Morgunblaðið - 29.07.1994, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 29. JÚLÍ1994 31
MINNINGAR
ÁSGEIR
STEFÁNSSON
BJÖRN BLÖNDAL
+ Ásgeir Stefánsson var
fæddur í Reykjavík 18. ág-
úst 1931. Hann lést á Landspít-
alanum 20. júlí síðastliðinn og
var útför hans gerð frá Dóm-
kirkjunni í gær.
ÞAÐ ER hnípinn hópur samheld-
inna veiðimanna í Fjaðrafoki_, sem
i dag kveður félaga sinn Ásgeir
Stefánsson, því Ásgeir er þriðji fé-
laginn, sem sláttumaðurin mikli
sækir i okkar hóp á örskömmum
tíma. Fyrst Guðrúnu Albertsdóttur,
eiginkonu Edda vinar okkar, J)á
Kristján Stefánsson og svo nú As-
geir. Það er því ekki að undra að
okkur sé brugðið.
Ásgeir vinur okkar fékk hvíldina
eftir langvarandi veikindi og þvíiíka
sjúkrasögu og hremmingar að vart
á sér hliðstæðu. Margir muna ef
til vill eftir því er Ómar Ragnarsson
heimsótti hann á Grensásdeild í
19.19 fyrir nokkru. Allt byijaði
þetta með lítilli saklausri heimsókn
til læknis í október 1990. Síðasta
árið sem Ásgeir og Dóru gátu veitt
með okkur í jónsmessutúrnum í
Norðurá. Upp frá því átti Ásgeir
ekki heimangengt til veiða.
Það var mikil eftirsjá að þeim
hjónum en Fjaðrafokarar tóku
höndum saman í veiðihúsinu á
Rjúpnahæð og við önnur tækifæri
og sendu Ásgeiri sterkar hugar-
kveðjur með ósk urn bata. Við minn-
umst Ásgeirs og Dóru sem sérlega
ljúfra og brosmildra félaga og
hörkuduglegra veiðimanna og það
var unun að fylgjast með samlyndi
þeirra og náinni vináttu á árbakk-
anum er þau töltu, oft hönd í hönd
eins og ástfangnir krakkar, á milli
veiðistaða með bakpokann sinn og
oftar en ekki glampanadi fallega
og silfraða laxa. Þetta er sú mynd
sem við öll geymum i huga okkar
er við kveðjum og þökkum áralanga
samfylgt og vináttu.
Ekki er ólíklegt að í veiðilendun-
um handan landamæranna miklu
hafi nú verið stofnuð Fjaðrafoks-
deild með þessum þremur föllnu
veiðifélögum okkar. Þangað verður
örugglega gott að koma, þegar að
óumflýjanlegri för okkar hinna
kemur.
Dóru og fjölskyldu sendum við
innilegar samúðarkeðjur um leið og
við biðjum allar góðar vætir að
vaka yfir og vernda Ásgeir Stefáns-
son.
Félagar í Fjaðrafoki.
+ Björn Auðunn Biöndal versl-
unarmaður var fæddur í
Skógarnesi í Miklaholtshreppi á
Snæfellsnesi 26. júní 1918. Hann
lést á heimiii sínu á Seltjarnar-
nesi 22. júlí síðastliðinn og var
útför hans gerð frá Neskirkju
28. júlí.
Kveðja frá Skíðadeild KR
SKÍÐADEILD KR var stofnuð 1934
og nokkru síðar var hafist handa við
byggingu Skíðaskála félagsins í
Skálafelli. Nokkrum árum síðar hóf-
ust keppnir á skíðum, í líkingu við
það sem við þekkjum í dag.
Á þessum árum var það happ
Skíðadeildar KR að Björn Blöndal,
þá langbesti skíðamaður Reykjavíkur
og með bestu skíðamönnum lands-
ins, gekk til liðs við félagið.
