Morgunblaðið - 24.08.1994, Síða 10
10 MIÐVIKUDAGUR 24. ÁGÚST 1994
MORGUNBLAÐIÐ
4ra herb. íbúð í Hafnarfirði
Til sölu á Álfaskeiði 30 falleg og vönduð efri hæð um
90 fm í tvíbýlish. auk geymsluriss og 15 fm herb. í kj.
Allt sér. Eignin er í ágætu ástandi. Verð 7,8 millj.
Árni Gunnlaugsson hrl.,
Austurgötu 10, sfmi 50764.
FYRIRTÆKI OG
SAMNINGAR
Síðumúli 15 • Páll Bergsson • Sími 812262 • Fax 812539
Söluturn - mikil umsvif
Til sölu sælgætisverslun með meiru. Verulegur rekstur og
góð staðsetning til margra ára. Tæki og öll aðstaða í besta
lagi. Fyrirtækið er rekið í eigin húsnæði sem einnig getur
verið til sölu.
Lítið verktukufyrirtæki
Af heilsufarsástæðum er til sölu verktakafyrirtæki á sviði
fleygunar og múrbrots m.m. Hagstæðir samningar vel
mögulegir. Myndir og tækjalisti á skrifstofunni.
Upplýsingar um ofangreind fyrirtæki og önnur á söluskrá
okkar eru aðeins veittar á skrifstofunni eftir hádegi virka
daga.
Samningar og fyrirtækjasala í 10 ár - Fyrirtækjasalan Varsla.
3frábærfyrirtæki
Fisksölufyrirtæki
Höfum til sölu mjög gott fisksölufyrirtæki sem
þjónustar 5000 heimili. Frábært tækifaeri fyrir
þá sem vilja eignast arðbært fyrirtæki. Óvenju-
legt tækifæri.
Matvöruverslun
Til sölu mjög hagstæð matvöruverslun með góð
viðskiptasambönd. Góð staðsetning í gamal-
grónu hverfi. Velta milli 6-7 millj. pr./mán. Ein-
stakt tækifæri og frábær kjör. Laus strax.
Söluturn
Til sölu frábær söluturn með góðri veltu og sölu
á mikilli álagningarvöru. Útilúga og góð stað-
setning. Góð kjör. Laus strax. Langur húsaleigu-
samningur.
Uppl. um öll fyrirtækin aðeins á skrifstofunni.
SUÐURVE R I
SÍMAR 812040 OG 814755, REYNIR ÞORGRÍMSSON.
21150-21370
LARUS Þ. VALDIMARSS0N. framkvæmoastjori
KRISTJAN KRISTJANSS0N. loggiltur fasteignasali
Til sýnis og sölu m.a. eigna:
Glæsileg hæð við Nökkvavog
Mikið endurn. 5 herb. hæð 131,8 fm brúttó. Glæsil. fjölskherb. í risi.
Allt sér. Tvíbýli. Bílskúr 37 fm. Trjágarður. Tilboð óskast.
Kyrrlátur staður - hagkv. skipti
Nýlega endurbyggt og stækkað timburh. í Skerjafirði um 150 fm.
Skipti æskileg á 3ja-4ra herb. ib., helst í Vesturbæ eða nágr.
Þríbýlishús í Smáíbúðahverfi
Reisulegt steinhús. Grunnfl. um 90 fm með 2ja herb. íb. í kj., 3ja herb.
ib. á hæð og 3ja herb. íb. í risi. Bílsk. (verkstæöi) 43 fm.
2ja herb. - gott verð - góð kjör
Hraunbær 2. hæð, 53 fm. 40 ára húsnæðislán kr. 3,1 millj. Lítil útb.
Kríuhólar lyftuhús 7. hæð, 63,6 fm. Ágæt sameign. Fráb. útsýni.
Dunhagi 1. hæð 56,1 fm. Sérinng. Glæsil. tæki og innr. 3ja ára.
Jöklasel 2. hæð, 64,7 fm. Suðurendi. Mjög góð. Sérþvottah. Sólsv.
Góð sameign. Bílskúr 26 fm - geymsluris.
Góð endaíb. - gott verð
Mikið endurn. 4ra herb. íb. á 1. hæð, 108,6 fm. Sérhiti. Tvennar sval-
ir. Gott kjherb. m. snyrt. Góð sameign. Tilboð óskast.
Skammt frá Árbæjarskóla
Nýiegt glæsil. raðh. m. 6 herb. íb. á tveimur hæðum. í kj. sauna, fönd-
ur- og vinnuhúsn. Bílskúr sérbyggður fylgir.
• • •
Fjöldi góðra eigna.
- Einbýlishús og sérhæðir -
ímakaskiptum.
ALMENNA
FASTEIGNASAl AH
LaÍjGWEG118SIMAR2115^21370
AKUREYRI
Morgunblaðið/Björn Gíslason
Snjósleðar eða sjósleðar?
VÉLSLEÐAAKSTUR var á mánudag sýndur á Eyjafjarðará í tengslum við landbúnaðarsýninguna Auð-
humlu '94 í Hrafnagili. Það var svokölluð Meistarasveit Eyjafjarðarsveitar sem sýndi listir sínar á ánni.
Sveitina skipa: Finnur Aðalbjörnsson, Jóhann Reynir Eysteinsson, Jóhannes Reykjalín og Þórir Gunnars-
son. Þá tóku torfærukapparnir Helgi Schiöth og Einar Gunnlaugsson rispur á jeppum sínum, á ánni.
