Morgunblaðið - 24.08.1994, Page 26
26 MIÐVIKUDAGUR 24. ÁGÚST 1994
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ
+ Einar Farest-
veit fæddist 9.
apríl 1911 á jörð-
inni Farestveit í
Modalen á Hörða-
landi í Noregi.
Hann lést að kvöldi
sunnudagsins 14.
ágúst síðastliðins
að heimili sínu,
Garðatorgi 17 í
Garðabæ.
Foreldrar hans
voru Knut Knutsen
Farestveit, óðals-
bóndi á jörðinni
Farestveit, og Anna
Olavsdóttir Farestveit fædd í
Övre Helland í Modalen. Einar
var yngstur níu systkina. Tvö
systkina hans eru enn á lífi.
Alfred Farestveit vélstjóri,
fæddur 1902, hann býr í Sogni,
og Klara Andrea Kleiva, fædd
1908, hún býr í Björgvin.
Tveir bræðra Einars fluttust til
Norður-Dakota í Bandaríkjun-
um á unga aldri og gerðust
bændur þar.
Jörðin Farestveit hefur verið í
eign sömu ættar siðan 1746 er
Botne-Ola kvæntist ekkjunni
, Önnu Sjurdóttur, sem sat þá
jörðina. Jörðin kemur við sögu
í Eglu, en EgiII Skalla-Gríms-
son mun hafa haft næturstað
þar er hann var á leið á kon-
ungsfund.
Einar hóf nám í alþýðuskól-
anum í Fana utan við Björgvin
eftir barnaskólagöngu. Hugur
hans stefndi til háskólanáms í
lögfræði en vegna fátæktar þá
hóf hann nám við K. Nerheims
Handelsskole í Molde þaðan
sem hann lauk verslunarnámi.
* Einar kom til íslands 1933, ráð-
inn til að leiðbeina við uppsetn-
ingu á refabúum og kenna
meðferð við refarækt. Hann
varð síðar framkvæmdastjóri
skinnasölu Loðdýraræktarfé-
lags íslands. Árið 1941 réðst
hann til starfa hjá G. Helgason
& Melsted hf. og gerðist fram-
kvæmdasljóri þess félags. Þá
var hann jafnframt fram-
kvæmdastjóri Pan Am á Is-
landi.
Árið 1964 stofnaði hann eigið
fyrirtæki, Einar Farestveit &
Co. hf. sem hann starfaði við
til dauðadags. Einar var einn
af stofnendum ToIIvörugeymsl-
' unnar hf. og sat í stjórn hennar
um árabil.
Einar og Guðrún stofnuðu árið
1991 sjóð, Gudrun og Einar
Farestveits Fond. Þessi sjóður
var stofnaður til að verðlauna
GÓÐUR VINUR, lærifaðir og sann-
ur afi er mér að eilífu horfínn sjón-
um. Ég minnist hans fyrst og fremst
sem mjög heiðarlegs og trausts
manns, manns sem mikil reisn
fylgdi og virðuleiki. Afi Einar var
gæddur ótrúlegri þrautseigju og
ákveðni sem fáum er gefin. Heiðar-
leikinn var hans aðalsmerki og
sagði hann alltaf, að maður yrði
•*- umfram allt að koma hreint fram
og vera réttlátur.
Ég man hve gott var að koma
til afa og ömmu á Laugarásvegi
66, en þar var mér alltaf tekið opn-
um örmum. Ég og afi gátum setið
og spjallað saman löngum stundum.
Á sama hátt minnist ég þess hve
gott var að koma á skrifstofu afa
Einars og setjast fyrir framan skrif-
borðið hans og fylgjast með því sem
hann var að gera. Alltaf hafði afi
tíma til að spjalla við nafna sinn
um það sem hann lysti. Afi Einar
^ .var lífsreyndur maður og kunni frá
mörgu að segja. Oft fólst í sögum
hans ráðlegging um hvernig menn
skuli koma fram við náunga sinn
og það er ómetanlegur fróðleikur
sem ég á eftir að geyma í huga
mínum um allan aldur og vera mér
leiðarljós í daglegu lífí og starfí.
Ég minnist þess þegar ég lá
**"þungt haldinn á gjörgæsludeild
Landspítalans fyrir um 10 árum og
og styrkja íslenska
grunnskóla- og
framhaldsskóla-
nema sem vilja
leggja stund á nám
í norsku. Einar Far-
estveit var einn af
frumkvöðlum fé-
lags Noregsvina
hér á landi, Nor-
mannslaget. Hann
tók mikinn þátt i
skógræktarstarfi í
Heiðmörk. Fyrir
störf sín að sam-
skiptum Islands og
Noregs var hann
sæmdur riddaratign St. Olavs
orðunnar af 1. gráðu.
