Morgunblaðið - 24.08.1994, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ
ERLEIMT
MIÐVIKUDAGUR 24. ÁGÚST 1994 15
700 manns farast í illviðri í Kína
FOLK í Zhejiang flýr undan flóðbylgju sem hvirfilbylurinn Fred olli. Rúmlega 700 manns fórust
og gífurlegar skemmdir urðu á mannvirkjum þegar Fred gekk yfir Zhejiang-hérað í austurhluta
Kína um helgina. Embættismaður utanríkismálaskrifstofu héraðsins greindi frá þessu í gær. Sagði
hann það með öllu ógerlegt að áætla hversu margra væri saknað. Það væri augljóst að tala lát-
inna væri hærri en 700, þótt ekki væri hæ'gt að nefna nákvæma tölu. í opinberum fréttatilkynning-
um segir að rúmlega 8 milljónir manna hafi orðið fyrir barðinu á hvirfilbylnum á einn eða annan
hátt, og flóð hafi eyðilagt um hálfa milljón heimila. Opinbera fréttastofan Xinhua greindi frá því,
að rignt hefði í héraðinu í 43 klukkustundir samfleytt og hefði úrkoma sumstaðar orðið ríflega
200 millimetrar, og flóðið um eins metra djúpt. Landbúnaður, námagröftur og samgöngur hefðu
farið úr skorðum, og Ijón væri áætlað 10 milljarðar yuan (77 miHjarðar ísl. króna).
Fomarlömb Carlosar
mótmæla verianda
París, London. Reuter.
FRANSKIR embættismenn og
fórnarlömb hermdarverka „Sjakal-
ans Carlosar", sem er í haldi í
Frakklandi, mótmæltu í gær ásök-
unum veijanda hermdarverka-
mannsins, Jacques Verges, og líktu
þeim við reykský, sem þyrlað er
upp í hernaði til að villa um fyrir
andstæðingunum.
Verges hefur valdið miklu upp-
námi í Frakklandi með ásökunum
sínum um að Francois Mitterrand
Frakklandsforseti hafi samþykkt
áform leyniþjónustunnar um að
taka hann af lífi í byijun síðasta
áratugar. Hann hefur sjálfur verið
sakaður um að hafa verið sam-
verkamaður Carlosar.
„í nafni fórnarlambanna mót-
mæli ég þessari yfirvarpsárás til
að villa um fyrir Frökkum," sagði
Francoise Rudetski, formaður fran-
skra samtaka fórnarlamba borgar-
skæruliða. „Verges er að reyna að
fela raunverulega vandamálið,
glæpina sem Carlos framdi."
Ásakanir Verges staðfestar
Paul Barril, fyrrverandi liðsmað-
ur sérsveita Mitterrands, viður-
kenndi á sunnudag að honum hefði
verið falið að myrða Verges. Sagði
Barril að Mitterrand hefði verið
kunnugt um áformin.
Barril sagði í viðtali við TVl-
sjónvarpsstöðina að á árunum
1982-1983 hefði Verges verið mið-
punktur allra samninga við hryðju-
verkamenn, meðal annars tengst
Carlosi. Því hefði lögmaðurinn verið
á dauðalista. Árið 1982 var Verges
veijandi Magdalenu Kopp, liðs-
manns Rauðu herdeildanna og ást-
konu Carlosar. Sagði Barril að Mitt-
errand hefði vitað að til stæði að
myrða Verges en sagði að engin
skrifleg skipun hefði verið gefin um
það. Talsmenn forsetans hafa neit-
að að tjá sig um fullyrðingar Barr-
ils.
Verges hefur m.a. verið sakaður
um að hafa átt þátt í árás á kjarn-
orkuver nærri Nantes í Frakklandi
árið 1982 en hann neitaði um helg-
ina fréttum þessa efnis. Ásakanir
á hendur Verges um tengsl við
hermdarverkamenn eru flestar
byggðar á skjölum Stasi, austur-
þýsku öryggislögreglunnar. Full-
yrðir franska blaðið Le Parisien að
í skjalasafni Stasi sé m.a. að finna
fjölmargar myndir af fundum Verg-
es og Carlosar á hótelum og flug-
völlum.
Handtekinn í fitusogi
Breska blaðið Observer hafði
eftir súdönskum lækni í Kaíró að
Carlos hefði verið lagður inn á
einkasjúkrahús í Khartoum í Súdan
þar sem hann átti að gangast und-
ir algenga lýtaaðgerð, svokallað
fitusog. Franskir sérsveitarmenn
náðu honum er hann hafði verið
svæfður fyrir aðgerðina. Frönsk
stjórnvöld hafa hins vegar ekkert
látið uppi um hvernig handtökuna
bar að.
A
Asakanir um ónæðishringingar
Díana íhugar
málshöfðun
Díana prinsessa
London. Daily Telegraph. Reuter.
DIANA prinsessa af Wales íhug-
ar málshöfðun á hendur blöðum
sem skýrðu frá því á sunnudag
að hún hefði stundað símaónæði.
Hefur hún vísað því harðlega á
bug en viðtal sem birtist við hana
í DailyMail í fyrradag þykir þó
ekki gefa nógu góð svör við
fjölda spurninga sem málið hefur
vakið. „Prinsessan
mun ráðfæra sig við
lögmann sinn, Misc-
hon lávarð, á næstu
dögum vegna frá-
sagnar News of the
World og annarra
sunnudagsblaða,“
sagði The Times í
gær. Leiði það til
málshöfðunar bryti
Díana út af hefð í
konungsfjölskyld-
unni um að leita ekki
réttar síns fyrir
dómstólum.
