Morgunblaðið - 15.07.1994, Side 1

Morgunblaðið - 15.07.1994, Side 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA 'M % 1 1994 FÖSTUDAGUR 15.JULI BLAÐ KNATTSPYRNA / BIKARKEPPNIN Tíumörk íköflótt- um leik... ÞAÐ var hálf einkennilegur leikur sem boðið var upp á í gærkvöidi á Víkingsvellinum í Fossvogi. Þartóku heimamenn á móti Þór frá Akureyri og sigr- uðu þeir síðarnefndu með sex mörkum gegn fjórum. Þórsarar virtust vera eina liðið á vellinum í fyrri hálfleik og skoruðu þá fjögur mörk auk þess að fá jafnmörg Stefán dauðafæri sem ekki Eiríksson nýttust. Fyrsta skrifar markið kom á sjöttu mínútu; Bjarni Sveinbjömsson skoraði eftir lagleg- an undirbúning Ormarrs Örlygsson- ar. Annað markið kom á 17. mínútu og var þar Bjarni að verki aftur eft- ir laglega samvinnu við Guðmund Benediktsson. Lárus Orri skoraði þriðja markið á 25. mínútu af stuttu færi og fjórða markið kom níu mín- útum síðar; Ormarr lék laglega upp hægri kantinn og gaf á Bjarna sem gerði þriðja mark sitt. Það læðist að manni sá grunur að liðin hafi skipt um búninga í leik- hléi því í síðari hálfleik skoruðu Vík- ingar fjögur mörk á móti tveimur Þórsara. Ahorfendur vom vart búnir að koma sér fyrir þegar Óskar Ósk- arsson skoraði fyrsta mark Víkinga. Þórsarar skoruðu reyndar tvö mörk í röð eftir það, bæði úr aukaspymu. Fyrst skoraði Júlíus Tryggvason á 57. mínútu og fimm mínútum síðar skoraði Guðmundur Benediktsson gullfallegt mark. Þar með vom Þórs- arar komnir með fimm marka for- skot og hættu. Víkingar notfærðu sér það til hins ítrasta. Óskar Ósk- A eftir boltanum Morgunblaðið/Bjami ÞRÓTTARINN Hreiðar Bjarnason, til vinstri, og Eyjamaðurinn Magnús Sigurðsson spretta úr spori á eftir knettinum á Þróttarvelli í gærkvöldi. Magnús er á undan að þessu sinni, og þegar upp var staðið voru Eyjamenn á undan; sigruðu 4:2. HANDKNATTLEIKUR Geir líklega hér á landi í vetur GEIR Sveinsson, landsliðsfyrirliði í handknattleik, leikur að öllum líkindum með liði hér á landi næsta vetur, samkvæmt heimildum Morgunblaðsins. Til stóð að hann yrði áfram á Spáni, en nú virðist sýnt að ekki rætist úr fjárhagsvandræðum Alzira, liðsins sem hann var hjá, og hann komi því heim. Ekki er ljóst með hvaða félagi Geir verður, komi hann heim. Hann var orðaður við deildármeistara Hauka fyrr f sumar, en gaf Hafnfirðingunum af- svar. Geir mun ekki hafa rætt við önnur félög. GOLF Turner bestur á opna breska Faldo fór holu á átta högg- um og á enga von um sigur GREG Tumer frá Nýja Sjálandi hefur forystu eftir fyrsta dag 123. opna breska meistaramótsins í golfi, sem hófst á Tumberry vellinum í Skotlandi í gær. Bretinn Jonathan Lomas kemur næstur með 66 og Andrew Magee, Bandaríkjunum er þriðji á 67. Vonir Faidos að engu Vonir Bretans Nicks Faldo um fjórða sigurinn á mótinu urðu nánast að engu er hann lék 17. holu á átta höggum — þremur yfir pari. Á brautinni fékk hann tvö víti fyrir að slá rangan bolta. Hann verður því að leika vel í dag til að komast í gegn- um niðurskurðinn í dag, þegar keppendum verður fækkað. Faldo hefur leikið á 75 höggum, fimm yfir pari. Þess má geta að Faldo komst ekki gegn- um niðurskurðinn á opna bandaríska mótinu í sfð- asta mánuði, í fyrsta skipti á stórmóti síðan 1986. Eftirtaldir léku á 68 höggum í gær: Tom Wat- son, Loren Roberts, David Edwards, Brian Watts og John Daly, allir Bandaríkjunum, Jean Van de Velde, Frakklandi, Peter Senior, Ástralíu, Jesper Pamevik, Svíþjóð, Wayne Grady, Ástralíu og David Feherty og Ross McFarlane, Bretlandi. ÞRIÞRAUT Einar stóð sig vel í Þýskalandi EINAR Jóhannsson