Björn var alhliða íþróttamaður, er
stundað hafði sundíþróttina, en varð
síðar einn fjölhæfasti skíðamaður
þessa lands.
Björn varð margfaldur Reykjavík-
urmeistari í öllum greinum skíða-
íþróttarinnar, göngu, stökki og svigi.
Einnig sigraði hann í sömu greinum
á mörgum skíðamótum, þar sem all-
ir bestu skíðamenn landsins komu
saman til keppni.
Björn hleypti miklu lífi í íþrótta-
starf Skíðadeildarinnar, enda mikill
keppnis- og afreksmaður. Það má
segja að hið þróttmikla íþróttastarf
sem stundað er í Skálafellinu, hefjist
með komu Björns til Skíðadeildarinn-
ar og þeim frábæra árangri er hann
náði í skíðaíþróttinni.
Skíðadeild KR vottar eftirlifandi
eiginkonu, frú Guðbjörgu Blöndal,
og ástvinum Björns Blöndals innileg-
ustu samúð.
Skíðadeild KR.
RAÐAUGÍ YSINGAR
Leikskólastjóri
óskast í leikskólann í Þykkvabæ
(100 km. frá Reykjavík).
Upplýsingar gefur oddviti í síma 98-75639
eða 98-75624.
Laus staða
skrifstofumanns
Staða skrifstofumanns við embætti undirrit-
aðs er laus til umsóknar.
Skriflegar umsóknir, þar sem gerð er grein
fyrir menntun og fyrri störfum, berist undirrit-
uðum fyrir 8. ágúst 1994.
Húsavík, 26.júlí 1994.
Sýslumaðurinn á Húsavík.
Rækjuveiðileyfi
Óskum eftir að kaupa rækjuveiðileyfi strax.
Jökull hf.,
sími 96-51200.
Byggðamerki
fyrir Vest urbyggð
Bæjarstjórn Vesturbyggðar óskar eftir tillög-
um að myndrænu tákni sem nota mætti sem
uppistöðu í byggðamerki fyrir Vesturbyggð,
sem nær yfir fyrrverandi Barðastrandar-
hrepp, Rauðasandshrepp, Patrekshrepp og
Bíldudalshrepp.
Hugmyndin þarf að tengjast sögu eða sér-
kennum byggðalagsins.
Tillagan má hvort heldur vera í máli eða
mynd en Ijóst þarf að vera hvað fyrir höf-
undi vakir.
Bæjarstjórn áskilur sér rétt til endanlegrar
útfærslu á hugmyndinni í samráði við höf-
und. Verðlaunum kr. 100.000,- er heitið fyrir
þá tillögu sem notuð verður.
Tillögur skal senda á skrifstofu Vesturbyggð-
ar að Aðalstræti 63, 450 Patreksfirði, fyrir
1. september 1994.
Atvinnutækifæri
Hefur þú áhuga á eigin rekstri?
Til sölu eða leigu verslunareiningar í hinni
nýju, glæsilegu verslunarkringlu í miðbæ
Hafnarfjarðar. Fjármögnun fyrir hendi.
Upplýsingar í síma 654487.
Enskunám í Englandi
Er ekki rétt að bæta við enskukunnáttuna?
Skólinn English 2000 í Bournemouth býður
þig velkominn til náms.
Upplýsingar gefur Páll G. Björnsson,
sími 98-75888, heimasími 98-75889.
Falleg blóma-
og gjafavöruverslun
í nágrenni Reykjavíkur til sölu.
Svör leggist inn á auglýsingadeild Mbl.,
merkt: „Verslun - 3237“.
Bæjarstjórinn í Vesturbyggð.
- kjarni málsins!
Þingvellir um verslunar-
mannahelgi
Laugardagur, 30. júlí
Kl. 14: Barnastund. Við Þing-
vallakirkju. Um klukkustund. Fyr-
ir 6 ára og eldri. Yngri börn verði
í fylgd með fullorðnum.
