Morgunblaðið - 22.07.1994, Side 24

Morgunblaðið - 22.07.1994, Side 24
24 FÖSTUDAGUR 22. JÚLÍ 1994 MORGUNBLAÐIÐ MIIMNINGAR + Ragnheiður Jónsdóttir fæddist á Brodda- dalsá í Fellshreppi 13. október 1897. Hún lést á Hrafn- istu í Reykjavík 14. júlí siðastliðinn. Foreldrar hennar voru Jón Brynjólfs- son, bóndi á Broddadalsá, og kona hans Guð- björg Jónsdóttir frá Miðhúsum í Kolla- firði Andréssonar. Ríignheiður var elst 11 systkina, en eft- irlifandi eru nú Halldór, Guðjón og Hallfriður. Ragnheiður gift- ist Guðmundi Pétri Guðmunds- syni, bónda á Melum í Árnes- hreppi í Strandasýslu, 10. júlí 1942. Þeim hjónum varð ekki barna auðið, en þau tóku að sér kjördóttur, Elísabetu, f. 12. nóvember 1946, gift (26. ágúst 1967) Erlendi Björgvinssyni, f. 4.8. 1944, frá Barði í Fljótum í Skagafirði. Þau eiga tvö börn: Guðmund Heiðar viðskipta- fræðing, f. 30.1. 1968, og Sól- veigu, f. 15.4. 1980. Guðmundur og Ragnheiður brugðu búi 1974 og fluttust til Reykjavíkur. Þau keyptu íbúð á Lokastíg og bjuggu þar, þar til þau fluttust á Hrafnistu. Þar lést Guðmund- ur 6. ágúst 1987. Ragnheiður lauk, fyrir utan skyldunámið, prófi frá Kvennaskólanum á Blönduósi. Úför hennar fer fram frá Fossvogskirkju í dag. ÞEGAR ég frétti lát Ragnheiðar Jónsdóttur fyrrum húsfreyju á Mel- um í Árneshreppi rifjaðist upp fyrir mér eftirminnileg sigling um sumar- nótt á Húnaflóa fyrir fimmtíu og tveimur árum. Eg var til aðstoðar Birni bróður mínum, sem var for- maður á Svaninum frá Heydalsá, fjögurra tonna trillu. Erindi okkar var að flytja búslóð Ragnheiðar frá æskuheimili hennar, Broddadalsá, norður að Melum í Arneshreppi þar sem hún var að stofna heimili og heija búskap með frænda mínum Guðmundi P. Guðmundssyni, f. 22. janúar 1899, er þá hafði þegar stað- ið í tæpa tvo áratugi fyrir búi móður sinnar, Elísabetar Guðmundsdóttur frá Ófeigsfirði, eftir að hún varð ekkja með stóran hóp ungra barna. Klukkan var ellefu um kvöldið er lokið var við að skipa út farminum, en þar var meðal húsgagna og ann- arra muna stofuorgel, sem Ragn- heiður hafði eignast ung að árum. í ijómalogni kvöddum við Brodda- dalsármenn og héldum norður á bóginn. Sjórinn var spegilsléttur svo langt sem augað eygði og moraði af fugli og sel við eyjar og sker. Og þessi einstaka veðurblíða entist okkur alla leiðina. Eftir hálfan fimmta tíma opnaðist Melavíkin og blasti við okkur i sólarupprásinni með sína stórbrotnu náttúrufegurð, sem við bræður litum þá í fyrsta sinni. Ámesfjall og Urðartindur ljómuðu þar í gullinni töfrabirtu eins og risar á verði til beggja handa, en dálitið dalverpi slétt og fallegt lá upp frá víkinni á milli fjallanna. Sama ættin hafði búið þarna frá árinu 1976. Nú bjuggu á Melum bræðurnir Guðmundur Pétur og Sig- mundur Guðmundssynir í tvíbýli. Sigmundur var kvæntur Sigrúnu Guðmundsdóttur, fósturdóttur séra Sveins Guðmundssonar í Árnesi. Við Billi eins og Björn var kallaður gerð- um ráð fyrir að allt heimilisfólkið væri í fasta svefni, er við