Morgunblaðið - 24.08.1994, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 24. ÁGÚST 1994 5
FRÉTTIR
Nýbrúí
Reykjavík
FRAMKVÆMDUM við nýja teng-
ingu Suðurlandsvegar og Vestur-
landsvegar miðar vel áfram.
Þessa dagana er m.a. unnið að
malbikun. Umferð verður hleypt
á nýja veginn og brúna við Hálsa-
hverfi í haust. Framkvæmdir við
Vesturlandsveg haida síðan
áfram á næsta ári. Þar liggur
m.a. fyrir að byggja brú yfir
Höfðabakka, en það er gríðarlega
stór framkvæmd.
Ymsir óttast að nýju mannvirk-
in safni að sér snjó yfir vetr-
armánuðina og umferð um þau
verði erfið. Eyvindur Jónassson,
rekstrarstjóri hjá Vegagerðinni,
sagði vissulega ástæðu til að ótt-
ast snjóþyngsli þarna og til greina
kæmi að selja upp snjógirðingar
til að draga úr skafrenningi. Hann
sagði að ekki væri um marga
kosti að ræða við hönnun mann-
virkisins á þessum stað og því
verði bara að sjá til hvað gerist
í vetur.
----» ♦■■■»..
Georg- Ólafsson hjá
Samkeppnisstofnun
FÍB var
svarað
fyrir ári
GEORG Ólafsson, forstöðumaður
Samkeppnisstofnunar, segir það ekki
rétt að Samkeppnisstofnun hafi ekki
enn svarað bréfi Félags íslenskra
bifreiðaeigenda frá síðasta ári eins
og haldið var fram í Morgunblaðinu
í gær. Hann segir að bréfið hafi feng-
ið eðlilega umfjöllun innan stofnun-
arinnar og því hafi verið svarað í
september á síðasta ári.
FÍB sendi bréfið til Samkeppnis-
stofnunar 26. maí 1993. í því er
óskað eftir að stofnunin athugi hvort
olíufélögin hafi haft í frammi ólög-
legt samráð um verðlagningu á bens-
íni. Forsvarsmenn FIB telja sig ekki
hafa fengið neitt svar við bréfinu.
Georg sagði þetta rangt. Hann sagði
að strax eftir að kvörtunin barst
hefði Samkeppnisstofnun hafist
handa við að kanna málið og 17.
ágúst 1993 hefði stofnunin sent FÍB
bréf þar sem félaginu hefði verið
gerð grein fyrir stöðu þess. I septem-
ber hefði síðan verið haldinn fundur
með forsvarsmönnum FÍB þar sem
þeim hefði verið kynnt niðurstaða
stofnunarinnar.
Georg sagði að í fréttabréfi Sam-
keppnisstofnunar frá því í september
1993 væri gerð grein fyrir kvörtun
FÍB og niðurstöðu málsins. Fjölmiðl-
ar hefðu flallað um málið í kjölfarið.
í leiðara Morgunblaðsins 26. septem-
ber segi t.d.: „Niðurstaða Sam-
keppnbisstofnunar var sú, að ekki
sé sannað, að um samstilltar aðgerð-
ir hafi verið að ræða hjá olíufélögun-
um en jafnframt segir stofnunin að
svör olíufélaganna dugi ekki til að
hreinsa þau af ásökunum FÍB.“
FAGURT LAND
HHI.MINOUR AH ANDVIRDI
POKANS RENNUR Tll.
L.ANDOKÆDSLU OO
NÁTTÚRUVKRNDAR
Samstarf Landverndar
viö verslanir og neytendur
hefur skilaö 80 milljónum
til umhverfisverndar.
Þökk fyrir stuðninginn.
LANDVERND
iii
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Vegna mikillar sölu á
nýjum bílum undanfarið
á notuðum bílum
I BÍLAHÚSINU í húsi
Ingvars Helgasonar hf.
Sævarhöfða 2. Sími: 674848
Einnig hjá umboðsmönnum okkar
Reyðarfjörður Borgarnes Keflavík
Lykill B. Vesturlands BG-bílasalan
Selfoss ísafjörður Akureyri
Betri bílasalan Ernir Bifrverkst. Sig. Vald.
BÍLAHÚSIÐ
Ingvar
Helgason hf.
Sævarhöfða 2
Sírni 674000