Morgunblaðið - 24.08.1994, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ
ÍDAG
SKÁK
llmsjón Margcir
Pétursson
ÞESSI staða kom upp á
alþjóðlegu móti í Altensteig
í Þýskalandi, sem nú stend-
ur yfir, í viðureign tveggja
stórmeistara. Jonathan
Speelman (2.600), Eng-
landi, hafði hvítt og átti
leik gegn Markús Stangl
(2.535), Þýskalandi.
24. Hxd7! - Hxd7, 25.
exf6 - Bxf6, 26. Bxf6 -
gxf6, 27. Hh4 - Hf8! (Eini
varnarleikurinn og hann
virðist duga. En nú finnur
Speelman sér nýtt og óvænt
skotmark:) 28. Dh8+ -
Kf7, 29. Dh7+ - Ke8, 30.
Dg6+ - Kd8, 31. Hb4!
(Svarta drottningin er föng-
uð. Tilgangurinn með
kóngssókninni var að hluta
til að gera þennan leik
mögulegan.) 31. - Hdl+,
32. Kh2 og Stangl gafst
upp. Afar óvenjulegt og
glæsilegt þema hjá Speel-
man, sem er kunnur fyrir
að leita leiða á skákborðinu
sem margir aðrir stórmeist-
arar hirða ekki um að líta
á. Staðan eftir 5 umferðir
í Altensteig: 1. Speelman
3‘/2 v., 2.-4. Ribli, Ung-
veijalandi, Svjaginsev,
Rússlandi, Har-Zvi, ísrael,
og Gabriel 3 v., 5.-8.
Dautov, Bezold, Bischoff og
Hug, Sviss, 2 v., 9.-10.
Vogt og Stangl 2 v. og lest-
ina rekur sigurvegarinn frá
því í fyrra og stigahæsti
keppandinn á mótinu, Ung-
veijinn Almasi með 'k v.
Árnað heilla
i nnÁ«A afmæii-1
X Vf vldag, 24. ágúst, er
tíræð Kristín Petrea
Sveinsdóttir, fyrrum hús-
freyja í Gufudal í Gufu-
dalssveit. Hún tekur á
móti gestum sunnudaginn
28. ágúst frá kl. 15-18 í
Akoges-salnum, Sigtúni 3.
Ljósm.st. MYND
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman 5. ágúst sl. í Víði-
staðakirkju af sr. Pálma
Matthíassyni, Berglind
Guðjónsdóttir og Oskar
Ármannsson. Þau eru bú-
sett í Stuttgart í Þýska-
landi.
Ljósm.st. MYND
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman 27. júlí sl. í Fríkirkj-
unni í Hafnarfirði af sr.
Einari Eyjólfssyni, Margrét
Olafsdóttir og Per Stölen,
til heimilis á Hvammabraut
10, Hafnarfirði.
Ljósm.st. MYND
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman 6. ágúst í Háteigs-
kirkju af sr. Sigurði Sigurð-
arsyni, Jóhanna Einars-
dóttir og Ársæll Ársæls-
son, til heimilis í Reykjavík.
Með morgunkaffinu
Pennavinir
SEXTÁN ára sænsk
stúlka með margvísleg
áhugamál:
Laila Hammami,
c/o Kállsbyskolan,
Ringviig 1,
S-222 52,
Lund,
Sverige.
ELLEFU ára bandarískur
piltur með margvísleg
áhugamál:
Justin T. Star,
P.O. Box 880,
Kenel 57642,
U.S.A.
Nei, þau HLJÓTA að hafa
farið út. Það er slökkt á
sjónvarpinu.
TUTTUGU og fjögurra
ára Ghanastúlka með
áhuga á sundi, ferðalög-
um, kvikmyndum og
skáldsögum:
Lydia Bentoo,
c/o Elias K. Appiates,
P.O. Box 565,
Cape Coast,
Ghana.
FIMMTÁN ára sænsk
stúlka með ýmiss konar
áhugamál:
Karin Johansson,
Magistratswág 7D,
S-226 43,
Lund,
Sverige.
LETTNESKUR fjöl-
skyldufaðir vill hefja bré-
fasamband við íslenskar
fjölskyldur:
Janis Eideeks,
229014 Olaine,
Zemgales 23-13,
Latvia.
