Morgunblaðið - 24.08.1994, Side 24
24 MIÐVIKUDAGUR 24. ÁGÚST 1994
MORGUNBLAÐIÐ
AÐSENDAR GREINAR
Starfsnám í
framhaldsskólum
Í FRUMVARPI til Iaga um fram-
haldsskóla sem lagt var fyrir Al-
þingi síðastliðinn vetur er m.a. fjall-
að um starfsnám. í þessari grein
er sjónunum sérstaklega beint að
starfsgreinaráðum fyrir starfs-
greinaflokka eða starfsgreinar (27.
og 28. gr.) og hvernig tryggja
mætti betur gæði starfsnáms í fram-
haldsskólum.
Gert er ráð fyrir því í frumvarp-
inu að menntamálaráð-
herra skipi í starfs-
greinaráðin til fjögurra
ára í senn fulltrúa til-
nefnda af samtökum
atvinnurekenda og
launþega í viðkomandi
starfsgreinum og einn
fulltrúa án tilnefning-
ar. Allar starfsgreinar
sem njóta fræðslu á
framhaldsskólastigi
skulu eiga kost á full-
trúaaðild að starfs-
greinaráði og skal gætt
jafnræðis milli fulltrúa
atvinnurekenda og
launþega.
Starfsgreinaráðin
eiga að skilgreina þarfir starfs-
greina fyrir kunnáttu og hæfni
starfsmanna og setja fram markmið
starfsnáms. Jafnframt eiga ráðin
m.a. að gera tillögur um uppbygg-
ingu starfsnáms og námskrá í sér-
greinum viðkomandi starfsnáms,
svo og um tilhögun námsmats og
eftirlit með gæðum kennslu og
námsefnis og hafa frumkvæði að
tillögugerð um breytta skipan náms.
Nú ættu einhverjir að vera farnir
að sjá í hvers konar óefni stefnir.
Engar kröfur eru gerðar til kunn-
áttu eða hæfni fulltrúa samtaka
atvinnurekenda, launþega eða
menntamálaráðuneytisins. Samt
eiga þessir aðilar að skilgreina þarf-
ir starfsgreina fyrir kunnáttu og
hæfni starfsmanna, koma með til-
lögur um hvað eigi að kenna (nám-
skrá í sérgreinum viðkomandi
starfsnáms) og hvernig haga eigi
námsmati og eftirliti með gæðum
kennslu og námsefnis! Þetta hlýtur
upphaflega að hafa verið samið sem
skemmtiatriði fyrir eitthvert þorra-
Friðrik Eysteinsson
blótið! Á sama tíma og engar kröfur
eru gerðar til þeirra sem sæti eiga
í starfsgreinaráðunum eru gerðar
strangar menntunarkröfur til þeirra
sem kenna í framhaldsskólum.
Ég held að ástæðan fyrir þessari
vitleysu sé sú að þeir sem stóðu að
samningu frumvarpsins viti ekki
hvemig best eigi að tryggja gæði
starfsmenntunar á framhaldsskóla-
stigi. Með gæðum í þessu sambandi
á ég við hversu vél við-
komandi starfsnám
fullnægir þörfum
starfsgreinarinnar fyr-
ir kunnáttu og hæfni
starfsmanna. Ef námið
er ekki í samræmi við
þarfirnar eru gæði þess
röng. Gæðin geta orðið
röng eða tapast með
fernum hætti.
í fyrsta lagi geta
gæðin tapast ef þarfir
viðkomandi starfs-
greinar eru rangt skil-
greindar. Til þess að
minnka líkurnar á að
það gerist þarf að beita
viðurkenndum aðferð-
LEGSTEINAR
Flutningskostnaður innifalinn.
Stuttur afqreiSslufrestur.
Fóið myndalistann okkar.
^720^Bor^arfirðjj^stra^ém^97^29977^
um við að nálgast þær kröfur um
kunnáttu og hæfni sem almennt eru
gerðar í viðkomandi starfsgrein og
sannreyna þær.
Ábyrgð á gæðum
starfsnáms í framhalds-
skólum á að færa yfir
á skólana sjálfa, segir
Friðrik Eysteinsson,
en jafnframt að gera
strangar kröfur
til þeirra um gæði
námsins.
