Morgunblaðið - 24.08.1994, Qupperneq 16
16 MIÐVIKUDAGUR 24. ÁGÚST 1994
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Sýningar-
salir eflast
MYNPLIST
Málvcrk
GALLERÍ FOLD
Bragi Ásgeirsson/Sara Vilbergsdóttir
Opið mánud.-laugard. 10-18 og
sunnud. 14-18 til 3. sept.
Aðgangur ókeypis.
Fyrir nokkrum árum var bent á
að samdrátturinn í þjóðfélaginu
hér á landi kæmi einkar hart niður
á listum - almenningur sækti list-
viðburði minna en áður, færri leik-
verk væru sett upp, sýningum
fækkaði, minna seldist af mynd-
list, og sýningarstaðir legðu upp
laupana. Á tímabili mátti taka
undir þessa kenningu, en nú bend-
ir ýmislegt til þess að þróunin sé
að snúast við, a.m.k. hvað varðar
myndlistina. í sumar hafa verið
opnaðir þrír nýir sýningarstaðir
fyrir myndlist í höfuðborginni -
Gallerí Birgis Andréssonar og
Spektarhús við Vesturgötuna - og
nú síðast hefur gróin listaverka-
sala, Gallerí Fold, flutt í nýtt og
rúmbetra húsnæði að Laugavegi
118 d (gengið inn frá Rauðarár-
stíg), og bætt við sýningarsal, sem
sárlega vantaði í fyrri húsakynn-
um.
Vonandi er þessi aukna gróska
merki þess að fyrir myndlistarfólk
sé framundan betri tíð með blóm
í haga, en síðustu ár hafa um
margt verið myndlistarmönnum
hin erfiðustu í áratugi hvað varðar
sölu á listaverkum. Nú þegar
stjómmálamenn og hagspekingar
keppast við að blása kreppuna af
fer vonandi að glæðast yfir lista-
verkasölu á ný.
Bragi Ásgeirsson
Fyrstur til að sýna í hinum nýja
sýningarsal Gallerí Foldar er Bragi
Asgeirsson. Sem fyrr hefur Bragi
verið iðinn við kolann, skemmst
er að minnast yfirgripsmikillar
sýningar á grafíkverkum hans í
Listasafni íslands síðastliðið haust,
svo og sýningar hans í Listhúsinu
í Laugardal fyrr á síðasta ári. Um
þessar mundir á hann einnig verk
á samsýningu íslenskra listamanna
í Danmörku.
Sýningarsalurinn er staðsettur
að baki listaverkasölunnar, og nýt-
ur dagsbirtu úr litlum gluggum að
vestanverðu. Veggrými er gott í
ekki stærra húsnæði, og við það
er bætt með lausum veggjum, sem
að þessu sinni eru settir í miðju
salarins. Húsnæðið býður þannig
upp á ýmsa möguleika, en ætti
einkum að nýtast til sýninga á
málverkum, grafík o.s.frv.
Hér sýnir Bragi á fjórða tug
olíumálverka, flest lítil, sem
spanna ýmsa þá flokka myndefnis,
sem hann hefur helst verið að fást
við undanfarin ár; má þar m.a.
nefna munúðarfullar kvenímyndir,
fuglana og loks hina stóru, iðandi
litfleti abstraktmálverksins, sem
hann hefur lengi fengist við og
notið hafa verðskuldaðrar viður-
kenningar. Þannig munu listunn-
endur kannast við viðfangsefnin,
þó engin verkanna hafí verið sýnd
áður.
Hinar löngu kvenmyndir Braga
hafa oft verið heillandi, og svo er
enn. „Sakleysið" (nr. 4) er einkar
gott dæmi um þessa myndgerð,
þar sem leikandi litaskrúð hvílir
að baki ímyndinni. Stundum bera
þessi verk titla eins og „Nætur-
Sara Vilbergs-
dóttir
BRAGI Ásgeirsson: Frúin.
drottningin" (nr. 10) eða „Frúin“
(nr. 37), en oftar en ekki eru þau
einfaldlega kennd við ráðandi liti
í fletinum.
Eins og oftast áður er hver
mynd byggð upp sem ein heild,
þ.e. litir, form, lögun, frágangur
ramma - allt er þetta hluti sjálf-
stæðrar heildar, sem ekki endilega
tengist næstu verkum. Sem dæmi
um þetta má benda á „Fjarlægð"
(nr. 24), þar sem hringmynd jarð-
arinnar er sett í stærri ramma, og
hinir grænu littónar ráða miklu
um gróskun myndarinnar. „Upp-
streymi að sumri“ (nr. 32) er byggð
á allt öðru formi, sem vinnur afar
vel með litunum og hrynjanda
þeirra til að fylgja eftir ímynd tit-
ilsins.
Hér er á ferðinni lifandi og frísk-
leg sýning frá hendi Braga, og er
rétt að hvetja listunnendur til að
kynna sér hana og þennan nýjasta
sýningarsal í listheimi Reykjavík-
ur.