kæmum á leiðarenda, en það var öðru nær. Þótt klukkan væri ekki orðin fjögur um nóttina, voru allir á fótum og tóku okkur tveim höndum. Og enn meira undrandi urðum við, er heima í húsi þeirra Guðmundar og Ragn- heiðar beið okkar ijúkandi heitt og lostætt hangikjöt ásamt öðru góð- gæti. En síðar varð mér ljóst, að þetta var einmitt gott dæmi um þá rausn og höfðingsskap, sem hús- bændunum var í blóð borinn. Afi Ragnheiðar, Brynjólfur Jónsson var kvæntur Ragnheiði Jónsdóttur Magnússon- ar á Broddanesi, systur Guðbjargar rithöfundar á Broddanesi. Ragn- heiður hét í höfuðið á föðurömmu sinni og var alnafna hennar. Hún sór sig líka í þá ætt að því leyti, að hún átti mjög auðvelt með að tjá sig, bæði í mæltu máli og rituðu. Um það vitna nokkrar greinar sem hún skrifaði um átta- haga sína í Stranda- póstinn. Ragnheiður var elst sinna systkina, hópurinn var stór, því að alls áttu foreldrar hennar 11 börn. Eins og venja var við slíkar kringum- stæður hvíldi mikil vinna og ábyrgð á herðum elstu systkinanna, bæði við búverkin úti og inni og eins við uppeldi barnanna. En allt var það innt af hendi möglunarlaust með ljúfu geði. Ragnheiður var skarp- greind og námsfús, en á þeim tíma áttu börn og unglingar fárra ksota völ. Hún var þó um tíma við nám í Heydalsárskólanum, er starfaði bæði sem barna- og unglingaskóli á fyrstu áratugum aldarinnar. Síðar lærði hún í Kvennaskólanum á Blönduósi og kom námið henni að góðu gagni. Um nokkurt skeið var hún í Grindavík hjá Hirti kennara Jónssyni bróður sínum vegna veik- inda mágkonu hennar, Önnu Odds- dóttur frá Hlíð, konu Hjartar. En lengst af var hún framan af ævinni heima hjá foreldrum sínum og vann þeim eftir megni. Þótt Ragnheiður væri fönguleg sem ung stúlka og góður kvenkostur vildi hún lengi vel ekki bindast nein- um. En þar kom um síðar, að hún hét Guðmundi P. Guðmundssyni á Melum í Árneshreppi eiginorði og giftust þau í Ófeigsfirði 10. júlí 1942. Sama dag voru og tvenn hjón gefin þar saman að auki. Slíkt var óvenju- legt í þeim byggðum enda þótti þetta stórviðburður og brúðkaupsveislan í þeim rausnargarði lengi í minnum höfð. Hin brúðhjónin voru Svein- björn Guðmundsson frá Þorfinns- stöðum í Önundarfirði, f. 27. janúar 1896, og Sigríður Þórunn Guð- mundsdóttir Péturssonar í Ófeigs- firði, f. 23. janúar 1900. Þriðju brúð- hjónin voru Guðmundur Pétursson Guðmundssonar í Ófeigsfirði, f. 7. maí 1912, og Elín Elísabet Guð- mundsdóttir Guðmundssonr í Bæ í Árneshreppi, f. 27. febrúar 1919. Presturinn, sem gaf hjónaefnin sam- an var séra Þorsteinn Björnsson í Árnesi, síðar fríkirkjuprestur i Reykjavík. Miðað við urmót tímans var heim- ilislíf á Melum í tiltölulega föstum skorðum og byggt á traustum grunni. Elísabet móðir húsbóndans var mikill skörungur og leitaðist við að hafa í heiðri hinar fornu dyggðir eins og iðjusemi, nýtni og sparsemi, sem reyndar var nauðsynleg for- senda til að geta haldið marinlegri reisn og sýnt af sér höfðingsskap þegar við átti. Nýja