Morgunblaðið - 29.07.1994, Síða 2
2 FÖSTUDAGUR 29. JÚLÍ 1994
MORGUNBLAÐIÐ
Engin hátíð
í Húnaveri
FRETTIR
Skíðalandslið Kanada kom til landsins í gær til æfinga
Morgunblaðið/Bjöm Blöndal
KANADISKA skíðalandsliðið skömmu eftir komuna til landsins , ásamt Valdimar Örnólfssyni.
SÝSLUMAÐURINN á Blönduósi
ákvað í gærkvöldi, að breyta ekki
fyrri ákvörðun sinni, um að leyfa
ekki samkomu í Húnaveri um helg-
ina, þar sem hvorki sé hægt, með
núverandi fyrirvara, að útvega nauð-
synlegan fjölda löggæslumanna , né
tryggja nauðsynlegt skipulag.
Dómsmálaráðuneytið ákvað að
leggja fyrir sýslumann að taka að
nýju afstöðu til þess hvort skilyrði
væru fyrir hendi til að halda útidans-
leiki í Húnaveri. Ekki væri hægt að
vefengja þá ákvörðun sýslumanns,
að neita um leyfi, á þeim tíma sem
hún var tekin, en hins vegar hefðu
komið fram ný gögn sem skiptu
máli og gætu hugsanlega breytt við-
horfi til leyfisveitingar.
-----» ♦ «------
Tveir prestar
hnífjafnir
TVEIR prestar voru jafnir að at-
kvæðum í kjöri innan sóknarnefndar
Selfosskirkju í gærkveldi, séra Gunn-
ar Siguijónsson, Skeggjastöðum, og
séra Haraldur M. Kristjánsson, Vík
í Mýrdal, en báðir hlutu 7 atkvæði.
Samkvæmt lögum hlýtur prestur
löglega kosningu fái hann helming
greiddra atkvæða, en þar sem um-
sækjendur urðu jafnir á söfnuðurinn
rétt á að æskja kosninga innan viku.
Komi ekki slík krafa er málið í hönd-
um biskups og kirkjumálaráðherra.
SKÍÐALANDSLIÐ Kanada kom
til landsins í gærmorgun til æf-
inga í Kerlingarfjöllum, en þær
standa yfir til 8. ágústs næstkom-
andi. Hópurinn er skipaður átta
skíðamönnum, fjórum þjálfurum
og einum aðsto.ðarmanni.
Skýringar á komu landsliðsins
má rekja til dvalar eins þjálfar-
ans í Kerlingarfjöllum seinasta
sumar. Honum leist vel á allar
aðstæður og niðurstaðan varð sú
að iiðið kæmi hingað til æfinga.
Peter Bosinger, einn landsliðs-
manna, kvaðst lítast mjög vel á
að æfa hérlendis. „Þetta er góð
tilbreyting, eitthvað alveg nýtt,“
sagði Peter. Seinustu sumur hef-
Æfírí
Kerlingar-
flöllum
ur kanadíska landsliðið verið við
æfingar í Oregon í Bandaríkjun-
um, á helstu skíðasvæðum Evr-
ópu og i Suður-Ameríku, en
þangað verður haldið síðar í sum-
ar. Forsvarsmenn Skíðaskólans í
Kerlingarfjöllum tóku á móti
landsliðinu í gær og fluttu hópinn
til fjalla, með áningu á Laugar-
vatni þar sem hópurinn gæddi
sér á nýveiddum silungi, og Geysi
þar sem hópurinn skoðaði sig um
og brá sér í sund. Æfingar hefj-
ast síðan í dag.
Valdimar Örnólfsson, einn for-
svarsmanna Skíðaskólans í Kerl-
ingarfjöllum, sagði skíðafæri
gott um þessar mundir og sé
undirbúningur skíðabrauta kom-
inn á fullan skrið. Hann kvaðst
fagna því að eins gott skíða-
landslið og lið Kanada æfi hér-
lendis, en staðarvalið þurfi ekki
að koma á óvart þar sem aðstæð-
ur til skíðaiðkanna í Kerlingar-
fjöllum séu góðar.
Electrolux staðfesti tilboð sitt á tilskildum tíma
„Rætt um að ljúka
húsínu í mars 1995“
SÆNSKA fyrirtækið Electrolux
staðfesti tilboð sitt um að hanna,
fjármagna, byggja og reka íþrótta-
hús í tíma fyrir HM ’95 með bréfi
sem barst fyrir hádegi í gær. Borg-
arstjóri fundaði i gærkvöldi með
forsvarsmönnum íþróttahreyfingar-
innar, embættismönnum borgarinn-
ar og fulltrúum Electrolux hérlend-
is. Borgarstjóri upplýsti meðal ann-
ars um kröfur sem gerðar eru til
húss af þessum toga, þ.á m. með
tilliti til að útlit samræmist öðrum
íþróttamannvirkjum í Laugardal.