Einar kvæntist Guðrúnu Sig-
urðardóttur frá Hvammstanga
21. október 1934. Guðrún er
dóttir Sigurðar Pálmasonar
kaupmanns á Hvammstanga,
ættuðum frá Æsustöðum í
Langadal, og Steinvarar Helgu
Benonýsdóttur frá Kambhóli í
Vestur-Húnavatnssýslu.
Einari og Guðrúnu varð sex
barna auðið. Stúlkubarn lést í
fæðingu en fimm eru á lífi: Sig-
urd Steinar Farestveit, yfir-
verkfræðingur hönnunardeild-
ar Stockholms Konsult, fæddur
5.5. 1935, búsettur í Stokk-
hólmi. Sambýliskona hans er
Cecilia Wenner, deildarstjóri.
Steinar á fimm börn og eitt
barnabarn.
Arthur Knut Farestveit, fram-
kvæmdasljóri, fæddur 13.7.
1941. Búsettur í Garðabæ. Eig-
inkona hans er Dröfn Haf-
steinsdóttir Farestveit hús-
stjórnarkennari. Þau eiga 3
börn og eitt barnabarn.
Edda Farestveit, snyrtisér-
fræðingur, fædd 31.8. 1947,
búsett í Reykjavík. Eiginmaður
hennar er Gunnsteinn Gislason,
skólameistari Myndlista- og
handíðaskóla íslands. Þau eign-
uðust fjögur börn. Þijú eru á
lífi og eitt barnabarn.
Gerda Farestveit, leikskóla-
kennari, fædd 6.3. 1949, búsett
í Garðabæ. Eiginmaður hennar
er Þórður G.E. Guðmundsson,
f ramk væmdastj óri rekstrar-
sviðs Landsvirkjunar. Þau eiga
þrjú börn.
Hákon Einar Farestveit, versl-
unarstjóri, fæddur 20.9. 1957,
búsettur í Garðabæ. Eiginkona
hans er Guðrún Albertsdóttir
Farestveit, sölumaður. Þau
eiga þijú börn.
Útför Einars Farestveit fer
fram frá Dómkirkjunni í dag.
vakna úr móki um stundarsakir og
verð var við að afi Einar situr við
rúmstokkinn. Ég man hvað mér
þótti leitt að geta ekki haldið mér
vakandi til að spjalla en afi svaraði
að það gerði ekkert til ef hann
mætti bara sitja hjá mér og horfa
á mig. Þessi orð og þessi heimsókn
líða mér aldrei úr minni. Ári síðar
þegar ég hafði náð fullri heilsu fór
ég með afa og ömmu í sumardvöl
í sumarbústaðnum þeirra í Modalen
í Noregi, æskustöðvum afa. Það
sumar fræddi afi mig mikið um
skóginn, dalinn og ættingja mína
auk þess sem ég, 14 ára unglingur-
inn, hafði mjög gott af samfélaginu
við afa og ömmu. Afi Einar sagði
alltaf að það væri gott að láta sér
leiðast örlítið stundum því það
skerpti hugsunina og hvetti menn
til að finna sér eitthvað til dund-
urs. Ég man ekki eftir að mér hafi
leiðst neitt þessa tvo mánuði sem
ég dvaldi í Noregi.
Alltaf var afi Einar reiðubúinn
að gera eitthvað fyrir nafna sinn.
Veturinn eftir að ég kom af spítal-
anum fór hann með mig á göngu-
skíði upp í Heiðmörk. Renndum við
nafnarnir okkur á skíðum í gegnum
skóginn og að bjálkahúsi því sem
Nordmanslaget á og afi átti svo
mikinn þátt í að reisa. Við fórum
nokkrar svona ferðir um veturinn
og áttu þær mikinn þátt í að hjálpa
mér að öðlast líkamlegt þrek eftir
sjúkrahúsleguna.
