Morgunblaðið - 24.08.1994, Qupperneq 8
8 MIÐVIKUDAGUR 24. ÁGÚST 1994
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Jarðskjálftar, formbreytingar og
efnasamsetning gastegunda úr
kvikunni, sem leitar upp á
yfirborðið t.d. í hverum, geta
gefið til kynna að kvika sé að
safnast fyrir undir eldstöðinni og
að eldgos geti verið í vændum.
Það fer síðan eftir orkunni sem
felst í kvikunni og styrkleika
jarðskorpunnar hvort gos verður
eða ekki, en ógjörningur er að
segja til um hugsanlegar tíma-
setningar þar sem þessir kraftar
sem eru að verki eru óþekktir.
Formbreytingar eru mældar út frá ákveðnum
mælipunktum á jörðu, en hæðabreytingar
þeirra gefa þensluna til kynna. Hvað Heklu
varðar þá hefur hún þanist út um nokkra
sentimetra frá síðasta gosi sem varð 1991,
en jarðvísindamenn segja hraða þenslunnar
vera örlitið meiri en búist hafi verið við.
Kvika safnast fyrir undir
eldstöð og hún þenst út
Þrýstingur undir
eldstöð hefur
náð hámarki,
jarðskorpan
brestur og
eldgos hefst
Mælipunktar sem gefa
hæðarbreytingu til kynna
Fastur mæli-
punktur
Þegar kvikan
þrengir sér upp
í jarðskorpuna
verða
jarðskjálftar
Fastur
mælipunktur
Gas úr
kvikunni
leitar upp
á yfirborðið
Kvikuþró
Kvikuþró
Ógjörningur að segja til
um hvenær Hekla gýs
JARÐVÍSINDAMENN segja
ómögulegt að segja til um hvenær
Hekla kann að gjósa næst, en eins
og greint hefur verið frá í Morgun-
blaðinu hefur kvikusöfnun undir
Heklu og formbreyting á fjallinu
verið heldur meiri frá síðasta gosi
en vísindamenn gerðu ráð fyrir.
Að sögn Guðmundar Sigv'aldasonar
forstöðumanns Norrænu eldfjalla-
stöðvarinnar fer það eftir þeirri
orku sem felst í kvikunni og styrk-
leika jarðskorpunnar hvort gos
verður eða ekki, en ógjörningur er
að segja til um hugsanlegar tíma-
setningar þar sem þessir kraftar
sem eru að verki eru óþekktir.
Jarðskjálftar, formbreytingar og
efnasamsetning gastegunda úr
kvikunni, sem leita upp á yfirborð-
ið t.d. í hverum, geta gefið til kynna
að kvika sé að safnast fyrir undir
eldstöðinni og að eldgos geti verið
í vændum. Formbreytingar eru
mældar út frá ákveðnum mæli-
punktum á jörðu, en hæðarbreyt-
ingar þeirra gefa þensluna til
kynna. Einnig eru notuð sjálfvirk
mælitæki í þessu skyni. Hvað
Heklu varðar hefur hún, að sögn
Guðmundar, þanist út um nokkra
sentimetra frá síðasta gosi, sem
varð 1991.
Sautján gos frá landnámi
Síðasta eldgosið í Heklu, sem
hófst í janúar 1991, er sautjánda
Hekla hefur veríð í
fréttum í tengslum við
jarðhræring’amar á
Suðurlandi, en form-
breyting á fjallinu hefur
verið örari en vísinda-
menn bjuggust við. Þeir
telja hins vegar ómögu-
legt að spá um hvenær
hún kunni að gjósa.
eiginlega Heklugosið sem vitað er
um frá landnámi íslands og það
fjórða á þessari öld. Þar fyrir utan
hefur gosið fimm sinnum svo vitað
sé í nágrenni fjallsins. Hekla er um
7.000 ára gömul og er gossögu
hennar skipt í þrjú aðalskeið. Þriðja
skeiðið er talið hafa byrjað með
miklu gosi árið 1104 og þá hafi
verið liðin 2-300 ár frá næsta gosi
á undan. Síðan hefur Hekla gosið
að jafnaði einu sinni til tvisvar á
öld, að þessari undanskilinni.