í öðru lagi geta gæðin tapast ef
við gerð námskrár í sérgreinum við-
komandi starfsnáms tekst ekki að
setja upp námsbrautir eða námsá-
fanga sem fullnægja þörfum starfs-
greinarinnar þó svo að þær þarfir
hafi verið rétt skilgreindar. Til þess
að minnka líkurnar á að það gerist
þarf að bera námskrána hveiju sinni
undir ákveðinn lágmarksfjölda full-
trúa starfsgreinarinnar. Jafnframt
Ertidrykkjur
Glæsileg kafii-
hlaðborð íidlegir
sídir og injög
g(kj þjómistit
Upplýsingar
í sínia 2 23 22
m
FLUGLEIDIR
IÍTIL LIFTLIIIII
GfTIP plasthúðun
Fjölbreytt vandað úrval af efnum
Fullkomnar plasthúöunarvélar
Vönduð vara - gott verð
OTTO B. ARNAR HF.
Skiþholti 33-105 Reykjavik
Símar 624631 / 624699
Sérfræðingar
í blóiiiiiskrcylingTiin
i ió öll iirkil'irri
Tfc) blómaverkstæði
JDINNA
Skólavörðustíg 12,
á horni Bergstaöastrætis,
sírni 19090
Ný menntastefna o g
sumarvinna unglinga
þarf að gera reglulega kannanir
meðal atvinnurekenda í starfsgrein-
inni og fyrrverandi nemenda á því
hversu vel námið uppfyllti þarfir
starfsgreinarinnar. Eðlilegt væri að
utanaðkomandi aðilar sæju um
framkvæmd kannananna.
í þriðja lagi geta gæðin tapast
ef námsefninu eða kennsiunni sjálfri
er ábótavant. Þannig gætu þarfir
starfsgreinarinnar verið rétt skil-
greindar og námskrár í sérgreinum
verið í samræmi við þarfirnar en
námsefninu og/eða kennslunni í
skóla eða á vinnustað mistekist að
uppfylla þær kröfur sem námskráin
gerir. Til að minnka líkurnar á að
gæðin tapist vegna námsefnisins
þurfa sérfræðingar í námsefnisgerð
að yfirfara námsefnið. Til að
minnka líkurnar á því að gæðin
tapist vegna kennslunnar er hægt
að beita samræmdum prófum í
bóknámi en samræmdum matsregl-
um í verknámi.
í fjórða lagi geta gæðin tapast
ef atvinnurekendum í viðkomandi
starfsgrein er lofað betri starfs-
mönnum en starfsnámið stendur
undir. Þetta getur t.d. gerst ef þeir
sem sjá um kynningu starfsnámsins
hafa ekki nógu góðar upplýsingar
um gæði námsins. Væntingar at-
vinnurekenda til námsins aukast og
þegar námið stendur ekki undir
þeim fellur gæðamatið.
Töpin fjögur verða til þess að
þarfír starfsgreina fyrir kunnáttu
og hæfni starfsmanna eru ekki upp-
fylltar. Atvinnurekendum er að öll-
um líkindum ekki ljóst hver ber
ábyrgðina. Vita þeir að það er ekki
fyrr en þegar rætt er um tap 3 sem
framhaldsskólamir geta haft ein-
hver áhrif á gæði námsins? Mér er
það til efs. Ætli gamli góði söngur-
inn um að skólamir séu úr takt við
atvinnulífið myndi þá ekki fljótlega
hefjast! í þeim söng gleymist bara
alltaf að framhaldsskólunum er
skylt að fara eftir aðalnámskrá sem
menntamálaráðherra setur en með
henni geta fyrstu tvö töpin myndast!
Ég legg til að í stað þess að hafa
þá blönduðu ábyrgð (eða ábyrgðar-
leysi) á gæðum starfsnáms í fram-
haldsskólum sem gert er ráð fyrir
í frumvarpinu verði ábyrgðin alfarið
færð yfir á framhaldsskólana sjálfa.
í stað starfsgreinaráðanna myndu
kjarnaskólar (þróunarskólar fyrir
hveija grein starfsnáms) sjá um að
þarfír starfsgreina fyrir kunnáttu
og hæfni starfsmanna væru skil-
greinar (og beita við það viður-
kenndum aðferðum), námskrá í sér-
greinum viðkomandi starfsnáms
samin og námsefni þróað. Fram-
haldsskólarnir, sem útskrifa nem-
endur af viðkomandi starfsbraut,
myndu síðan ákveða hvemig haga
eigi námsmati og tryggja að fram-
kvæmd þess sé rétt. Til þess að
efla betur tengsl skóla og atvinnu-
lífs t.d. til að tryggja betur en nú
er upplýsingastreymi milli þessara
aðila og gæði náms á vinnustöðum
gæti hver kjarnaskóli fyrir sig haft
forgöngu um myndun einhvers kon-
ar starfsgreinaráðs.
