Morgunblaðið - 29.07.1994, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 29. JÚLÍ 1994 11
Morgunblaðið/Páll Pálsson
Vélavið-
gerðir
í sveit
Borg, Eyja- og Miklaholtshr. -
Eitt af því sem er mikið öryggi fyr-
ir bændur er að hafa trausta og
góða viðgerðarþjónustu vegna fjöl-
breytileika í búvélum. Illt er að verða
stopp við heyskap þegar tíðarfar er
rysjótt og kannski mikið laust hey
í þurrkun.
Við sem búum hér á sunnanverðu
Snæfellsnesi höfum verið það heppn-
ir að hafa átt aðgang að traustum
og góðum viðgerðarmönnum. Nú á
sl. vori tók ungur vélvirkjameistari,
Jón Halldór Gunnarsson frá Borgar-
holti, vélaverkstæðið í Holti á leigu.
Sinnir hann alhliða viðgerðum á bíl-
um og vélum. Og vonandi að svo
verði er fram líða stundir, því slík
þjónusta í sveitum er alveg ómiss-
andi.
---------------
Útlit fyrir
mikinn
heyfeng
Borg í Eyja- og Miklaholtshr. -
Sláttur hófst hér í sveitum í fyrstu
viku júlimánaðar. Þá var sérlega góð
heyskapartíð, hlýir og sólríkir dagar
með rúmlega 20 stiga hita. Gras-
vöxtur var í knappara lagi nema hjá
þeim sem báru tilbúinn áburð
snemma á. Bændur biðu því dálítið
eftir að sprytti betur.
Þá kom vætutíð í nokkra daga
og grasið tók fljótt við sér. Um miðj-
an júlí var komið mjög gott gras og
því hafa heyannir verið miklar und-
anfarið en fjallaskúrir hafa tafið
fyrir þurrki. Utlit er því fyrir að
heyfengur verði með mesta móti á
þessu sumri.
Einstaka bændur hafa tafist við
heyskap vegna þess að rúlluplast er
uppselt eins og er. Þó hefur verið
reynt að miðla plasti til þeirra sem
verst eru settir.
Holræsi
útfyrir
höfnina
Húsavík - Stærsta einstaka verkið,
sem unnið er að hjá Húsvíkurbæ á
þessu ári er bygging holræsis frá
Slippnum um Naustafiöru og undir
Stangarbakkanum út fyrir hafnar-
garðinn. Þar með verður allt frá-
rennsli komið út fyrir höfnina. Síðan
er áformað að ræsi verði lagt út fyr-
ir Bökuna og segja má að þá sé það
komið út fyrir lygnan sjó.
Eitt af næstu verkefnum í frá-
rennslismálunum er að koma þeim
holræsum, sem liggja í Búðarána úr
henni og í aðalholræsakerfið. En með
þessari framkvæmd, sem kostar um
17 milljónir kr. er stórum áfanga náð.
tvöMdnr
1. miimw!
t
Vertu með
draumurinn gæti orðið að veruleika!