Morgunblaðið - 11.09.1994, Page 2
2 SUNNUDAGUR 11. SEPTEMBER 1994
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Aðalfundur Skógræktarfélags Islands skorar á landbúnaðarráðherra
Sérstök fjárveiting til plöntu-
kaupa fyrir Landgræðsluskóga
AÐALFUNDUR Skógræktarfélags
Islands skorar á landbúnaðarráð-
herra og fjármálaráðherra að sjá til
þess að tryggð verði til aldamóta
sérstök fjárveiting á fjárlögum til
Laridgræðsluskóga. Takmarkið
verði að gróðursetja 20 millj. plantna
á vegum verkefnisins fram að þeim
tíma.
í greinargerð með áskorun um
sérstaka fjárveitingu til Land-
græðsluskóga segir að gróðursetn-
ing skóganna sé eitt stærstá skóg-
ræktarverkefni sem ráðist hafi verið
í hér á landi. Síðastliðin fimm ár
hafí verið gróðursettar rúmlega
fimm milljónir plantna á 80 stöðum
víðsvegar um land. Árangur starfs-
ins hafi verið framar öllum vonum
og hefur verkefnið unnið sér fastan
Smábátur
vélarvana
LÍTILL bátur strandaði á sand-
rifi í Leirvogi upp við Mos-
fellsbæ snemma í gærmorgun.
Báturinn varð vélarvana og rak
að landi. Tveir menn voru um
borð og sakaði þá ekki. Engin
hætta var á ferð, en stillt veður
var í gær. Lögreglan fór á báti
út á Leirvoginn eftir að sjónar-
vottar létu hana vita af óhapp-
inu. Báturinn náðist flótt á flot
og bátur frá Snarfara dró hann
til hafnar.
Bílþjófnaðir
í Eyjum
Á SKÖMMUM tíma hefur fjór-
um bílum verið stolið i Vest-
mannaeyjum. í þremur tilvik-
um var um réttindalausa öku-
menn að ræða sem voru að
stela bílum foreldra sinna. Einn
ökumannanna velti bílnum og
skemmdist hann mikið. Piltur-
inn slapp hins vegar lítt meidd-
ur. Nú síðast stal maður um
tvítugt bíl og ók honum ölvaður
á annan bíl og skemmdi hann.
Rall- og
torfærumót
RALL- og torfærumót verður
í Jósefsdal í dag, sunnudaginn
11. september, kl. 13. Á sama
stað verður síðasta sérleiðin í
aiþjóða Kumho rallinu kl.
13.30. Endamark verður við
Hjólbarðahöllina við Fellsmúla
kl. 15.00.
sess í íslensku skógræktarstarfí.
Bent er á að samstaða og samvinna
séu kjörorð Landgræðsluskóga. Þar
hafí lagst á eitt félagasamtök, ríkis-
stofnanir og sveitarfélög, sem gert
hafi markmið átaksins að veruleika.
Mikil óvissa hafí ríkt um hvort og
hve mikið af plöntum væru fáanleg-
ar til Landgræðsluskóga á hveiju
ári og væri sú óvissa enn til staðar.
Með viljayfírlýsingu stjómvalda um
áframhaldandi stuðning með .sér-
stakri fjárveitingu til kaupa á plönt-
um yrði traustari stoðum rennt und-
ir þetta samvinnuverkefni um leið
og eytt yrði þeirri stöðugu óvissu
sem ríkt hefur um áframhald þess
á hveiju ári.
Þá var samþykkt að beina því til
rannsóknastofnana að auka rann-
sóknir á framvindu gróðurs á ís-
landi. Við friðun lands og skógrækt
yrðu breytingar á gróðurfari sem
nauðsynlegt er að fylgjast með til
að auka þekkingu á hinum ýmsu
stigum gróðurframvindunnar.
Land til skógræktar
Bent er á að fyrirsjáanlegur skort-
ur sé á landsvæðum til skógræktar
og nauðsynlegt að unnið sé að því
að skógræktarfélög og einstaklingar
hafi jafnan greiðan aðgang að landi
til skógræktar og uppgræðslu. Sam-
þykkti fundurinn að beina þeim til-
mælum til stjómar félagsins að tekn-
ar verði upp viðræður við landbúnað-
arráðuneytið og stjórn sveitarfélaga
um farsæla lausn málsins.
Samþykkt var að fela stjórn fé-
lagsins að beita sér íyrir söfnun
birkifræs og að gerðar verði saman-
burðartilraunir með birki frá stöðum,
þar sem veðurskilyrði eru erfíð.
Lagt var til að Rannsóknarstöð
Skógræktar ríkisins á Mógilsá hugi
sérstaklega að þeim möguleikum
sem felast í söfnun á tijátegundum,
runnum og fjölærum plöntum við
strendur Noregs allt frá Sogni í
Vestur-Noregi til Lofoten í norðri.
