Morgunblaðið - 22.07.1994, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 22.07.1994, Qupperneq 16
16 FÖSTUDAGUR 22. JÚLÍ 199- LISTIR MORGUNBLAÐIÐ TAKIDMEÐ IIJ kj TAKIÖMEÐ -tilboS! -tilbod! JarUntt Bíddu um Banana Boat 99,7% hreint Aioe Vera gel ef þú viit 40-60% ódýrara Aloe gei Banana Boat 99,7% hreina Aloe Vera gelið er án spírulfnu, án tilbúinna lyktarefna og annarra ertandi ofnæmisvalda (önnur Aloe gel eru í hæsta lagi 98%), □ Um 40 mismunandi Banana Boat sólkrem, olíur og gel með sólvöm frá #0 og upp í #50, o Næringarkremið Banana Boat Brún-án-sólar. 3 gerðir: Fyrir venjulega húð, fyrir viðkvæma húð og fyrir andlit. □ Banana Boat sólkrem sérhónnuð fyrir andlit með sólvöm #8, #15 og #23. Verð frá kr. 295,-. □ Um 30 gerðir siampóa og hárnæringa, m.a. GNC Aloe Vera, Faith ln Nature Aloe Vera, Naturade 80% Aloe Vera, Joe Soap Hair Care Aloe Vera og Banana Boat flækjubaninn. Biddu um Banana Boat i ðllum heilsubúðum utan Reykjavíkur, sólbaðsstofum, snyrtivöru- verslunum og apótekum. Banana Boat E-gel fæst líka hjá Samtökum psoriasis- og exem- sjúklinga. ___________________________ Heilsuvai, Barónsstíg 20, ® 626275 Madonna! Ristorante| Helgar tilboð Humarsúpa með rjómatoppi og hvítlauksbrauði Pönnusteiktar nautalundir með chateaubriand- sósu og smjör- steiktu grænmeti Súkkulaðifrauð 1,950 i S Verið velkomin Pantanir í síma 621988 TQNLIST Akurcyrarkirkja GÍTARHÁTÍÐ Á AKUR- EYRI 1994 Oscar Ghiglia/Einar Kristján Einarsson/Martial Nardeau/Amald- ur Amarson/KK/Guðmundur Péturson HINN heimsþekkti gítarleikari og kennari Osear Ghiglia opnaði 3. árlega Gítarfestivalið á Akureyri með tónleikum þriðjudaginn 12. júlí í Akureyrarkirkju. Á efnis- skránni voru verk eftir J.S. Bach, D. Scharlatti, F. Sor, D. Milhaud, A. Roussel, M.M. Ponce, I. Albeniz og E. Granados. Tónleikarnir hófust á Prelúdíu, Fúgu og Allegro í D eftir Bach. Þetta er með vinsælustu verkum meistarans sem skrifuð hafa verið fyrir gítar. Vefrænt séð eru allir kaflarnir einfaldir eins og títt er hjá Bach en því meir liggur snilldin í línum, kontrapunkti og hljóm- ferli. Til þess að tónlistin njóti sín best verður hún að fá að ná flugi á eigin forsendum. Ghiglia spilaði verkið af mikilli hógværð og still- ingu, notaði ekki of mikinn tón og gætti þess að hleypa sér eða sínum tilfinningum ekki of mikið í leikinn. Annað gilti um túlkun hans á þremur sónötum eftir D. Scarlatti. Sú tónlist er í eðli sínu ekki eins upphafín og tónlist Bach og er þvi ekki eins viðkvæm fyrir því að menn spili af geðþótta eins og Ghigilía gerði. Fraseringar og styrkleikabreytingar voru vel mót- aðar og leikgleði mikil Fimm litlir þættir eftir F. Sor eru frekar rislitlar tónsmíðar við hliðina á Bach og Scarlatti. Maður veltir því óhjákvæmilega fyrir sér hvers vegna úrkynjun úr baroki yfír í klassík var svo mikil. Hljóm- ferli er gjanan bundið við þrjá til fjóra hljóma, dúr er ráðandi tónteg- und, línur oft mjög fyrirsjáanlegar, endurtekningar tíðar og kontra- punktur varla til staðar. Ghiglia tók skemmtilega á þessu máli. Allt í einu varð túlkun hans mjög dýna- mísk og full af andstæðum, einmitt til að vega upp á móti tilbreytingar- leysi tónlistarinnar. Eftir hlé tók rómantíkin við og um leið varð Ghiglia líka þessi ofur- rómantíski spilari. Allt var gert af þvílíkri innflifun og tilfinningu að jaðraði við væmni, en það er ein- mitt það sem við átti. Hæst reis hin rómantíska túlkun í Maliorca eftir I. Albeniz og La Maja de Goya eftir E. Granados þar sem meistarinn sýndi hið mikla vald sem hann hefur á tónmyndun. Leikur Oscars Ghiglia var af þeirri gráðu sem sjaldan sést hér á landi. Ekki aðeins virtist lista- maðurinn hafa fullkominn vitræn- an skilning á tónlistinni heldur var líka til staðar smekkvísi sem sagði til um hversu stór hlutur túlkand- ans átti að vera í tónlistinni. Að- dáunarverðust var túlkunin á Bach þar sem Ghiglia