Morgunblaðið - 22.07.1994, Page 2

Morgunblaðið - 22.07.1994, Page 2
2 FÖSTUDAGUR 22. JÚLÍ 1994 FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ Viðamestu rannsókn á dji'ipkarfastofninuni til þessa er lokið Stofninn 2,2 millj. tonna VIÐAMESTA rannsókn sem gerð hefur verið á djúpkarfastofninum á Reykjaneshrygg bendir til að stofn- inn sé a.m.k. um 2,2 milljónir tonna. Jakob Magnússon, fiskifræðingur og leiðangursstjóri í rannsókninni, sagði að mælingin staðfesti fyrri mælingar á stofninum og því eigi að vera óhætt að auka veiðar úr karfastofninum upp í 150 þúsund tonn án þess að ganga á stofninn. Rannsóknin var gerð í samvinnu ís- lenskra og norskra fiskifræðinga. Árið 1992 mældist karfastofninn tæpar 2 milljónir tonna. Þessi mæl- ing bendir því til þess að stofninn sé jafnvel stærri en menn hafa talið. Jakob sagði að talan 2,2 milljónir tonna væri lágmarkstala, bæði vegna þess að ekki hefði tekist að fara um allt það svæði sem talið er að djúpkarfi sé á og eins vegna vissra erfiðleika við mælingar á nóttunni. Jakob tók þó fram að mest allt svæð- ið hefði verið rannsakað. Talsverð óvissa hefur verið um stærð djúpkarfastofnsins, en ekki hafa verið gerðar víðtækar mælingar á stofninum fyrr en nú. Fiskifræð- ingar hafa þó talið stofninn öflugan og að óhætt sé að auka veiðar úr honum. Hafrannsóknastofnun hefur mælt með 150 þúsund tonna veiði, en Alþjóðahafrannsóknaráðið mælti með 100 þúsund tonna veiði. Veiði úr djúpkarfastofninum bef- ur sveiflast nokkuð síðustu ár. Veið- in komst upp í 105 þúsund tonn árið 1986, en minnkaði síðan. í fyrra veiddust 87 þúsund tonn og talið er að veiðin verði ekki minni á þessu ári. Margar þjóðir hafa stundað veið- ar úr stofninum, en Rússar, Norð- menn og íslendingar hafa veitt mest. Færeyingar hafá hug á að auka veiðar sínar úr stofninum. Aðstæður til rannsókna góðar Jakob sagði að leiðangurinn hefði gengið vel. Veður hefði verið gott og aðstæður til rannsókna ákjósan- legar, Upphaflega var ráðgert að rússneskt skip færi með í leiðangur- inn, en Rússarnir hættu við á síð- ustu stundu. Vegna þessa var ákveð- ið að lengja leiðangur Bjarna Sæ- mundssonar um nokkra daga. Jakob sagði að alls hefði verið farið yfir um 190 þúsund fermílur. Rannsókn- arsvæðið er á milli 54 gráðu norðurs og norður að 64 gráðu og 29 gráðu vesturs og 48 gráðu vesturs. Leið- angurinn tók um þijár vikur. Jakob sagði að hegðun karfans væri með dálítið öðrum hætti nú en árið 1991 og 1992, þegar stofninn var rannsakaður. Karfínn virtist dreifðari á nóttunni núna. Jakob sagði að þetta atriði leiði til þess að físki- fræðingamir sem að leiðangrinum stóðu telji sig geta fullyrt að stærðar- mælingin sé lágmarksmæling. Jakob sagði mikilvægt að halda rannsóknum á djúpkarfastofninum áfram. Nauðsynlegt sé að fá vitn- eskju um hvaða áhrif aukin veiði hafí á stofninn. Jakob sagði að rætt hefði verið um áframhaldandi sam- starf við Norðmenn, en ekkert sé ákveðið um það ennþá. Formaður mannanafnanefndar Akvörðun vegna nýrra upplýsinga Morgunblaðið/Golli Blíðviðri um helgina um allt land ÚTLIT er fyrir blíðviðri um mest allt landið um helgina. Samkvæmt upplýsingum Veð- urstofunnar er gert ráð fyrir bjartviðri og hlýindum um allt land á laugardag og sunnudag, en á sunnudagskvöld gæti farið að þykkna upp sunnanlands. Hvort veðrið verður eins gott og það var þegar þessi mynd var tekin skal ósagt látið. í dag er spáð