Morgunblaðið - 11.09.1994, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 11.09.1994, Qupperneq 2
2 SUNNUDAGUR 11. SEPTEMBER 1994 FRETTIR MORGUNBLAÐIÐ Aðalfundur Skógræktarfélags Islands skorar á landbúnaðarráðherra Sérstök fjárveiting til plöntu- kaupa fyrir Landgræðsluskóga AÐALFUNDUR Skógræktarfélags Islands skorar á landbúnaðarráð- herra og fjármálaráðherra að sjá til þess að tryggð verði til aldamóta sérstök fjárveiting á fjárlögum til Laridgræðsluskóga. Takmarkið verði að gróðursetja 20 millj. plantna á vegum verkefnisins fram að þeim tíma. í greinargerð með áskorun um sérstaka fjárveitingu til Land- græðsluskóga segir að gróðursetn- ing skóganna sé eitt stærstá skóg- ræktarverkefni sem ráðist hafi verið í hér á landi. Síðastliðin fimm ár hafí verið gróðursettar rúmlega fimm milljónir plantna á 80 stöðum víðsvegar um land. Árangur starfs- ins hafi verið framar öllum vonum og hefur verkefnið unnið sér fastan Smábátur vélarvana LÍTILL bátur strandaði á sand- rifi í Leirvogi upp við Mos- fellsbæ snemma í gærmorgun. Báturinn varð vélarvana og rak að landi. Tveir menn voru um borð og sakaði þá ekki. Engin hætta var á ferð, en stillt veður var í gær. Lögreglan fór á báti út á Leirvoginn eftir að sjónar- vottar létu hana vita af óhapp- inu. Báturinn náðist flótt á flot og bátur frá Snarfara dró hann til hafnar. Bílþjófnaðir í Eyjum Á SKÖMMUM tíma hefur fjór- um bílum verið stolið i Vest- mannaeyjum. í þremur tilvik- um var um réttindalausa öku- menn að ræða sem voru að stela bílum foreldra sinna. Einn ökumannanna velti bílnum og skemmdist hann mikið. Piltur- inn slapp hins vegar lítt meidd- ur. Nú síðast stal maður um tvítugt bíl og ók honum ölvaður á annan bíl og skemmdi hann. Rall- og torfærumót RALL- og torfærumót verður í Jósefsdal í dag, sunnudaginn 11. september, kl. 13. Á sama stað verður síðasta sérleiðin í aiþjóða Kumho rallinu kl. 13.30. Endamark verður við Hjólbarðahöllina við Fellsmúla kl. 15.00. sess í íslensku skógræktarstarfí. Bent er á að samstaða og samvinna séu kjörorð Landgræðsluskóga. Þar hafí lagst á eitt félagasamtök, ríkis- stofnanir og sveitarfélög, sem gert hafi markmið átaksins að veruleika. Mikil óvissa hafí ríkt um hvort og hve mikið af plöntum væru fáanleg- ar til Landgræðsluskóga á hveiju ári og væri sú óvissa enn til staðar. Með viljayfírlýsingu stjómvalda um áframhaldandi stuðning með .sér- stakri fjárveitingu til kaupa á plönt- um yrði traustari stoðum rennt und- ir þetta samvinnuverkefni um leið og eytt yrði þeirri stöðugu óvissu sem ríkt hefur um áframhald þess á hveiju ári. Þá var samþykkt að beina því til rannsóknastofnana að auka rann- sóknir á framvindu gróðurs á ís- landi. Við friðun lands og skógrækt yrðu breytingar á gróðurfari sem nauðsynlegt er að fylgjast með til að auka þekkingu á hinum ýmsu stigum gróðurframvindunnar. Land til skógræktar Bent er á að fyrirsjáanlegur skort- ur sé á landsvæðum til skógræktar og nauðsynlegt að unnið sé að því að skógræktarfélög og einstaklingar hafi jafnan greiðan aðgang að landi til skógræktar og uppgræðslu. Sam- þykkti fundurinn að beina þeim til- mælum til stjómar félagsins að tekn- ar verði upp viðræður við landbúnað- arráðuneytið og stjórn sveitarfélaga um farsæla lausn málsins. Samþykkt var að fela stjórn fé- lagsins að beita sér íyrir söfnun birkifræs og að gerðar verði saman- burðartilraunir með birki frá stöðum, þar sem veðurskilyrði eru erfíð. Lagt var til að Rannsóknarstöð Skógræktar ríkisins á Mógilsá hugi sérstaklega að þeim