Fundurinn harmaði þann ágrein-
ing sem upp er kominn um fjármögn-
un og verkefni Pokasjóðs Land-
vemdar og skorar jafnframt á stjórn
Landverndar, Kaupmannasamtökin,
Samvinnuverslunina og Hagkaup að
leita leiða til að tryggja áframhald-
andi starfsemi sjóðsins.
■ Aðalfundur/B16-B17
Nýrjeppi
kynntur
TOYOTA-umboðið í Kópavogi
býður gestum og gangandi upp
á kaffi og pönnukökur í sýn-
ingarsal sínum um helgina.
Tilefnið er nýr bíll frá Toyota.
Raunar þykir bílinn, RAV4,
sameina kosti jeppa og venju-
legs fólksbíls. Fjöldi annarra
bíla er til sýnis I umboðinu.
Strax var margt um manninn
þegar sýningin var opnuð í
hádeginu í gær.
Víðast hvar eru tveir
aðilar um GSM-kerfið
AF ÁTJÁN löndum sem eiga aðild
að samningnum um Evrópska efna-
hagssvæðið em aðeins þijú þar sem
einvörðungu einn aðili rekur síma-
þjónustu í tengslum við GSM-sím-
kerfíð og ísland er eitt þessara landa.
500 GSM-símkort hafa selst hér-
lendis frá því sala hófst í síðasta
mánuði.
Islensk fjarskipti hf., sem er í eigu
þriggja fyrirtækja, selur sex tegund-
ir GSM-síma en auk þess selur Póst-
ur og sími og nokkrir aðrir aðilar
síma. Kristján Gíslason hjá Radíó-
miðun hf., sem er einn þriggja eig-
enda Islenskra fjarskipta, kveðst
ekki vilja láta uppi hve marga síma
fyrirtækið hefur selt svo lengi sem
Póstur og sími gefur ekki upp sínar
sölutölur. „Forsenda fyrir árang-
ursríkum viðskiptum er að taka rétt-
ar ákvarðanir á réttum tíma sem
grundvallaðar em á réttum upplýs-
ingum. Meðan við höfum ekki þessar
upplýsingar sjáum við ekki fýrir þró-
unina og getum ekki fyrirbyggt mis-
tök í pöntunum o.þ.h.,“_segir Krist-
ján. Kristján segir að íslensk fjar-
skipti verði að láta Fjarskiptaeftirlit-
ið samþykkja hvern síma sem fyrir-
tækið flytur inn og greiða fyrir það
5 þúsund kr. en einstaklingar sem
koma með farsíma með sér frá út-
löndum þurfi þess ekki. „Fjarskipta-
eftirlitið mismunar því fyrirtækjum
og einstaklingum," segir Kristán.
Guðmundur Ólafsson forstöðu-
maður Fjarskiptaeftirlitsins segir
þetta misskilning. GSM-símar séu
fýrsta dæmi úr flokki samskipta-
tækja sem mega samkvæmt samn-
ingnum um Evrópska efnahags-
svæðið fara fijálst um löndin sem
eiga aðild að samningnum, þó með
þeim fyrirvara að tækin séu merkt
Evrópustaðli. Hins vegar hefði eftir-
litið kannað ómerkta síma sem hing-
að bárust fyrstu dagana eftir að
þetta símkerfi'var tekið upp.
Guðmundur segir að tveir eða
fleiri aðilar séu annað hvort komnir
í gang með rekstur GSM-kerfísins í
EES-löndunum eða tekin hafí verið
ákvörðun um hafa þá fleiri en einn.
Aðeins á íslandi, Beigíu og Lúxem-
borg sé einn aðili um rekstur GSM-
kerfisins.
Bæjarstjórinn í Bolungarvík um samstarf Óseyrar og Þuríðar
Sameining leys-
ir ekki vandann
ÓLAFUR Kristjánsson, bæjarstjóri
í Bolungarvík, segir að Ósvör hf.
sé reiðubúin til að eiga samstarf
við Þuríði um viðskipti, en hann
segist hins vegar ekki sjá að nein-
ar rekstrarlegar forsendur séu fyr-
ir sameiningu _ fyrirtækjanna.
Meginsjónarmið Ósvarar verði að
vera að fá sem mestan arð út úr
þeim takmarkaða kvóta sem fyrir-
tækið ráði yfir.
Ólafur sagði að engar tölulegar
upplýsingar lægju fyrir um að sam-
eining Ósvarar og Þuríðar styrkti
rekstrargrundvöll fyrirtækjanna
og þess vegna væru ekki forsendur
fyrir því að þau sendu inn bréf til
nefndar um aðstoð við fyrirtæki á
Vestfjörðum um fyrirgreiðslu.
Verðum að fá sem mestan arð
út úr kvótanum
„Fyrirtæki í Bolungarvík verða
að átta sig á því að landið er orð-
ið eitt markaðssvæði. Það er verið
að flytja fisk landshornanna á milli.
