Morgunblaðið - 24.08.1994, Side 12
12 MIÐVIKUDAGUR 24. ÁGÚST 1994
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
FERÐALÖG
Haföminn gjaldþrota
Tapaði um 10 milljónum á mánuði í lokin
HAFÖRNINN hf á Akranesi var
tekinn til gjaldþrotaskipta í Hér-
aðsdómi Vesturlands í fyrradag
að ósk stjórnenda fyrirtækisins.
Frá í fyrrahaust höfðu verið gerð-
ar tilraunir til að forða gjaldþroti
fyrirtækisins með nauðasamningi,
sem staðfestur var af Héraðsdómi
í júní, en ekki tókst að efna.
Stærstu hluthafar fyrirtækisins
tóku ekki þátt í atkvæðagreiðslu
um nauðasamninginn og Akranes-
bær hafnaði síðan að verða við
skilyrði samningsins um að hlut-
hafar færðu niður hlutafé sitt í
fyrirtækinu. Rekstur Hafarnarins
færðist snemma í ári til Krossvík-
ur, fyrirtækis bæjarins, sem tók
hús þess á leigu og hefur rekið
þar fískvinnslu með 80-90 manns,
og tryggði sér auk þess umráða-
rétt yfir kvóta þeim sem fylgdi
tveimur skipum fyrirtækisins.
Auk Akranesbæjar, sem átti
40% í Haferninum og tvo af fimm
stjómarmönnum, var stærsti hlut-
hafínn Landsbanki íslands, að
sögn Gísla Gíslasonar bæjarstjóra,
en báðir þessir aðilar tóku ekki
afstöðu til nauðasamningsfrum-
varps fyrir Héraðsdómi en þar var
gert ráð fyrir greiðslu á 20%
krafna eða að 90% krafna yrði
breytt í hlutafé.
Samkvæmt milliuppgjöri sem
lagt var til grundvallar við nauða-
samningsgerðina voru bókfærðar
eignir félagsins 180 milljónir en
skuldir 183 milljónir króna, þar
af 147 milljónir í skammtíma-
skuldum. Gísli Gíslason bæjarstjóri
sagði við Morgunblaðið í gær að
staða fyrirtækisins væri líklega
mun verri enda eignirnar, hús og
vélar, ekki færðar á markaðs-
verði. sem væri mun lægra en
bókfært verð.
Gísli Gíslason sagði að ákvörðun
um að færa ekki niður hlutafé
hefði verið tekin þar sem ljóst
hefði verið að ekki yrði unnt að
efna nauðasamninginn; til þess
hefðu einfaldlega ekki verið til
peningar í fyrirtækinu og það hefði
verið talið ábyrgðarhluti gagnvart
kröfuhöfum að halda áfram. Hann
hafnaði því að þessi ákvörðun
bæjarstjórnar hefði haft úrslita-
þýðingu um gjaldþrot Jaess. Hann
nefndi að Landsbanki íslands, við-
skiptabanki og stærsti lánardrott-
inn félagsins, hefði hafnað að taka
þátt í nauðasamningum og eins
og bærinn ekki greitt atkvæði með
nauðasamningnum.
Hann sagði að öll áhrif gjald-
þrots fyrirtækisins á atvinnulíf á
Akranesi væru þegar komin fram
enda hefði það ekki haft rekstur
með höndum í um hálft ár en
Krossavík komið í þess stað. Bær-
inn hefði á undanförnum árum
lagt 127 milljónir króna í fyrirtæk-
ið, en það hefði tapað um 10 millj-
ónum króna á mánuði um það leyti
sem reksturinn stöðvaðist. Gísli
sagðist aðspurður telja að bærinn
færi í viðræður við skiptastjóra
þrotabúsins, Helga Jóhannesson
hdl, og veðhafa um kaup á húsi
Hafarnarins undir rekstur Krossa-
víkur.
Flugfélög
Lufthansa rekið
með hagnaði á ný
Frankfurt
ÞÝZKA flugfélagið Lufthansa skil-
aði hagnaði fyrra hluta ársins.
Hagnaður hefur ekki orðið á fyrra
árshelmingi í fimm ár hjá félaginu,
sem hyggst hefja arðgreiðslur að
nýju. Hagnaðurinn mun glæða
áhuga á fyrirhugaðri útgáfu hluta-
bréfa í Lufthansa.
Tekjur fyrir skatta fyrstu sex
mánuði ársins námu 105 milljónum
marka. í fyrra var tap fyrir skatta
hins vegar 221 milljarður marka.
Félagið hefur ekki skilað hagnaði
síðan fyrri hluta árs síðan 1989.
Hagnaðurinn kemur ekki á
óvart, en vekur fögnuð fjárfesta,
sem bíða væntanlegrar útgáfu
nýrra hlutabréfa í Lufthansa.