Eitt hom listmuna-
sölunnar hefur verið
tekið frá með það í
huga að þar sé hægt
að kynna sérstaklega
einn listamann hveiju
sinni, auk þess sem
getur að líta í sýn-
ingarsalnum. Þetta
getur reynst erfítt við-
fangs, þar sem svæðið
er tæpast nægilega
skýrt markað rými til
að slíkt gangi fyllilega
upp; nálægð við al-
menn verk á veggjum
listmunasölunnar kann
að reynast meiri en svo
að þessi kynningarverk
njóti nægilegrar ein-
angrunar.
I þessari fyrstu til-
raun getur að líta
nokkur verk frá hendi
Söru Vilbergsdóttur,
tíu litlar pastelmyndir
frá þessu ári og stórt olíumálverk
frá 1983. í pastelmyndunum kem-
ur vel fram sterk en fábrotin mynd-
sýn, sem Sara hefur einkum unnið
út frá; litimir em ríkulegir í fletin-
um á sama tíma og þeim er beitt
af mikilli hógværð við myndun ein-
faldra forma, sem enduróma frá
einni mynd til hinnar næstu. Það
er gaman að sjá þessi verk saman
í einum stað, þar sem hrynjandi
þeirra getur notið sín til fulls.
í lokin er rétt að óska forsvars-
mönnum Gallerí Foldar til ham-
ingju með nýja staðinn, sem býður
upp á rúmgott og bjart húsnæði
fyrir hina almennu starfsemi, sem
og góðan sýningarsal. Sá salur á
vonandi eftir að festa sig í sessi
og gefa listamönnum aukin tæki-
færi til að koma verkum sínum á
framfæri, á sama tíma og iistunn-
endum gefst aukinn kostur á að
kynnast því sem er að geijast í
myndlistinni hveiju sinni.
Eiríkur Þorláksson
Ásýnd landsíns
ekki kemur til
góð undirstöðu-
menntun hönnuð-
anna, og aldrei
hefur verið meiri
nauðsyn á því að
auka við hana en
einmitt við til-
komu ofurtækn-
innar.
Hef ég löngum
bent á þetta at-
riði, þótt margur
vilji frekar auka
á vægi yfírbygg-
ingarinnar á
kostnað grunnn-
ámsins, sem
gengur ekki
nema á afmörk-
uðu sviði. Það er
líka svo, að at-
hyglisverðustu
hlutirnir í ný-
tækni koma iðu-
lega frá grónum
hönnuðum með
mikla reynslu í
starfi og dijúga EITT af verkum Harðar Daníelssonar og Krist-
þekkingu á
grunnatriðum
myndlistar. Fái slíkir að spreyta
LIST
OG HÖNNUN
Nýjar víddir
KRISTÍN ÞORKELSDÓTTIR/
HÖRÐUR DANÍELSSON/
PÁLLIMSLAND
HÖNNUN hefur mikið sótt á
hérlendis á undanfömum árum,
og meðal þess sem tekið hefur
miklum umskiptum er útgáfu-
starfsemi hvers konar er tengist
prentiðnaði. Lítum einungis á
póstkortaútgáfu sem lengstum
hefur verið all frumstæð sé tekið
mið af hliðstæðri útgáfustarfsemi
erlendis, og var í senn einhæf og
takmörkuð. En nú er á markaðn-
um mikið magn gullfallegra korta
af landinu, og mann kitlar eigin-
lega í finguma við að senda slík
til vina og kunningja erlendis er
maður ber þau augum.
Að sjálfsögðu eykur þetta sölu
kortanna til muna, og um leið
auglýsir hver sá landið er sendir
þau frá sér til vina og kunningja
úti í heimi, og slík landkynning
hefur meira gildi en margan grun-
ar. Og það sem skiptir ekki svo
litlu máli er að hún er útlátalaus
fyrir hið opinbera og skattborgar-
ann um leið.
Hér er um að ræða, að margir
samverkandi þættir renna í einn
farveg, en öðru fremur er það
aukin prenttækni, sem byggist
mikið til á tölvuvinnu, sem auð-
veldar m.a. litgreiningu Ijósmynda
til muna og eykur prentgæði.
En þetta eitt er ekki nóg ef
sig verður árangurinn snöggtum
fjölþættari og safameiri, en þegar
um er að ræða fólk sem sérhæft
er á tæknina eina.
Gott dæmi um þetta er sam-
vinna hins ágæta ljósmyndara
Harðar Daníelssonar og nafn-
kennda hönnuðar Kristínar Þor-
kelsdóttur, sem um langt skeið,
eða frá 1967, ráku auglýsingastof-
una AUK hf. Stofan hlaut frjöl-
margar viðurkenningar innan
ínar Þorkelsdottur.
lands sem utan fyrir framúrskar-
andi grafíska hönnun.
Mál hafa þróast þannig á
undanfömum árum, að Hörður og
Kristín hafa í vaxandi mæli látið
heillast af töfram landsins, og þá
einkum óbyggðanna, og hafa nú
ákveðið að snúa sér alfarið að því
að kynna heiminum fegurð þess
og fjölbreytileika.
