Morgunblaðið - 29.07.1994, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ
ERLEIMT
LISTIR
FÖSTUDAGUR 29. JÚLÍ 1994 15
Reuter
FORYSTUMENN kommúnistaflokksins í Norður-Kóreu á fundi
í Pyongyang í fyrradag í tilefni þess að 41 ár er liðið frá „sigr-
inum mikla“ í Kóreustríðinu.
Efast um frásögn n-kóreskra flóttamanna
Engar vísbend-
ingar um fímm
kjamaodda
Seoul. Reuter.
EMBÆTTISMENN í Suður-Kóreu
sögðu í gær að þeir hefðu engar
sannanir fyrir því að Norður-Kóreu-
menn hefðu nú þegar fimm kjarna-
odda eins og norður-kóreskur
flóttamaður staðhæfði á blaða-
mannafundi í Seoul í fyrradag.
Embættismennirnir, meðal ann-
ars hjá suður-kóresku leyniþjón-
ustunni sem stóð fyrir blaðamanna-
fundinum, sögðu að stefna stjórnar-
innar í Suður-Kóreu væri óbreytt.
„Flóttamaðurinn var ekki sjálfur
viðriðinn kjarnorkuáætlunina og
var einfaldlega að segja blaðamönn-
um það sem hann hafði heyrt,“
sagði talsmaður varnarmálaráðu-
neytisins í Seoul. „Rannsaka verður
frekar áreiðanleika mannsins en
staðhæfingar hans kalia ekki á
breytta stefnu af okkar hálfu, það
er öruggt," bætti embættismaður-
inn við.
Flóttamaðurinn, Kang Myong-
do, sagði á blaðamannafundinum
að Norður-Kóreumenn einbeittu sér
nú að því að smíða eldflaugar sem
gætu borið fimm kjarnaodda sem
þeir hefðu þegar yfir að ráða.
Embættismaður í utanríkisráðu-
neyti Suður-Kóreu, sagði að stjórn-
in hefði engar sannanir fyrir því
að Norður-Kóreumenn hefðu „eina
einustu kjarnorkusprengju“.
Bandarískir embættismenn létu
einnig í ljós efasemdir um staðhæf-
ingu flóttamannsins. William Perry,
varnarmálaráðherra Bandaríkj-
anna, sagði að hann styddi enn það
mat bandarísku leyniþjonustunnar
CIA að Norður-Kóreumenn hefðu
hugsanlega eina eða tvær kjarn-
orkusprengjur. CIA byggði mat sitt
á áætluðu magni plútons sem Norð-
ur-Kóreumenn gætu hafa fengið
úr kjarnaklúfnum í Yongbyon þegar
honum var lokað tímabundið árið
1989.
„Fávís maður“
Embættismenn öryggismála-
stofnunar í Suður-Kóreu sögðu að
tveggja mánaða rannsókn eftir að
flóttamaðurinn óskaði eftir hæli í
landinu hefði staðfest að hann væri
tengdasonur forsætisráðherra
Norður-Kóreu, Kangs Song-sans.
Fréttastofa Norður-Kóreu vísaði því
algjörlega á bug í gær að Kang
Myong-do væri tengdasonur ráð-
herrans og sagði blaðamannafund-
inn „svívirðilega tilraun til að not-
færa sér mannsorpið í deilu Norð-
ur- og Suður-Kóreu“. „Hann teng-
ist ekki forsætisráðherranum á
nokkurn hátt. Hann er fávís mað-
ur, slæpingi án reglulegrar atvinnu
og glæpamaður sem dró sér háar
fjárhæðir frá ríkinu," sagði frétta-
stofan.
Sýrlendingar ósáttir
við samkomulag
Jórdana og Israela
Damaskus, Gaza. Reuter.
SYRLENDINGAR gagnrýndu í gær
Jórdani fyrir að hafa undirritað yfir-
lýsingu ásamt ísraelum, um að binda
enda á stríðsástandið í samskiptum
ríkjanna. Dagblaðið al-Baath, mál-
pípa sýrlensku stjórnarinnar, sagði
yfirlýsinguna, sem undirrituð var í
Washington fyrr í vikunni, vera
„óvænta þróun“ og að hún væri í
andstöðu við anda friðarviðræðn-
anna um Mið-Austurlönd, sem hóf-
ust í Madrid fyrir þremur árum.