HÖGNIIIREKKVÍSI
HAMN GfZÓr- SlG INM i' ViNK3AllAI?A .
STJÖRNUSPÁ
cftir frances Drakc
MEYJA
Afmælisbarn dagsins: Þér
er annt um heimili þitt og
vinnusemi er þér í blóð bor-
in.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Vertu samvinnufús í dag
og sýndu starfsfélögum til-
litssemi. Láttu ekki smá-
muni koma þér úr jafnvægi
heima þegar kvöldar.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Ef þú reynir að geta í eyð-
umar gæti niðurstaðan orð-
ið röng. Kynntu þér mála-
vexti og reyndu að einbeita
þér við vinnuna.
Tvíburar
(21.mai-20.júní) í»
Góður félagi er hörundsár
og þú þarft að sýna honum
nærgætni í dag. Þú hefur
lítinn tíma til að sinna
einkamálunum.
Krabbi
(21. júní — 22. júlí)
Trúðu ekki öllu sem þú
heyrir í dag. Sumir hafa
tilhneigingu til að ýkja.
Ættingi er eitthvað miður
sín í kvöld.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Kannaðu vel kostnaðinn
áður en þú ákveður ferða-
lag. Ágreiningur ættingja
getur komið í veg fyrir sam-
komulag um fjölskyldumál.
Meyja
(23. ágúst - 22. september)
Tilboð sem þér berst í dag
þarfnast breytinga. Þú get-
ur orðið fyrir óvæntum út-
gjöldum. Farðu sparlega í
innkaupin.
v<v
(23. sept. - 22. október) i$l&
Haltu góðu sambandi við
þína nánustu og hikaðu
ekki við að láta skoðanir
þínar í ljós. Ágreiningur
getur komið upp milli vina.
Sporðdreki
(23.okt.-21.nóvember)
Þú getur orðið fyrir tmfl-
unum og átt erfitt með að
einbeita þér við vinnuna.
Afköstin verða því minni
en þú ætlaðir.
Bogmaöur
(22. nóv. - 21. desember)
Gættu vel orða þinna í dag
svo þú særir ekki einhvern
nákominn. Fyrirhuguð
skemmtun í kvöld getur
orðið kostnaðarsöm.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Óvæntir gestir geta truflað
þig við vinnuna í dag. Þú
þarft að sýna skapstyggum
starfsfélaga mikið umburð-
arlyndi.
Vatnsberi
(20. janúar - 18. febrúar)
Taktu ekki mikið mark á
orðum vinar sem hefur til-
hneigingu til að ýkja. Erfitt
getur verið að koma áform-
um þínum í framkvæmd.
Fiskar
(19. febrúar - 20. mars)
Þú þarft að sýna skynsemi
í fjármálum og varast að
eyða of miklu í skemmt-
anir. Gerðu ekki of mikið
úr auðleystu vandamáli.
_
Daiwa
COMMITTHO TO TOTAL QUALlTY j
MIÐVIKUDAGUR 24. ÁGÚST 1994 33 ‘
I
I tilefni afmælis Sjóstangafélagsins næstu helgi
bjóðum við 20% afslátt af þessu vandaða
sjóstangarþjóli frá Daiwa.
Umboðsaðilar fyrir Daiwa á íslandi • Umboðsmenn um land allt
140.000 kr. með notuðum bíl eða peningum, gera þér kleift að eignast
glænýjan b(l. Þetta er sú upphæð sem greidd er við undirritun
kaupsamnings á Lada Safír. Það sem upp á vantar bjóðum við þér að
greiða með 14.232 kr. á mánuði í þrjú ár. Þessi fjárhæð samsvarar 468 kr.
á dag. Sumir eyða þessum peningum í eitthvað, á hverjum einasta degi,
sem þeir myndu ekki sakna þótt þeir slepptu því.
Lada Safír er ekki með samlæsingu eða rafdrifnum rúðum,
enda hefur það ekki áhrif á aksturinn og þú borgar heldur ekki fyrir það.
Verö frá 558.000 kr. á götuna!
.40.
ÁRMÚLA 13 • SÍMl: 68 12 00 • BEINN SÍMI: 3 12 36
Eitt blab fyrir alla!
- kjarni málsins!