Borgin mun ekki leggja fram fjár-
magn til byggingarinnar. „Ef hægt
verður að byija jarðvegsvinnu að
loknum fundi byggingarnefndar
Reykjavíkurborgar 11. ágúst nk.,
er rætt um að Ijúka húsinu í mars
1995,“ segir Ólafur B. Schram, for-
maður HSÍ.
Að sögn Ólafs er næsta skref af
hálfu Electrolux að reikna endan-
legan byggingarkostnað dúkhúss-
ins sem verði um 8.800 fermetrar
að grunnfleti, en þá fyrst sé hægt
að segja til um hverjar tekjur þurfa
að vera til að fjárfestingin borgi sig
og um hve langan tíma er að ræða.
Fulltrúar fyrirtækisins séu ekki enn
í stakk búnir til að svara til um
hagkvæmni reksturs. Málið sé frá-
leitt í höfn, en þó komið á góðan
rekspöl. Verið sé að huga að rekstr-
arformi, hvernig reksturinn skiptist
og hveijir annist hann, og vilji
Electrolux helst að sami rekstrarað-
ili annast húsið og Laugardalshöll-
ina, og býður Reykjavíkurborg að
yfirtaka reksturinn.
Önnur fjármögnun möguleg
„Ég er mjög ánægður með fund-
inn í gær og held að málin geti
ekki gengið hraðar á þessari
stundu. Við erum enn með mögu-
leika á annarri fjármögnun frá is-
lenskum aðilum upp í erminni, ef
tilboð Electrolux rennur í sandinn,”
segir Ólafur.
Hann segir að íþróttahúsið þurfi
á Laugardalshöllinni að halda, þar
sem í því verði skorin niður hrein-
lætisaðstaða, búningsklefar,
stjórnmiðstöð og aðstaða fyrir
starfsfólk. „Húsið verður nánast
einn gámur, en gert er ráð fyrir
tengibyggingu út úr austurgafli
Laugardalshallarinnar. Borgin mun
þurfa að bæta búningsaðstöðu í
Laugardalshöllinni, en ófrágengið
er hveijir reisa tengibygginguna
þarna á milli.
Ekki er búið að semja um hveij-
ir fjármagni innviði nýja hússins,
áhorfendapalla og annað slíkt.
Electrolux-fyrirtækið vildi jafn-
framt fá að vita hvort borgin myndi
styrkja íþróttafélög til æfinga þar,
eins og hún hefur gert í eigin bygg-
ingum, sem reyndist engin fyrir-
staða.“
Aðspurður um ástæður Electro-
lux til að reisa húsið, kveðst Ólafur
telja auglýsingagildi þess mikið, þar
sem húsið hýsir heimsmeistara-
keppni, auk þess sem ákveðin viður-
kenning og kynning sé fólgin í því
ef húsið stendur til margra ára án
þess að láta á sjá.
Mikil spenna
á landsmótinu
MIKIL spenna er í meistara-
flokki karla á Landsmótinu í
golfi sem lýkur í kvöld. Sigur-
páll Geir Sveinsson úr Golfklúbbi
Akureyrar leiðir með einu höggi
en tíu kylfingar eiga möguleika
á sigri á þessu 53. Iandsmóti. í
meistaraflokki kvenna hefur Is-
landsmeistarinn Karen Sævars-
dóttir úr Golfklúbbi Suðurnesja
fimm högga forystu og virðist
líkleg til að tryggja sér sjötta
íslandsmeistaratitil sinn á jafn
mörgum árum. Á myndinni má
sjá Birgi Leif Hafþórsson úr
Leyni á Akranesi slá og Hjalti
Pálmason úr Golfklúbbi Reykja-
víkur fylgist með.
■ Ísiandsmót/C4
Magnús Gunnarsson formaður Vinnuveitendasambands íslands
Launahækkanir í skiptum fyr-
ir breytingar á vinnulöggjöf
Veiðimað-
ur fékk
raflost
LAXVEIÐIMAÐUR kastaði
línu upp í háspennulínu við lax-
veiðiá uppi í Borgarfirði í vik-
unni. Maðurinn brenndist á
höndum og fótum. Hann leitaði
til læknis á Sjúkrahúsi Akra-
ness, en fékk að fara heim að
■ lokinni skoðun. Að sögn læknis
voru meiðsli mannsins minni en
talið var í fyrstu. Maðurinn, sem
er Spánveiji, var að kasta í rign-
ingu og var línan blaut og leiddi
því vel rafmagn.
