Morgunblaðið - 11.09.1994, Síða 6
6 SUNNUDAGUR 11. SEPTEMBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
> ________
Friðarsamningur Israels og Frelsissamtaka Palestínu
Stuðningur háður snögg-
um efnahagsframförum
Bágborinn efnahagur sjálfstjómar Palest-
ínumanna er mönnum vaxandi áhyggju-
efni í Mið-Austurlöndum segir Björg Páls-
dóttir, blaðamaður í Jerúsalem, sem ræddi
við fulltrúa ísraela og PLO
Dvínandi samstarfsvilji
Fyrir utan nauðsynlega sam-
vinnu um útfærslu og framkvæmd
á ákvæðum Yfirlýsingarinnar um
efnahagstengsl, sem fjárrnálaráð-
herra Israels, Avraham Sochat og
Ahmed Qoreia (Abu Ala) undirrit-
uðu í París 29. apríl og á þeim
ákvæðum sem efnahagssamning-
amir frá í júnímánuði geyma; hefur
lítið farið fyrir samstarfi Israela
og Palestínumanna á efnahagssvið-
inu. Efnahagssamningamir veita
sjálfstjóminni rétt til að setja á
stofn peningastofnun og innheimta
skatta auk þess sem þeir innihalda
m.a. ákvæði um vöruinnflutning
Palestínumanna, sem mun að
mestu fylgja sömu reglum og inn-
flutningur til ísraels. Auk þess létta
ísraelar á höftum varðandi inn-
flutning á vömm og starfskrafti
frá Vesturbakkanum og Gaza en
útflutningur mun allur a.m.k. fyrst
um sinn verða í höndum Israela.
En ágreiningur um ágæti efna-
hagssamninganna og óánægja með
þá jafnt í röðum PLO sem almenn-
ings hefur haft neikvæð áhrif á
samstarfsvilja Palestínumanna.
Aðrar ástæður, stjómmálalegar,
efnahagslegar og tilfinningalegar,
liggja einnig að baki því að frekar
hefur dregið úr efnahagssamvinnu
ísraela og Palestínumanna frá því
friðarsamningarnir voru undirrit-
aðir í fyrra haust. Stríðsástand
hefur ríkt hér um slóðir í áratugi,
í raun allt frá því ísraelsríki var
stofnað 1948 og þúsundir Palest-
ínumanna þurftu að flýja heima-
land sitt. Þótt aðstæður hafi gert
það að verkum að Palestínumenn
og ísraelar hafi tengst böndum á
tilteknum sviðum á undanförnum
áratugum, ríkir lítið traust eða
virðing þeirra í milli. Sérstaklega
eru Palestínumenn lítt hrifnir af
því að ísraelar fái tækifæri til að
viðhalda efnahagslegum áhrifum á
sjálfsstjómarsvæðunum.
Ahmed Qoreia (Abu Ala), fjár-
YASSER Arafat, leiðtogi Frelsissamtaka Palestínumanna
(PLO), ræðir við varaforseta Alþjóðabankans, Caio Koch Wes-
er, á Gaza-svæðinu. Samkvæmt skýrslu Alþjóðabankans um
hina efnahagslegu stöðu Vesturbakkans og Gaza-svæðisins er
iðnaður óvenju vanþróaður þar. Skipulagning öll er sögð í
molum sem og samgöngur og vatnsveita.
málaráðherra sjálfstjórnarinnar,
sagði til dæmis á fundi með palest-
ínskum viðskiptafrömuðum að þeir
ættu fyrst og fremst að beina at-
hygiinni að efnahagssamstarfi við
aðra Palestínumenn.
Næst á forgangslistanum kæmu
önnur Arabaríki, þá helst Egypta-
land og Jórdanía og ef alit annað
brygðist gætu þeir snúið sér til
Israela. Barak Mandy, forstjóri
ísraelska verslunarráðsins, sagði í
samtali við Morgunblaðið að slík
viðhorf Iýst mikilli skammsýni af
hálfu leiðtoga PLO. Kvað hann þá
hafa dvalist of lengi erlendis til að
skilja fyllilega aðstæður.