Eftir stúdentspróf hóf ég nám í
Háskóla íslands. Eftir heilmikinn
lestur náði ég ekki ákveðnu prófi
og var mjög ósáttur við niðurstöð-
una og taldi mig verulegum órétti
beittan. Afi Einar bað mig um að
heimsækja sig - hann langaði til
að ræða við mig um þetta sem var
að ergja mig. Við hittumst nafnam-
ir eitt síðdegi og dmkkum saman
kaffi. Þá sagði afi mér að lögfræði
hefði hann alltaf langað til að læra
en aldrei haft efni á því. Ég hét
því sjálfum mér þvi að ég skyldi
standa mig fyrir afa. Hann sagði
að það sem hann hefði stundum
talið sína mestu ógæfu reyndist síð-
ar verða hin mesta gæfa. Þetta var
skóli lífsins. Ég heimfærði þessi orð
strax upp á umrætt próf og ákvað
bara að gleyma vonbrigðunum og
gera enn betur næst. Þessi orða afa
eru mér enn mjög minnisstæð. Ég
er sannfærður um að það að ég
fylgdi þessum orðum og efldist við
mótlætið varð lykill að velgengni í
öðmm prófum. En það er sárt til
þess að hugsa að afi Einar skyldi
ekki lifa þann dag að sjá mig ljúka
námi. Það hefði glatt mig óendan-
lega mikið og ég veit að það hefði
hann einnig viljað. En vegir Guðs
eru órannsakanlegir og áður en
varði hafði Hann kallað afa til sín.
Það er erfitt að bera nafn svo mik-
ils manns sem afi minn var. Ég
mun þó gera allt sem í mínu valdi
stendur til að rísa undir því nafni
sem ég ber og vona að ég geti kom-
ið fram af þeim heiðarleika, trúnaði
og réttsýni sem afí minn bjó yfir.
Ég trúi því að afi muni vaka yfir
nafna sínum og veita mér styrk og
leiðbeina mér í störfum mínum og
daglegu lífi. Ég þakka Guði fyrir
að hafa átt hann að, fyrir allt sem
hann kenndi mér og fyrir allt sem
við gerðum saman. Ég bið góðan
Guð að geyma hann og styrkja
ömmu Guðrúnu í sorg hennar, börn-
in hans, okkur bamabörnin og
bamabarnabömin sem nutu hans í
svo skamman tíma.
Einar Farestveit jr.
Forréttindi var það fyrsta sem
kom upp í huga mínum er ég sat
við dánarbeð tengdaföður míns,
Einars Farestveit, skömmu fyrir
andlát hans og lét hugann reika
aftur til okkar fyrstu kynna. Ég tel
mig afar lánsaman að hafa fengið
að kynnast honum og mikil forrétt-
indi að hafa verið samferðamaður
hans um hríð. Virðuleikinn sem ein-
kenndi hann alla tíð náði út fyrir
hið jarðneska líf því hann vék ekki
frá honum á stund dauðans.
Lífínu er oft líkt við leiftur og
víst er það svo sé mælt á kvarða
eilífðarinnar. Á skilnaðarstundu
bregður lífi hins látna upp fyrir
okkur í einum svip. Við sjáum eina
heildarmynd, mismunandi skýra, en
þess greinilegri, því dýpri spor sem
viðkomandi hefur markað í samtíð
sína. Því finnst mér ekki undarlegt
að mynd hans er ljóslifandi í huga
mér og mjög skýr.
Einar var hávaxinn maður og
tígulegur. Svipur hans var einbeitt-
ur og það var höfðingjabragur yfír
útliti hans og framkomu. Alltaf var
hann reiðubúinn að rétta hjálpar-
hönd og oftast fann hann það á sér
hvenær aðstoðar væri þörf. Gáfur
hans og miklir hæfileikar á mörgum
sviðum, ásamt langri og merkilegri
lífreynslu gerðu honum auðvelt að
takast á við hin fjölbreytilegu störf
sem lengstan hluta starfsferils hans
voru í verslunarrekstri.
Hann hafði alltaf sterka framtíð-
arsýn í flestu sem hann tók sér
fyrir hendur. Hann var eins og góð-
ur skákmaður og hugsaði því jafnan
marga leiki fram í tímann. Þannig
fórnaði hann oft stundarávinningi
ef það féll ekki að þeirri framtíðar-
sýn sem hann hafði markað sér.
Tæki hann áhættu gekk hann alltaf
þannig til verks að það yrði hann
sem tapaði. Hann mátti ekki til
þess hugsa að neinn yrði fyrir tapi
af hans völdum og starfaði hann í
þeim anda allt sitt líf.