MAGNÚS Gunnarsson, formaður
Vinnuveitendasambands íslands,
segist álíta að launahækkanir í
næstu samningagerð séu einungis
mögulegar ef semjist um breyting-
ar á vinnulöggjöfinni í staðinn, en
samningar eru lausir um áramót.
Magnús segir að þetta hafi ekk-
ert verið rætt innan VSÍ ennþá.
Það lægi fyrir að sest yrði að samn-
ingaborði um næstu áramót og það
yrði bara að koma í ljós hvað menn
treystu sér til að gera.
„Ég hef litið þannig á að næstu
samningar snúist um hvernig við
getum aðlagað samningana að
breyttu umhverfi,” segir hann.
„Samningar sem taka tillit til þarfa
fyrirtækjanna geta skilað ákveðn-
um ávinningi sem sjálfsagt er að
skipta.“
Hörð samkeppni
Hann segir að fyrirtækin og
verkalýðshreyfingin geri sér grein
fyrir því að íslensk fyrirtæki séu
í harðri samkeppni við erlenda
aðila og því þurfi að nýta alla
möguleika.
„Ef við náum ekki árangri í
þeirri samkeppni, þá er engu að
skipta,” segir Magnús. „Þess
vegna held ég að verkalýðshreyf-
ingin sé tilbúin til að ræða ýmsar
breytingar sem geta skilað okkur
aukinni samkeppnishæfni. Ef um
einhvern verulegan ávinning er að
ræða mun hann skila sér til verka-
lýðshreyfingarinnar."
Lögreglan í
Reykjavík
Eftirlit
aukið með
umferð og
eignum
LÖGREGLAN í Reykjavík
mun auka almennt eftirlit með
umferð og eigum fólks eftir
því sem möguleiki er á um
verslunarmannahelgina. Jónas
Hallsson aðstoðaryfirlögreglu-
þjónn segir, að lögreglan vilji
höfða jafnt til þeirra sem ferð-
ist og þeirra sem eru heima.
Jónas segir að aukið eftirlit
felist einkum í því að fjölgað ’
verði ómerktum lögreglubílum
og eftirlitsbílum á Vestur-
landsvegi og Suðurlandsvegi.
Þá verði einnig notast við þyrlu
Landhelgisgæslunnar.
Fólk gangi tryggilega
frá húsum sínum
„Við brýnum fyrir fólki, sem
hyggst leggja land undir fót,
að ganga tryggilega frá híbýl-
um sínum þannig að óviðkom-
andi eigi ekki greiða leið þar
inn,“ sagði Jónas. „Þá er einn-
ig mikilvægt að þeir, sem j
halda kyrru fyrir heima, hafi
augun opin og hafi samband
við lögregluyfirvöld, verði þeir !
varir við óeðlilegar mannaferð- ;
ir,“ sagði hann.
Pósthúsið
verður
rauðbrúnt
PÓSTUR og sími hefur í sam-
ráði við húsafriðunarnefnd
ákveðið að pósthúsið við Póst-
hússtræti verði málað í sínum
upprunalegu litum. Húsið
verður þannig rauðbrúnt og
þakið og gluggapóstar í dökk-
grænum lit. Hrefna Ingólfs-
dóttir blaðafulltrúi Pósts og
síma segir að byijað verði að
mála í byijun ágúst.
Ekki er vitað með vissu
hvenær húsið var fyrst málað
í ljósum litum. Húsið var reist
eftir teikningum Rögnvaldar
Ólafssonar árið 1914 og þá
var það rauðbrúnt. Af ljós-
myndum má greina að húsið
var líklega enn rautt á þriðja
áratugnum.
Málun hússins er síðasti
hluti af nauðsynlegum við-
haldsframkvæmdum að sögn
Hermanns Ingólfssonar í fast-
eignadeild. „Húsið er vel farið
og er ekkert vandræðahús,”
sagði hann. „Á síðastliðnu ári
hefur m.a. verið fyllt upp í þær
sprungur sem fundust og hús-
ið pússað að utan.“
Fundu hass
við húsleit
FÍKNIEFNADEILD Lögregl-
unnar í Reykjavík fann um 100
grömm af hassi og eitthvað
af amfetamíni við húsleit við
Tangarhöfða í Reykjavík.
Húsleitin var gerð um fimm-
leytið í gær og voru fimm
handteknir, fjórir karlar og ein
kona. Málið er, að sögn lög-
reglunnar, að fullu upplýst.