulegi miðherji Swía, f agn-
ar innilega marki sínu gegn
Saudi Aröbum á sunnudag.
Dahlin gerði fyrsta mark leiks-
ins á 6. mínútu með glæsileg-
um skalla, eftir langa fy rlrgjöf
félaga síns í f ramlínunni, Ken-
net Anderson, sem hann
faðmar á myndinni. Anderson
bætti swo um betur og gerði
annað og þriðja mark Swía í.
Ieiknum,annaðeftirsendingu
Da-
MARTIN Dahlin hefur
alla tíð átt við mótlæti að
stríða, en hann hefur rutt
hindrununum úr vegi.
Þegar hann var 10 ára
sá hann Mario Kempes
gera sex mörk f HM í
Argentínu. Þá var æðsti
draumurinn að leika í úr-
slitakeppni HM og skora
og draumurinn hefur
heldur betur ræst. Hann
er ekki lengur efnilegur
heldur á meðal bestu
miðherja heims.
hlins.
Pögur mörk í þremur leikjum
hafa vakið athygli á eina
og fyrsta blakka manninum í
sænska Iiðinu, en faðir hans var
hljómlistarmaður frá Venezúela,
sem fór frá fjölskyldunni, þegar
Dahlin var smábarn.
Hann hefur komist áfram á
mikilli vinnu. „Margir leikmenn
eru hæfileikaríkir, en það er ekki
alltaf nóg,“ sagði Dahlin. „Níu
af hvetjum 10 tekst ekki ætl-
unarverkið. Aðeins þeir, sem
leggja mest á sig, verða bestir.
Lykillinn að árangri hjá hæfi-
leikaríkum mönnum er mikil
æfing auk þess sem þeir verða
að vera andlega sterkir, því álag-
ið er mikið á toppnum."
Sálfræði
EM gerði gæfumuninn Tók ekki áhættu
Dahlin var valinn í sænska
landsliðshópinn fyrir úrslita-
keppni Evrópumótsins í Svíþjóð
1992 og þó hann skoraði ekki á
leið liðsins í undanúrslit lagði
hann upp tvö mörk og vakti at-
hygli. „Þetta var byrjunin á nýju
tímabili hjá Martin Dahlin og
gerði gæfumuninn á ferli hans,“
sagði Svensson. „Hann hefur
lagt mikið á sig, þroskast sem
maður og knattspymumaður og
hefur öðlast reynslu við það að
leika í Þýskalandi. Allt þetta
hefur gert hann að betri leik-
manni. Þegar hann byijaði að
skora varð sjálfstraustið meira
og það er mjög mikilvægt fyrir
hann.“
Dahlin var með 10 mörk fyrir
Gladbach tímabilið 1992 til 1993
Hann skoraði ekki í síðustu
fjórum leikjum Svía fyrir HM og
viðurkenndi að hann hefði ekki
lagt sig fram. „Eftir tveggja ára
baráttu var ég búinn að tryggja
mér sæti í úrslitakeppninni. Eg
var öraggur í byijunarliðinu og
ætlaði ekki að gera einhverja
vitleysu eins og að meiðast í vin-
áttuieik. Ég verð að vera ákveð-
inn, leggja mikið á mig og gefa
mig allan í að skora, en mér
datt ekki til hugar að fara í ein-
hveija hæpna tæklingu, sem
hefði getað kostað mig þennan
draum.“
Dahlin er markahæstur sæn-
skra landsliðsmanna, en er ekki
eigingjam. „Aðalatriðið er að
gera ávallt sitt besta fyrir liðið,
þvf þetta er hópíþrótt."
Móðir Dahiins er sálfræðingur
og hún hefur kennt honum
hvernig á að aðlagast álagi, en
reynslan hefur líka kennt honum
margt. Hann var stjama í Sví-
þjóð 1988, þegar hann leiddi
Malmö til sigurs í deildinni, var
markahæstur með 17 mörk og
var valinn í landsliðið gegn Bras-
ilíu. En tvítugur strákurinn átti
í erfíðleikum í þessu nýja stjömu-
hlutverki, missti máttinn og datt
úr iandsliðinu. Þar með hvarf
draumurinn um að leika í HM á
Ítalíu 1990.
Eftir hrakfarir sænska liðsins
á Ítalíu tók Tommy Svensson við
liðinu og hann kallaði á Dahlin.
En aftur kom lægð 1991, þegar
hann gerði samning við Borussia
Mönehengladbach. Erfitt reynd-
ist að aðlagast nýju umhverfi og
meiðsl og fleira gerðu það að
verkum að hann lék fáa leiki og
gerði aðeins tvö mörk.
og gerði 12 mörk á síðasta tíma-
bili. Sjö mörk hans í riðlakeppni
HM höfðu sitt að segja í barátt-
unni um sæti í úrslitakeppninni
og hann var kjörinn knattspymu-
maður Svíþjóðar 1993. „Draum-
urinn er orðinn að veruleika. Síð-
an ég sá úrslitakeppnina 1978 í
sjónvarpi hef ég viljað taka þátt.“
SVISSNESKI domarinn Kurt Röthlisberger viðurkenndi í gær að
hann hefði gert mistök, þegar hann sleppti því að dæma víta-
spyrnu á Þjóðverja í leiknum gegn Belgum s.l. laugardag, en
Belgar sögðu mistökin hafa ráðið úrslitum. Hann sagðist ekki
gera sér vonir um að draumurinn um að dæma úrslitaleikinn
rættist og kvaðst viðbúinn því að þurfa að pakka niður og koma
sér heim.
Röthlisberger sagði í bréfi til
svissneska blaðsins Blick að
hann hefði horft á leikinn á mynd-
bandi síðar um kvöldið og þá séð
að Josip Weber hefði átt að fá víti
eftir að hafa verið felldur af Thom-
asi Helmer. „Ég tók ranga ákvörð-
un og Belgamir voru í fullum rétti,
þegar þeir vildu fá vítaspyrnu,"
skrifaði dómarinn, sem er 43 ára
og dæmir í annað sinn í úrslita-
keppni HM.
„Ég var í um 25 metra fjarlægð
frá þeim stað, þar sem atvikið átti
sér stað, en á mikilvægu augna-
bliki birgðu Brehme og Helmer
mér sýn. Eg varð að gera upp hug
minn á sekúndubroti og ákvörðun-
in var byggð á innsæi," skrifaði
hann ennfremur og tók fram að
hann væri ekki að reyna að afsaka
mistökin.
Svisslendingurinn hafði vonað
að koma til greina sem dómari á
úrslitaleiknum 17. júlí í Los Angel-
es, en sagði að möguleikarnir væru
litlir eftir þetta. Hann sagðist fá
að vita á morgun, miðvikudag,
hvaða dómarar ættu að dæma leik-
ina, sem eftir eru í keppninni. „Ég
er viðbúinn því að þurfa að pakka
saman og fara heim,“ sagði hann.
Dómarinn frá Sviss
vidurkenndi mistök