Morgunblaðið - 24.08.1994, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 24. ÁGÚST 1994 29
AFMÆLI
KRISTÍN PETREA
S VEIN SDÓTTIR
KRISTÍN Petrea Sveinsdóttir, fyrr-
um húsfreyja í Gufudal, verður
hundrað ára í dag. Kristín er fædd
24. ágúst 1894, dóttir Pálínu Tóm-
asdóttur og Sveins Péturssonar, sem
var mesti kempukarl og hálfgerð
þjóðsagnapersóna. Kristín missti
móður sína fjögurra ára gömul, en
var áfram í Skáleyjum til 12 ára
aldurs og ólst upp að nokkru leyti í
skjóli eldri systur sinnar Maríu. Það-
an fór hún svo í Svefneyjar á Breiða-
firi og var þar ti! fullorðinsára, eða
þar til hún fluttist til bróður síns er
bó þá að Skálmardal í Múlasveit. Þar
kynntist hún Bergsveini Finnssyni
er þá átti heima hjá foreldrum sínum
á næsta bæ, Illugastöðum. Nokkru
eftir að þau giftu sig, hófu þau bú-
skap á kirkjustaðnum Gufudal. Þar
var áður prestsetur og bjuggu þar
áður merkisprestar. Á því merkisbýli
bjó Kristín að miklu leyti öll sín
manndómsár, kannski má segja að
þar hefjist hennar starfssaga. Gufu-
dalur er fallegt býli, þar eru miklar
sléttar grundir og engjar og gott
undir bú, enda veitti ekki af. Fjöl-
skyldan varð fljótt stór og þangað
lágu leiðir margra. Það var því nóg
að gera fyrir húsmóðurina að stjóma
stóru heimili í meira en hálfa öld.
Það var messað í Gufudal þriðja
hvem sunnudag að sumri til og kom
það í hlut Kristínar að
vera forsöngvari í
kirkjunni, eins og það
var orðað. Þá var ekk-
ert orgel í kirkjunni og
reyndi því mikið á for-
söngvarann að stjóma
söngnum. Kristínu
fórst það mjög vel úr
hendi, enda átti hún
góða söngrödd og
kunni að beita henni.
Hefði kannski getað
orðið óperusöngkona
hefði hún haft tæki-
færi til að læra söng.
Það er falleg kirkja
í Gufudal og var hún
mikið sótt á sumrin hér áður fyrr,
enda margt fólk í sveitinni þá. Ég
kom þangað fyrst sem unglingur og
hreifst af söng prestsins, Jóns Þor-
valdssonar á Stað og fólksins sem
söng með undir stjórn Kristínar. I
því sambandi era mér
fornu minnin kær, „en
nú er hún Snorrabúð
stekkur," stendur í
kvæði Jónasar. Nú er
sjaldan messað í kiriq'-
unni í Gufudal. Það er
hljótt yfir henni eins
og fleiri kirkjum í hál-
feyddum og eyddum
sveitum þessa iands.
Hér er ekki öll sagan
sögð af starfi Kristínar
í Gufudal, það fylgdi
víst ábúðarsamningi að
jörðinni að ábúendur
veittu kirkjugestum
kaffi að lokinni messu,
og þar er mér hún Kristín minnis-
stæð, hvað hún rækti það starf með
miklum ágætum og myndarskap.
Það vantaði ekki rausnarlegar
veitingar og fallega bornar fram,
allt heimabakað. Hún kunni að útbúa
fallegt borð og veita vel og henni fór
það eitthvað svo vel, viðmótið var
hlýlegt og gott. Ég held hún hafi
notið þess að taka vei á móti kirkju-
gestum og gestum yfirleitt. Og ég
held að kirkjugestum hafi liðið vel
við hennar borð, eða svo fannst mér.
Á þessum sunnudögum var bærinn
í Gufudal eins og lítið safnaðarheim-
ili.
Þau hjón, Kristín og Bergsveinn,
áttu saman átta mannvænleg börn
og eru sjö þeirra á lífi. Kristín missti
mann sinn árið 1952 og fluttist
nokkrum áram síðar til Reykjavíkur
og hefur verið þar síðan. Hún er enn
vel hress og vel minnug á það sem
löngu leið, nú síðustu árin hefur hún
búið á Hrafnistu í Reykjavík. Ég
óska Kristínu allra heilla og Guðs
blessunar í lífi hennar og óska þess
að æðra ljós lýsi henni á ævikvöldinu.