húsfreyjan féll vel inn í þetta lífsmunstur og var fljót að aðlaga sig ríkjandi staðhátt- um, en kom þá sínum tillögum fram með lipurð og lagni. Þau hjón kom- ust vel af því kindur þeirra skiluðu miklum afurðum þótt bústofninn væri aldrei stór, varla meira en háflt vísitölubú og kunnu þau því vel þá list að lifa af litlu. Og þar með af- sönnuðu þau þá kenningu, að ekki væri hægt að lifa hér á landbúnaði nema með því móti að búa stórbúi. Þegar vélvæðingin byrjaði í landbún- aðinum gættu þau þess, að stilla vélakaupum í hóf, þannig að offjár- festing á því sviði yrði þeim ekki að meini. Að vísu gerðu þau ekki miklar kröfur til lífsþæginda og skemmtana. Kannski má segja sem svo, að þau hafi ekki hirt um að taka þátt í lífsgæðakapphlaupinu, vitað sem var, að lífshamingjan fæst ekki keypt fyrir peninga. Þau hjón, Ragnheiður og Guð- mundur voru einkar vel samvalin, þótt þau væru á ýmsan hátt ólík. Ættfræði og þjóðlegur fróðleikur var þeim óþijótandi umræðuefni og ynd- isgjafi. Állir mættu hlýjum móttök- um, sem komu að Melum og gestirn- ir hlýddu á óvæntar athugasemdir húsbóndans um lífið og tilveruna meðan þeir biðu eftir að húsfreyjan kæmi með kaffið. Hún kunni ekki síður að koma fyrir sig orði, en heyrnardeyfa frá æsku var henni stundum fjötur um fót. Eitt var það sem skyggði í fyrstu á lífshamingju þeirra Melahjóna. Þeim hafði ekki orðið barna auðið eftir fjögurra ára hjónaband. Þá ákváðu þau að taka barn í fóstur, ef þau ættu þess einhvern kost. Það var því líkast sem hulin hönd stjórn- aði þessari ákvörðun, því að nokkru seinna höfðu þau fengið nýfætt stúlkubarn til ættleiðingar og umönnunar. Telpan var fædd 12. nóvember 1946 og var gefið nafnið Elísabet. Þegar hún þroskaðist að visku og vexti komu í ljós slíkir eðlis- kostir hennar að betri og umhyggj- usamari dóttur gátu engir foreldrar kosið sér. Hún var sannkallaður sól- argeisli í lífi þeirra, sem lýsti og vermdi því meir, sem aldur færðist yfir Melahjónin. Mörg börn dvöldu lengri eða skemmri tíma að sumar- lagi á Melum, sum þeirra árum sam- an. Öll áttu þau þar gott athvarf og minnast þess tíma með þakklæti og ánægju. Þar lærðu þau að vinna af trúmennsku og öðlast sjálfs- traust, sem kemur sér vel á lífsleið- inni. Þau Guðmundur og Ragnheiður bjuggu á Melum í um þijá áratugi, en þá fór heilsan að láta sig og þar kom, að þau hættu búskap. Fluttu þau þá til Reykjavíkur og keyptu sér íbúð á Lokastíg 20. Ekki sögðu þau þó alveg skilið við jörð sína, því að um nokkur sumur komu þau að Melum, staðnum sem þeim var kæ- rastur allra á jörðinni. En líkams- þrekið fór óðum þverrandi. Árið 1975 seldu þau Birni syni mínum jörðina. Komu þau norður í Árneshrepp nokkrum sinnum eftir það og gátu glaðst yfir, að nýja bóndanum vegnaði vel og hélt því umbótastarfi, sem þar var áður haf- ið til að fegra og bæta jörðina. Ævikvöldinu eyddu Melahjónin á Hrafnistu og bjuggu þá fyrst í sér- íbúð í Jökulgrunni. Þegar Elísabet dóttir þeirra fór að vinna á