Flugfélagið hyggst afla um 1.2
milljarða dollara með útgáfunni,
sem mun leiða til þess að hlutur
ríkisins í því mun minnka í innan
við 51%. I lok næsta árs hyggst
ríkisstjómin selja afganginn af
hlutabréfum sínum og þá verður
Lufthansa algerlega í eigu einka-
aðila.
Hagnaðurinn vekur ánægju hjá
öðrum flugfélögum, sem hafa átt
við samdrátt að stríða í nokkur ár.
Góð afkoma Lufthansa er í sam-
ræmi við hagstæðan árangur evr-
ópskra „markaðshyggju-flugfé-
laga,“ sem sérfræðingar kalla svo
- British Airways, KLM og SAS.
Önnur flugfélög eiga hins vegar
fullt í fangi með að rétta úr kútn-
um, þótt búizt sé við að efnahags-
bati í Evrópu muni bæta hag
þeirra. Til dæmis er ekki búizt við
að Air France, sem tekur sér Luft-
hansa til fyrirmyndar í endurskipu-
lagningu á rekstri sínum, muni
skila aftur hagnaði fyrr en eftir
að minnsta kosti ár.
Virðing fyrir Lufthansa
Lufthansa hefur áunnið sér virð-
ingu margra sérfræðinga á undan-
fömum mánuðum — meðal annars
vegna tilrauna félagsins til þess
að draga úr kostnaði, samstarfs
við bandaríska flugfélagið United
Airlines, fjölgunar farþega og fyr-
irætlana um einkavæðingu.
„Félagið hefur tekið miklum
framförum á undanförnum 18
mánuðum og ég á von á því að sú
þróun haldi áfram,“ sagði sérfræð-
ingur í Frankfurt.
Tölvur
Netkerfi í
Þjóðarbók-
hlöðuna
ÁKVEÐIÐ var að taka tilboði frá
GSS á íslandi hf. í netkerfi Þjóðar-
bókhlöðunnar í framhaldi af útboði
fyrir skemmstu. Fyrirtækið átti
lægsta tilboðið í þetta verkefni sem
er eitt hið stærsta sinnar tegundar
hér á landi fram til þessa. Tilboðið
hljóðaði upp á tæpar átta milljónir
en auk þess sendu Nýhetji og Ör-
tölvutækni inn tilboð.
Verkinu miðar vel áfram sam-
kvæmt upplýsingum Guðmundar
Hólmsteinssonar hjá GSS á íslandi
en alls er um að ræða 70 kílómetra
af tölvustrengjum með yfir 3.500
tengipunktum ásamt ljósleiðurum
bæði innan og utan dyra. Er gert
ráð fyrir að hægt verði að tengja
allt að 200 tölvur í húsinu.
GSS á íslandi hefur um skeið selt
Digital-tölvur hér á landi í sam-
keppni við umboðsaðila Digital, Ört-
ölvutækni. Að sögn Guðmundar hef-
ur fyrirtækið náð þjónustusamningi
við §ölda Digital-notenda. Fyrirtæk-
ið hefur jafnframt sérhæft sig í net-
og samskiptabúnaði fyrir stærri
tölvukerfí og hefur m.a. átt töluverð
viðskipti við ríkis- og menntastofn-
anir auk stærri fyrirtækja.
Bætt afkoma hjá Hyundai
HYUNDAI, umsvifamesti bíla-
framleiðandi Suður-Kóreu, skilaði
85 milljóna dollara eða 68.2 millj-
arða kóreskra wona nettóhagnaði
fyrri hluta ársins og það er 343%
aukning miðað við sama tíma í
fyrra, en þá varð fyrirtækið fyrir
skakkaföllum vegna verkfalla,
sem stóðu í tvo mánuði.
Sala jókst um 27% í 4,270 millj-
arða wona vegna aukinnar eftir-
spurnar á innanlandsmarkaði, sem
er í örari vexti en þekkist annars
staðar.
Útflutningur hefur aukizt vegna
veikrar stöðu wonsins, sem hefur
aukið sölu erlendis á kostnað
japanskra bíla, sem erfiðara er að
selja en ella vegna sterkrar stöðu
jensins.
Tekjur dótturfyrirtækis Hy-
HAGNAÐUR var á rekstri Hyundai fyrstu sex mánuði ársins.
undai, sem annast sölu og viðhald,
minnkuðu hins vegar um 30% í
13,8 milljarða won, þar sem við-
skiptastríð milli bifreiðaframleið-
enda Suður-Kóreu hefur leitt til
kostaboða til viðskiptavina.
Sala jókst um 33% í 2,279 millj-
arða wona.
Fljúgandi ferðasala
- og hefst á Hellu
NÆSTU fjórar helg-
ar verður starfsfólk
Söludeildar Flugleiða
á ferð um landið með
„fljúgandi ferða-
sölu.“ Fyrsti við-
komustaðurinn er á
Hellu þann 27. ág-
úst. Daginn eftir í
Vestmannaeyjum og
þann 3. september
verða Tálknfirðingar
sóttir heim og daginn
eftir Patreksfirðing-
ar, þann 10. sept. er
komin röðin að
Stykkishólmi og dag-
inn éftir Ólafsvík. Þá
er ferðasalan á Eski-
fírði 17. september og þann 18. á
Norðfirði. Verður opið síðdegis þessa
daga.