Hann bar mjög sterkar taugar
til heimabyggðar sinnar í Modalen
í Noregi og fann ég að mikil virðing
var borin fyrir honum þar. Hann
lét verða af því fyrir allmörgum
árum að byggja sumarhús á jörð-
inni Farestveit þar sem hann fædd-
ist og dvaldist þar sumarlangt um
alllangt árabil. Honum þótti mönn-
um fulltíðrætt um það hve oft rigndi
í Modalen og sagði rigningu fal-
legri þar en á nokkrum öðrum stað
og þegar sólin kæmi væri enginn
staður fegurri. Komst ég fljótt að
því hversu satt þetta var. í sumar
dvaldi ég í Modalen og fannst mér
þá eins og áður að þarna væri ég
í hans nafni. Fólkið bað fyrir kveðj-
ur til hans, saknaði hans greinilega
og sagði að vorið hefði alltaf komið
með honum. Við höfðum ákveðið
að fjölskylda mín myndi ganga um
fjöll og fírnindi með hann sem sam-
ferðamann í huganum. Það vár því
sterk tilfínning að ganga þarna um
með hann i huga, vitandi að þetta
var síðasta sumarið hans.
Einar giftist Guðrúnu Sigurðar-
dóttur frá Hvammstanga en henni
kynntist hann er hann starfaði þar
um hríð. Hún stóð við hlið hans alla
tíð og var hans stoð og stytta í flestu
því sem hann tók sér fyrir hendur.
Mikla virðingu hef ég borið fyrir
þeirri konu frá fyrstu stundu. Hún
er ein þeirra kvenna sem settu heim-
ili sitt og uppeldi bama sinna í önd-
vegi og gleymdi sjálfri sér í áhuga
sínum i að gera vel við aðra. Hún
hafði góð áhrif á mann sinn í flestu
og bar hann alla tíð djúpstæða virð-
ingu fyrir henni eins og aðrir sem
kynnst hafa þessari sómakonu.
Tengdafaðir minn er allur. Reisn
og virðing einkenndi líf hans og
brotthvarf úr þessum heimi. Sjálfs-
virðingu sinni hélt hann til hinstu
stundar fyrir aðdáunarverða um-
hyggju barna sinna og tengda-
barna. Aðdáunarverð var einnig
umönnun Heimahjúkrunar Krabba-
meinsfélags íslands síðustu vikum-
ar og sú mikla virðing sem þar er
borin fyrir þjáðum sjúklingum.
Þó sorgin sé mikil á þessari
stundu er gleðin einnig nærri. Sú
gleði er mikil og einlæg því minn-
ingar um tengdaföður minn verða
mér og fjölskyldu minni ávallt sem
dýrmætur fjársjóður sem við mun-
um varðveita, þakklát fyrir að hafa
verið blessuð með návist hans. Við
munum sakna Einars Farestveit.
Þórður Guðmundsson.
Einar Farestveit var afi minn og
einn af bestu vinum mínum. Hann
var ótrúlega hjartastór maður sem
hugsaði alltaf meira um aðra en
sjálfan sig og mér leið alltaf vel í
návist hans. Ég elskaði hann afa
minn mikið og ég þakka honum
fyrir allt sem hann gerði fyrir mig.
Með þessu ljóði vil ég kveðja ást-
kæran afa minn og þakka honum
fyrir allt sem hann var mér alla tíð.
Elsku afi okkar
Engin orð fá því lýst
hversu heitt við elskum þig.
Engin orð fá því lýst
hversu mikið við vonum að þér
gangi vel.
Engin orð fá því lýst
hversu góður maður þú varst.
Elsku afi okkar
við elskum þig öll.
Elsku afi okkar.
(Hjördís Eva Þórðardóttir)
Hjördís Eva Þórðardóttir.
Elsku afi okkar er dáinn. Söknuð-
urinn og tómleikinn er svo mikill.
Það er svo margt sem kemur upp
í huga okkar á stundu sem þessari,
þegar við hugsum til baka til allra
áranna sem við höfðum hann hér
hjá okkur. Stundirnar voru margar
og mjög ánægjulegar.
Fyrir rúmum 20 árum fór ég með
pabba upp í sveit til að velja hund
fyrir afa. Pabbi leyfði mér að velja
hundinn og ég valdi þann sem mér
fannst fallegastur. Ég valdi þann
EINAR FARESTVEIT
sem var með flesta litina og skraut-
legastur. Ég man það enn þann dag
í dag hvað afí var glaður þegar við
komum með hundinn þó að ég væri
þá aðeins fjögurra ára gömul. Afí
elskaði dýr og kenndi okkur barna-
börnunum að fara gætilega með þau
og elska þau, því dýrin eru lifandi
verur eins og við. Þetta situr fast í
mér og hef ég alla tíð farið að dæmi
hans. Afi skírði litla hvolpinn Leddý
eftir hundinum sem hann átti þegar
hann var strákur í Noregi. Afi elsk-
aði Leddý litlu og hún bar svo mikla
virðingu fyrir honum í einu og öllu.
