Morgunblaðið - 22.07.1994, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
FÖSTUDAGUR 22. JÚLÍ 1994 29
■4" Henrik Steins-
* son var fæddur
á Siglufirði 24.
september 1905.
Hann andaðist á
Akranesi 17. júlí
síðastliðinn. For-
eldrar hans voru
hjónin Sigríður
Þorláksdóttir og
Steinn Einarsson
skipasmiður. Fjórt-
án ára að aldri flutt-
ist Hendrik með
foreldrum sínum til
Hafnarfjarðar, en
til Akraness fluttist
fjölskyldan 1923 og bjó í Mið-
engi. Hinn 29. júní 1929 gekk
Hendrik Steinsson að eiga eftir-
lifandi konu sína, Jónu Vil-
hjálmsdóttur. Jóna er fædd í
Vestra-Skorholti 20. ágúst 1909
og voru foreldrar hennar Eyrún
Guðmundsdóttir og Vilhjálmur
Jónsson er fluttu til Akraness
1911 og lengi bjuggu í Þinghól.
Jóna og Hendrik eignuðust fjög-
ur börn: Önnu Jónu, f. 14. mars
1930, d. 22. september 1945;
Ingu Lilju, f. 5. febrúar 1934,
d. 3. júní 1935; Hreggvið Stein
vélstjóra, f. 19. febrúar 1937,
kvæntur Sigrúnu Sigurjónsdótt-
ur; Vilhjálm Rúnar símvirkja,
f. 5. nóvember 1951, kvæntur
Aðalheiði Oddsdótt-
ur. Ungur hóf Hend-
rik að stunda sjó-
mennsku. Hann tók
vélsljórapróf 1927 og
var vélstjóri á bátum
frá Akranesi. Lengst
mun hann hafa verið
á Öldunni með Brynj-
ólfi Nikulássyni, sem
var kunnur formaður
hér á Akranesi. Utför
Hendriks fór fram frá
Akraneskirkju í dag.
BRÆÐURNIR Þor-
geir og Jóhannes Ellert
Jósefssynir stofnuðu haustið 1928
Vélsmiðjuna Þorgeir & Ellert sf. og
mjög fljótlega hóf Hendrik að starfa
í Vélsmiðjunni á milli vertíða. aðal-
lega haust og vor. Árið 1937 hætti
hann alveg sjómennsku og gerðist
fastur starfsmaður Vélsmiðjunnar
Þorgeris & Ellerts sf. Hann lauk
námi í vélvirkjun 24. október 1942
og var fimmti maður er þar lauk
prófi.
Starfsdagur Hendriks hjá Þorgeiri
& Ellert varð langur og einkar far-
sæll, því hann var orðinn 82 ára er
hann lét af störfum. Aðallega fékkst
Hendrik við viðgerðir á bátavélum
og niðursetningu á nýjum vélum
ásamt öðrum búnaði í vélarúmum
skipa. Var hann annálaður sem
framúrskarandi hæfur viðgerð-
armaður og mjög eftirsóttur þegar
vanda bar að höndum. Hann var
kappsamur og ötull verkmaður með
ríka ábyrgðartilfinningu og faglegan
metnað bæði fyrir sína hönd og ekki
síður fyrir hönd fyrirtækis, er hann
starfaði hjá.
Hendrik var mikið hraustmenni
og á árum áður varð iðulega að
beita ýtrustu kröftum samfara lagni
til að ná besta árangri. Eitt sinn
þurfti að öxuldraga bát og var hon-
um lagt í fjöru svo vinna mætti verk-
ið á útfallinu og verkinu varð að
ljúka fyrir flóð, sem tókst með harð-
fylgi, en Hendrik Steinsson kom
syndandi frá þessu verki, enda því
vanastur að spara sig hvergi.
Hendrik tók á árum áður virkan
þátt í störfum Iðnaðarmannafélags
Akraness og um langt árabil starf-
aði hann ötullega í Rotaryklúbbi
Akraness og naut sín vel í þeim fé-
lagsskap.