Jóhannes Arason.
R AD AUGL YSINGAR
Fiskvinnslufólk óskast
20 manns vantar í ígulkeravinnslu. Fólk á
atvinnuleysisskrá Reykjavíkurborgar gengur
fyrir og fólk með starfsreynslu.
Upplýsingar veittar á staðnum kl. 14-16.
UNI hf. Hólmaslóð 2, Reykjavík.
Rennismiður
Rennismið vantar til framtíðarvinnu.
Ódýrt húsnæði í boði.
SR-vélaverkstæði,
SR-mjöl hf., Siglufirði,
sími 96-71243.
Innheimtufólk
óskast í kvöldvinnu næstu tvo mánuði
á eftirtalda staði:
Djúpavog, Hólmavík, Neskaupstað,
Patreksfjörð, Raufarhöfn, Súðavík, Suðureyri
og Vopnafjörð.
Upplýsingar gefur Halldóra í síma 812300.
FRÓDI
BÓKA & BLAÐAÚTGÁFA
Ármúla 18,
108 Reykjavík.
RARIK
RAFMAGNSVEITUR RÍKISINS
Utboð
Rafmagnsveitur ríkisins óska eftir tilboðum
í stækkun útivirkis aðveitustöðvar að Hrygg-
stekk í Skriðdal. Útboðið nær til byggingar-
hluta stöðvarinnar, þ.e. jarðvinnu og bygg-
ingu undirstaða fyrir stálvirki.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofum Raf-
magnsveitna ríkisins, Laugavegi 118, Reykja-
vík og Þverklettum 2, Egilsstöðum, frá og
með fimmtudeginum 25. ágúst 1994 gegn
kr. 10.000 í skilatryggingu.
Tilboðum skal skila á skrifstofu Rafmagns-
veitna ríkisins á Egilsstöðum fyrir kl. 14.30
þriðjudaginn 6. september nk. og verða þau
þá opnuð í viðurvist þeirra bjóðenda, sem
þess óska.
Tilboðin séu í lokuðu umslagi, merktu:
„RARIK - 94013 Hryggstekkur - aðveitustöð“.
Rafmagnsveitur ríkisins,
Laugavegi 118,
105 Reykjavík.
Smiðir
Tilboð óskast í uppslátt á ca 800 m2 iðnaðar-
húsnæði í Hafnarfirði.
Sendið tilboð til auglýsingadeildar Mbl. ekki
síðarennk. föstudag, merkt: „Fljótir — 4997“.
FJÖIBRAUTASKÓUNN
Innritað verður í Kvöldskóla FB 24. og
25. ágúst kl. 16.30-19.30 og laugardaginn
27. ágúst kl. 10.30-13.30.
Myndlistarnám.
Handíðanám.
Skemmtilegir valkostir.
Þitt er valið!
Skólameistari.
v'ö
>0/7vaðv)V-''í,'°
Frá Menntaskólanum
við Hamrahlíð
Upphaf skólastarfs á haustönn 1994
Öldungadeild
Innritun fyrir haustönn 1994 fer fram 29.-31.
ágúst kl. 9.00-19.00. Eldri nemendur og
nýnemar velja þá námsgreinar og fá afhenta
stundatöflu vorannar gegn greiðslu kennslu-
gjalds. Deildarstjórar verða nemendum til
aðstoðar fyrsta daginn kl. 16.00-19.00 og
er nýnemum bent á að koma þá.
Kennsla í öldungadeild hefst 1. september
skv. stundaskrá.
Dagskóli
Nýnemar í dagskóla eru boðaðir í skólann
miðvikudaginn 31. ágúst kl. 10.00. Þeir hitta
þá umsjónarkennara og taka við stunda-
skrám gegn framvísun á kvittun um greiðslu
skólagjalda.
Fyrsti kennarafundur annarinnar er boðaður
fimmtudaginn 1. september kl. 10.
Skólinn verður settur 1. september kl. 13.
Að setningu lokinni fá eldri nemar dagskóla
stundaskrár gegn framvísun á kvittun um
greiðslu skólagjalda.
Kennsla í dagskóla hefst föstudaginn 2. sept-
ember og verður kennt skv. stundatöflu
fimmtudags og föstudags.
Rektor.