möguleikum sem felast í söfnun á tijátegundum, runnum og fjölærum plöntum við strendur Noregs allt frá Sogni í Vestur-Noregi til Lofoten í norðri. Fundurinn harmaði þann ágrein- ing sem upp er kominn um fjármögn- un og verkefni Pokasjóðs Land- vemdar og skorar jafnframt á stjórn Landverndar, Kaupmannasamtökin, Samvinnuverslunina og Hagkaup að leita leiða til að tryggja áframhald- andi starfsemi sjóðsins. ■ Aðalfundur/B16-B17 Nýrjeppi kynntur TOYOTA-umboðið í Kópavogi býður gestum og gangandi upp á kaffi og pönnukökur í sýn- ingarsal sínum um helgina. Tilefnið er nýr bíll frá Toyota. Raunar þykir bílinn, RAV4, sameina kosti jeppa og venju- legs fólksbíls. Fjöldi annarra bíla er til sýnis I umboðinu. Strax var margt um manninn þegar sýningin var opnuð í hádeginu í gær. Víðast hvar eru tveir aðilar um GSM-kerfið AF ÁTJÁN löndum sem eiga aðild að samningnum um Evrópska efna- hagssvæðið em aðeins þijú þar sem einvörðungu einn aðili rekur síma- þjónustu í tengslum við GSM-sím- kerfíð og ísland er eitt þessara landa. 500 GSM-símkort hafa selst hér- lendis frá því sala hófst í síðasta mánuði. Islensk fjarskipti hf., sem er í eigu þriggja fyrirtækja, selur sex tegund- ir GSM-síma en auk þess selur Póst- ur og sími og nokkrir aðrir aðilar síma. Kristján Gíslason hjá Radíó- miðun hf., sem er einn þriggja eig- enda Islenskra fjarskipta, kveðst ekki vilja láta uppi hve marga síma fyrirtækið hefur selt svo lengi sem Póstur og sími gefur ekki upp sínar sölutölur. „Forsenda fyrir árang- ursríkum viðskiptum er að taka rétt- ar ákvarðanir á réttum tíma sem grundvallaðar em á réttum upplýs- ingum. Meðan við höfum ekki þessar upplýsingar sjáum við ekki fýrir þró- unina og getum ekki fyrirbyggt mis- tök í pöntunum o.þ.h.,“_segir Krist- ján. Kristján segir að íslensk fjar- skipti verði að láta Fjarskiptaeftirlit- ið samþykkja hvern síma sem fyrir- tækið flytur inn og greiða fyrir það 5 þúsund kr. en einstaklingar sem koma með farsíma með sér frá út- löndum þurfi þess ekki. „Fjarskipta- eftirlitið mismunar því fyrirtækjum og einstaklingum," segir Kristán. Guðmundur Ólafsson forstöðu- maður Fjarskiptaeftirlitsins segir þetta misskilning. GSM-símar séu fýrsta dæmi úr flokki samskipta- tækja sem mega samkvæmt samn- ingnum um Evrópska efnahags- svæðið fara fijálst um löndin sem eiga aðild að samningnum, þó með þeim fyrirvara að tækin séu merkt Evrópustaðli. Hins vegar hefði eftir- litið kannað ómerkta síma sem hing- að bárust fyrstu dagana eftir að þetta símkerfi'var tekið upp. Guðmundur segir að tveir eða fleiri aðilar séu annað hvort komnir í gang með rekstur GSM-kerfísins í EES-löndunum eða tekin hafí verið ákvörðun um hafa þá fleiri en einn. Aðeins á íslandi, Beigíu og Lúxem- borg sé einn aðili um rekstur GSM- kerfisins. Bæjarstjórinn í Bolungarvík um samstarf Óseyrar og Þuríðar Sameining leys- ir ekki vandann ÓLAFUR Kristjánsson, bæjarstjóri í Bolungarvík, segir að Ósvör hf. sé reiðubúin til að eiga samstarf við Þuríði um viðskipti, en hann segist hins vegar ekki sjá að nein- ar rekstrarlegar forsendur séu fyr- ir sameiningu _ fyrirtækjanna. Meginsjónarmið Ósvarar verði að vera að fá sem mestan arð út úr þeim takmarkaða kvóta sem fyrir- tækið ráði yfir. Ólafur sagði að engar tölulegar upplýsingar lægju fyrir um að sam- eining Ósvarar og Þuríðar styrkti rekstrargrundvöll fyrirtækjanna og þess vegna væru ekki forsendur fyrir því að þau sendu inn bréf til nefndar um aðstoð við fyrirtæki á Vestfjörðum um fyrirgreiðslu. Verðum að fá sem mestan arð út úr