Blaðið sagði ennfremur að yfirlýs-
ingin myndi skaða hagsmuni Araba
og að Sýrlendingum lægi ekkert á
að koma á „ófulikomnum" friði við
ísraela.
Dreifing blaðs stöðvuð á Gaza
Aukin spenna er einnig í sam-
skiptum Palestínumanna og Jórdana
í kjölfar fundar Husseins Jórdaníu-
konungs og Yitzhak Rabins, forsæt-
isráðherra Israels, í Washington.
Hussein var falin umsjón með helgi-
stöðum múslima í Jersúsalem.
Palestínskir embættismenn stöðv-
uðu í gær dreifingu á dagblaðinu
An-Nahar á sjálfstjórnarsvæðinu á
Gaza en blaðið, sem er prentað í
Jerúsalem, er hliðhollt Jórdaníu-
stjórn. Engar skýringar voru gefnar
á þeirri ákvörðun.
Fulltrúar Jórdana, Egypta og
Palestínumanna voru í gær kallaðir
á fund hjá skrifstofu Arababanda-
lagsins, vegna þessarar deilu. Að
þeim fundi loknum lýsti skrifstofan
því yfir að Arababandalagið og Pa-
lestínumenn hefðu fengið fullnægj-
andi skýringar frá Jórdönum. Full-
trúi Palestínumanna lýsti einnig yfir
ánægju með skýringar Jórdana og
að ljóst væri að einungis hefði verið
um staðfestingu á eldra samkomu-
lagi að ræða.
ATRIÐI úr ævintýramyndinni Járnvilja.
Sleðastrákurinn
KVIKMYNPIR
S a g a bí ó
JÁRNVILJI „IRONWILL"
★ ★
Leikstjóri: Charles Haid. Handrit:
John Michael Hayes, Djordjes
Milicevic og Jeff Arcli. Kvikmynda-
taka: William Wages. Aðahlutverk:
Mackenzie Astin, Kevin Spacey,
David Odgen Striers, Brian Cox og
George Gerdes. Walt Disney. 1994.
ÍSLENDINGAR koma víða við
sögu í amerískum bíómyndum og
m.a. í ævintýramyndinni Járnvilja
frá Disneyfyrirtækinu. Hún ku
vera sannsöguleg og fjallar um
hættulega hundasleiðakeppni á
öðrum tug aldarinnar frá Kanada
til Bandaríkjanna og viti menn,
tveir íslendingar, Hjörtur og Þórð-
ur, taka þátt. Þeir gegna svosem
engu hlutverki nema því að fylla
út í keppendahópinn, eru stórir og
sterklegir og sennilegast Vestur-
íslendingar ef marka má keppnis-
greinina.
Myndin segir frá ungum kana-
dískum dreng sem missir föður
sinn í hundasleðaslysi og skáir sig
í þessa hættulegu keppni til að
afla fjölskyldunni tekna, borga
skólanám og ljúka því sem föður
hans vannst ekki tími til að gera
en hann hafði hugsað sér að taka
þátt. Möguleikarnir eru ekki mikl-
ir fyrir drenginn því keppinautarn-
ir eru hin mestu hörkutól, sérstak-
lega Svíi nokkur sem beitir sví-
virðilegum brögðum, og keppnin í
vetrarhörkunum hin erfiðasta. En
brátt tekur hann að vinna hug og
hjörtu landsmanna í gegnum
blaðamann sem hefur á honum
sérstakar mætur og hann fær við-
urnefnið Járnvilji.
Leikstjóri myndarinnar er sjón-
varpsstjarnan Charles Haid úr
„Hill Street Blues“ og hann slepp-
ur sæmilega frá sínu en ekki mik-
ið meira. Hann hefur Disneyhefð-
ina til að styðjast við og það er
heilmikill ævintýraljómi við sög-
una en hún er líka enn eitt afbrigð-
ið af „Rocky“ og Karatestráknum
þar sem söguhetjan á við ofurefli
að etja og tekst á við hið ómögu-
lega en hefur vilja til að láta
drauminn rætast. Maður veit
nokkurnveginn að hverju stefnir í
myndum sem þessum og Haid og
handritshöfundunum tekst því
ekki að byggja upp mikla spennu
í kringum endastöðina en halda
uppi ágætum hraða í frásögninni.
