Morgunblaðið - 24.08.1994, Qupperneq 30
30 MIÐVIKUDAGUR 24. ÁGÚST 1994
MORGUNBLAÐIÐ
Dýraglens
Ferdinand
I SHOULD U/RITE A LETTER
TO THAT LITTLE RED-HAiREP
6IRL, ANP TELL HER ALL
ABOUT MT5ELF..
I COULD TELL HER HOUJ
DEPENDABLE AND RELlABLE
I AM..
LA5T NI6HT MY 5UPPER
UJAS ELEVEN SECONDS LATE 1
Ég ætti að skrifa litlu rauðhærðu
stelpunni bréf, og segja henni
allt um sjálfan mig.
Ég gæti sagt henni hve traustur
og áreiðanlegur ég er.
Kvöldmaturinn minn kom ellefu
sekúndum of seint í gærkvöldi.
BREF
TIL BLAÐSINS
Kringlan 1103 Reylqavík • Sími 691100 • Símbréf 691329
Fræðslustarf SVR
með bömum
Frá Herði Gíslasyni og Þórhalli
Halldórssyni:
GÓÐ þjónusta strætisvagna er
nauðsynleg hverju borgarsamfélagi.
Með aukinni notkun strætisvagna
dregur úr almennri umferð bíla og
m.a. á þann hátt vinna vagnarnir að
bættu umferðaröryggi. Mikil og
stundum nokkuð hröð umferð er
mörgum áhyggjuefni, ekki síst for-
eldrum. Besta umferðaröryggið fyrir
böm skapast þegar foreldrar, skóli,
lögregla og aðrir sem tengjast um-
ferðarmálum veita leiðsögn og raun-
verulega þjálfun í umferðinni.
Á vegum Strætisvagna Reykjavík-
ur og lögreglu hefur í nokkur ár
farið fram fræðsla um umferðarmál.
Fræðslan er í því fólgin að öllum sex
ára bömum í Grunnskólum Reykja-
víkur er boðið í heimsókn í aðalstöðv-
ar SVR við Kirkjusand, þau sótt í
skólann í strætisvagni. Þar er þeim
kennt að nota strætisvagn. Bömun-
um er kennt hvers ber að gæta þeg-
ar farið er úr og í vagn og hvemig
þau em ömggust í vagninum. Því
til viðbótar fer fram umferðarfræðsla
sem er í höndum lögreglu.
Sett er upp einfalt gatnakerfi með
gangbraut, umferðarljósum og um-
ferð bíla til þess að umferðarkennsl-
an fari fram við sem raunvemlegast-
ar aðstæður. Þetta er stuðningsstarf
við fræðslu lögreglu og skóla með
eldri bömum. Vilji er fyrir hendi hjá
SVR að vinna samskonar fræðslu-
starf með eldri bömum, t.d. níu ára
nemendum.
Á haustin þegar skólarnir hefja
vetrarstarf fjölgar bömum í umferð-
inni. Bömin nota vagnana mikið og
á einum vetrarmánuði fara böm
yngri en 12 ára um 60 þúsund ferð-
ir á höfuðborgarsvæðinu með stræt-
isvagni. Til viðbótar ferðum í hinn
hefðbundna skóla sækja bömin ann-
að, ss. íþróttir, tónnám og fara ferð-
ir vegna margþætts afþreyingar-
starfs. Vegna þessa er mikilvægt
fyrir foreldra að kynna sér þjónustu
vagnanna, ferðamöguleika bama
sinna, og nota vagnana sjálf til þess
að geta aðstoðað bömin. Því fé sem
þannig sparast má veija til annars
í þágu Qölskyldunnar.
Börn era óhjákvæmilega þátttak-
endur í umferðinni. Leiðbeining,
þjálfun og fræðsla er það sem veitir
þeim mest öryggi til frambúðar. Það
eykur á frelsi bama og frelsi for-
eldra að bömum sé sköpuð aðstaða
og þekking til að ferðast með strætis-
vögnum frá unga aldri. Með því dreg-
ur úr akstri fjölskyldubílsins, umferð
á götum og akstur foreldra með
bömin oft frá vinnu undir álagi
minnkar.