Gos hófst í Heklu í ágúst árið
1980 og var það mjög kröftugt í
byrjun; gossprungan var um 8 kíló-
metra löng og aska barst norður
til Skagafjarðar. Goshrinan stóð
aðeins í þrjá daga, en árið eftir, í
maí, hófst gosið aftur og stóð þá
r viku og aðeins kom upp hraun.
Þessi gos komu flestum á óvart,
þvt aðeins 10 ár voru liðin frá síð-
asta gosinu á undan. Það hófst í
maí 1970 og stóð fram t' júlíbyrjun.
Þótt ekki gysi í Heklu sjálfri, held-
ur við rætur hennar nálægt svo-
nefndum Skjólkvíum, er gosið talið
til eiginlegra Heklugosa vegna þess
að hraunið sem þar kom upp var
líkt hrauni úr öðrum Heklugosum.
Heklugosið 1947 er mörgum
minnisstætt, en þá hafði Hekla
ekki gosið í 101 ár. Gosið hófst í
ágúst með miklum sprengingum
og látum og á hálftíma náði gosm-
ökkurinn tæplega 30 kílómetra
hæð. Gjóskumökkurinn barst suður
yftr landið og olli nokkru tjóni í
sveitum, aðallega í Fljótshlíð, þar
sem 7-10 sentimetra ösku- og vik-
urlag féll á skömmum tíma. Askan
barst langar leiðir og féll meðal
annars í Helsinki í Finnlandi. Gosið
stóð í rúma 13 mánuði.
Hefst með gjóskugosi
Venjuleg Heklugos hefjast með
töluverðu gjóskugosi en síðan hefst
blandgosasyrpa með ísúrum hraun-
um og basalti. Gjóskan úr fjallinu
er því súrari og gosin öflugri, sem
lengra líður milli gosa.
mraarion
Reykjavíkurvegi 64 • Hafnarfirði • Sími 651147
Höfcim opnað aftur aftir breytingar.
pcill búð af glœiilcgum vörum.
Mikiö úrval af ullarjökkum,
buxum, pilsum og blússum.
Stcarðír 36 til 52.
Sendiherra Svía kveður Island
Mikið framboð
af menningn
Göte Magnusson
Magnusson
segir að það
sé með
nokkuð blendnum til-
finningum að hann
láti af störfum, það
sé býsna erfitt að
horfast í augu við að
hætta að vinna. Hann
segir aðspurður að
menntun í lögfræði,
hagfræði, stjórn-
málafræði og tungu-
málum komi að góðu
gagni í utanríkisþjón-
ustunni. Nauðsynlegt
sé að vera sveigjan-
legur, hafa hæfileik-
ann til að laga sig að
gerólíkum aðstæðum
og óvæntum uppá-
komum. Jafnframt
verði stjórnarer-
indrekar að vera sínu
eigin þjóð og menn-
ingu trúir, það sé mikilvægt þeim
sem eigi að vera fulltrúar þjóðar
sinnar erlendis. Sú hætta sé fyr-
ir hendi að menn ijarlægist um
of upprunann.
- Hvernig búa menn sig und-
ir veruna í nýju landi?
„Með því að lesa um aðstæð-
ur, stjórnmál, efnahagsmál, við-
skipti og menningu, hvernig
ráðuneyti og aðrar stofnanir
starfa, kynna sér hveijir í heima-
landinu eigi hagsmuna að gæta
í nýja landinu. I Angola og Nic-
aragua, þar sem innanlandsó-
friður herjaði, þurfti ég að kynna
mér þróunaraðstoð en einnig
mannréttindamál og störf alþjóð-
legra hjálparstofnana eins og
Rauða krossins á þessum slóð-
um. í Hollandi og á íslandi eru
það ekki stríðsátök sem þarf að
kljást við, það væru þá helst jarð-
skjálftar hér! í Hollandi og hér
eru það fremur Evrópumálin og
öryggismálin, Atlantshafsbanda-
lagið og slík mál“.
- Hvað hefur einkum komið
þér að óvart í fari íslendinga,
erum við mjög ólíkir Svíum?