Ef ábyrgðin á gæðum starfsnáms
i framhaldsskólum er færð yfir á
skólana sjálfa en jafnframt gerðar
strangar kröfur til þeirra um gæði
námsins og að þeir geti sýnt fram
á að þeir hafi stjóm á gæðamálum
sínum gæti íslensk starfsmenntun
stigið stórt skref fram á við.
Höfundur er lektor og gæðastjóri
í Tækniskóla íslands og
stundakennari við Iðnskólann í
Reykjavík.
Stretsbuxur
kr. 2.900
Mikið úrval af
allskonar buxum
Opið á laugardögum
kl. 11 -16
í MARS 1992 skipaði Ólafur G.
Einarsson menntamálaráðherra 18
manna nefnd sem átti að móta nýja
skólastefnu fyrir grunn- og fram-
haldsskóla. Nú í sumar skilaði nefnd-
in lokaskýrslu sinni. Henni fylgja
fmmvörp til nýrra laga um bæði
þessi skólastig.
Ymislegt í skýrslu nefndarinnar
horfir til framfara. Hér má til dæm-
is nefna tillögur um að sérstaða
unglingadeilda verði mörkuð með
ákveðnari hætti en nú
er gert; samræmdum
prófum verði fjölgað;
reglur settar um inn-
tökuskilyrði á náms-
brautir framhaldsskól-
anna; boðið verði upp á
fjölbreyttara nám á
framhaldsskólastigi;
stuðningur við fatlaða
nemendur verði aukinn
og komið verði á ein-
setnum grunnskóla með
samfelldum skóladegi
um allt land. Um skeið
hefur síðastnefnda til-
lagan reyndar verið á
stefnuskrá allra stjórn-
málaflokka þótt ríkið
hafi ekki getað séð af fé til að fram-
kvæma hana.
Þær tillögur sem til framfara
horfa eiga það flestar sameiginlegt
að það er hægt að vinna eftir þeim
án þess að verulegar breytingar séu
gerðar á öðrum lögum en fjárlögun-
um. Að minni hyggju kæmi vinna
nefndarinnar að mestu gagni ef
lagafrumvörpunum tveim yrði
stungið undir stól en skýrlan höfð
til hliðsjónar við túlkun og hægfara
endurskoðun gildandi laga og reglu-
gerða, samningu fjárlaga og stefnu-
mótun í ráðuneytinu.
Lenging skólaárs
Tillögur nefndarinnar eru því mið-
ur ekki allar jafn góðar. Sumar eru
óþarfar og sumar beinlínis skaðleg-
ar. Einna verst líst mér á þá tillögu
að lengja skólaárið í 10 mánuði. Ef
af verður styttist sumarleyfi nem-
enda í 2 mánuði og þá er hætt við
að sumarvinna þeirra verði að mestu
úr sögunni.
Mér finnst vel koma til greina að
stytta sumarleyfi kennara, færa svo-
kallaða starfsdaga í grunnskólum
fram í ágúst og yfirferð prófa, end-
urtektarpróf og útskrift í framhalds-
skólum aftur í júní. Með þessu væri
hægt að fjölga kennsludögum á
tímabilinu frá september til maí án
þess að stytta sumarleyfi nemenda.
Einnig finnst mér vel koma til greina
að bjóða nemendum sem það vilja
einhvers konar námskeið eða viðbót-
arnám á sumrin. En ég held að það
sé öllum til góðs að þorri nemenda
hafi áfram 3 mánaða sumarleyfi og
unglingar venjist hér eftir sem hing-
að til á að vera verkamenn á sumrin.
Sumarvinna unglinga er sérkenni
á íslensku samfélagi sem rétt er að
viðhalda. í sumarvinnunni nema
unglingar vinnubrögð, kynnast sam-
félaginu frá annarri hlið en í skólan-
um, venjast á annars konar aga en
skólinn getur tamið þeim og þegar
best lætur læra þeir að bera virð-
ingu fyrir vinnu og verkmenningu.
Það er líka trúlegt að sumarvinnan
dragi úr óæskilegum áhrifum
stéttaskiptingar. Þar sem mennta-
menn, yfirmenn í fyrirtækjum og
aðrir þeir sem tilheyra efri lögum
samfélagsins hafa verið í vega-
vinnu, unnið í búð eða vaskað upp
á hótelum á sínum yngri árum verð-
ur bilið milli stéttanna væntanlega
minna en í samfélögum þar sem
unglingar hafa lítil eða engin kynni
af atvinnulífinu.
