Morgunblaðið - 11.09.1994, Blaðsíða 16
16 SUNNUDAGUR 11. SEPTEMBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
Morgunblaðið/Jón Páll Ásgeirsson
LÍNUDANS. Strandgæsluskipið Grimsholm fylgir Víði EA sem kippir innan norsku fiskveiðilögsögunnar. Á móti þeim dregur Haraldur Kristjánsson HF flottrollið
nákvæmlega á línunni. _____________________________________________________________________
Stór hluti íslenska togaraflotans stundar nú
veiðar í Smugunni í Barentshafí og þar eru
700-800 íslenskir sjómenn að störfum.
Helgi Bjamason segir frá lífínu þar norður
frá en hann sigldi með togaranum Runólfí
í Smuguna, fór á milli skipa til að spjalla
við siómenn og síðan með varðskipinu
Óðni í land í Hammerfest.
Morgunblaðið/Helgi Bjamason
ARNI Jónasson yfírstýrimað-
ur á Óðni dregur norska fán-
ann að hún þegar siglt er inn
til Hammerfest.
Lífíð í íslendinganýlendunni í
Smugunni einkennist af
mikilli vinnu í aflahrotun-
um, sumir gætu sagt þræl-
dómi. Þá standa menn frí-
vaktir eins og þörf er á og þeir
geta, til að bjarga verðmætunum
sem komin eru um borð. Sjómenn-
irnir voru orðnir ansi þreyttir eft-
ir tólf sólarhringa góða veiði.
Veiðarnar á þessu hafsvæði sem
enginn á og enginn stjórnar ein-
kennast að sumu leyti af gullgraf-
arahugsunarhætti. Umgengnin
um auðlindina er í sumum tilvik-
um sjálfsagt ekki til fyrirmyndar
og sjómennirnir sjálfir töluðu oft
um það að nauðsynlegt væri að
ná samningum við Norðmenn
þannig að veiðarnar gætu farið
fram undir eðlilegri stjóm.
Sópað yfir línuna
Mjög góð samvinna virðist vera
meðal skipstjóranna í Smugunni,
mun betri en á heimamiðum segja
menn. Þeir veita hveijir öðrum
upplýsingar í gegn um talstöðina.
Mikið er spurt um það hvemig
fiskurinn gangi inn í veiðarfærin,
hvar flotvarpan sé í sjónum og
hvað holið hafi gert. Til þess að
reyna að rugla norsku strand-
gæslumennina sem vafalaust
hlusta á talstöðina gefa þeir afl-
ann upp í nafnakvóta þar sem
hver ráðherra merkir ákveðinn
tonnafjölda og síðan er spilað út
frá því. Það er hins vegar spurn-
ing hvort Norðmennimir hafi ekki
fyrir löngu komið sér upp lykli
að þessu einfalda dulmáli.
Skipin hafa mikið veitt við