Hann var ekki bara húsbóndi henn-
ar heldur einnig besti vinur. Alltaf
kom hún til afa með Morgunblaðið
og inniskóna á morgnana og sótti
síðan póstinn á daginn fyrir hann.
Hann hafði svo gott lag á henni og
gat kennt henni svo margt.
Afí átti sumarhús í Modalen,
dalnum í Noregi þar sem hann var
fæddur og uppalinn. Þegar ég var
12 ára gömul var mér boðið með
afa og ömmu þangað í nokkrar vik-
ur. Við áttum yndislegan tíma
þarna. Afi kenndi mér margt um
ætt mína í Noregi og hvernig fólkið
lifði þar fyrr á tímum. Afi var fædd-
ur og uppalinn á óðalssetrinu Far-
estveit, sem stendur í þessum
þrönga dal með stóru beljandi ánni
sem rennur niður dalinn. Hann sýndi
mér hvar hann lærði að synda. Það
var djúpur hylur út úr ánni milli
hárra tijáa. Þar lærði hann að synda
og gafst ekki upp fyrr en hann
kunni það. Afi hefur alla tíð bjargað
sér sjálfur og hætti ekki fyrr en það
tókst sem hann ætlaði sér. Að vera
yngstur níu systkina var erfítt og
hann þurfti sí og æ að sanna fyrir
þeim að hann gæti ýmislegt og
væri ekki eins lítill og þau vildu
vera láta.
Einn daginn gengum við upp á
fjall til að skoða sel nokkurt þar sem
geiturnar og kýmar voru mjólkað-
ar. Þar vora búnir til ostar. Afí
gekk upp á fjallið án þess að blása
úr nös en amma og ég urðum ansi
þreyttar. Afí hefur alla tíð verið lík-
amlega hraustur og sterkur, það
entist honum fram til síðasta dags.
Daginn sem hann dó hélt ég í hönd-
ina á honum og þrátt fyrir hversu
veikur hann var, var handtak hans
svo fast og þétt eins og það hafði
alltaf verið. Hann afi okkar var
yndislegur afi. Hann var svo hlýr
og elskulegur við okkur barnabörn-
in. Alltaf þegar við komum í heim-
sókn eða í vinnuna til hans fengum
við alltaf koss og vorum föðmuð bak
og fyrir. Hann var alltaf til staðar
ef á þurfti að halda. Hann bar hag
barnabama sinna svo sterkt fyrir
bijósti. Ef eitthvað bjátaði á hjá
okkur var hann fyrsti maðurinn sem
rétti fram hjálparhönd. Ég gleymi
því aldrei þegar ég flutti út til Sví-
þjóðar til náms, þá tók hann í hönd
mína og sagði: „Ólöf mín, gleymdu
aldrei að fjölskyldan er það mikil-
vægasta sem maður á.“ Svo óskaði
hann mér gæfu og gengis og sagði
að ef eitthvað bjátaði á fengi ég
alla þá hjálp sem ég þyrfti. Honum
fannst sárt að horfa á eftir mér til
annars lands því hann var svo
hræddur um að ég settist að þar
eins og elsti sonur hans hafði gert.
Hann hélt alltaf allri íjölskyldunni
saman, því það fannst honum það
mikilvægasta af öllu. Þegar ég kom
aftur heim með fjölskyldu mina eft-
ir tæp fímm ár var hann mjög glað-
ur og sagði, að það væri gott að
hafa okkur heima, því hér ættum
við heima. Söknuðurinn eftir elsku
afa er stór enda átti hann svo mik-
inn hlut í lífi okkar allra. Hann er
fyrirmynd okkar. Heiðarleiki hans
var einstakur og kjarkurinn og
dugnaðurinn. Við biðjum góðan Guð
að geyma afann okkar og blessa
elsku ömmu Guðrúnu sem hefur
misst mjög góðan eiginmann. Sökn-
uður okkar er svo sár því við elskuð-
um þig, elsku afi. Okkur langar til
að enda þessi orð með bæn.
Legg ég nú bæði líf og önd
ljúfi Jesú í þína hönd,
síðast þegar ég sofna fer
sitji Guðs englar yflr mér.
(Hallgrimur Pétursson)
Með kveðjUj
Ólöf Ásta og Anna Sif.