Stunda of margir unglingar
bóknám?
I skýrslu nefndarinnar er fundið
að því hve margir framhaldsskóla-
nemar stunda almennt bóknám og
lagt til að þeim verði í auknum
mæli beint í starfsnám. Það er erfitt
að leggja mat á þessa tillögu vegna
þess að nefndin útskýrir ekki nógu
vel hvers konar starfsnám það er
sem hún vill auka og efla.
Nú er ég ekki á móti eflingu verk-
mennta og fjölbreyttara námsfram-
boði í framhaldsskólum. En ég efast
um að of margir stundi almennt
bóknám. Á bóknámsbrautum fram-
haldsskólanna læra unglingar móð-
urmál, tungumál, reikning, bókhald,
vélritun, tölvunotkun, heilsufræði,
raungreinar og fleiri fög sem nýtast
á ótal sviðum og auðvelda fólki að
tileinka sér nýjungar í
flestum greinum. Fyrir
unglinga sem hafa
kynnst atvinnulífinu og
lært vinnubrögð með
því að taka þátt í raun-
verulegri vinnu er
þetta almenna bóknám
gott vegamesti. Fýrir
suma af þeim sem hafa
ekki haft tækifæri til
að vinna á sumrin kann
hins vegar að vera
jafngagnlegt eða
gagnlegra að fá ein-
hvers konar starfs-
þjálfun á vegum skól-
ans.
Eðli málsins sam-
kvæmt er starfsnám sérhæft. Það
býr fólk undir eitt tiltekið starf.
Nokkrar starfsgreinar eru þess eðlis
Einna verst líst mér á
þá tillögu, segir Atli
Harðarson, að lengja
skólaárið í tíu mánuði.
að þær krefjast sérmenntunar á
framhaldsskólastigi. Hér má til
dæmis nefna ýmsar iðngreinar. I
fæstum þessara greina er skortur á
vinnuafli. Hins vegar krefjast æ fleiri
störf góðrar almennrar menntunar
í tungumálum, viðskiptagreinum,
móðurmáli og fleiri fögum. Þess
vegna efast ég um að rétt sé að
beina unglingum í starfsnám í jafn
miklum mæli og nefndin leggur til.
Nær væri að bjóða upp á fleiri teg-
undir af almennu námi.
Hugmyndir nefndarinnar um
starfsnám byggja að miklu leyti á
fyrirmyndum frá Danmörku og
Þýskalandi. í þessum löndum er lítið
um að unglingar vinni í sumarleyfum
svo eina leiðin til að þeir læri vinnu-
brögð og kynnist atvinnulífinu er að
setja upp einhvers konar vinnuskóla
innan framhaldsskólakerfisins. En
íslenskt samfélag er öðru vísi en það
danska og það þýska. Hér venjast
flestir unglingar á vinnu á sumrin
og stórt hlutfall þeirra stundar al-
mennt bóknám á vetrum. Útkoman
úr þessu er sú að Islendingar eru
sveigjanlegir í vinnu, eiga auðvelt
með að skipta um starf og eru fljót-
ir að tileinka sér nýjungar.
Nefndin rökstyður tillögu sína um
lengingu skólaársins með því að
segja að sífellt verði erfiðara fyrir
skólafólk að fá sumarvinnu og að
breyttir atvinnuhættir valdi því að
ekki sé jafnmikil þörf og áður að
ráða skólafólk til vinnu á sumrin
(bls. 18 til 19). Mér þykja þessi rök
hæpin. Atvinnuleysi undanfarin
misseri gefur ekki tilefni til að álíta
að hér verði atvinnuleysi um aldur
og ævi og þótt nú sé minna um
byggingarvinnu og landbúnaðar-
störf á sumrin en áður var þá fjölg-
ar störfum í ferðaþjónustu og vænt-
anlega verður áfram þörf fyrir
afleysingafólk í mörgum greinum.
Einnig má benda á að ef ríkið hefur
efni á að lengja skólaárið og stór-
auka starfsfræðslu og starfskynn-
ingu í skólum, eins og nefndin legg-
ur til, þá hlýtur það alveg eins að
hafa efni á að ráða unglinga í sumar-
vinnu til dæmis við hreinsun, fegrun
og uppgræðslu landsins.
Höfundur er kennari við
Fjölbrautaskóla Vesturlands á
Akranesi.
Atli Harðarson