féll ekki í þá gryfju (sem sumir píanóleikarar hafa gert) að setja sjálfan sig og sína tækni framar tónlistinni. Einar Kristjánsson og Martial Nardeau AÐRIR tónleikar Gítarfestivals á Akureyri voru haldnir miðvikudags- kvöldið 13. júlí í Akreyrarkirkju. Þar voru á ferðinni gítarleikarinn Einar Kristján Einarsson og flautu leikarinn Martial Nardeau. Á efnisskránni vru verk eftir M. Giuliani, F. Poulenc, Lárus Gríms- son, M.C. Tedesco, H.V. Lobos og A. Piazzolla. Fyrstu tvö verkin á efnisskránni, Grande Sontae op. 85 í A-dúr eftir Giuliani og Mouvements Perpétules efftir Poulenc eiga það sameiginlegt að vera átakalítil og yfírborðskennd skemmtimúsík. Lítið reynir á gítar- inn sem sér aðallega um hómófón- ískt undirspil á meðan flautan syng- ur langlínur í þeim klassíska „ligeglad" stíl sem á lítið erindi í dag. Það er skemmtilegt að velta því fyrir sér af hvaða hvötum Giul- iani kallar sitt verk „Stór“sónötu vitandi af sónötum Beethovens sem bera sjaldan svona sjálfs-upphefj- andi titla. Flutningur var lifandi og skemmtielgur en náði ekki að gera tónlistina áhugaverða. Frumflutt var verkið „’tis a Stair- way not a Street“ eftir Lárus Grímsson. Nú kvað við annan tón, lognmolla og afstöðuleysi var á bak og burt en grípandi hryn- og lit- brigða-músík tók við. Flytjendur voru greinilega með á nótunum og spiluðu af krafti og innlifun. Lárus er eitt af þeim tónskáldum sem sætta sig ekki við að skemmtigildi tónlistarinnar sé hunsað. Þekktar eða auðgreinanlegar stærðir, til- brigði við þær og síðan andstæður hafa lengi verið inntakið í byggingu tónlistar. Þessi lögmál virðir Lárus með góðum árangri, tónlistin er fersk og skemmtileg. Fyrsta verk eftir hlé var sónatína op. 205 eftir Tedesco. Þetta er sætleg músík með undirljúfum And- antinu kafla sem gott vald Einars á tónmyndun naut sín sérlega vel. Distribucáo de Flóres eftir Lobos er stutt dulúðug frumskógar- stemmning sem krafðist lítils ann- ars af flytjendum en skilnings á tónmálinu. Gítarinn lék aðeins á opna strengi á meðan flautan fram- kallaði flata, frumstæða og hæga tóna. Þrátt fyrir lítinn efnivið var tónlistin mjög heillandi og má það sennilega skrifast á hinn óvestræna en þó einfalda danstakt. Seinasta verkið Histoire du Tango eftir Piazzolla sór sig í ætt við fyrstu tvö verk tónleikanna en risti þó á köflum aðeins dýpra í stemmningu. Flautan er án efa það hljóðfæri sem nær bestum samhljómi með gítamum enda algengasta með- Ieikshljóðfæri hans. Martial Narde- au er mjög fær og skemmtilegur flautuleikari þó vantaði að hann passaði upp á jafnvægið milli hljóð- færanna. Einar, sem hefur mikinn og breiðan tón, drukknaði alltof oft í flautunni. Almennt séð var leikur Einars og Martials vel samhæfður, kraftmikill og öruggur. Arnaldur Arnarson ÞRIÐJU tónleikar Gítarfestivals- ins á Akureyri voru haldnir fimmtu- dagskvöldið 14. júlí í Akureyrar kirkju. Arnaldur Amarson lék þar einleik á gítar. Á efnisskránni voru verk eftir Fernando Sor, Mario Castelnuevo- Tedesco og Manuel Maria Ponce. F. Sor var eini höfundurinn fyrir hlé og vom flutt þijú verk eftir hann: Cantabile op. 43 nr. 3, Morc- eau de Concert op. 54 og Fantaise Élégiaque op. 59. í Cantabile, sem er einfalt söng- hæft lag, framkallaði Arnaldur syngjandi tón i lagh'nu og meðvitað mótvægi í undirleik. Morceau de Concert er að stofni til tilbrigði við stef. Sennilega var það sterkasta hlið F. Sor að semja tilbrigði, sem eru í þessu tilfelli mjög skemmtilega útfærð og skreytt. Arnaldur sýndi af sér þróttmikla spilamennsku og góða dýnamíska úrvinnslu. Fantaise Élégiaque samanstend- ur af fjórum hægum köflum; hæg- um inngangi, Andante largo, Marche Funébre og Andante mod- erato. Þessu verki er varla viðbjarg- andi varðandi tilbreytingarleysi í stemmningu og hraða, það er mjög hætt við að fólk missi athyglina eða jafnvel sofni undir fjórum hægum köflum í röð. Þegar