Kl. 17: Þingvallastaður og þing-
helgi. Gönguferð. Saga þing-
halds og Þingvalla. Farið frá
Skáldareit við Þingvallakirkju.
Ein og hálf klukkustund.
Kl. 21: Kyrrðarstund. í Þing-
vallakirkju.
Sunnudagur 31. júlí
Kl. 11: Barnaguðsþjónusta. í
Hvannagjá. Liðlega klukkustund.
Kl. 14: Þinghelgin. Stutt göngu-
ferð. Fjallað um sögu og náttúru
Þingvalla. Farið frá Skáldareit við
Þingvallakirkju. Ein og hálf
klukkustund.
Kl. 14: Barnastund. Efri vellirvið
: urulund. Leikjasamvera fyrir
börn eldri en 6 ára. Yngri komi
í fylgd með fullorðnum. Liðlega
klukkustund. Ath.: Þinghelgar-
gangan, sem byrjar á sama tíma,
tekur u.þ.b. jafnlangan tíma.
Kl. 17: Guðsþjónusta. ( Þing-
vallakirkju.
Mánudagur 1. ágúst
KI.14: Skógarkot - Vatnskot.
Hugað að gróðri, jarðsögu og
byggðarsögu I Þingvallahrauni.
Þriggja til fjögurra tíma göngu-
ferð. Farið frá brúnni yfir Nikul-
ásargjá (Peningagjá).
Athugið að gönguferðir og
barnastundir verða aðeins ef
veður verður skaplegt. Þátttaka
í gönguferöum og barnastund-
um er ókeypis. Allar upplýsingar
og staðsetningar fást í þjónustu-
miðstöð.
Tjald- og veiðileyfi fást keypt í
Þjónustumiðstöð. Ölvun er
óheimil í þjóðgarðinum á Þing-
völlum. Vinsamlegast kynnið
ykkur reglur Þjóðgarðsins.
Þjóðgarösvörður.
Hallveigarstig 1 *sími 614330
Dagsferð sunnud. 31. júlí:
Kl. 10.30 Vörðufell, lágfjalla-
syrpa 7. áfangi.
Dagsferð mánud. 1. ágúst:
Kl. 10.30 Kaupstaðaferð. Gengið
frá Grindavík að Stapafelli.
Lengri ferðir 5.-7. ágúst.
1. Fjölskylduhelgi í Básum. Sér-
stök dagskrá fyrir börnin. Frítt
fyrir börn 15 ára og yngri. Ath.
fullbókað er í skála. Fararstjóri
Fríða Hjálmarsdóttir.
2. Fimmvörðuháls. í tengslum
við helgarferð í Bása verður
gengið yfir Fimmvörðuháls laug-
ardaginn 6. ágúst. Reikna má
með 8-10 tima göngu. Farar-
stjóri Sigurður Einarsson.
3. Okvegur-Þingvellir. Gömul
þjóðleið. Bakpokaferð, tjaldgist-
ing.
Upplýsingar og miöasala á
skrifstofu Útivistar.
FERÐAFÉLAG
% ÍSLANDS
MÖRKINN! 6 SÍMI 682533
Fjölbreyttarferðir F.í. um
verslunarmannahelgina
29. júlí — 1. ágúst:
Brottför föstud. kl. 20.00.
1) Nýidalur-Vonarskarð- Tungna-
fellsjökull. Gist í sæluhúsi F.f.
Fararstjóri: Ásgeir Pálsson.
2) Þórsmörk. Gist í Skagfjörðs-
skála/Langadal og tjöldum.
Gengið yfir Fimmvörðuháls einn
daginn. Ferð til baka á sunnudag
og mánudag. Fararstjórar: Þórir
Tryggvason og Jökull M. Péturs-
son.
3) Landmannalaugar - Eldgjá -
Sveinstindur. Gist í sæluhúsi
F.í. í Landmannalaugum. Farar-
stjóri: Hilmar Þór Sigurðsson.
