Morgunblaðið - 11.09.1994, Side 40
40 SUNNUDAGUR 11. SEPTEMBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
Leikfimi fyrir konur
Leikfimi fyrir konur á öllum aldri hefst í
Melaskóla þriðjudaginn 20. sept.
Upplýsingar og innritun í síma 73312
alla daga eftir kl. 18.
Ingibjörg Jónsdóttir fþróttakennari
4-
GERÐU
JÓLAINNKAUP
á rýmingarsölunni hjá okkur 12. til 14. september.
Sloppar, náttföt, handklæði o.fl.
með miklum afslætti.
Bað- og saunavörur,
Faxafeni 12, Reykjavík, s. 883830.
i
MYNDÞERAPÍA
Verklegt námskeið
(Intensive Art Therapy Workshop)
Námskeiðið er fyrst of fremst ætlað fagfólki á kennslu-, uppeldis-,
félags- og heilbrigðissviðum og jafnframt öðru starfsfólki
á viðkomandi stofnunum.
Námskeiðið veitir þátttakendum tækifæri til að æfa sig i:
# Sjálfstjáningu í gegnum eigin myndsköpun
• Sjálfskoðun útfrá viðkomandi myndum
• Gagnkvæmri tjáningu og miðlun í hópumræðum
# Sjálfsstyrkingu
Hámarks fjöldi er 9 manns í hópi og
þátttakendur þurfa ekki að hafa
neina æfingu í teiknun.
Kennari er
Sigríður Björnsdóttir
Löggiltur meðlímur I “British Association-of Art Therapists".
Innritun og nánari upplýsingar (slma 17114 flest kvöld ,
frá og með sunnudagskvöldi 11. september nk.
Byggðastofnun vill ráða
sérfræðing til starfa á Egilstöðum
Byggðastofnun auglýsir laust til umsóknar starf sérfræðings
við skrifstofu stofnunarinnar á Egilstöðum. Leitað er að
einstaklingi með háskólamenntun á viðskipta- eða tæknisviði.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra
bankamanna og bankanna.
Umsóknir skulu sendar Guðmundi Malmquist, forstjóra
Byggðastofnunar, fyrir 1. október 1994.
Upplýsingar um starfið veita Elísabet Benediktsdóttir á
skrifstofu Byggðastofnunar á Egilstöðum og Guðmundur
Malmquist, Byggðastofnun, Reykjavík.
Byggðastofnun
Rauðarárstig 25,105 Reykjavík,
sími 91 -605400, bréfsími 91 -605499, græn lína 99-6600.
Miðvangi 2-4, 700 Egilstöðum,
sími 97-12400, bréfsími 97-12089.
"HEYRÐU"
Dansskólinn er fluttur að Hamraborg 1, 3. hœð.
Kennum einnig í HjaUaskóla.
Y
Bamadansar og leikir,
"freestyle"
samkvæmis- og gömludansar,
tjútt og rokk
salsa og suðrænir.
Dagný Björk
clanskcnnari
Innritun stendur yfir í síma 642535.
Fyrsti kennsludagur 13. sept.
ÍDAG
VELVAKANDI
Svarað í síma 691100 frá 10-12 og 14-16 frá mánudegi til föstudags
Ábending til
bifreiðastjóra
MIG LANGAR til að koma
á framfæri við ökumenn
einfaídri formúlu sem þeir
geta haft í huga og hjálpar
þeim að gera sér grein fyr-
ir yfirferð bifreiðar sinnar
á mismunandi hraða og hve
nauðsynlegt er að hafa
aldrei augun af umferð-
inni. Til dæmis bifreið á
60 km hraða fer 16,66 m
á sekúndu. Ef sú bifreið
lendir á kyrrstæðri bifreið
og til dæmis bifreiðastjóri
er 80 kíló á þyngd eykst
þyngd hans við áreksturinn
upp í 1.333 kíló. Þá má
ganga út frá því að óbund-
inn maður í aftursæti af
sömu þyngd þýtur út um
framrúðu eins og byssu-
kúla. Formúlan er 60
km/klst. = 16,66 m/sek. x
80 = 1.333 kg.