Auglýsingastofan hefur verið
lögð niður í sínu fyrra formi, en
útgáfustarfsemi hennar aukin til
muna og era ummæli bresku sér-
fræðinganna Richards Birtchnell,
Brace Dakowski og Nicks Daw
m.a. höfð að leiðarljósi, en þeir
sögðu í skýrslu til forsætisráð-
herra 1991: „Landsmenn geta
aukið gjaldeyristekjur sínar mikið
með því að tengja vöra sína og
þjónustu við óspillta náttúra ís-
lands." Þetta er hárrétt og þannig
getum við hagnast á því að aug-
lýsa ásýnd landsins, og það sem
meira er um vert, án þess að það
verði fyrir átroðningi ferðalanga,
en það er mikið vandamál í allri
ferðaþjónustu í heiminum á síð-
ustu tímum.
Það hefur alltof lítill gaumur
verið gefínn að þeim möguleikum,
en hins vegar mulið undir ferða-
mannaþjónustuna sem mest má
verða, og sem ekki skal alfarið
lastað.
En landið getur gefíð okkur
miklar tekjur án þess að við breyt-
um því í þjónustumiðstöð fyrir
útlendinga með öllum þeim afleið-
ingum er við blasa víða um heim.
Möguleikamir era ótæmandi og
einn er sá að opinbera hreina
ásýnd þess, og læða með klækjum
listar þeim töfram, er málið býr
yfír, að gestum og gangandi.
Þannig fylgir hveiju framtaki
gagnorður og ljóðrænn texti á ís-
lensku eftir Pál Imsland og á daga-
tali fyrirtækisins (Af ljósakri), sem
hefur hlotið nafnið „Nýjar víddir",
er honum t.d. snarað á fímm
tungumál!
Það er mikil uppörvun að slíku
framtaki, einkum fyrir mann sem
lengi hefur verið þess fullviss að
hugmyndarík hönnun geti fært
þjóðarbúinu milljarða í tekjur ef
rétt er á málum haldið og menn
flýta sér hægt, taki eitt vel hugsað
skref í einu ...
Bragi Ásgeirsson
Hólm-
fríður í
Lista-
hominu
SÝNING á verkum Hólmfríð-
ar Valdimarsdóttur var opnuð
í Listahominu 15. ágúst sl.
Hólmfríður hefur starfað við
auglýsingateiknun fyrir utan
fjögur ár sem hún var búsett í
Svíþjóð og Þýskalandi og þijá
vetur sem hún var kennari á
Núpi.
Hólmfríður hefur haldið tvær
einkasýningar og tekið þátt í
nokkrum samsýningum. Þessi
sýning Hólmfríðar í Listahom-
inu stendur til 31. september.
ÞRÍVÍDDARVERK eftir
Barböru Kay Casper.
Þrívíddar-
verk sýnd í
Kringlunni
BARBARA Kay Casper sýnir
ofin skúlptúrverk hjá Jens í
Kringlunni út ágúst. Sýningin
var opin 21. ágúst sl. og stend-
ur til 3. september og verður
opin á venjulegum opnunartíma
verslana.
Barbara Kay Casper er
þrívíddarlistamaður sem býr og
starfar í New York. Hún nam
veflist og textílhönnun við State
University College í Buffalo
undir handleiðslu Nancy Belfer.
Hún hóf snemma að velta fyrir
sér þeim möguleikum sem fól-
ust í mótun ofínna klæða eftir
að vefstólnum sleppti og þróaði
þá tækni frekar í samvinnu við
Lewis Knauss í Skidmore Col-
lege. Undanfarin sextán ár hef-
ur hún sýnt verk sín bæði í
heimalandi sínu og annars stað-
ar.
Aukasýning
á Tápi og
#»• •• •
fjori
EINÞÁTTUN GURINN Táp
og ijör eftir Jónas Árnason sem
Leikfélag Hveragerðis sýndi sl.
vetur er ein af þeim leiksýning-
um sem verða á fjölunum á
væntanlegri leiklistarhátíð
áhugafólks í Mosfellsbæ síðustu
helgina í ágúst.
Aukasýning verður á leikrit-
inu miðvikudaginn 24. ágúst
klukkan 21.00. Sýnt er í .Grunn-
skólanum í Hveragerði og er
miðasala við innganginn. Að-
eins verður um þessa einu sýn-
ingu að ræða í Hveragerði.
Perlan
Sýningu að
ljúka
HEIDI Kristiansen hefur
sýnt 18 textíl-myndteppi, öll
unnin með ásaumi (quilt- og
applikasjontækni), á 4. hæð í
Perlunni undanfarið. Flest eru
verkin frá 1993 og 1994 og
voru flest sýnd í fyrsta sinn
opinberlega í Svíþjóð í júní sl.
Sýningunni, sem er á kaffí-
stofunni á fjórðu hæð, lýkur nú
um mánaðarmótin.