Þetta er í fyrsta skipti sem slík
ferð er farin. Sett verður upp sölu-
skrifstofa á hveijum stað með til-
heyrandi bókunartölvubúnaði og
farmiðaprenturum.
Ferðaúrvalið verður
fjölbreytt. Þar verða
m.a. helgarferðir til
heimsborga Flug-
leiða, sólarferðir til
Kanaríeyja og
Flórída og skíðaferð-
ir til Austurríkis.
Sérstök ferðatilboð
eru í boði á hveijum
stað. Til að veita
aðstoð og upplýs-
ingar verða á staðn-
um, auk sölufólks
Flugleiða og um-
boðsmanna þeirra á
stöðunum, fulltrúar
Schandichótelanna
og Hertzbílaleigunnar.
Á meðan á sölu stendur á hveijum
stað verður boðið upp á kaffi og
aðrar veitingar og blöðrur fyrir börn-
in. Þeir sem mæta geta dottið í
Lukkupottinn og í honum verður
veglegur ferðavinningur.
Morgunblaðið/Eyjólfur M. Guðmundsson
Tjaldstæði tekið í notkun í Vogum
TJALDSTÆÐI fyrir ferðamenn
var tekið í notkun í Vogum í lok
júlímánaðar og hafa nokkrir
ferðamenn íslenskir og erlendir
notfært sér þessa þjónustu síðan.
Tjaldstæðið er norðan Hafnar-
götu í landi Minni-Voga og liggur
við skrúðgarðinn Aragerði. Eftir
að tjaldstæðið var tekið í notkun
hefur verið eftir því tekið að
ferðamenn hafa dvalið hér leng-
ur en áður en flestir þjóta þó
ennþá framhjá eftir Reykjanes-
brautinni.
Ferðir í vikunni
Hið ísl. náttúrufræðifélag
EFNT verður til sveppatínslu- og
skógaskoðunarferðar í Skorradal
laugard. 27. ágúst á vegum .Hins
íslenska náttúrufræðifélags og
Ferðafélags íslands. Ágúst Amason
skógarvörður sýnir þátttakendum
tilraunalund Skógræktar ríkisins í
Hvammi og Eiríkur Jensson, kenn-
ari og sveppasérfræðingur leiðbein-
ir um matarsveppi og tínslu þeirra.
Ferðafélag íslands sér um þessa
ferð. Farið frá Umferðamiðstöðinni
austanverðri kl. 10:00 og komið við
í Mörkinni 6. Ráðgert er að koma
aftur um kl. 18:00. Ferðin er öllum
opin, utan félaganna sem innan.
ÚTIVIST
DAGSFERÐ verður á Hrómundar-
tind (500 m) á Hellisheiði sunnud.
28. ágúst. Þetta er 9. áfangi lág-
ljallasyrpunnar. Farið kl. 10:30 frá
bensínsölu BSÍ, miðar við rútu.
Frítt fyrir börn 15 ára og yngri í
fylgd með fullorðnum.
Um helgina verður ferð í Bása
við Þórsmörk 26.-28. ágúst.
Gönguferðir og gist í vel útbúnum
skálum eða tjaldað. Helgarferð yfir
Fimmvörðuháls verður farin
27.-28. ágúst. Gengið frá Skógum
á laugardag upp í Fimmvörðuskála
og gist þar. Næsta dag gengið nið-
ur í Bása.
Oddafélagið
DAGSFERÐ að fjallabaki verður
farin á vegum Oddafélagsins laug-
ardag. 27. ágúst. Farið um afréttar-
lönd Fljótshlíðar, Hvolhreppinga og
Rangvellinga. í ferðinni verður hug-
að að sögu lands og þjóðar.
Leiðsögumenn verða sr. Sváfnir
Sveinbjarnarson á Breiðabólsstað
og Þorsteinn Oddsson frá Heiði,
sem er þaulkunnugir afréttunum
og nýtingu þeirra að fornu og nýju.
Einnig munu jarðfræðingarnir Elsa
G. Vilmundardóttir og Freysteinn
Sigurðsson, sem bæði hafa starfað
við jarðfræðirannsóknir að Fjalla-
baki segja frá stórbrotinni náttúru
svæðisins og ýmsum atburðum sem
þar hafa átt sér stað.
Lagt af stað frá BSÍ í fjallabíl
frá Austurleið hf. kl. 9 og frá Hvols-
velli kl. 11. Þátttakendur hafi með
sér nesti og góðan skjólfatnað, svo
og stígvél. Félagsmenn og aðrir sem
hug hafa á ferðinni tilkynni þátt-
töku til Sælubúsins á Hvolsvelli.
E
I
»
I
»
m
»
L'
»
»
f
l
»
í
i
i
f