Forsala á heimsmeistarakeppnina í handbolta hefst brátt
Mikill áhugi ríkj-
andi á keppninni
MIÐASÖLU á leiki í heimsmeist-
arakeppnina í handknattleik, sem
fram fer hér á landi næsta vor,
er stjórnað frá Akureyri. Valdimar
Grímsson, landsliðsmaður og leik-
maður KA, er verkefnisstjóri varð-
andi söluna á vegum Halldórs Jó-
hannssonar og Ferðaskrifstofunn-
ar Ratvís, sem sjá alfarið um miða-
söluna. Valdimar segir áhuga á
keppninni gríðarlegan, bæði hér
heima og erlendis, mikið hafi verið
spurt um miða en sér sýnist að
svo geti farið að fjöldi útlendinga
hætti við að koma til landsins ef
úrslitaleikurinn verði í Laugar-
dalshöll; aðeins verði 3.400 miðar
í boði á almennum markaði á úr-
slitaleikinn og ljóst sé að margir
útlendingar séu ekki spenntir að
koma vegna keppninnar, nema fá
miða á lokaleikinn.
„Það hefur mikið verið hringt,
og menn vilja kaupa miða strax,
að minnsta kosti á úrslitaleikinn,“
sagði Valdimar við Morgunblaðið.
Hann hefur hins vegar orðið að
neita öllum slíkum beiðnum, því
miðasala hefst ekki fyrr en 1. sept-
ember. Þá verður 10% af miðum
á leiki í riðlakeppnina, og hluti
OPIÐ:
miövikudaga: 20:00 - 01:00
fimmtudaga: 20:00 - 01:00
föstudaga: 20:00 - 03:00
laugardaga: 20:00 - 03:00
sunnudaga: 20:00 - 01:00
^ r
miða á leiki síðar í
keppninni, sett í for-
sölu hér á landi, alls
um 5.500 miðar; „við
köllum það slembifor-
sölu, en hún verður í
gangi frá 1. til 10.
september," sagði
Valdimar.
Þrjár leiðir eru fær-
ar til að tryggja sér
miða á leiki í HM. í
fyrsta lagi er að
ganga í stuðnings-
mannahóp, sem kall-
aður er Fólkið okkar.
í öðru lagi er áður-
nefnd slembiforsala
og í þriðja lagi er að kaupa að-
gangskort, sem boðið verður upp á
síðar.
Fólkið okkar
„Það er hægt að ganga í þennan
félagsskap, Fólkið okkar, til 1.
nóvember. Til að ganga í félagið
kaupa menn miða á alla tíu leiki
íslands á heimavelli fram að HM,
fyrir tíu þúsund krónur og gegn
því fá menn forgangsrétt að mið-
um á alla leiki Islands á HM. En
ég ítreka að menn missa forkaups-
réttinn 1. nóvember. Ég hvet fólk
því til að bregðast fljótt við,“ sagði
Valdimar. Hann bætti við að með-
limir í Fólkinu okkar fái ýmis rétt-
indi á leikjum HM, svo sem að-
gang að setustofu þar sem boðið
er upp á veitingar, sjónvarpsút-
sendingar frá öðrum leikjum og
frátekin bílastæði upp að vissu
marki. Þá verði landslið íslands
með opna æfingu fyrir meðlimi
félágsskaparins.
Slembimiðar
Sala svokallaðra slembimiða
verður þannig að fólk leggur inn
kaupbeiðni. Viðkomandi getur
ekki valið ákveðna leiki, heldur
verður það tilviljun háð á hvaða
leiki miðarnir gilda. Einnig er
hugsanlegt að viðkomandi fái enga
miða, því aðeins um 10% miða á
leiki í riðlakeppninni
eru í þoði. Einnig
verða í pottinum dýr-
ari miðar, t.d. miðar á
úrslitaleikinn og svo-
kölluð Forkort, sem i
nánar verður vikið að j
á eftir. „Með þessu
móti getur fólk dottið
í lukkupottinn og
fengið miða sem eru
mun dýrari og einnig
torsóttir,“ sagði Valdi-
mar.
Aðgangskort (
Hægt verður að i
kaupa aðgangskort á (
leikina. Boðið verður upp á tvær
gerðir, annars vegar Alkort og
hins vegar Forkort. Hið fyrrnefnda
tryggir miða á 10 leiki, sem kaup-
andi velur sjálfur, m.a. úrslitaleik-
inn. Hið síðarnefnda hins vegar
gefur fólki kost á að sjá alla leiki
í einum riðli undankeppninnar og
veitir því síðan forkaupsrétt að (
miðum á úrslitakeppnina, þ.m.t. .
sjálfan úrslitaleikinn ef eftirspurn
leyfir. Valdimar segir, eins og |1
fram kom í upphafi, gífurlegan
áhuga á keppninni. „Og stærsta
vandamálið er að allar fyrirspurnir
byggjast á því að fólk vill einnig
sjá úrslitaleikinn. Ef við göngum
út frá því að húsið — sem nú er
verið að skoða hvort verði byggt
eða ekki — verði ekki að veru-
leika, sýnist mér ég geti ekki tek-
ið á móti öllum þeim útlendingum ^
sem vilja koma. Þess vegna held (
ég svolítið að mér höndum vegna
óvissunnar um húsið. Ef það verð-
ur byggt gæti ég líklega selt hið
minnsta um 5.000 miða erlendis,
en þarf annars hugsanlega að vísa
hundruðum manna frá; það er líka
blóðugt til þess að hugsa af hve
miklum gjaldeyristekjum þjóðar-
búið verður ef 1.600 til 2.000 I
manns hætta við hálfs mánaðar- j
dvöl á íslandi vegna þess að þeir 1
komast ekki á úrslitaleikinn,“ '
sagði Valdimar Grímsson. ^
Valdimar
Grímsson