Morgunblaðið - 11.09.1994, Síða 18

Morgunblaðið - 11.09.1994, Síða 18
■k'4\ MORGUNBLAÐIÐ 18 SUNNUDAGUR 11. SEPTEMBER 1994 + TAKIÐ ÞÁTT í SPENNANDI SAMKEPPNI UM FRUMLEGASTA MYNDEFNIÐ í LIT! Við leitum að frumlegasta myndefninu í lit. Kynnið ykkur reglurnar hjá næsta viðurkennda söluaðila HP á íslandi og takið þátt í spennandi samkeppni. Skilafresturertil 20. septembernk. TÆKNI- 0G TOLVUDEILD BU n I «BÍX úþ Heimilistæki hf Sætúni 8 - Sími 691500 Tæknival Skeifunni 17 - Simi 681665 i ÖRTÖLVUTÆKNI: Skeifunni 17 - Sími 687220 NAÐU TÖKUM A NYJU TUNGUMÁLI Á METTÍMA Málaskólinn Mímir - Hraönámstækniaðferðir við tungumálanám. Yfirkennari Mímis, Sara Biondani, hefur þróað og þjálfað hrað- námskennsluaðferðir sem nýttar hafa verið á námskeiðum Mímis sl. 2 ár. ENSKA - ÞÝSKA - SPÆNSKA Almenn tungumálanámskeið hefjast í vikunni 19.-23. sept. Sarah, enskukennari og kennslustjóri. TUNGUMÁL í VIÐSKIPTUM • SÉRKENNSLA • TUNGUMÁLANÁM FYRIR FJÖLSKYLDUNA • SAMTALSHÓPAR FYRIR LENGRA KOMNA 20-60 KENNSLUSTUNDA NÁM Úrvals kennarar - Úrvals kennsluaðferðir - Hagkvæmt verð Málaskólinn Mímir er í eigu Stjórnunarfélags íslands. Sími10004 LISTIR KRISTINN Sigmundsson og Jónas Ingimundarson. „Tónlist fyrir allau Kristinn Sigmundsson syngur á Selfossi KRISTINN Sigmundsson og Jónas Ingimundarson heimsækja Selfoss nú í vikunni og koma fram á tónleik- um í sal fjölbrautaskólans á fimmtu- dagskvöldið kl. 20.30. Þessir tónleik- ar þeirra félaga marka upphaf heim- sókna í vetur undir samhoitinu „Tón- list fyrir alla“. Þetta er þriðja árið sem tónlistarfólk í fremstu röð heim- sækir skólaæsku kaupstaðarins, en hverri heimsókn lýkur með opinber- um tónleikum. Kynningarátakið „Tónlist fyrir alla“ er samstarf Akra- ness, Selfoss og Kópavogs og verða fjórar heimsóknir í vetur á hvern stað og kemur fjöldi fólks þar við sögu. Líkt og síðastliðið ár mun Sinf- óníuhljómsveit íslands heimsækja staðina, en mörgum eru í fersku minni tónleikar hljómsveitarinnar síðastliðinn vetur í þessu samhengi. Á tónleikum þeirra Kristins og Jónasar verða flutt íslensk og erlend lög og aríur af ýmsu tagi. Kristinn Sigmundsson hefur tekið þátt í hljóðritunum með ýmsum þekktum hljómsveitum, svo sem Drottningholm-hljómsveitinni sænsku, Hljómsveit átjándu aldar- innar og Sinfóníuhljómsveit Berlínar. Á næstunni mun hann syngja eitt aðalhlutverkið í óperunni „Selda brúðurin" eftir Smetana í Genf og hlutverk Mefistofelesar í „Fordæm- ingu Fásts‘1 eftir Berlioz í París. Þess má geta að hann undirritaði nýlega samning við Scala-óperuna í Mílanó. Þar mun hann syngja eitt af burðarhlutverkunum í Rínargulli Wagners snemma árs 1996. Á dögunum var Kristinn tilnefndur til menningarverðlauna Norður- landaráðs og upptakan á Töfraflaut- unni þar sem Kristinn syngur stórt hlutverk hefur verið tilnefnd sem bezta upptaka á óperu síðastliðið ár af tónlistartímaritinu The Grammo- phon. Jónas Ingimundarson píanó- leikari hefur verið mjög virkur í tón- listarlífmu sem einleikari og einnig leikið með fjöldamörgum söngvurum um áraraðir og hefur samstarf þeirra Kristins staðið í meira en áratug.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.