Hendrik var maður fróður og skrif-
aði um langt árabil dagbók um verk
sín og annað, sem fyrir bar í daglegu
lífi. Hann skráði niður visur og
skondnar sögur og var maður mjög
ættvís. Ungum mönnum, sem með
honum störfuðu, þótti gott til hans
að leita um leiðsögn í verkum sínum
og hann var þeim góð fyrirmynd með
heilbrigðu lífi og reglusemi.
Ástvinum Hendriks Steinssonar
færi ég mínar innilegusu samúðar-
kveðjur jafnframt því sem ég þakka
honum tryggð og vináttu við mig
og fjölskyldu foreldra minna um
áratugi.
Jósef H. Þorgeirsson.
HENDRIK KRISTINN
STEINSSON
HA UKUR KRISTJÁNSSON
+ Haukur Krist-
jánsson var
fæddur á Stapa í
Lýtingsstaðahreppi
13. júlí 1928. Hann
lést á Fjórðungs-
sjúkrahúsi Ak-
ureyrar 15. júlí síð-
astliðinn. Foreldrar
hans voru Ingibjörg
Jóhannsdóttir og
Kristján Árnason.
Haukur kvæntist
Önnu Steindórs-
dóttur 26. janúar
1952. Þau eignuðust
tvö börn, Ulfar og
Selmu. Útför Hauks fer fram frá
Akureyrarkirkju í dag.
ÉG GET ekki lýst með orðum
hvernig mér varð við, er Anna
frænka mín hringdi í mig á laugar-
dagsmorguninn og sagði mér að
Haukur væri dáinn.
Það var eins og sorgin helltist
yfír mig. Haukur var mér alltaf
meira en „uppáhaldsfrændi“, hann
var mér næstum eins og faðir. Hann
var oft búinn að minnast á það, að
þegar pabbi minn drukknaði er ég
var aðeins fimm ára gömul hefði ég
skriðið upp í fangið á honum og
spurt hvort hann gæti ekki bara
orðið pabbi minn í staðinn.
Þá áttu mamma og pabbi heima
á efri hæðinni á Norðurgötu 15a,
afi og amma bjuggu svo á neðri
hæðinni. Haukur var þá lærlingur á
Bifreiðaverkstæði Akureyrar og
vann þar með pabba mínum. Anna
og Haukur giftust 26. janúar 1952.
Þau fluttust síðan í Norðurgötu 56.
Svo þegar Úlfar fæddist þá var nú
spennandi að fá að leika við litla
frænda og það voru ófáar ferðirnar
til þeirra í Norðurgötu 56. Síðar
fæddist svo Selma þar líka. Síðar
þegar ég var komin í gagnfræðaskól-
ann, þá var það ekki sjaldan sem
Haukur beið í bílnum upp á horni
eftir mér til að leyfa mér að sitja í
upp í samlag. Síðar er ég giftist og
eignaðist mína fjölskyldu þá varð
Haukur strax í miklu uppáhaldi hjá
þeim öllum. Einkum varð kært á
milli mannsins míns og Hauks.
Dúddi var stoltur er því var eitt
sinn slegið föstu að þeir væru bræð-
ur, en þeir voru báðir Kristjánssynir.
Börnum okkar, Guðmundi, Dóru
og Petru, þótti mjög vænt um Hauk.
Ég held að það megi segja að öllum
sem þekktu Hauk hafi þótt vænt um
hann. Hann gaf öllum
svo mikið af sjálfum
sér. Við afa og ömmu
var hann eins og besti
sonur. Hugulsemin og
hlýjan var slík að það
var alveg einstakt.
Þau Haukur og Anna
byggðu fallegt hús á
tveimur hæðum í
Kringlumýri 1. Þar út-
bjuggu þau fallega íbúð
á neðri hæðinni handa
afa og ömmu, þar sem
þau voru á meðan þeim
entist aldur. Það leið
enginn dagur svo
Haukur færi ekki niður til afa og
ömmu að athuga hvort hann gæti
gert eitthvað fyrir þau, verslað eða
bara til að sýna þeim umhyggju.