„Hvað á ég nú að segja? Sam-
félagið er lítið en hér er allt vel
skipulagt og hlutirnir ganga vel
fyrir sig, stofnanir virka. Hér er
mjög auðvelt að vinna, auðvelt
að ná beinu sambandi við fólk.
Margir Svíar eru fálátir, mér
finnst andrúmsloft í
samskiptum fólks hér
vera dálítið léttara en
heima, þið eruð opnari,
líklegri til að sýna
frumkvæði, auk þess
ekki jafn siðavandir og
margir eru heima í Svíþjóð. Svíar
eru formlegri en þið en reyndar
held ég að það hafi verið að
breytast nokkuð síðustu 20-30
árin þar eins og víðar. Það er
t.d. meira hispursleysi í klæða-
burði en áður, karlar ekki alltaf
með bindi. Reyndar er þetta háð
tískusveiflum, sumir vilja hverfa
frá formleysinu aftur“.
- Menningarsamskipti eru
stór þáttur í starfinu. Eru íslend-
ingar jafn mikil menningarþjóð
og þeir þykjast vera?
„Það er mikið framboð af
hvers kyns menningarefni hér,
tónlist, leiklist, kvikmyndum,
myndlistarsýningum, geysimikið
í ekki stærra þjóðfélagi. Auðvit-
að veit ég ekki hvort allur al-
menningur er þátttakandi í þessu
öllu, nýtur þess en þannig er það
nú alls staðar. En það er mikill
kcaftur í menningarlífinu hér“.
- Hvað verður um norræna
samvinnu ef ailar Norðurlanda-
► SENDIHERRA Svíþjóðar,
Göte Magnusson, og eiginkona
hans, Brita Magnusson, kveðja
íslendinga í næstu viku eftir
að hafa gegnt hér störfum í
rúm tvö ár. Magnusson er
menntaður í lögfræði og starf-
aði hjá tryggingafyrirtækinu
Scandia áður en hann byijaði
í utanríkisþjónustunni 1957.
Hann gegndi embætti sendi-
herra í ýmsum löndum frá
1978, þ. á m. Angola, Nic-
aragua og Hollandi. Magnus-
son, sem nú fer á eftirlaun,
viðurkennir að oft geti verið
snúið að laga sig að ólíkum
aðstæðum í menningu, veður-
fari og öðrum efnum.
þjóðir að íslendingum undan-
skiidum ganga í Evrópusam-
bandið?
„Það er stefnt að því að starf-
ið haldi áfram en að nokkru leyti
með öðrum hætti og forgangs-
röðin verði önnur. Það sem er
mjög sérstætt við norræna sam-
vinnu er að þing landanna koma
þar svo mikið við sögu og sviðin
eru svo mörg og margvísleg.
Samskiptin eru oft mjög óform-
leg og mikill fjöldi fólks kynnist
öðrum Norðurlandabúum. Þetta
mun halda áfram en það er ljóst
að samstarfið í ESB
mun verða mjög tíma-
frekt og erfitt fyrir
stjórnmála- og emb-
ættismenn. Þótt menn
segi að norræn sam-
vinna muni ekki þoka
úr sessi get ég vel séð að það
er viss hætta á því.“
- Telurðu Iíklegt að Norður-
löndin muni koma sér upp sam-
eiginlegum sendiráðum í Kína,
Japan og öðrum fjarlægum lönd-
um?
„Við erum að hefja tilraun
með samstarf í Kína, þar sem
ísland er með stjórnarerindreka
í húsakynnum sænska'sendiráðs-
ins í Peking. Það verður athyglis-
vert að fylgjast með þeirri til-
raun. Einnig mætti hugsa sér
að sendiráð eins landsins sé jafn-
framt ræðismannsskrifstofa fyr-
ir annað norrænt ríki. í Rotter-
dam voru Norðmenn t.d. með
aðalræðismannsskrifstofu sem
gegndi sömu störfum fyrir Svía.
Það er auðveldara að eiga sam-
vinnu um slíkar skrifstofur en
sendiráð. Það væri hægt að sam-
einast um húsnæði og móttöku,
símaborð og gæslu. Þannig væri
hægt að spara fé.“
Breytt for-
gangsröðí
norrænu
samstarfi
I
i
\
i