Hrafn- istu, átti hún hægara með að líta til með þeim. Þá hafði hún og sjálf stofnað heimili og var komin með fjölskyldu. Maður hennar var Er- lendur Björgvinsson bifreiðastjóri. Var þeim Melahjónum góður styrkur að tengdasyninum, og mikil var gleð- in yfir bamabömunum tveimur, þeim Guðmundi Heiðari og Sólveigu þegar þau komu til sögunnar og fylgdust þau vel með þroska þeirra og vom stolt af þeim góða námsár- angri sem þau náðu í skólanum. En einkum voru þau hrifin af þeirri væntumþykju, sem börnin báru til afa og ömmu. Sú ástúð var hrein og fölskvalaus. Eftir að Ragnheiður varð ekkja árið 1987 hallaði mjög undan fæti fyrir henni. Hún saknaði Guðmundar mikið og talaði oft um hann. Þau höfðu jafnan stytt sér stundir með því að rabba um sameiginleg áhuga- mál. Og Guðmund heyrði ég sjálfan segja, að hann hefði engan áhuga fyrir að tala við karlana í kringum sig, því að þeir vissu ekki neitt. Hins vegar var aldrei komið að tómum kofunum hjá Ragnheiði, enda mat Guðmundur konu sína mikils. En nú var ekki aðeins, að lífsförunautur hennar væri horfinn yfir móðuna miklu, heldur var og bæði heyrn hennr og sjón á förum. Heyrn henn- ar hafði lengst af verið slæm, en versnaði svo, að hún átti erfitt með að ná sambandi við fólk þótt hún notaði heyrnartæki. Og síðustu sex árin var hún alveg blind. Hins vegar var það ljóst, að minni hennar og dómgreind var óskert og í ótrúlega virku ástandi. Og ef gestinum heppnaðist að láta hana skynja, hver kominn var í heimsókn, þá var hún strax með á nótunum, og spurðist fyrir um börnin og heimilishagi, el- legar frétta úr átthögum. Og fyrir kom, að hún lét í ljós álit sitt á lands- málum. Svo virtist, sem raddir gest- anna bærust misvel til hennar. Eng- um tókst jafnvei og Ellu dóttur hennnar að ná sambandi við hana og veiti hún ósjaldan gestum aðstoð við að fleyta orðum þeirra yfír djúp þagnarinnar. Það var við þessar þrengingar sem best kom í ljós hvílík hetja Ragnheið- ur Jónsdótir var. Aldrei heyrði mað- ur hana kvarta yfir sínu bágborna heilsufari. Hún var ávallt með glöðu yfirbragði og var greinilega gefinn mikill sálarstyrkur. Hún var þakklát fyrir allt sem fyrir hana var gert og virtist sem ekkert fengi raskað andlegu jafnvægi hennar. Af henni mátti því mikið læra. Hún andaðist 14. júlí á 97. aldurs- ári, södd lífdaga, en fullkomlega sátt við guð og menn og í öruggri trú á góða heimvon. Guð blessi minningu þeirra Mela- hjóna beggja. Eiísabetu dóttur henn- ar og fjölskyldu sendum við hjónin innilegar samúðarkveðjur. Torfi Guðbrandsson. Ragnheiði og Guðmundi farnaðist vel á Melum, enda voru þau hjónin mjög samhent. Jörðin Melar þótti góð bújörð, með góðu grasgefnu undirlendi, stutt að róa til fiskjar og mikill reki. Undirritaður var tólf ára unglingur þegar Ragnheiður giftist Guðmundi móðurbróður hans og flutti að Melum og man því vel eftir því. Heimili þeirra stóð alltaf opið öllum ættingjum og gestrisnin var einstök. Guðmundur gekk iðu- lega í veg fyrir