Síðan eftir að þau voru bæði dáin
þá minnkuðu Anna og Haukur fljót-
lega við sig og byggðu yndislegt
raðhús í Víðilundi 1. Þar var allt
unnið með sömu vandvirkni og ein-
kenndi Hauk alla tíð og öllu komið
eins haganlega fyrir eins og kostur
var.
Við eigum erfítt með að sætta
okkur við að geta ekki lengur komið
öll saman til að spjalla og hlæja.
Ég ætla að lokum að þakka Hauki
fyrir aílt. Hugur okkar Dúdda og
Petru verður hjá honum á kveðju-
stundinni, en við getum ekki fylgt
honum því við erum stödd erlendis.
Elsku Anna mín, Úlfar, Selma og
fjölskyldur, við sendum ykkur öllum
innilegustu samúðarkveðjur.
Guð blessi ykkur öll og styrki.
Ásta Guðmundsdóttir.
t
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, bróðir og afi,
MAGNÚS GUNNAR GÍSLASON,
Stað,
Hrútafirði,
sem andaðist í Landakotsspítala laug-
ardaginn 16. júlí sl., verður jarðsunginn
frá Staðarkirkju laugardaginn 23. júlí
kl. 14.00. Sætaferðir verða frá BSI
kl. 11.00 sama dag.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir, en þeirn, sem vildu
minnast hans, er bent á að láta Krabbameinsfélag íslands njóta
þess.
Bára Guðmundsdóttir,
Edda Björk Karlsdóttir, Sigurður Reynisson,
Vilborg Magnúsdóttir, Kristinn Reynir Guðmundsson,
Elín Elisabet Magnúsdóttir, Sigurður Rögnvaldsson,
Magnea Torfhildur Magnúsdóttir, Mikael Bjarki Eggertsson,
Guðmundur Magnússon, Jónína Hafdís Kristjánsdóttir,
Ingibjörg Magnúsdóttir, Ottó Berg Magnússon,
Gi'sli Jón Magnússon,
Eiríkur Gislason
og barnabörn.
t
Innilegar þakkir færum við öllum þeim, sem auðsýndu okkur sam-
úð og hlýhug við andlát og útför eiginmanns míns, föður okkar,
tengdaföður, afa, langafa og langalangafa,
SIGURÐAR MAGNÚSSONAR,
Túngötu 21,
Sandgerði.
Berta Steinþórsdóttir,
Grétar Sigurðsson, Sigurveig Sigurjónsdóttir,
Ragnheiður Sigurðardóttir, Sævar Pétursson,
barnabörn, barnabarnabörn
og barnabarnabarnabarn.
Morgunblaðið/Arnór Ragnarsson
BIKARKEPPNI Bridssambandsins stendur nú sem hæst.
SI. mánudag spiluðu saman sveit Karls G. Karlssonar úr
Sandgerði og Sparisjóðs Keflavíkur og sigraði síðarnefnda
sveitin 96-76. Spilað var í húsi Rauða krossins í Keflavík
en hjá þeim stendur yfir fatasöfnun eins og sjá má. Það
eru Jóhannes Sigurðsson og Gísli Torfason sem spila gegn
feðgunum úr Sandgerði, Karli Einarssyni og Karli G.
Karlssyni. Áhorfandinn er Kjartan Olason.
BRIPS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson
Metaðsókn í sumarbrids
Meðalskor var í sumarbrids á
mánudag. 40 pör mættu til leiks.
Úrslit urðu:
N/S-riðill:
Halldór Magnússon - ValdimarElíasson 490
Guðm. Baldursson - Guðm. A. Grétarsson 466
Júlíanalsebam-GróaGuðnadóttir 465
Jón Viðar Jónmundsson - Jens Jensson 459
A/V-riðill:
Jakob Kristinsson - ísak Öm Sigurðsson 498
Þröstur Ingimarsson - Þórður Björnsson 468
Alfreð Kristjánsson - Eggert Bergsson 466
Murat Serder - Birgir Öm Steingrimsson 460
Á þriðjudeginum mættu svo 30
pör. Úrslit urðu:
N/S-riðill:
PállÞ.Bergsson-KjartanJóhannsson 561
GylfiBaldursson-BjömTheodórsson 492
Sigfús Þórðarson - Garðar Garðarsson 462
A/V-riðill:
Albert Þorsteinsson - Bjöm Ámason 500
Elín Jónsdóttir - Lilja Guðnadóttir 480
Guðm. Sveinsson - Halldór Guðjónsson 476
Skor þeirra Páls og Kjartans er
eitt hið hæsta til þessa í sum-
arbrids, rétt slagar í 70% skor.