Simcha Bahiri, hagfræðingur og
formaður Rannsóknar- og upplýs-
ingastofnunar ísraels og Palestínu
tók í sama streng. Hann sagði að
palestínskar vörur og starfskraftur
væru samkeppnishæfar á markaði
í ísrael. En hann taldi að önnur
Arabalönd, sem mörg hver hefðu
svipaða útflutningsvöru og sjálf-
stjórnarsvæðin, myndu standa bet-
ur að vígi í beinni samkeppni. Ba-
hiri kvað það aftur á móti skipta
ísraela litlu máli í efnahagslegu
tilliti hvort víðtækt samstarf kæm-
ist á eða ekki. Núverandi við-
skipti við Palestínumenn samsvara
undir þremur prósentum af þjóðar-
tekjum ísraels og meirihluti þeirra
er fólginn í „innflutningi" á ódýru
palestínsku vinnuafli. Þörfin fyrir
þennan starfskraft hefur hins veg-
ar minnkað verulega með örum
aðflutningi sovéskra/rússneskra
gyðinga til ísraels.
Svört skýrsla
Alþj óðabankans
Það fer ekki á milli mála að efna-
hagsmál eru helsta áhyggjuefni
sjálfstjórnar Palestínumanna enda
ærin ástæða til.
Samkvæmt skýrslu Alþjóða-
bankans um hina efnahagslegu
stöðu Vesturbakkans og Gaza-
svæðisins er iðnaður óvenju van-
þróaður. Skipuiagning öll er sögð
í molum sem og samgöngur og
vatnsveita. í skýrslunni, sem birt
var í árslok 1993, segir og að efna-
hagur Palestínumanna sé óeðlilega
háður einu ríki, ísrael, sérstaklega
hvað varðar „útflutning" á vinnu-
afli. PLO hefur stofnað hvorki
meira né minna en þtjú ráðuneyti
sem starfa munu á vettvangi efna-
hagsmálajijármálaráðuneytið,
ráðuneyti efnahagssamstarfs og
efnahags- og samgönguráðuneytið.
Auk þess hafa ótai nefndir og
stofnanir verið settar á laggirnar,
sú mikilvægasta nefnist Uppbygg-
EFTIR nokkurra vikna fár
í kjölfar friðarsamning-
anna milli Jórdaníu og
ísraels í lok júlí hefur
athygli ísraelskra ijölmiðla aftur
beinst að Palestínumönnum. Þó að
sjaldnast skorti fréttaefni frá her-
teknu svæðunum ber bágborinn
efnahag hinnar nýju sjálfstjómar
Palestínumanna einna helst á
góma. Þó að sumir vilji kenna,
skipulagsleysi og þtjósku Frelsis-
samtaka Palestínu (PLO) um, ligg-
ur ljóst fyrir að batni efnahags-
ástand á umráðasvæði sjálfstjórn-
arinnar ekki vemlega innan
skamms mun stuðningur við friðar-
samningana dvína. PLO hefur
vaknað upp við vondan draum og
þurft að horfast í augu við þá stað-
reynd að uppbygging og stjóm
landsvæðis er alls enginn barnale-
ikur. Túnis er ekki það sama og
Gaza ekki síst þar sem stjórnin er
að mestu háð fjáröflun erlendis frá
undir vökulum augum Alþjóða-
bankans.
Stjóm ísraels virðist einnig vera
farin að gera sér betur grein fyrir
því að PLO og leiðtogi samtak-
anna, Yasser Arafat, þurfa á full-
um stuðningi og aðstoð ísraela að
halda. Breytir þá engu sú staðreynd
að erfítt er fyrir marga ísraela að
sætta sig við að viðtakandinn sé
PLO, samtök sem í áraraðir voru
helsti andstæðingur ísraelsríkis.
Forsætisráðherra ísraels, Yitzhak
Rabin og Shimon Perez, utanríkis-
ráðherra, hafa því undanfamar vik-
ur ítrekað lýst opinberlega yfir því
að flýta þurfa fyrir greiðslum til
sjálfstjómarinnar. Samningamenn
ísraela hafa því slakað örlítið á
kröfum í viðræðum um yfirfærslu
stjómar á herteknu svæðunum fýr-
ir utan Gaza og Jeríkó og heitið
að skila Palestínumönnum 75% af
þeim skatttekjum sem þar hafa
verið innheimtar. Nákvæm upphæð
liggur ekki fyrir.
ingar- og þróunarstofnun Palestín-
uráðsins (PECDAR). Sú stofnun,
sem er undir stjórn Abu Ala fjár-
málaráðherra, hefur yfirumsón
með dreifingu fjármuna.
