Morgunblaðið - 24.08.1994, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 24. ÁGÚST 1994 11
I
I,
I
I
)
)
)
)
)
>
)
i
i
►
>
i
I
i
LAIMDIÐ
Hlaðinn garður
Stolckseyri
NÚ ER lokið gerð handhlaðins
garðs vestast í þorpinu en í þetta
verk voru ráðnir atvinnulausir
menn og fékkst styrkur úr At-
vinnuleysistryggingarsjóði til
þessa verks. Svona garðar hafa
verið eitt af einkennum Stokks-
eyrar frá fornu fari en þess má
geta að allir sjóvarnargarðarnir
voru svona.
Morgunblaðið/Gísli Gísla.
Hraunbær - 2ja herbergja íbúð
Falleg stór og björt 2ja herb. íbúð til sölu við Hraunbæ. íbúðin
er á 1. hæð í enda. Stofa með svölum og gott eldhús með
uppgerðri eldhúsinnréttingu. Gangur með miklum skápum,
gott herb. og bað. Stórir og miklir gluggar í suður og vestur.
Húsið er allt varanlega viðgert. Öll þjónusta við höndina.
Göngufæri í skóla og verslanir og alla heilbrigðisþjónustu. Á
íbúðinni hvílir gamalt, hagstætt veðdlán ca. 2,7 miilj. Aðeins
18 þús. kr. afborgun pr./mán. Verð 5,3 millj. íbúðin er laus
og hægt að flytja inn strax. Uppl. í síma 15563, Ragnheiður.
Grunnskólinn á Drangsnesi
Fimmtugsafmæli
skólans í haust
Laugarhóli - Grunnskóli Kaldr-
anahrepps á Drangsnesi verður
fimmtíu ára í haust. Hátíð vegna
afmælisins verður haldin þann 3.
september og hefst með guðsþjón-
ustu, þar sem hluti byggingarinnar
nýtist einnig sem kapella. Þá eru
einnig ráðnir þrír réttindakennarar
við skólann í vetur og er það senni-
lega hæsta hlutfall réttindakennara
frá upphafi. Aðeins stundakennarar
verða leiðbeinendur.
Nú er aðeins orðinn einn skóli í
Kaldrananeshreppi. Klúkuskóla var
endanlega lokað þann 1. ágúst sl.
en skólinn á Drangsnesi tekur við
þrem nemendum þaðan, en Grunn-
skólinn á Hólmavík við tveim.
Sjaldan hefur gengið jafn vel að
ráða réttindakennara við skólan.n
við Steingrímsfjörð og í ár. Af ell-
efu kennurum á Hólmavík eru nú
fimm réttindakennarar og einn af
hinum í réttindanámi.
Á Drangsnesi er aftur á móti
búið að ráða réttindakennara í allar
þrjár stöðurnar svo að nú verður
aðeins stundakennslu sinnt af leið-
beinendum.
Frá 1. ágúst í sumar hefur svo
Drangsnesskóli tekið við nemend-
um úr Klúkuskóla en hann var lagð-
ur niður. Var Klúkuskóli þá orðinn
86 ára gamall. Skólinn á Drangs-
nesi verður hinsvegar fimmtíu ára
á þessu hausti og verður af því til-
efni haldin hátíð þann 3. september
nk. Auk heimamanna er boðið til
hennar fyrrverandi skólastjórum við
skólann.Þegar skólinn var byggður
fyrir 50 árum fékkst leyfi til þess
að byggja hann og að jafnframt
yrði kapella í kennslustofunum, þar
sem kirkjulegar athafnir gætu farið
fram. Því hefst hátíðin með messu-
gjörð í skólanum. Síðan hefur verið
byggð ný bygging við skólann, sem
rúmar fatageymslur, salerni og
skrifstofur, ásamt bókasafni. Þá er
einnig tengibygging milli skólanna.
Það var árið 1908 sem fýrst var
kosin skólanefnd í Kaldrananes-
hreppi. Lengst af var þarna far-
skóli eða vel fram yfir miðja þessa
öld.
Morgunblaðið/Sigurður H. Þorsteinsson
SKÓLABYGGINGIN á Drangsnesi, eins og hún er í dag. Fjærst
er íbúð, þá er gamla byggingin, sem nú er orðin fimmtug, og
loks er nýjasti hlutinn næst á myndinni.
Sementsverksmiðjan hf.
Skuldabréfaútboð
2. flokkur 1994
Útgáfudagur, útboðstími og nafnverð skuldabréfa
Útgáfudagur og fyrsti söludagur skuldabréfanna er 23. ágúst 1994. Útboðstími er til
31. desember 1994. Heildarverðmæti útboðsins er 125 milljónir króna að nafnvirði.
Upplýsingar um skuldabréfaflokka,
gjaiddaga, vexti, ávöxtunarkröfu og sölugengi
Gefin verða út skuldabréf í þremur flokkuni í 1, 5 og 10 miltjóna króna einingum.
Flokkur Upp- tueð (mkr.) Lóns- timi Tegund bréfa Gjalddagi afborgana Gjaldd. vaxta ár hvert Nafn- vextir <%) Ávöxtunar- krnfa á útg.- degi (%) Sötugengl á útg.degi
2/1994A 50 8ár Árl. afb. 25.08 ár hvcrt 25. ágúst 6,25 605 0,9999899
2/1994B 25 5 ár Fjngr. 05.09.1999 5. sept. 6J0 6^0 0,9999332
2/1994C 25 4 ár Eingr. 05.09.1998 5. sept. 6,30 630 0,9999371
2/1994D 25 3 ár Elngr. 05.09.1997 5. sept. 5,95 5.95 0,9999436
Skuldabréf í flokki 2/1994A eru innkallanleg gegn vaxtaálagi eftir 4 ár.
Fjárhagslegur styrkleiki
Hinn 30. júní 1994 var eigið fé Sementsverksmiðjunnar hf. 1.431 milljónir króna
og eiginfjárhlutfall um 67%.
✓
Utboðsgögn, söluaðiii, umsjón með útboði og skráning
Útboðslýsing og önnur gögn um útboðið og Scmentsverksmiðjuna hf. liggja frammi hjá
Kaupþingi hf. sem hefur umsjón með útboðinu og annast sölu bréfanna.
Sótt hefur verið um skráningu skuldabréfanna á Verðbréfaþingi íslands.
KAUPÞING HF.
löggilt verðbréfafyrirtœki
Kringlunni 5
Sími: 689080
I
>
>
>
FJÖLSKYLDUBÍLL Á FÍNU VERÐI!
Lada Samara hefur notið gífurlegra vinsælda
hérlendis. Sífellt fleiri eru komnir á þá
skoðun að það vegi þyngst að aka um á
NÝ LADA SAMARA
rúmgóðum, sparneytnum og ódýrum bíl þótt
eitthvað vanti á þann íburð sem einkennir
marga bíla, en kemur akstrinum ekkert við. JJ|j
VERÐIÐ
1300 cc, 5 dyra, 5 gíra
ræður
594.000
Kr. á götuna
Útvarp, segulband, hátalarar og mottur
ÁRMÚLA 13 • SÍMI: 68 12 00 • BEINN SÍMI: 3 12 36