Morgunblaðið - 21.08.1994, Síða 1
80 SIÐUR B/C
188 TBL. 82. ÁRG.
Buxur fyrir
ýstrubelgi
MIKILVÆG breyting hefur verið gerð
á stöðlum sem notaðir eru við gerð
nærbuxna hjá breska fyrirtækinu Joc-
key og er talið að buxurnar muni fram-
vegis henta betur þeim sem eru með
náttúrulegan björgunarhring. Jockey
segir að allt frá fjórða áratugnum
hafi buxurnar verið með röngu sniði
og sé það vegna reikningsvillu. Komið
hefur í ljós að fjarlægðin milli nafla
og nára er nær eins hjá öllum körlum,
óháð mittismáli. Áður var talið að hún
ykist í samræmi við mittismál. Hafa
buxur ýstrubelgja því annaðhvort verið
of pokalegar um klofið eða menn hafa
orðið að hysja þær upp fyrir maga.
Bannað að
leggja hér
V ÖRUBÍLSTJÓRI nokkur, Dennis
Wadsworth frá Birmingham, var
óheppinn á fyrsta degi í nýju starfi og
á fyrsta degi sínum í London. Hann
varð bensínlaus er hann ók um White-
hall-hverfið í grennd við þingið og
lagði 7 tonna bíl sínum á akrein sem
merkt er tvöföldum gulum strípum,
þar er stranglega bannað að Ieggja.
Reinin er auk þess andspænis Down-
ingstræti þar sem bústaður forsætis-
ráðherra er. Fyrir þrem árum var
beitt sprengjuvörpu til að skjóta á
bústaðinn úr bíl er lagt hafði verið á
nákvæmlega sama stað. Wadsworth
sneri aftur eftir hálfa aðra klukku-
stund og var þá lögreglan búin að
breyta farkostinum í brotajárn með
tveim hnitmiðuðum sprengihleðslum.
„Yfirmaður minn er búinn að vera með
óttaleg leiðindi eftir að ég sagði honum
frá þessu,“ sagði Wadsworth.
Langt viðtal
í glatkistuna
TERRY Major-Ball, eldri bróðir Johns
Majors, forsætisráðherra Bretlands, er
á eftirlaunum og hefur nú ritað bók
um áhugamál sín, lagfæringar á
heimilinu og garðaskreytingar, en
einnig um hinn fræga bróður sinn og
fjölskylduna. Frásagnargáfan þykir
ekki beinlínis hrífandi. Hann segir
sjálfur frá því að eitt sinn hafi verið
tekið við sig blaðaviðtal í tvær stundir
en ekkert af því hafi verið birt. „Hví-
lík tímasóun," segir Major-Ball. „Ég
hefði getað málað hurð á þessum
tíma.“
STOFNAÐ 1913
SUNNUDAGUR 21. AGUST 1994
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Frakkar staðráðnir í að flytja herlið sitt á brott frá Rúanda
Hundalíf við Þvottalaugaveg
Morgunblaðið/Þorkell
HUNDUM þykir ekki gaman að láta baða sig og þegar þessi seppi sá vegskiltið neitaði hann að halda áfram.
Ungi maðurinn reyndi að sannfæra seppa um að ekkert væri að óttast, en hann lét ekki sannfærast. Það hljóta jú
allir að skilja að á Þvottalaugavegi er þvottalaug.
SÞ óttast aukínn flótta-
mannastraum tíl Zaire
París, Bukavu í Zaire, Gikongoro í Rúanda. Reuter og
FRAKKAR eru staðráðnir í að flytja síðustu
hermenn sína á brott frá verndarsvæðinu í
suð-vesturhluta Rúanda í dag, sunnudag,
þrátt fyrir áskoranir ýmissa ríkisstjórna,
þ.á m. Bandaríkjanna, og Sameinuðu þjóð-
anna um að fresta brottflutningnum. Ekki
er búist við gæsluliði SÞ á staðinn fyrr en
á morgun og auk þess mun það verða fá-
mennt til að byija með. Margir óttast ofsókn-
ir Rúandahers á hendur flóttafólki á svæðinu
en Frakkar segja að ný stjórn Rúanda, þar
sem Tútsar ráða mestu, verði að stöðva flótt-
ann með því að draga úr ótta við hefndarað-
gerðir Tútsa gegn Hútúum.
Fulltrúar alþjóðlegra hjálparstofnana
segja hættu á því að straumur fólks yfir
iandamærin til Zaire verði óviðráðanlegur
The Daily Telegraph.
eftir helgina og stjórnvöld í Zaire sögðust í
gær ætla að loka landamærunum. Ekkert
benti þó til þess af þeirri ákvörðun yrði hrint
í framkvæmd er síðast fréttist.
43.000 látnir í Goma
Um 80.000 flóttamenn eru þegar í Bukavu
þar sem fyrir bjuggu um 250.000 manns,
og hefur flóttafólkið þyrpst saman í miðborg-
inni. Fulltrúar flóttamannahjálpar SÞ segja
að 15-20.000 manns hafi komið yfir hrörlega
brú á landamærunum til Bukavu á föstudag
en borgin er við stöðuvatn. Rúm milljón
manna flúði fyrir skömmu til Goma sem er
skammt handan við norðvesturlandamæri
Rúanda, í austurhluta Zaire. Talsmenn hjálp-
arstofnana segja að alls hafi nú 43.000
manns látist af völdum sjúkdóma og vosbúð-
ar í flóttamannabúðum í og við Goma.
Á holóttum götum Bukavu sitja örmagna
íjölskyldur með föggur sínar, margir flytja
með sér sjúka og lasburða ættingja á börum.
Sjónarvottar segja að regntíminn valdi því
að heilsufar fólksins sé enn verra en ella.
I'jöldi barna vafrar um á blóðrisa fótum.
Franskur ofursti í herliðinu í Rúanda, er
áður hafði verið í gæsluliði SÞ í Saravejo,
var vondaufur er hann ræddi við frétta-
menn. í Sarajevo hefði honum fundist að
hægt væri að leysa vandann með því að
Vesturveldin tækju frumkvæði. „En hér er
útilokað að sjá að nokkur geti greitt úr flækj-
unni.“
íslendingar
ó úthafsveióum
SÍGARETTUM
JAFNAÐ
VID EITURLYF
ENN STÆKKAR
HÓTELSAGA
Ql
Z
P
>
3
t'
Ckí
Z)