Morgunblaðið - 11.09.1994, Síða 16

Morgunblaðið - 11.09.1994, Síða 16
16 SUNNUDAGUR 11. SEPTEMBER 1994 MORGUNBLAÐIÐ Morgunblaðið/Jón Páll Ásgeirsson LÍNUDANS. Strandgæsluskipið Grimsholm fylgir Víði EA sem kippir innan norsku fiskveiðilögsögunnar. Á móti þeim dregur Haraldur Kristjánsson HF flottrollið nákvæmlega á línunni. _____________________________________________________________________ Stór hluti íslenska togaraflotans stundar nú veiðar í Smugunni í Barentshafí og þar eru 700-800 íslenskir sjómenn að störfum. Helgi Bjamason segir frá lífínu þar norður frá en hann sigldi með togaranum Runólfí í Smuguna, fór á milli skipa til að spjalla við siómenn og síðan með varðskipinu Óðni í land í Hammerfest. Morgunblaðið/Helgi Bjamason ARNI Jónasson yfírstýrimað- ur á Óðni dregur norska fán- ann að hún þegar siglt er inn til Hammerfest. Lífíð í íslendinganýlendunni í Smugunni einkennist af mikilli vinnu í aflahrotun- um, sumir gætu sagt þræl- dómi. Þá standa menn frí- vaktir eins og þörf er á og þeir geta, til að bjarga verðmætunum sem komin eru um borð. Sjómenn- irnir voru orðnir ansi þreyttir eft- ir tólf sólarhringa góða veiði. Veiðarnar á þessu hafsvæði sem enginn á og enginn stjórnar ein- kennast að sumu leyti af gullgraf- arahugsunarhætti. Umgengnin um auðlindina er í sumum tilvik- um sjálfsagt ekki til fyrirmyndar og sjómennirnir sjálfir töluðu oft um það að nauðsynlegt væri að ná samningum við Norðmenn þannig að veiðarnar gætu farið fram undir eðlilegri stjóm. Sópað yfir línuna Mjög góð samvinna virðist vera meðal skipstjóranna í Smugunni, mun betri en á heimamiðum segja menn. Þeir veita hveijir öðrum upplýsingar í gegn um talstöðina. Mikið er spurt um það hvemig fiskurinn gangi inn í veiðarfærin, hvar flotvarpan sé í sjónum og hvað holið hafi gert. Til þess að reyna að rugla norsku strand- gæslumennina sem vafalaust hlusta á talstöðina gefa þeir afl- ann upp í nafnakvóta þar sem hver ráðherra merkir ákveðinn tonnafjölda og síðan er spilað út frá því. Það er hins vegar spurn- ing hvort Norðmennimir hafi ekki fyrir löngu komið sér upp lykli að þessu einfalda dulmáli. Skipin hafa mikið veitt við

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.