Sjónarmið stjómar Ósvarar hlýtur
að vera að útgerðin hafi sem mest-
an arð af þeim litla kvóta sem
fyrirtækið hefur yfír að ráða. Við
getum ekki annað en fengið hæsta
verð, í fyrsta lagi til að mæta skert-
um kjörum sjómanna og í öðru
lagi til að standa við þær skuld-
bindingar sem eru samfara þessum
togarakaupum.
Fiskvinnslufyrirtæki í Bolungar-
vík verða að vera samkeppnisfær
í sínum rekstri til að kaupa hrá-
efni frá útgerðarfyrirtækjum á
sama verði og aðrir. Því miður er
það svo að fískvinnslufyrirtæki í
Bolungarvík hafa ekki haft tök á
því að kaupa fískinn á sama verði
og aðrir.
Sameining fyrirtækja leysir ekki
ein sér þann rekstrarvanda sem
útgerð og fiskvinnsla eiga við að
stríða í dag. Sameining á ekki að
gerast á tilfínningalegum grunni.
Hún á að gerast á vitrænum
grunni. Það þurfa að liggja fyrir
tölulegar upplýsingar um að þetta
sé báðum til hagsbóta.
Ösvör getur engan veginn farið
fram á það við fyrirtækið Þuríði
að það taki við skuldbindingum
sem Ósvör ræður ekki við eða
öfugt,“ sagði Ólafur.
Ekki ástæða til annars
en að vera bjartsýnn
►Nýr kapítuli hófst í lífí Ásgeirs
Sigurvinssonar síðastliðið vor. Eft-
ir langan feril í atvinnuknattspym-
unni hefur hann nú hafið sjálf-
stæðan atvinnurekstur í Þýska-
landi./lO
Verður innrás örþrif-
aráð Clintons?
►Fylgi Bills Clintons Bandaríkja-
forseta þykir orðið hættulega lítið
og forsetinn virðist í örvæntingar-
fullri leit að atkvæðum á sama
tíma og utanríkisstefna hans ligg-
ur undir gagniýni. /12
Gullgröftur í Smugunni
►Blaðamaður segir frá ferð sinni
í Smuguna í Barentshafi og lífínu
í íslendinganýlendunni þar./16
Strákarnir í Skíris-
skógi
►Rætt við Einar Ásgrímsson og
Svanberg Guðmundsson um pizz-
ur, veitingarekstur og land-
græðslu./22
B
► 1-32
Á höfuðbóli með harm-
onikku
►Skarð á Skraðsströnd er eitt
frægasta höfuðból íslands. Þar
hefur sama ættin setið allt frá
landnámstíð. Guðrún Guðlaugs-
dóttir heimsótti Ingibjörgu Krist-
insdóttur að Skarði. Ingibjörg er
þekkt fyrir fjörlegan harmonikku-
leik og tæpitungulausa frásögn./l
Rolling Stones
►Ólafur Helgi Kjartansson, sýslu-
maður á ísafírði, er óforbetranleg-
ur aðdáandi hljómsveitarinnar The
Rolling Stones. Hér fjallar hann
um hetjur sínar af næmleik og
virðingu eins og honum einum er
lagið./4
Grease - Það er málið
►Söngleikurinn Grease'- þaðer
málið, er frumsýndur á Hótel ís-
landi um þessa helgi. Elfa Gísla-
dóttir leikkona leikstýrir verkinu
og ræðir hér um sýninguna og líf
sitterlendis./14
Siðf ræði í skógrækt
og framvinda gróðurs
►Á aðalfundi Skógræktarfélags
Islands, sem haldinn var á Kirkju-
bæjarklaustri, fluttu erindi þeir
Páll Skúlason, prófessor í heim-
speki og Hörður Kristinsson, for-
stöðumaður Náttúrufræðistofnun-
ar á Akureyri, og er hér gerð laus-
lega grein fyrir því sem þar kom
fram./16
BÍLAR______________
► 1-4
Fornbílar
►Mestur dýrgripur meðal fombíla
á Islandi, Cord 810 árgerð 1936./ 2
Rafbílar
ÞÞriggja hestafla Club Car í Hús-
dýragarðinum./ 4
FASTIR ÞÆTTIR
Fréttir 1/2/4/6/bak
Diðari 26
Helgispjall 26
Reykjavikurbréf 26
Minningar 30
Myndasögur 38
Brids 38
Stjörnuspá 38
Skák 38
Bréf til blaðsins 38
I dag/Velvakandi 40
Fólk í fréttum 42
Bíó/dans 43
íþróttir 46
Útvarp/sjónvarp 48
Dagbók/veður 51
Mannlífsstr. 6b
Kvikmyndir lOb
Dægurtónlist 12b
INNLENDAR FRÉTTIR:
2—6—BAK
ERLENDAR FRÉTTIR:
1-4