Fulltrúar sjálfstjórnar PLO hafa
kvartað hástöfum undan því að þær
34 þjóðir sem hétu 2,4 milljörðum
Bandaríkjadala hafi ekki staðið við
skuldbindingar sínar. Faisal Hus-
seini, formaður samninganefndar
PLO, kvað þetta vera eitt stærsta
vandamálið sem sjálfstjórnin ætti
við að glíma. Að auki hefðu Palest-
ínumenn, búsettir erlendis, heldur
ekki tekið af skarið.
Því væri sjálfstjórnin í raun föst
í vítahring; palestínskir fjárfestar
biðu eftir því að ástandið batnaði
bæði í efnahagslegu og stjórnmála-
legu tilliti áður en þeir væru tilbún-
ir til að setja fjármuni sína í verk-
efni á Vesturbakkanum og Gaza-
ströndinni. Til þess að ástandið
batnaði þyrfti hins vegar að koma
til fjárhagsaðstoð frá Palestínu-
mönnum búsettum erlendis.
Ófullkomnar áætlanir
Talsmenn Alþjóðabankans, sem
opnað hefur skrifstofur á Gaza og
hefur umsjón með erlendri fjár-
hagsaðstoð, segja aftur á móti að
sjálfstjórnin hafi ekki uppfyllt kröf-
ur um nákvæmar kostnaðaráætlan-
ir, ftjáls útboð verkefna, áætlaðan
launakostnað eða birt yfirlit yfir
fjölda starfsmanna. Yasser Arafat
hefur fyrir sitt leyti lýst því yfir
að með því að setja skilyrði fyrir
íjárhagsaðstoð séu styrktarþjóðirn-
ar að blanda sér í innanríkismál
Palestínumanna.
Hamdi Khawajka, efnahagsráð-
gjafi PECDAR, vildi ekki taka svo
djúpt í árinni. Hann sagði í sam-
tali við Morgunblaðið að vandinn
væri margvíslegur og að styrktar-
þjóðirnar yrðu að gera sér ljóst að
Palestínumenn hefðu enga reynslu
í slíkum málum auk þess sem verið
væri að hefja uppbyggingu frá
grunni. Khawaja taldi helstu
vandamál sjálfstjómarinnar vera
reynsluleysi, skort á samhæfingu
milli stofnana og ráðamanna,
tímaskort, pólitískar aðstæður og
yfirþyrmandi fjölda verkefna.
ísraelsstjóm hefur bannað PLO
að setja upp stofnanir í Jerúsalem
til að koma í veg fyrir að sjálf-
stjórnin geri alvöru úr kröfum sín-
um um að Jerúsalem verði höfuð-
borg Palestínu.
Fátæktin versti óvinurinn
Stjórn PLO á sér þó enn stuðn-
ingsmenn. Norðmaðurinn Terje
Röd Larsen, einn af upphafsmönn-
um friðarsamninganna í Ósló í
fyrra sem nú fer með embætti sér-
staks samræmingarráðunautar
Sameinuðu þjóðanna á Gaza-svæð-
inu, sagði í viðtali við fréttastofu
Reuters að fátæktin væri versti
óvinur friðarsamninganna. Þó að
ekki ríki samstaða um úrlausnir
eru flestir sammála um nauðsyn
þess að lífsskilyrðum Palestínu-
manna á herteknu svæðunum þurfi
að gjörbylta á sem skemmstum
tíma. Tíminn einn mun leiða í ljós
hvort ísraelum og styrktarþjóðun-
um 34 tekst þetta.
Fyrir krakkana 4-15 ára
•myndlist
•tónlist
leiklist
dans
HÚ5I&
Leiklist
spunasmiðja
leiksmiðja 16-18 ára
leiksmiðja Kramhússins
leyndir draumar fyrir 25 ára og eldri
Leikfímifyriralla
músíkleikfimi •
tai-chi •
jóga •
callanetics •
bakleikfimi •
breiðu bökin •
púltími (6 vikur) -
Dans
afró •
jass •
salsa •
modern •
Símar:
15103
&
17860