Á miðvikudeginum mættu svo
26 pör til leiks. Úrslit urðu:
N/S-riðiIl:
Hjördis Siguijónsdóttir - Sævin Bjamason 320
Haraldur Gunnlaugsson - Rúnar Einarsson 317
Una Ámadóttir - Kristján Jónasson 304
A/V-riðill:
Kjartan Jóhannsson - Páll Þ. Bergsson 306
JacquiMcGreal-Annaívarsdóttir 305
Geirlaug Magnúsdóttir - Torfi Axelsson 303
Og staða efstu spilara eftir spila-
mennsku 20. júlí er þá orðin þessi:
Lárus Hermannsson 352, Eggert
Bergsson 282, Páli Þ. Bergsson
275, Erlendur Jónsson 266, Guð-
laugur Sveinsson 260, Óskar Karls-
son 210, Þórður Sigfússon 191,
Sævin Bjamason 183, Þórður
Björnsson 180, Dan Hansson 175,
Björn Theodórsson 173, Rúnar Ein-
arsson 173, Sverrir Ármannsson
171, Halldór Már Sverrisson 170,
Alfreð Kristjánsson 165, Jón Viðar
Jónmundsson 161, Gylfí Baldursson
159, Valdimar Elíasson 158 og Sig-
urður B. Þorsteinsson 153.
Alls hafa 250 spilarar htotið stig
í sumarbrids.
Sumarbrids er spilaður alla daga
kl. 19 (nema laugardaga) og að
auki kl. 14 á sunnudögum og kl.
17 á fímmtudögum (náist í riðil).
Allt spilaáhugafólk er velkomið í
Sigtún 9. Kynnist skipulögðum
keppnisbrids og því fólki sem mæt-
ir reglulega til leiks.
Silfurstigamót með
peningaverðlaunum
Laugardaginn 23. júlí verður
haldið þriðja silfurstigamótið í Sig-
túni 9 í sumar. Spilaður er Mitcell
2 umferðir, 42 eða 44 spil. Spila-
mennska hefst kl. 12 og lýkur upp
úr kl. 18. Skráð er í mótið á skrif-
stofu Bridssambands íslands í síma
619360 fyrir hádegi og einnig á
staðnum við mætingu. Keppnis-
gjald er kr. 1.500 á mann og fer
helmingur keppnisgjalda í verðlaun,
þannig að þau hækka eftir því sem
fleiri pör mæta og um að gera að
drífa því bridsfélagana í skemmti-
legt eins dags mót.
Keppnisstjóri er Sveinn R. Eiríks-
son.
Eiginkona mín,
ÞÓRDÍS ÞORSTEINSDÓTTIR,
Meiritungu,
verður jarðsungin frá Árbæjarkirkju laugardaginn 23. júlí kl. 14.00.
Fyrir hönd barna, tengdabarna, barnabarna og barnabarnabarna,
Ragnar Marteinsson.
t
Innilegar þakkir til allra þeirra, er sýndu okkur samúð og vinarhug
við andlát og útför eiginkonu minnar,
GUÐNÝJAR ELÍSABETAR HALLDÓRSDÓTTUR.
Sérstakar þakkir til lækna og starfsliðs lyfjadeildar Fjórðungs-
sjúkrahússins á Akureyri.
Guð blessi ykkur öll.
F.h. barna okkar, tengdabarna og barnabarna,
Kristinn S. Kristjánsson.
t
Þakka samúð og vinarhug við andlát
og útför konu minnar,
GUÐNÝJAR GUÐJÓNSDÓTTUR.
Ólafur Daðason.