norðvestanátt og gæti víða orðið bjart um sunnanvert landið og hiti á bilinu 8-18 stig, heitast á Suðurlandi. Þessir ferðalangar nutu blíðviðrisins í Reykjavík í gær og létu líða úr sér á bekk við styttu Jóns Sigurðssonar á Austurvelli. FORMAÐUR mannanafnanefndar, Halldór Ármann Sigurðsson, segir að nefndin hafi synjað. beiðni for- eldra Elsabetar Harðardóttur lögum samkvaamt. Ekki hafí legið fyrir upplýsingar sem þurfti til þess að leyfa Elsabetamafnið þegar fyrri ákvarðanir vom teknar. Segir Halldór, að ef nafn teljist ekki íslenskt að uppruna verði að sýna fram á að fyrir því sé hefð. Það sé gert með því að rannsaka hvort nafn komi fyrir í manntali 1910. Finnist nafnið þar þurfí fímm íslendingar að bera það í dag svo fyrir því teljist hefð, Fundist hafí fjórir með Elsabetarnafninu og því ekki heimilt, lögum samkvæmt, að skíra barnið með því nafni. Einnig segir Halldór að fínnist nafn ekki í manntali 1910, sé næsta skref að finna það í manntali 1845. Sé það unnt gildi rýmri reglur um það hversu margir þurfi að bera það í dag og er þess krafíst að einn til fjórir beri nafnið. Leyfi fyrir Arnold Halldór segir ennfremur að í kjöl- far umíjöllunar um málið hafi borist upplýsingar, sem ekki hafí verið í þjóðskrá, að fimm íslendingar bæm Elsabetarnafnið og því hafi fyrri ákvörðun nefndarinnar verið endur- skoðuð, lögum samkvæmt. Segir Halldór loks að Aðalheiður Daníels- dóttir, sem nefndin hafði synjað um leyfi til að skíra son sinn Amold, hafí fengið leyfi fyrir nafninu á sömu forsendum og foreldrar Elsabetar. Grein í Der Spiegel um kaup á rafmagni STJÓRNARFORMAÐUR Raf- orkuvera Hamborgar, Hamburger Electricitátswerke, hefur velt fyrir sér þeim möguleika að kaupa raf- magn frá íslandi að því er greint er frá í 27. tölublaði þýska viku- ritsins Der Spiegel. Sé verið að leita leiða til að uppfylla rafmagnsþörf sem fari vaxandi í borginni, til dæmis hafí kjamorkuverinu í Brunsbiittel við Elbu verið lokað fyrir tveimur ámm og ekki hafí enn fundist orkuuppsprettur til að fylla það skarð, samkvæmt því sem segir í Der Spiegel. Ennfremur segir að stjórnar- formaðurinn, Fritz Vahrenholt, sé að velta fyrir sér þessum mögu- leika á þeirri forsendu að hér séu ráðgerðar stórar vatnsaflsstöðvar sem ættu einnig að geta selt orku til Hamborgar. Sæstrengur dýr Telur hann þó nokkra annmarka á þessu, meðal annars að sæ- strengur til íslands myndi kosta marga milljarða marka og að leiðsla á sjávarbotni yrði varla fullgerð fyrr en árið 2010. Auk þess sem rafmagnið frá íslandi yrði væntanlega margfalt dýrara en það sem framleitt er í kolakyntu orkuveri eða með kjarn- orku. Undir lok greinarinnar segir hins vegar eftir Vahrenholt að ef orkuskattur yrði lagður á í landinu myndi borga sig að fá rafmagn frá íslandi. Mögnleikar á byggingu fjölnota íþróttahúss í Laugardal Kannað undir forystu ÍSÍ HAFNARDAGAR hefjast hjá Reykjavíkurhöfn í dag og standa í þrjá daga. Fjögurra síðna blað um Hafnardaga fylgja blaðinu í dag. FORYSTUMENN íþróttahreyfmg- arinnar komu saman í gær og ræddu möguleika á fjáröflun til jafns við framlag Reykjavíkurborgar til bygg- ingar fíölnota íþróttahúss í Laugar- dal. „Við skoðuðum möguleikana á breiðari grundvelli en gert hefur ver- ið,“ sagði Ellert B. Schram, forseti ÍSÍ, aðspurður um fundinn. „Um er að ræða fjölnota hús, mannvirki, sem á að standa til frambúðar, og því koma fleiri að málinu en HSI.