íslandsmeistari í þríþraut úr Ármanni keppti í Ironman þríþrautarkeppninni í Þýskalandi um helgina, og lenti í 275. sæti af tæplega 2.000 þátttakendum. Einar náði tímanum 9 klst. og 45 mínútur. Hann synti 3800 m á 57.50 mínútum, hjólaði 180 km á 5 klst. og hljóp mara- þon á þremur klst. og 45 mínútum, og telst sá árangur og sætið mjög gott. Einar sagði að sér hefði liðið vel allan tímann, þó svo að hann hafi verið orðinn mjög þreyttur þegar leið á hlaupið. Þróttarar stóðu í ÍBV SPÚTNIKLIÐ 2. deildar, Þróttur, lét 1. deildarlið Vestmanna- eyinga hafa mikið fyrir sér í Sæviðarsundinu í gærkvöldi en tap- aði engu að síður íframlengingu, 2:4, en staðan eftir 90 mínút- ur var 2:2. I arsson bætti öðm marki sínu við á I 73. mínútu og fimm mínútum síðar skoraði Marteinn Guðgeirsson með laglegu skoti frá vítateig. Aðeins mínútu síðar skoraði Bjöm Bjartm- arz fjórða mark Víkinga. Fleiri urðu mörkin ekki. „Menn verða að muna að leikurinn er 90 mínútur, við verðum að halda : áfram,“ sagði Júlíus Tryggvason leikmaður Þórs heldur daufur í dálk- inn eftir útreiðina i seinni hálfleik. Þórsarar voru brokkgengir eins og úrslitin gefa til kynna og Víkingar höfðu ekki trú á því sem þeir voru að gera fyrr en of seint. Jón Grétar Ólafsson kom inn á hjá Víkingum í seinni hálfleik og virtist ná að hleypa heilmiklu lífi í Víkingssóknina. að tók 20 mínútur að róa taug- arnar, sérstaklega hjá Þrótt- urum. Á meðan sóttu Eyjamenn en Fjalar Þorgeirsson í marki heimamanna Stefánsson var þeim erfiður. skrifar Þróttarar komust meira inn í leikinn en urðu fyrir blóðtöku þegar sókn- armaðurinn skæði, Gunnar Gunn- arsson, varð að yfirgefa völlinn vegna meiðsla. Á 36. mínútu náði Hermann Hreiðarsson að gefa fyrir mark Þróttara, beint á koll Þóris Ólafssonar sem skallaði í markið af markteigshorni fjær. Hreiðar Bjarnason jafnaði 1:1 fimm mínútum eftir hlé og aðeins fjórum mínútum síðar kom Haukur Magnússon Þrótti yfir með góðu marki. Vestmannaeyingar voru þó ekki af baki dottnir, sóttu sem fyrr og á 70. mínútu varði Fjalar úr opnu færi Friðriks Sæbjörnssonar. Tveimur mínútum síðar brást Frið- riki ekki bogalistin og jafnaði fyrir ÍBV með góðu skallamarki. Liðin skiptust síðan á færum en tókst ekki að skora og því varð að grípa til framlengingar. Eyjamaðurinn Zoran Ljubicic prjónaði sig laglega upp miðjuna og framhjá leikmönnum Þróttar á 95. mínútu og kom ÍBV yfir í ann- að sinn 2:3. Mikil þreyta og leiðinleg harka einkenndi það sem eftirlifði leiks- ins. Zoran bætti við fjórða marki Vestmanneyinga og Nökkva Sveinssyni mistókst að bæta við fimmta markinu er hann þrumaði í slá_ úr vítaspyrnu á 119. mínútu. „Eg er mjög skúffaður því ég veit að sá sem skorar á undan í framlengingu vinnur oftast og í þetta sinn urðu það þeir. Það var mjög erfitt að koma til baka þegar þeir skoruðu en við áttum að gera útum leikinn þegar staðan var 2:1 fyrir okkur,“ sagði Ágúst Hauksson fyrirliði og leikmaður hjá Þrótti í Reykjavík en hann var sterkur í vörninni og Fjalar varði oft vel. Friðrik Friðriksson, markvörður og fyrirliði ÍBV var sæmilega sáttur við sína menn: „Um leið og Vesta- mannaeyingar leika ekki á fullu gengur ekki vel. En þegar við jöfn- uðum vissi ég að þetta yrði í lagi. Nú er mér sama hverja ég fæ svo framarlega sem leikurinn verði í Eyjum,“ sagði Friðrik. KIMATTSPYRIMA: DÓMARAMÁLIIM ENIM EIIMU SUMNI í BRENNIDEPU / B3 OEaiBmiblii/ hidifiniíii 6ux;d Sööl >jo fnubnöIJi) i .ííiijgnineoá utnör öffiífio/1 go gJáoriuóýdlA fininffiR?. | ,Íá>Í9 'lBVfl 10 j'í

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.