Þorsteinn B. Sigurðsson
„Haustlauf“
Þorbjargar
Pálsdóttur
ÉG, Þorbjörg Pálsdóttir,
leita að konu sem ég átti
samtal við í Sundlaug Sel-
tjamarness, og tjáði' hún
mér að hún ætti fallegt
postulínsbollastell sem hún
hefði erfb, málað af mér.
Mynstrið er haustlauf, í
sinni litadýrð. Það eru
nokkur ár síðan við áttum
tal saman.
Vegna sýningar minnar
á höggmyndum o.fl. sem
verður um miðjan septem-
ber, langar mig að hafa
samband við hana.
Síminn hjá mér er
21080.
Þorbjörg Páisdóttir,
Sjafnargötu 14,
Reykjavik.
Gæludýr
Hvolpur í
heimilisleit
KUBBUR er svartur, fall-
egur og barngóður 11
mánaða hvolpur. Vegna
sérstakra ástæðna vantar
hann gott heimili. Upplýs-
ingar í síma 41993.
Mosi er týndur
ÞRIGGJA mánaða kettl-
ingur hvarf frá Víðimel 62
7. september. Hann er
bröndóttur á baki, hvítur á
kvið og fótum og með grá-
grænan blett undir hök-
unni. Hann er með svarta
61. Fólk er beðið að svipast
um eftir honum. Upplýs-
ingar í símum 18965,
14710 á kvöldin og vinnu-
síma 694176. Ása.
Tapað/fundið
Hálsmen tapaðist
GULLKEÐJUHÁLSMEN
tapaðist á leiðinni frá
Skólavörðuholti að Elli-
heimilinu Grund og aftur
til baka sl. sunnudag.
Finnandi vinsamlega
hringi í síma 26243 eða
vinnusíma 602600. Karen.
Farsi
SKÁK
Umsjón Margeir
Pétursson
01994 Farcu* Cartoona/DMMxAod by Untvorul Pwi Syndcat*
UAIS&LÆCS/cMLrUA(LT
„ Eg hefc/ ekkX. cúb f>e&sL breyting á,
vtnrujstaiarnenningu borgC seg."
ÞESSI staða kom upp á
Credid Suisse-mótinu í
Horgen í Sviss sem nú stend-
ur yfir. Christopher Lutz
(2.580), Þýskalandi, hafði
hvítt og átti leik en Englend-
ingurinn Tony Miles (2.600)
var með svart.
23. Rb5! - Hxe3, 24. Rxc7
- Hxel, 25. Hxel - Kf8,
26. Bxe7+! - Rxe7, 27.
exd6 - f5, 28. Hxe7 -
fxg4, 29. Re6+ — Kg8, 30.
Hxe8+ - Bf8, 31. Rxf8 -
Kf7, 32. Hel - Rxf8, 33.
Bxg4 og með tveimur peðum
yfir vann Lutz skákina auð-
veldlega.
LEIÐRÉTT
Skógræktardagur á
Ásvöllum
í frétt Morgunblaðsins á
föstudag, á bls. 39, var
sagt frá uppgræðslu og
skógrækt á íþrótta- og
útivistarsvæðis Hauka á
Ásvöllum. Þar kom fram
að skógræktardagur yrði
haldinn á Ásvöllum í dag,
sunnudag, og hefst hann
kl. 13 en ekki kl. 10 eins
og kom fram. Morg-
unblaðið biðst velvirðing-
ar á þessum mistökum.
Rangur myndatexti
í fréttatilkynningu frá
Leikfélagi Reykjavíkur í
Morgunblaðinu á föstu-
dag um frumsýningu á
leikverkinu Óskinni var
Benedikt Erlingsson
rangfeðraður og er beðist
velvirðingar á því.
Víkverji skrifar...
Tíminn' hann er fugl sem flýgur
hratt, hann flýgur máski úr
hendi þér í nótt!
Eitthvað á þessa leið hljóða hend-
ingar sem komu Víkveija í hug
þegar hann gerði sér ljóst, að haust-
ið er þegar í hlaðvarpanum.
Ekki er langt síðan, eða svo
finnst Víkveija, að náttlaus vorald-
arveröld ríkti hér á norðurhjara, að
sól sást í norðri um miðnæturskeið!