“ Á fundinum var farið yfír gögn og kom fram að um væri að ræða mannvirki, sem gagnaðist íþrótta- hreyfingunni allri og jafnvel fleiri aðilum. Eins og fram hefur komið samþykkti borgarráð sl. þriðjudag að vetja allt að 270 milljónum króna til byggingar fjölnota íþróttahúss austan Laugardalshallar að því til- skildu að Handknattleikssamband íslands geti tryggt þátttöku ríkis- valdsins og annarra aðila vegna byggingarinnar með samsvarandi fjárframlagi. Iþróttahreyfingin ekki aflögufær Ellert sagði að ákveðið hefði verið að ræða við fulltrúa ríkisvaldsins og aðra aðila og láta á það reyna, hvort hægt væri að afla fjár annars staðar frá til að mæta því skilyrði sem fram- lag borgarinnar gerir ráð fyrir svo hægt væri að ráðast í byggingu hússins. Aðspurður sagði EUert að íþrótta- hreyfingin gæti ekki tekið þátt í kostnaðinum og hún hefði aldrei haft fé aflögu til að leggja í mann- virkjagerð. Hins vegar væri um að ræða eitt allra stærsta mál sinnar tegundar og mannvirkið skapaði sér- stök tímamót, því með því gjör- breyttist öll aðstaða, sérstaklega fyrir knattspyrnu, frjálsíþróttir og aðrar utanhúss íþróttagreinar. Alþjóðlegt skákmót Björgvin og Þröst- ur í 5. sæti ÞRÖSTUR Þórhallsson og Björgvin Jónsson, skákmeist- arar, eru í 5.-10. sæti á alþjóð-. legu opnu skákmóti í Mont- pellier í Frakklandi með 5 vinninga þegar lokið er sjö umferðum af níu. Enski stór- meistarinn Tony Miles er einn í efsta sæti á mótinu með 6V2 vinning. Áttunda umferð verð- ur tefld í dag. Hannes Hlífar Stefánsson, stórmeistari tekur einnig þátt í mótinu og er hann með 4 vinninga. Þátttakendur eru 73 og þar af eru sex stórmeistar- ar og 13-14 alþjóðlegir meist- arar. í öðru sæti á mótinu er Lubov frá Búlgaríu með 6 vinninga og í 3.-4. sæti eru Prie, Frakklandi, og Summ- erscale frá Englandi með 5 'h vinning. Vinnuslys á Reykhólum Reykhólum. Morgunblaðið. UNGUR maður slasaðist á Reykhólum í gærkvöldi þegar hann fékk þangpoka sem verið var að hífa upp á bryggju yfir sig. Flogið var með manninn í sjúkrahús í Reykjavík. Verið var að hífa nýslegið, blautt þang í poka upp á bryggjuna með krana sem staðsettur er á bryggjunni þegar pokinn datt niður og á manninn. Pokar þessir eru tvö til þijú tonn á þyngd. Áð sögn læknis á slysadeild Borgarspítala hlaut maðurinn einhver beinbrot en var ekki lífshættulega slasaður og hafði ekki hlotið innvortis meiðsl. Maðurinn er frá Reykjavík og hefur unnið í þörungaverk- smiðjunni í skamman tíma. * Islendingar unnu Ira SPILUÐ var í gær ein umferð á Evrópumóti yngri spilara í Hollandi. íslendingar spiluðu við íra og unnu með 24 stigum gegn 6. Islenska sveitin er nú í 10. sæti með 244 stig. í dag verða spilaðar tvær umferðir, þijár umferðir spilaðar á morgun og ein umferð á sunnudag. Staða efstu þjóða er þannig eftir 15 umferðir: Danmörk og Pólland eru í 1.-2. sæti með 295 stig, í 3. sæti er Bret- land með 281 stig og í 4. sæti er ísrael með 274 stig. Bifreið útaf í Eyjafirði Grenivík. Morpunblaðirt LÍTIL fólksbifreið fór út af veginum skammt fyrir norðan bæinn Grýtubakka í Eyjafirði um hálfsexleytið í gær. Bíllinn endastakkst og fór tvær velt- ur. Talið er að ökumaðurinn, sem var einn í bílnum hafi ekki slasast alvarlega. Bifreiðin var á leið frá Grenivík. Ökumaður var flutt- ur á sjúkrahús á Akureyri, en hann var í öryggisbelti. Bíllinn er talinn ónýtur eftir veltuna.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.