Morgunblaðið - 24.08.1994, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ
FERÐALÖG
MIÐVIKUDAGUR 24. ÁGÚST 1994 13
Ferðaþjónustan að Ytra-Álandi
„Bömin alsæl
með sveitadvöl
og hestaferðir“
Þórshöfn. Morgunblaðið.
YTRA-ÁLAND í Þistilfírði er stórt
og reisulegt hús með nýbyggðri
sólstofu móti suðri. Þar búa hjónin
Bjamveig Skaftfeld og Skúli Ragn-
arsson ásamt börnum sínum og
starfrækja ferðaþjónustu á sumrin.
Ferðaþjónustan á Ytra-Álandi
hefur alla burði til þess að eiga
framundan bjarta framtíð þar sem
hún býður upp á margt en það sem
mestu máli skiptir er sú hlýja, sem
geislar frá heimili hjónanna og þeim
sjálfum og laðar gesti til þeirra.
Fréttaritari kom að máli við Bjarn-
veigu til þess að vita hvemig að-
sóknin hefði verið í sumar en veðr-
ið hefur leikið við fólk hér á norð-
austurhominu og hefur það ávallt
mikið að segja um fjölda ferða-
manna.
Bjamveig sagðist vera ánægð því
að ágæt aðsókn hefði verið í sumar
en eftir verslunarmannahelgi kom
rólegri tíð og virðist það vera reglan
að eftir þá helgi fækki ferðafólki.
Gestir Bjamveigar eru bæði út-
lendingar og innlendir og skiptist
það nokkuð jafnt. Útlendingar em
mjög hrifnir af íslensku hestunum
og bjóða hjónin upp á útreiðartúra
á hestum sínum.
Fyrir skömmu bankaði upp á
Ytra-Álandi enskur fornleifafræð-
ingur, ung kona á puttaferðalagi
og beiddist dvalar í nokkra daga
sem var auðsótt mál. Hún er ættuð
úr sveit á Englandi og var því vön
hestum en aðaltilgangurinn_ með
heimsókn hennar að Ytra-Álandi
var sá að komast á hestbak. Henni
fannst íslensku hestarnir frábærir
og kvaðst hún koma aftur að ári
og fara í göngur með Skúla bónda!
Bjamveig og Skúli em barngóð
hjón og kom það því af sjálfu sér
að þau ákváðu að bjóða bömum
upp á þriggja daga dvöl á heimili
sínu. Tilboðinu var vel tekið og áttu
bömin annasama daga í sveitinni.
Margt var þar að sjá og skoða en
hestarnir vom þó vinsælastir og
töltu þeir þolinmóðir um túnin á
Ytra-Álandi með brosandi böm á
bakinu. Tístandi hænuungar vora
ósköp mjúkir fyrir litlar hendur en
nautin bauluðu stundum dálítið
hátt, sögðu sum börnin í trúnaði.
Eldri bömin fóm í sjóferð á nýja
bátnum með Skúla og höfðu allir
nóg við að vera. Dvölinni lauk með
því að foreldmm var boðið síðasta
kvöldið og þáðu kaffíveitingar en
börnin bökuðu sjálf pönnukökur.
Farið var í leiki með bömunum og
að lokum var sungið við varðeld úti
í dimmblárri sumamóttinni.
Leikskólabömin fá einnig að fara
í heimsókn inn í Ytra-Aland en
Helga dóttir hjónanna vinnur á leik-
skólanum. Það em fleiri en börnin
KRAKKARNIR í lautarferð
HESTURINN Gusa var vinsæll reiðskjóti
sem sækja í sveitina en eldri borgar-
ar úr Öxarfjarðarhreppi vom í hóp-
ferð og pöntuðu mat hjá Bjam-
veigu. Þetta var 26 manna hópur
á ferð en veitingasalurinn í sólstof-
unni rúmar um 30 manns. Harmon-
ikkuleikari frá Þórshöfn var fenginn
til þess að leika fyrir gestina og
kvaðst Bjamveig vera mjög ánægð
með að fá þennan aldurshóp og
hefur áhuga á að bjóða upp á meira
fyrir aldraða í framtíðinni.
Morgunblaðið/Liney Sigurðardóttir
Y I'RA- ÁLAND í Þistilfírði
LEIKUR að stráum
Sprenging" i fyrirspurnum
Gerbraytl útlit •
attkln hagraúing
v* *>•**£■ ÍMi * Siw'rSs
I{ölmenn afmallsveisia
Flmm farmeno
Nýtt frétta-
blað Ferða-
málaráðs
KOMIÐ er út nýtt fréttablað á veg-
um Ferðamálaráðs og heitir það
Ferðafréttir og er dreift til fyrir-
tækja og einstaklinga sem tengjast
ferðaþjónustu.
Magnús Oddsson ferðamálastjóri
segir í sjónarhorni blaðsins að innan
ráðsins hafí verið fjallað um nauð-
syn þess að kynna ýmsa þætti í
starfsemi stofnunarinnar fyrir sí-
vaxandi fjölda þeirra sem starfa við
ferðaþjónustu. Tímabært hefði ver-
ið að koma upplýsingadreifíngu í
fastari skorður þar sem áður hafí
ýmsum fréttapunktum verið dreift
til fulltrúa í ráðinu og nokkurra
lykilaðila í atvinnugreininni. Vonast
sé til að með meira upplýsinga-
streymi sé hægt að efla tengsl fyrir-
tækja, hagsmunaaðila og einstakl-
inga við starfsemi Ferðamálaráðs.