Loðdýrabændur ath.!
Til sölu mikið magn af loðdýrabúrum í þrem-
ur gerðum, mest dönsk gæðabúr og sýlindra-
búr; einnig skítarenna með festingum o.fl.
Upplýsingar gefa: Helgi Helgason í símum
94-3950 og 985-31149 og Omar Helgason
f sfmum 94-3172 og 985-41893.
íbúð óskast til leigu
4ra herbergja eða stærri miðsvæðis í Reykja-
vík, helst Þingholtin.
Upplýsingar í síma 657868 eftir kl. 16.00.
Pýramídinn
- andleg miðstöð
Sænski miöillinn Boris Bravin er
kominn til starfa. Hann hefur
sambönd á öllum tíðnisviðum
og fer með fólk aftur í fyrri líf.
Tímapantanir l símum 882526
og 881415 frá kl. 9.30 til 18.00
alla virka daga.
Pýramídinn,
Dugguvogi 2.
Pýramídinn
- andleg miðstöð
Okkar vinsæli,
breski miðill, Ann
Coupe, heldur
skyggnilýsingu
fimmtudaginn
25. ágúst
kl. 20.00.
símum 882526
Pýramídinn,
Dugguvogi 2.
Upplýsingar í
og 881415.
Hörgshlíð 12
Boðun fagnaðarerindisins.
Almenn samkoma í kvöld
kl. 20.00.
SAMBANU ISŒNZKRA
KRISTNIBOÐSFÉLAGA
Háaleitisbraut 58-60
Kristniboðssamkoma í kvöld
kl. 20.30 í Kristniboðssalnum.
Páll Friðriksson talar.
Allir eru velkomnir.
Hvítasunnukirkjan
Ffladelfía
Bibliulestur kl. 20.30.
Ræðumaöur Hafliði Kristinsson.
Allir hjartanlega velkomnir.
FERÐAFÉLAG
® ÍSLANDS
MÖRKINNI 6 SÍMI 682S33
Dagsferðir
Ferðafélagsins
Laugardagur 27. ágúst:
1) Kl. 09.00 Vikrafell-Langavatn.
Ekið um Norðurárdal í Langadal
og gengiö á Vikrafell.
2) Kl. 09.00 Ökuferð að Langa-
vatni.
3) Kl. 10.00 Sveppaferð og skóg-
arskoðunarferð í Skorradal.
Ferðafélag Islands og Hið ís-
lenska náttúrufræöifélag sam-
einast um þessa ferð. Verð kr.
2.300. (2.000 fél.). Eiríkur Jens-
son, kennari og sveppasérfræð-
ingur, leiðbeinir um matarsveppi
og tfnslu þeirra.
4) Kl. 13. Gönguferð á Esju-
Þverfellshorn. Verð kr. 900.
Sunnudagur 28. ágúst:
1) Kl. 08.00 Þórsmörk - dags-
ferð - verð kr. 2.700.
2) Kl. 10.30 Svartagil-Skógar-
kot-Hrafnagjá (No. 2). Framhald
lýðveldisgöngu Ferðafélagsins,
annar áfangi.
3) Kl. 13 Fjölskylduganga frá
Kaldárseli um Valahnúka, Búrfell
og Búrfellsgjá. (lok göngu verð-
ur kaffisala á vegum sumarbúð-
anna í Kaldárseli og kostar
kr. 600 fyrir fullorðna og kr. 300
fyrir börn. Fargjald með rútu
kostar kr. 600,- frítt fyrir börn
að 15 ára aldri.
Helgarferðir 26.-28. ágúst:
1) Óvissuferð. Gist í húsum. Ár-
lega skipuleggur Ferðafélagið
ferð, þar sem ekki er gefiö upp
fyrirfram hvert halda skal, en
reynt er að velja leiðir, sem ekki
eru fjölfarnar í óbyggðum.
2) Þórsmörk. Gist f Skagfjörðs-
skála/Langadal.
3) Landmannalaugar - Eldgjá.
Gist f’húsi.
Sumarleyfisferðir:
Hvítárnes - Hveravellir 31. ágúst
til 4. september. Sæti laus!
Sjálfboðaliðar óskast í vinnu-
ferð Ferðafélags íslands og
Náttúruverndarráðs á Hvera-
velli 9.-11. sept. Skráning á
skrifstofu.
Ferðafélag Islands.