4) 30/7-1/8 Núpsstaðarskóg-
ar. Brottför laugardagsmorgun
kl. 08.00. Gist í tjöldum. Farar-
stjóri: Karl Ingólfsson.
Sumarleyfisferðir:
Ath.: 4.-7. ágúst Hvítárnes
-Hveravellir - nokkur sœti
laus!
4. -7. ágúst (4 dagar) Eldgjá-
Strútslaug-Álftavatn.
Suður-Grænland:
A. 18.-22. ágúst (hótelferð).
B. 22.-29. ágúst (gönguferð
með viðleguútbúnað).
Eingöngu fyrir félaga í F.í.
Takmarkað pláss.
5. -14. ágúst (10 dagar) Miðhá-
lendisferð um hálendið norðan
Vatnajökuls. Gist í húsum.
Upplýsingar og farmiðar á
skrifstofunni, Mörkinni 6,
sfmi 682533.
fomhjólp
Dagskrá Samhjálpar um
verslunarmannahelgina
verður sem hér segir:
Laugardagur 30. júlí: Opið hús
kl. 14.00-17.00. Lítið inn og
rabbið um lifið og tilveruna. Heitt
kaffi á könnunni. Dorkas-konur
sjá um meðlætið. Einsöng syng-
ur Harpa Hallgrímsdóttir. Gunn-
björg Óladóttir stjórnar almenn-
um söng og kennir nýja kóra.
Takið með ykkur gesti.
Sunnudagur 31. júlf: Almenn
samkoma kl. 16.00. Mikill söng-
ur. Gunnbjörg Óladóttir kennir
nýju kórana. Harpa Hallgríms-
dóttir syngur einsöng. Barna-
gæsla. Ræðumaður Óli Ágústs-
son. Kaffi að lokinni samkomu.
Allir velkomnir í Þrfbúðir,
Hverfisgötu 42, um verslunar-
mannahelgina.
Samhjálp.
Hallveigarstíg 1 •simi 614330
Sumarleyfisferðir:
í Fjörður 5.-10. ágúst. Gengið
frá Svínárnesi út að Látrum og
m.a. um Keflavík, Þorgeirsfjörö
og í Hvalvatnsfjörð. Bakpoka-
ferð, gist í tjöldum. Brottför frá
Akureyri. Fararstjóri Hörður
Kristinsson.
Hvítárnes-Þjófadalir-Hvera-
vellir 9.-13. ágúst. Gengin göm-
ul þjóðleið um Kjöl. Bakpokaferð,
gist f skálum. Örfá sæti laus.
Fararstjórar Agúst Birgisson og
Eyrún Ösk Jensdóttir.
Eldgjá-Strútslaug-Básar
15. -19. ágúst. Skemmtileg
ganga um stórbrotið svæði.
M.a. farið umTorfajökul ef veður
leyfir. Bakpokaferð, tjaldgisting.
Hægt að framlengja dvölinni í
Básum. Fararstjóri Gunnar
Gunnarsson.
Landmannalaugar-Básar
16. -19. ágúst. Hin sígilda
gönguleið milli Lauga og Þórs-
merkur. Gist í skálum.
Fjallabaksleið syðri
18.-21. ágúst. Ekin verður
Fjallabaksleið syðri í Álftavatn
þar sem gist verður f 3 nætur.
Farið þaðan í ökuferðir og stutt-
ar gönguferðir m.a. að Torfa-
hlaupi, í Hrafntinnusker og út á
Mælifellssand. Gist f skála. Far-
arstjóri Kristinn Kristjánsson.
Upplýsingar og miðasala á
skrifstofu Útivistar.
Hvítasunnukirkjan
Ffladelfía
Vegna landsmóts hvítasunnu-
manna í Kirkjulækjarkoti, Fljóts-
hlíð, sem hófst í gærkvöldi, falla
allar samkomur helgarinnar nið-
ur i Reykjavík, en við viljum
hvetja alla til að koma austur
og njóta helgarinnar með okkur.