Stefnt er að að blaðið komi út
réglulega og er ráðgert að næsta
blað komi út í kringum Vestnorden-
ferðakaupstefnuna í september.
Fj ölskyldudagur
Ferðafélagsins
SUNNUDAGINN 28.ágúst nk.
verður Qölskylduferð á vegum Ferð-
afélagsins. Farið er frá BSÍ kl. 13
og ekið að sumarbúðum KFUM/K
í Kaldárseli fýrir ofan Hafnarfjörð.
Einnig geta menn
mætt á eigin bílum
kl. 13.30 í Kaldársel
til að komast með í
gönguna.
Þaðan verður nú
gengið meðfram
Helgafelli og að
Valabóli þar sem
nokkrar hríslur eru í
hrjóstrugu hrauninu.
Frá Valabóli er geng-
ið yfir á Búrfell og
litast um á gígbarm-
inum og lagið tekið
svo undir taki í gígn-
um.
Frá Búrfelli verður
gengið eftir Búrfellsgjánni að rollu-
réttinni. Þar er hins vegar enga
rétti að hafa og menn orðnir kaffí-
þyrstir og svangir. Eru göngugarp-
ar þá svo rosalega heppnir að þenn-
an sama sunnudag er kaffisala
sumarbúðanna og frá réttinni verð-
ur arkað beint í búðirnar og inn-
byrt ómælt af ijómatertum og öðm
randabrauði af hlaðborði. Það þarf
því ekki nesti með í gönguna. Að
því loknu geta krakkamir leikið sér
við Kaldána eða í leiktækjum á
meðan hinir eldri
slappa af eftir
gönguna.
Kostar kaffið 600
kr. fyrir fullorðna og
300 fyrir böm. Far-
gjaldið með rútunni
er 600 kr. en ókeypis
fyrir 15 ára og yngri.
Á ári fjölskyld-
unnar er því dýr-
mætt fyrir fjölskyld-
una að enda sumarið
saman áður en skól-
arnir hefjast með
þessari ferð Ferða-
félagsins. Þetta
verður því sannkall-
aður „happadagur fjölskyldunnar"
þar sem fjölskyldan fær eitthvað
við sitt hæfí - hæfilega langa
gönguferð í greiðfæm umhverfí og
síðan ekki hvað síst viðamikinn við-
urgerning í lok göngunnar sem
mettar maga og munn.
Pétur Þorsteinsson
Á slóóum
Ferðafélags
íslands
Fj allagrasadagnr í Nesbúð
LAUGARDAGINN 27. agúst
gengst Hótel Nesbúð á Nesjavöllum
í samvinnu við Önnu Gunnarsdótt-
ur, lektor, fyrir grasaferð um ná-
grenni Nesjavalla. Anna kennir
fólki að þekkja og velja grös sem
góð eru til matseldar. Síðdegis held-
ur hún svo fyrirlestur um grösin
og um kvöldið matbúa þátttakendur
rétti úr grösunum undir handleiðslu
Önnu.
Guðmundur Halldórsson í Nes-
búð sagði að mikill áhugi væri á
hvers kyns fjallagrösum en menn
væra ekki vissir um hvernig ætti
að bera sig að, hvað ætti að velja
og við þetta nytu menn góðrar leið-
sagnar. Þátttakendur mæti í Nes-
búð kl. 10 f.h. á laugardag. Þeir
geta haft með sér rtesti eða fengið
það keypt í grasaferðina. Þeiin
býðst síðan kvöldverðurinn, gisting
aðfararnótt sunnudags og morgun-
verður á 4.200 kr.
—
Island
Sækjum
það heim!
Nýr og skemmtllegur 9 holu
golfvöllur - par 35
Verið velkomin!
Hlíðarlaug Uthlíð
BISKUPjSTjUNGUM
Looqorvnta 19 <W>YÓr 10 loa
s. 98-68770. fax 98-68776
Stórt tjaldsvæði á frábærum
staö. Veriö veikomin!
Hlíðarlaug - Úthlíð,
Biskupstungum, s. 98-68770.
Qlaesileg sundlaug
Heitir pottar, nuddpottur, nudd og ljós.
Hlíðarlaug - Úthlíð,
Biskupstungum, s. 98-68770.
Stuttar feröir - iangar ferðir -
fyrir vana jafnt sem óvana hestamenn.
Hestaleigan, Hliðarlaug - Úthlíð,
Biskupstungum, s. 98-68770.
Réttin - Hlíðartaug
Verslun - veitingar - bensmstöó.
Hlíðarlaug - Úthlíð,
Biskupstungum, s. 98-68770.
Falleg sumarhús til leigu
Ath.: Pantið tímanlega. Verið velkomin!
Hlíðarlaug - Uthlíð,
Biskupstungum, s. 98-68951.
- ódýr gisting - gisting og
um allt land góður matur
mmmm —