menn sem áttu leið framhjá til að bjóða þeim inn. Ungl- ingar, systkinabörn Guðmundar, sóttu það stíft að fá að vera í sveit- inni, á Melum, yfir sumartímann og var oft ijölmennt þar yfir háanna- tímann og ekki auðvelt að sjá um heimilið. Ragnheiður var mikil sóma- kona, barngóð, skapgóð, gáfuð, sanngjörn, velviljuð og minnist ég þess ekki að hafa heyrt hana tala illa um nokkurn mann. Það sem hún lagði til málanna var ætíð til þess að bæta. Hún hafði mikið yndi af lestri góðra bóka og hafði gaman af að ræða um innihald þeirra og heimsviðburðina. Ragnheiður skrif- aði líka smásögur, um atburði líð- andi tíma og vinnuhætti fólks í sveit- inni þegar hún var yngri. Eitthvað af þessu birtist í Strandapóstinum, en megnið af því er nú eflaust glat- að, enda gerði Ragnheiður enga til- raun til að varðveita það eða koma því á framfæri. Snemma fór að bera á heyrnar- deyfð hjá Ragnheiði, en það tak- markaði getu hennar til að hafa tjá- skipti við annað fólk. Á síðari æviár- um fór að bera á sjóndepru. Heyrn- ardeyfðin ásamt sjóndeprunni, sem ágerðist með árunum, gerði það að verkum að jafnvel með hjálp bestu heyrnartækja og gleraugna er erfitt að ná tal- og augnsambandi við hana. Allir sem til þekktu, skildu hvað þetta var þungbær raun fyrir þessa gáfuðu konu, Ragnheiði, sem var félagslynd að eðlisfari, að ein- angrast þannig og geta ekki tekið þátt í samræðum um málefni sem hún þekkti og hafði skilning á. Aldr- ei heyrði ég hana þó kvarta undan þessu hlutskipti sínu og alltaf hélt hún sínu góða skapi, sem gerði alla umgengni við hana þægilega. Ragnheiður og Guðmundur voru sérlega heppin með kjördóttur sína, því Elísabet reyndist kjörforeldrum sínum sérstaklega vel og hefðu eigin börn ekki getað gert betur, enda töluðu Ragnheiður og Guðmundur um þá gæfustund þegar þau eign- uðust hana. Við sem til þekkjum færum því Elísabetu þakkir okkar fyrir þá umönnun sem hún sýndi, fyrir trygglyndi hennar við kjörfor- eldra sína og fyrir þann ómælda tíma sem hún notaði til að vera með þeim og sinna óskum og þörfum þéirra. Dauða Ragnheiðar bar ekki skyndilega að, heldur var hægt að segja að hann hafí færst hægt yfír hana. Síðustu sjö árin var hún að mestu rúmliggjandi. Dauðinn, með öllum afleiðingum sínum, hrörnun og sjúkdómum, þessi óvinur mann- kynsins, sem setur spor sín mis- RAGNHEIÐUR JONSDOTTIR snemma á menn, hindrar þá í að njóta lífsins og þeirra hæfileika sem Guð skapaði þá með. Síðasta skref dauðans, andlátið, svefninn langi, er þá eins og hvíld frá dauðans göngu. Dauðinn er andstæða lífsins. „Þeir sem lifa, vita að þeir eiga að deyja, en hinir dauðu vita ekki neitt.“ (Prédikarinn 9:5.) Guð opinberar í orði sínu, Biblíunni, þá ætlun sína að vekja hina dánu aftur til lífs á efsta degi. Já, alvaldur Guð er ekki aðeins þess megnugur að vekja upp menn, sem hann geymir í minningu sinni, frá dauðum, heldur þráir hann það. Jesús Kristur lagði ríka áherslu á þetta með þessum orðum: „Undr- ist þetta ekki. Sú stund kemur, þeg- ar allir þeir, sem í gröfunum eru, munu heyra raust hans og ganga fram.