kvótanum „Fyrirtæki í Bolungarvík verða að átta sig á því að landið er orð- ið eitt markaðssvæði. Það er verið að flytja fisk landshornanna á milli. Sjónarmið stjómar Ósvarar hlýtur að vera að útgerðin hafi sem mest- an arð af þeim litla kvóta sem fyrirtækið hefur yfír að ráða. Við getum ekki annað en fengið hæsta verð, í fyrsta lagi til að mæta skert- um kjörum sjómanna og í öðru lagi til að standa við þær skuld- bindingar sem eru samfara þessum togarakaupum. Fiskvinnslufyrirtæki í Bolungar- vík verða að vera samkeppnisfær í sínum rekstri til að kaupa hrá- efni frá útgerðarfyrirtækjum á sama verði og aðrir. Því miður er það svo að fískvinnslufyrirtæki í Bolungarvík hafa ekki haft tök á því að kaupa fískinn á sama verði og aðrir. Sameining fyrirtækja leysir ekki ein sér þann rekstrarvanda sem útgerð og fiskvinnsla eiga við að stríða í dag. Sameining á ekki að gerast á tilfínningalegum grunni. Hún á að gerast á vitrænum grunni. Það þurfa að liggja fyrir tölulegar upplýsingar um að þetta sé báðum til hagsbóta. Ösvör getur engan veginn farið fram á það við fyrirtækið Þuríði að það taki við skuldbindingum sem Ósvör ræður ekki við eða öfugt,“ sagði Ólafur. Ekki ástæða til annars en að vera bjartsýnn ►Nýr kapítuli hófst í lífí Ásgeirs Sigurvinssonar síðastliðið vor. Eft- ir langan feril í atvinnuknattspym- unni hefur hann nú hafið sjálf- stæðan atvinnurekstur í Þýska- landi./lO Verður innrás örþrif- aráð Clintons? ►Fylgi Bills Clintons Bandaríkja- forseta þykir orðið hættulega lítið og forsetinn virðist í örvæntingar- fullri leit að atkvæðum á sama tíma og utanríkisstefna hans ligg- ur undir gagniýni. /12 Gullgröftur í Smugunni ►Blaðamaður segir frá ferð sinni í Smuguna í Barentshafi og lífínu í íslendinganýlendunni þar./16 Strákarnir í Skíris- skógi ►Rætt við Einar Ásgrímsson og Svanberg Guðmundsson um pizz- ur, veitingarekstur og land- græðslu./22 B ► 1-32 Á höfuðbóli með harm- onikku ►Skarð á Skraðsströnd er eitt frægasta höfuðból íslands. Þar hefur sama ættin setið allt frá landnámstíð. Guðrún Guðlaugs- dóttir heimsótti Ingibjörgu Krist- insdóttur að Skarði. Ingibjörg er þekkt fyrir fjörlegan harmonikku- leik og tæpitungulausa frásögn./l Rolling Stones ►Ólafur Helgi Kjartansson, sýslu- maður á ísafírði, er óforbetranleg- ur aðdáandi hljómsveitarinnar The Rolling Stones. Hér fjallar hann um hetjur sínar af næmleik og virðingu eins og honum einum er lagið./4 Grease - Það er málið ►Söngleikurinn Grease'- þaðer málið, er frumsýndur á Hótel ís- landi um þessa helgi. Elfa Gísla- dóttir leikkona leikstýrir verkinu og ræðir hér um sýninguna og líf sitterlendis./14 Siðf ræði í skógrækt og framvinda gróðurs ►Á aðalfundi Skógræktarfélags Islands, sem haldinn var á Kirkju- bæjarklaustri, fluttu erindi þeir Páll Skúlason, prófessor í heim- speki og Hörður Kristinsson, for- stöðumaður Náttúrufræðistofnun- ar á Akureyri, og er hér gerð laus- lega grein fyrir því sem þar kom fram./16 BÍLAR______________ ► 1-4 Fornbílar ►Mestur dýrgripur meðal fombíla á Islandi, Cord 810 árgerð 1936./ 2 Rafbílar ÞÞriggja hestafla Club Car í Hús- dýragarðinum./ 4 FASTIR ÞÆTTIR Fréttir 1/2/4/6/bak Diðari 26 Helgispjall 26 Reykjavikurbréf 26 Minningar 30 Myndasögur 38 Brids 38 Stjörnuspá 38 Skák 38 Bréf til blaðsins 38 I dag/Velvakandi 40 Fólk í fréttum 42 Bíó/dans 43 íþróttir 46 Útvarp/sjónvarp 48 Dagbók/veður 51 Mannlífsstr. 6b Kvikmyndir lOb Dægurtónlist 12b INNLENDAR FRÉTTIR: 2—6—BAK ERLENDAR FRÉTTIR: 1-4

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.