P'járhagslega er mikill ávinningur
í því fólginn fyrir heimilin að fækka
ferðum einkabílsins.
Fargjald bama er lágt, rúmar 13
krónur ferðin að 12 ára aldri. Með
breytingu á gjaldskrá SVR fyrr í
sumar var fargjald unglinga 12-16
ára lækkað úr 90 kr. í 25 kr. Það
má skoða sem viðbótarframlag
Strætisvagna Reykjavíkur til aukins
umferðaröryggis. Því ekki að skoða
betur ferðamöguleika íjölskyldunnar
með strætó.
HÖRÐUR GÍSLASON
ÞÓRARINN HALLDÓRSSON
starfsmenn SVR
Tilkynning frá ÍM-
Gallup að gefnu tilefni
Frá Skúla Gunnsteinssyni:
VEGNA nýlegrar könnunar um fylgi
stjómmálaflokka og hugsanlegra
stjómmálaafla sem Skáís gerði vill
ÍM-Gallup koma eftirfarandi á fram-
færi:
IM-Gallup fordæmir þau vinnu-
brögð að ekki hafi strax verið birt
framkvæmdalýsing á könnuninni um
leið og niðurstöður hennar vora birt-
ar opinberlega. Einnig er gagnrýnis-
vert hversu seint og illa leiðrétting
kom fram af hálfu Skáís um fram-
kvæmd könnunarinnar þrátt fyrir
að ljóst væri að túlkun niðurstaðn-
anna og umræðan um hana væri á
villigötum.
Spurt var í könnuninni: „Ef kosið
væri til Alþingis á morgun og í boði
væru fjórir listar; Alþýðuflokkur,
Framsóknarflokkkur, Sjálfstæð-
isflokkur og nýr sameiginlegur listi
Kvennalista, Alþýðubandalags, Jó-
hönnu Sigurðardóttur og annars
óháðs félagshyggjufólks, hvað
myndir þú þá kjósa?“ Niðurstöðumar
vöktu mikla athygli fyrir mikið fylgi
við „nýja sameiginlega listann" og
fylgishran Framsóknarflokksins.
Fjallað var um niðurstöðurnar í fjöl-
miðlum eins og hún hefði verið gerð
á landsvísu en síðar kom í ljós að
svo var ekki, hún var aðeins fram-
kvæmd á höfuðborgarsvæðinu.
Þetta gjörbreytir þeim ályktunum
sem draga má af niðurstöðunum.
Án vitneskju um framkvæmd
könnunarinnar (stærð og gerð úr-
taks, svörun, aðferð, tímasetningu
o.s.frv.) er ekki hægt að draga rétt-
ar ákvarðanir af niðurstöðum henn-
ar. Það að ekki kom fram hvernig
könnunin var gerð ber vott um skort
á fagmennsku og getur leitt til al-
rangra ályktana eins og raunin varð.
Forsvarsmenn Skáís hafa látið
hafa eftir sér í fjölmiðlum að þar
sem einkaaðilar hafi óskað eftir
könnuninni séu þeir ekki vissir um
að það sé rétt af þeim að skipta sér
af því þótt einhveijir mistúlki könn-
unina. Auðvitað er það á ábyrgð
fyrirtækisins sem framkvæmdir
könnuninni að leiðrétta strax mis-
notkun eða mistúlkun á niðurstöðun-
um. Svona vinnubrögð geta því mið-
ur orðið til þess að rýra álit fólks á
skoðanakönnunum.
SKÚLI GUNNSTEINSSON,
framkvæmdastjóri.
Gagnasafn
Morgunblaðsins
Allt efni sem birtist í Morgun-
blaðinu og Lesbók verður fram-
vegis varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskil-
ur sér rétt til að ráðstafa efninu
þaðan, hvort sem er með endur-
birtingu eða á annan hátt. Þeir
sem afhenda blaðinu efni til
birtingar teljast samþykkja
þetta, ef ekki fylgir fyrirvari
hér að lútandi.