“ (Jóhannes 5:28, 29.) Upprisu- vonin, vonin um að látnir ástvinir munu vakna upp til lífs í jarðneskri paradís, í réttlátu samfélagi undir stjórn Guðs er mikil huggun fyrir alla þá sem á hann trúa. í þessu samfélagi verður mannkynið læknað af öllum sjúkdómum^ og „enginn borgarbúi mun segja: Ég er sjúkur.“ (Jesaja 33:24.) Undirritaður væntir þess að Ragnheiður fái að lifa, þeg- ar þar að kemur, í slíku umhverfi og fá að njóta allra sinna góðu eigin- leika. Að síðustu vill undirritaður votta öllum syrgjandi ástvinum hluttekn- ingu sína. Guðmundur Halldór Guðmundsson. Amma okkar Ragnheiður Jóns- dóttir lést fimmtudaginn 14. júlí sl. 96 ára að aldri. Síðustu æviár sín var hún mikið rúmliggjandi en hafði þó alltaf fótaferð eins og heilsan leyfði. Fyrstu minningar tengdar ömmu eru frá Melum þar sem hún og afi bjuggu til ársins 1974. Þau voru mörg störfín sem sinna þurfti og sá hún um að menn og málleysingjar hefðu nóg að borða og var oft margt um manninn á heimili þeirra. Hún hafði sterkar taugar til sveitarinnar og sagði oft sögur þaðan bæði frá Árneshreppi og Broddadalsá þar sem hún ólst upp. Tengdust þessar sögur oft ferðalögum sem gátu verið erfið og fæðuöflun. Hún hafði gott minni og kunni margar vísur og sálma sem hún fór með meðan hún lifði. Fljótlega eftir að þau fluttu til Reykjavíkur settust þau að á Loka- stíg. Alltaf var amma tilbúin að gera eitthvað sem hún var beðin um eins og að koma í leiki, t.d. feluleik, spila á spil eða fara í gönguferð í bæinn. Þá var á heimili þeirra mikið safn bóka sem gaman var að skoða. Þau fluttu síðan á Hrafnistu í Reykjavík 1981. Var gaman að heimsækja þau þar og höfðu þau nóg kaffi og góðgæti handa gestum sínum eins og venjulega. Heilsunni hjá ömmu tók að hraka eftir því sem aldurinn færðist yf . Hún hafði haft skerta heyrn frá því hún var ung og versnaði heyrnin smám saman á efri árum. Vegna þess gat hún lítið orðið talað við fólk og við bættist að síðustu árin hafði hún misst sjón, en sá þó stundum mun á nóttu og degi. Hún missti þó ekki góða skap- ið og léttu lundina sem hún hélt á meðan hún lifði og gladdist yfir þeim litlu fréttum sem hún gat heyrt af vinafólki og af landsmálum. Hún var næm gagnvart fólki og gat oft þekkt þá sem til hennar komu með því að taka í hönd þeirra. Þá kom fyrir að hún gaf góð ráð við því sem maður hugsaði án þess að hafa verið sagt frá því hveiju maður velti fyrir sér. Ávallt hafa hún og afi reynst okkur systkinunum vel og gefið okkur margar gjafir sem reynst hafa vel. Ég og ijölskylda mín viljum sér- staklega þakka starfsstúlkum á hjúkrunardeild E II á Hrafnistu fyr- ir frábæra umönnun hennar síðustu æviárin og elskulegt viðmót við okk- ur öll. Trúðu á tvennt í heimi, tign sem hæsta ber, guð í aiheims geimi, guð í sjálfum þér. (St.Th.) Guðmundur Heiðar og Sólveig Erlendsdóttir.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.