andstæður eru ekki til staðar missa menn gjarnan þráðinn. Fyrra verkið eftir hlé var Tarant- ella eftir Tedesco. Skemmtilegt stykki sem reynir á tækni og hraða. Amaldur skilaði sínu mjög vel og var sérstaklega gaman að heyra hve vel styrkur og gæði tónsins héldust í hröðum skölum og brotn- um hljómum. Tónleikarnir enduðu á Tilbrigði og Fúgu um „Folia de Espana" eft- ir Ponce. Ponce var mjög metnaðar- fullt tónskáld sem reyndi við mörg hina hefðbundnu forma. Tónmál hans er skemmtilegt og einkennist af útúrdúrum frá hinu hefðbundna dúr/moll kerfi í gegnum spænska og suður-ameríska alþýðutónlist. Því miður bregðast margir ókvæða við þessu tónmáli og fordæma það sem alþýðutónlist. En þegar grannt er skoðað kemur í ljós að höndum var ekki til kastað. Þetta er langt og mikið verk og sennilega með þyngri verkum gítarbókmenntanna. Arnaldur skilaði því túlkunarlega séð mjög vel frá sér en þó varð óneitanlega vart við hnökra. Ekki voru það tæknileg vandamál heldur var um að ræða minnisbresti sem komu fram í örlitlum hikum við hljóma- og pósisjóna-skiptingar. Arnaldur sýndi mjög góðan og agaðan leik. Sérstaklega hefur hann mikið vald á tónmyndun og nær hann miklum og jöfnum styrk, óháð registeri, úr hljóðfæri sínu. Túlkun var jafnan innileg og vönduð en þó án þess að væri farið langt frá gefnum hraða og hrynjandi. Varðandi efnisskrána má segja að hún hafi verið fullþung og metn- aðarfull. Það er hætt við að hinum almenna hlustanda hafi leiðst, sem gæti leitt af sér litla löngun í að sækja slíka tónleika aftur. Fólk vill gjarnan fá að heyra eitthvað sem það þekkir. Litlu, sætu lögin eru ekki aðeins brúkleg í uppklappið heldur einnig til að ná stemmning- unni niður á jörðina milli meistara- verkanna. KK og Guðmundur Pétursson í Deiglunni FJÓRÐU og síðustu tónleikar á Gítarfestivali á Akureyri voiu blús- tónleikar KK og Guðmundar Pét- urssonar í Deiglunni laugardaginn 16. júlí. Flutt var tónlist eftir KK o g sígildir erlendir standardar. Upp- selt var á tónleikana sem þó hafði verið flýtt með stuttum fyrirvara. Blús er sérstætt listform sem byggir á tilfinningalegum og vit- rænum spuna. Notaður er ákveðinn hljómagangur, tónstigi og átta takta setningarbyggingin (a,a’,b). Síðan er auðvitað öllum þessum elimentum varíerað en þó innan þess ramma að formið er ávallt auðþekkjanlegt. Blúsinn ber ýmis einkenni tilbrigðaforma frá endur- reisnar- og baroktímanum. í raun má segja að blús sé chaconna, þ.e. endurtekinn er átta takta hljóma- gangur í sífellu en öðrum parametr- um tilbreytt. Það sem gerir blúsara að blúsara er að hann skilji og virði tilfínninga- leg og byggingarleg einkenni formsins og hafí hæfni til að impróvisera. Þeir hæfíleikar sem Guðmundur Pétursson er gæddur á þessu sviði eru vægast sagt sjald- gæfír. Hann er ekki einungis eitt mesta tæknitröll í íslenskum rafgít- arleik heldur ofan á það uppfinn- ingasamur, úrræðagóður og smekk- legur impróviserari sem þekkir lög- mál blústónstigans út í hörgul. KK hefur aftur á móti þá reynslu sem gerir hann að blúsara blúsaranna á Islandi, það er eins og tónlistin sé grædd í hveija einustu taug á manninum, innlifunin er þvílík. Blúsararnir tveir sýndu af sér snilldartakta á þessum tónleikum. KK gaf grúvið og söng með sinni tjáningarfullu rödd en Guðmundur framkallaði vitrænan og skemmti- legan spuna sem hann hefur senni- lega einn á valdi sínu hér á landi og þó víðar væri leitað. Það sem helst mætti hnýta í var uppröðun laga. Á efnisskránni voru lög í mismunandi hraða og tilfinn- ingu en þó kom það fyrir að tvö ef ekki þijú lög í sama hraða lentu hvert á eftir öðru. Eftir tíu mínútur af sama hljómaganginum, í sama hraðanum og jafnvel sömu tónteg- und er hætt við að athyglin fari á flakk. En hvað sem því líður voru þetta skemmtilegir tónleikar í hæsta mögulega gæðaflokki. Jón Guðmundsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.