Mackenzie Astin leikur strákinn
og gerir það vel og það eru ágæt-
ir aukaleikarar í minni hlutverkum
eins og Bretinn Brian Cox og
David Odgen Stiers sem leika
borgunarmenn keppninnar og Ke-
vin Spacey í hlutverki blaða-
mannsins sem gerir hetju úr
drengnum. Járnvilji er ágætis fjöl-
skyldumynd í Disneyhefðinni þótt
hún skari hvergi framúr, ljúfsár
og oft spennandi og átakamikil
saga er gegnir prýðilegu uppeldis-
hlutverki sem byggir á sigri vilj-
ans.
Arnaldur Indriðason
Ballett-
flokkur í
uppsveiflu
THE San Francisco Ballet undir
stjórn Helga Tómassonar fær mjög
lofsamlega dóma hjá gagnrýnanda
The Sunday Times, David Dougill,
í umfjöllun hans um sýningar ball-
ettflokksins hjá Opera Garnier í
París fyrrihluta júlí. Dougill segir
að The San Francisco Ballet hafi
náð nýjum hæðum undir stjórn' hins
íslenska Helga Tómassonar, sem
hafi verið stjarna The New York
City Ballet áður en hann tók við
stjórn ballettflokksins árið 1985.
Dansarar flokksins, sem séu flestir
valdir af Helga, séu mjög fjölhæfir
og skapi saman einstaklega sam-
ræmdan stíl.
Dómar um dansa Helga
Dougill íjaliar m.a. um tvo dansa
eftir Helga, La Quattro Stagioni
og Nanna’s Lied. Hann er hrifinn
af báðum verkunum. Hann segir
að hið fyrra byrji á hefðbundinn
hátt en endi óvenjulega og dansarar
flokksins séu frábærir í sínum hlut-
verkum. Seinna verkið sé frábrugð-
ið hinu fyrra, en í því séu mjög góð
atriði. Dougill endar dóm sinn með
því að segja að hann bíði og voni
að The San Francisco Ballet komi
sem fyrst, til London.
Jann Parry gagnrýnandi The
Observer fjallaði einnig um sýning-
ar The San Francisco Ballet í Par-
ís. Hún segir eins og Dougill að
Helgi hafi byggt dansflokkinn upp
svo nú geti hann talist á alþjóðleg-
an mælikvarða. Parry er einstak-
lega hrifin af uppfærslu flokksins
á Maelstrom eftir Mark Morris og
segir hana hafa slegið í gegn í
París. Hún er ekki eins hrifin af
dönsum Helga í samanburði við
þetta verk og telur La Quattro
Stagioni vera léttvægan ballett.
-----».♦.-4---
Úrlausn Krist-
rúnar og Moniku
EXTRACT heitir sýning sem Krist-
rún Gunnarsdóttir og Monika Lars-
en-Dennis opna í Gallerí einum ein-
um við Skólavörðustíg 4 klukkan
18 í kvöld. Þær segja að um sé að
ræða eitt verk unnið í samvinnu,
eina úrlausn af mörgum möguleg-
um, afsprengi, áfanga. Sýningin
stendur í rúma viku, til sunnudags-
ins 7. ágúst. Opið er daglega frá
12 til 19.
SÖNGHÓPURINN Hljóineyki verður á Dalvík á morgun.
Hljómeyki á Norðurlandi
SÖNGHÓPURINN Hljóineyki
kemur víða fram á næstu tveim-
ur vikum. Um verslunarmanna-
helgina syngur kórinn á Suinar-
tónleikum á Norðurlandi, fyrst
föstudaginn 29. júlí í Dalvíkurk-
irju kl. 20.30, þá laugardaginn
30. júlí í Reykjahlíð í Mývatns-
sveit, einnig kl. 20.30 og sunnu-
daginn 31. júlí verða tónleikar
kl. 17.00 í Akureyrarkirkju og
kl. 21.00 í kirkjunni á Blöndu-
ósi. Á efnisskrá verða tónverk
eftir Jón Nordal og Hafliða
Hallgrímsson. Stjórnandi í þess-
ari ferð er Hafliði Hallgríms-
son.
Hluti af þessari efnisskrá,
þ.e. tónverk Hafliða, verður
fluttur á Listasumri í Hall-
grímskirkju miðvikudaginn 3.
ágúst kl. 20.30.
Dagana 1.-7. ágúst mun söng-
hópurinn síðan dveljast í Skál-
holti við æfingar á breskri
kirkjutónlist frá ýmsum tímum,
undir stjórn Bernharðar Wilk-
inson. Dvölinni lýkur með Sum-
artónleikum í Skálholti, laugar-
daginn 6. ágúst kl. 15.00