Nú dimmir á hinn bóginn kvöld
hvert og fyrr með hveijum sólar-
hringnum sem líður. Haustjafndæg-
ur eru 23. þessa mánaðar og haust-
mánuður [síðasti mánuður fyrir
vetur að fornu tímatali] hefst dag-
inn áður, næsta fimmtudag eftir
19. september. Við siglum sum sé
í átt til hins svarta skammdegis.
xxx
Annmarkar vetrar voru feiri og
meiri fyrr á tíð, áður en nú-
tímasamgöngur, nútímafjarskipti
og nútímatækni komu til sögunnar.
Það var erfiðara að þreyja langa,
dimma og harða vetur á öldum
áður þegar húsnæði, klæðnaður,
samgöngur og aðstaðan til að sækja
lífsbjörgina til lands og sjávar voru
með allt öðrum og frumstæðari
hætti en nú er.
Í þjóðfélagi líðandi stundar hefur
veturinn fjölmargar jákvæðar og
skemmtilegar hliðar. Skóla af hvers
konar gerð, margslungið félags- og
skemmtanalíf og vetraríþróttir, sem
setja svip sinn á tilveruna. Klúbbar,
félög, leikhús og menningarstofn-
anir herða róðurinn, svo segja má,
að hörð samkeppni ríki um tóm-
stundir fólksins.
Veturinn er núorðið líflegasti tími
mannlegra og menningarlegra sam-
skipta. Því má hins vegar ekki
gleyma að einsemdin er ennþá til —
og verður hvað sárust í fjölmenninu!
xxx
Myrkrið hefur að sjálfsögðu
„skuggahliðar“ sem fyrrum.
Myrkfælni er til dæmis mannlegur
fylgifiskur enn í dag, þrátt fyrir
raflýsingu. Verstur er þó sá myrkvi
sem leggst á huga og sál.
Staðreynd er engu að síður að
ljósið skín hvergi skærar en í myrkr-
inu. Engin ljós eru fegurri en jóla-
ljósin í skammdeginu. Þau lýsa
gegnum innri sorta sem ytri.
Dökkir litir hafa og sína fegurð
ekkert síður en ljósir, líka sá svarti.
„Krummi gamli er svartur og
krummi er fuglinn minn“, sagði
þjóðskáldið úr Fagraskógi.
Og dökkur bjór hefur og vinning-
inn yfir ljósan, að smekk Víkveija,
sem metur írskan Guinness að verð-
leikum. Máski hefur bjórinn, sem
einheijar drukku í kvöldhúmi Val-
hallar, eftir að hafa barið hver á
öðrum daglangt, fallið í valinn og
risið aftur upp til drykkjunnar, ver-
ið dökkbjór.
xxx
Aldrei var þurrð matar _ eða
drykks með einheijum. Ólaf-
ur Briem kemst svo að orði um vist
þeirra í Valhöll:
„Að drykk hafa þeir mjöð. Hann
er þannig til orðinn, að geit sú, er
Heiðrún heitir [eins og ÁTVR-útsal-
an í Árbæ], stendur uppi í Valhöll
og bítur barr af limum trés, er
Læraður heitir, og úr spenum henn-
ar rennur mjöður svo mikill, að all-
ir einheijar verða fulldrukknir af. í
Valhöll er heldur aldrei vistafátt.
Til matar hafa einherjar gölt þann,
er Sæhrímnir heitir; honum er slátr-
að á hveijum degi, en alltaf er hann
heill að kvöldi, og aldrei er svo
mikill mannfjöldi í Valhöll, að þeim
endist ekki flesk galtarins ...“
xxx
En aftur að vetrarhegðan nu-
tíma íslendinga. Enn er ótalin
sú dægrastyttingin, sem var í hvað
mestum metum vonandi gengin
kreppuár: utanferðir til innkaupa.
Þar var dökkbjórsborgin Dublín of-
arlega á blaði. Eða eins og karlinn
sagði:
Ljúfur er ljóðakórinn
sem lyftist til flugs í dag
og dettur í dökkan bjórinn
í Dublín við sólarlag!