Díana leitaði til
blaðamanns á Daily
Mail sem nýtur trún-
aðar hennar. Þegar hún hefur
veitt honum upplýsingar til þessa
hefur ætíð verið látið líta út fyrir
að um samtal við nána vini prins-
essunnar væri að ræða. Að þessu
sinni stóð Ijósmyndari prinsess-
una og blaðamanninn hins vegar
að verki er þau hittust með leynd
á Talbot-torgi í Bayswater-hverf-
inu í London. Því taldi blaðið sig
ekki eiga annarra kosta völ en
láta Díönu vitna sjálfa.
í viðtalinu er því lýst hvernig
Díana staðhæfir með grátstaf í
kverkum að hafa aldrei hringt í
listaverkasalann Oliver Hoare,
sameiginlegan vin þeirra Karls
Bretaprins. Fullyrt var um helg-
ina að upphringar til Hoare á
18 mánaða tímabili hefðu verið
raktar til síma Díönu í Kensing-
ton-höllinni, til bílsíma hennar,
heimilis systur hennar og al-
menningssímklefa. í öllum tilvik-
um hefði verið hringt en ekkert
sagt þegar svarað var í símann.
„Nei, nei, alls ekkert,“ svaraði
Diana er hún var spurð hvort
eitthvað væri hæft í því að hún
hefði átt þátt í þessu símaónæði.
„Hvað hef ég gert sem réttlætir
þessa framkomu í minn garð?
Mér finnst eins og verið sé að
reyna að klekkja á mér. Það er
ekki flugufótur fyrir þessu,“
sagði hún.
Díana neitar því að á þeim tíma
sem dularfullu upphringingarnar
hafi átt sér stað hafi Hoare reynt
að stuðla að sáttum þeirra Díönu
og Karls vegna hjónabandsörðug-
leika þeirra. Díana segir að hann
hafi einungis haft milligöngu um
að leysa ágreining um umgengn-
isrétt yfir sonum þeirra. „Hann
er vinur minn, hann hefur verið
hjálplegur og ég hef hringt til
hans þegar svo hefur borið und-
ir,“ sagði hún.
Diana vísar enn-
fremur á bug vanga-
veltum um að hún
hafi lialdið við Hoare,
sem er kvæntur. Með
tárin streymandi nið-
ur kinnarnar segir
hún slíkar fullyrðing-
ar vera úthugsuð
brögð af hálfu ein-
hverra myrkra afla
sem vilji eyðileggja
orðspor hennar. Fjöl-
miðlar hentu þessi
ummæli á lofti í gær
og leiddu getum að
því að hér ætti hún
við Karl prins og sam-
verkamenn hans. Áður hefur því
verið haldið fram að Díana og
Karl heyi fjölmiðlastríð, þau eða
aðstoðarmenn þeirra reyni að
klekkja hvort á öðru með því að
gauka að fjöimiðlum fréttum sem
komið geti gagnaðilanum illa.
Krafist rannsóknar
Þingmenn hafa krafist rann-
sóknar á því með hvaða hætti
lögreglan hafí lekið upplýsingum
um rannsókn á ónæðisupphring-
ingunum. í gær staðfesti Sir Paul
Condon, yfirmaður Lundúnalög-
reglunnar, að símhringingar til
Hoare hefðu verið raktar frá því
í október 1993 en enginn hefði
verið yfirheyrður í því sambandi.
Hefði listaverkasalinn, sem er
sérfræðingur í Miðausturlandal-
ist, óttast að hann væri orðinn
skotmark arabískra hryðjuverka-
manna. Lögreglan hefði hætt að
fylgjast með hringingunum í
mars sl. að ósk Hoare sjálfs.
ÍTALSKIR SKÓR [
HAUST / VETRAR-
LINAN '94 -'95
38 þrep
Laugavegi 89
HIBJ
BBBUm
REIÐHJOLAUTSALA - VERSLIÐ 0DYRT
10-15%
AFSLÁTTUR
14,5-52,5%
GEGN STAÐ-
GREIÐSLU
20" Verð frá kr. 13.900, stgr. 13.205.
24" Verð frá kr. 1 7.280, stgr. 1 6.41 6.
26" og 28" frá kr. 16.600, stgr. 1 5.770.
28" 10 gíra kr. 15.750, stgr. 14.962.
20" fjölskylduhjól kr. 15.400, stgr.
14.630.
VARAHLUTIR
0G VIÐGERÐIR,
VANDIÐ VALIÐ 0G
VERSLIÐ Í SÉRVERSLUN
FJALLAHJOL
20" m/fótbremsu, stgr. frá 15.105.
20" 12 gíra, stgr. frá 18.900.
24" 18 gíra, stgr. frá 20.430.
26" 18 gíra, stgr. frá 20.430.
26" 21 gírs, stgr. frá 26.930.
HJ0LIN ERU AFHENT SAMSETT 0G STILLT A FULLK0MNU
REIÐHJÓLAVERKSTÆÐI. ÁRSÁBYRGÐ 0G FRÍ UPPHERSLA Á NÝJUM HJÓLUM
■BBnuBBnBmMni
Barnastólar frá
HAMAX, viður-
kenndir og vandaðir,
tilboð kr. 2.900, verð
áðurkr. 3.800. Barna-
hjálmar, BELL, kr.
1.000. unglinga-
hjálmar, BOERI,
kr. 2.490.
NOTUÐ HJOL A FRABÆRU VERÐI
ALGENGT VERÐ KR. 3.000-6.500
Ármúla 40.
Simar 35320 - 688860
Verslunin