Morgunblaðið - 29.09.1994, Blaðsíða 8
8 FIMMTUDAGUR 29. SEPTEMBER 1994
FRETTIR
Vínsjóir Suöur-Evrópnríkja eru aö kaffæra e&iahag Evrópusambandsins: ■
Þau eru að spyija hvort EES-samningurinn tryggi þeim ekki líka þetta námsefni, hr.
menntamálaráðherra?
Ákvörðun um húsaleigubætur þarf að taka fyrir 1. október
Ráðuneytið segir ekki
hægt að fresta ákvörðun
FÉLAGSMÁLARÁÐUNEYTIÐ seg-
ir að ekki sé hægt að gefa sveitarfé-
lögum frest á að taka ákvörðun um
það hvort húsaleigubætur verða
greiddar út í viðkomandi byggðarlög-
um, en bæjarstjórnir Akureyrar,
Kópavogs og Hafnarfjarðar hafa far-
ið þess á leit við ráðuneytið. Segir
ráðuneytið að það sé ekki í þess valdi
að breyta lögum sem gildi í þessum
efnum. Sveitarfélög þurfa að taka
ákvörðun um greiðslu húsaleigubóta
fyrir 1. október og tilkynna það fé-
lagsmálaráðuneytinu fyrir 1. nóvem-
ber, samkvæmt lögum sem samþykkt
voru í vor og taka gildi í upphafi árs
1995. Fram hefur komið að Húsavík
og ísafjörður hafa tekið ákvörðun
um að greiða ekki út húsaleigubætur
og það sama gildir um Blönduós, en
að Reykjavík ætlar að gera það.
Málið verður rætt á reglulegum
stjómarfundi í Sambandi íslenskra
sveitarfélaga á morgun, föstudag.
Samkvæmt lögunum taka ríki og
sveitarfélög sameiginlega þátt í
greiðslu húsaleigubóta. Eiga sveitar-
félögin að sjá um útgreiðslu bótanna
og greiðir ríkið þeim 60% af útlögð-
um kostnaði. Jöfnunarsjóður sveitar-
félaga annast greiðslurnar. Til þess
að íbúar sveitarfélags eigi rétt á
greiðslu bóta þarf viðkomandi sveit-
arstjóm að taka ákvörðun þar að
Iútandi vegna næstkomandi árs fyrir
1. október og tilkynna það ráðuneyt-
inu ásamt áætlun um upphæð bót-
anna fyrir 1. nóvember.
21 þúsund hæst á mánuði
Reglugerð félagsmálaráðuneytis-
ins um fjárhæð og útreikning húsa-
leigubóta vargefin út 14. september
síðastliðinn og nefnd á vegum ráðu-
neytisins þar sem í eiga sæti þrír
fulltrúar Sambands íslenskra sveitar-
félaga vinnur nú að nánari útfærslu
á framkvæmdinni. Húsaleigubætur
geta ekki numið hærri upphæð en
50% af leiguupphæð og geta aldrei
orðið hærri en 21 þúsund krónur á
mánuði. Þær reiknast þannig að fyr-
ir hverja íbúð greiðist sjö þúsund
króna grunngjald og síðan bætast
Lög um húsaleigubætur
voru samþykkt í vor og
verða þær greiddar út á
næsta ári, en það er í
valdi hvers og eins
byggðarlags að ákveða
slíkt. Sjónarmið til lag-
anna eru mismunandi.
við 4.500 krónur fyrir fyrsta bam,
3.500 krónur fyrir annað bam og 3
þúsund krónur fyrir það þriðja. Að
auki bætist við 12% þeirrar leigufjár-
hæðar sem er á bilinu 20 til 45 þús-
und krónur. Bætumar eru eigna- og
tekjutengdar og skerðast óháð ijöl-
skyldustærð um 2% af árstekjum
umfram 1,5 milljón króna. Ef eignir
að frádregnum skuldum eru umfram
þijár milljónir króna er 25% þess sem
umfram er bætt við þær tekjur sem
liggja til grundvallar ákvörðun bót-
anna.
í athugasemd sem félagsmála-
ráðuneytið hefur látið frá sér fara
vegna gagnrýni sem fram hefur kom-
ið á lögin um að í þeim séu vafaatr-
iði og þau gangi í þveröfuga átt varð-
andi það að aðskilja verkefni ríkis
og sveitarfélaga, segir að gagmýnin
byggist á sömu sjónarmiðúm og for-
ysta Sambands íslenskra sveitarfé-
laga hafi haft uppi er Iögin voru
samþykkt á Alþingi. Af því tilefni
hafi ríkisstjómin samþykkt fyrir
setningu laganna að ganga til við-
ræðna við forráðamenn sveitarfélag-
anna og „komi í ljós í þeim viðræðum
að óhjákvæmilegt sé að gera breyt-
ingar á lögunum til að gera fram-
kvæmd þeirra markvissari verða slík-
ar tillögur lagðar fram á haust-
þingi“. Sfðan segir: „Á grundvelli
þessa samkomulags hefur félags-
málaráðherra átt viðræður við for-
ystumenn Sambands íslenskra sveit-
arfélaga um framkvæmd laganna.
Engar tillögur komu þar fram um
breytingar á lögum um húsaleigu-
bætur. í kjölfar þessara viðræðna
skipaði félagsmálaráðherra nefnd
skipaða fulltrúum félagsmálaráðu-
neytis og Sambands íslenskra sveit-
arfélaga til þess að vinna að undir-
búningi laganna, þ.m.t. að vinna að
undirbúningi reglugerðar um sam-
skipti sveitarfélaga við jöfnunarsjóð
og hvemig standa eigi að upplýsinga-
gjöf og annarri framkvæmd laganna.
Fulltrúar Sambands íslenskra sveit-
arfélaga í nefndinni eru þau Lára
Bjömsdóttir, félagsmálastjóri í
Reykjavík, Sveinn Ragnarsson, fyrr-
verandi félagsmálastjóri, og Magnús
Karel Hannesson, sveitarstjóri Eyr-
arbakka. Nefndin hefur átt gott sam-
starf og hefur verið sammála um
undirbúning og framkvæmd," segir
í athugasemdinni.
Þá er gagnrýnt að bæjarfélögin
Húsavík og ísafjörður ákveði að
hafna möguleika á húsaleigubótum
fyrir íbúa sína án þess að reyna að
afla sér frekari upplýsinga hjá fé-
lagsmálaráðuneytinu um fram-
kvæmd mála.
Þórður Skúlason, framkvæmda-
stjóri Sambands íslenskra sveitarfé-
laga, segir að Sambandið hafi ætíð
gert mikiar athugasemdir við það
samkrullskerfi ríkis og sveitarfélaga
sem verið sé að koma .upp með þess-
um lögum. Sveitarfélögin greiddú
húsaleigubætur eftir sínum eigin
reglum og þá í tengslum við aðra
fjárhagsaðstoð. Þau hefðu ævinlega
lagt það til þegar lagafrumvarpið var
í deiglunni að ríkið tæki upp kerfi á
eigin forsendum ljkt og vaxtabóta-
kerfið. Þessu kerfi fylgdi mikill auka-
kostnaður fyrir sveitarfélögin bæði
hvað varðaði framkvæmdina, sem
sveitarfélögin ættu að sjá um, og
fjármögnun.
Hann sagði að Sambandið sem
slíkt hefði ekki tekið afstöðu í þessum
efnum og hvert'og eitt sveitarfélag
yrði að meta það á eigin forsendum
hvort það tæki þátt í þessu húsa-
leigubótakerfi eða ekki.
MORGUNBLAÐIÐ
Ráðgjafi um landgræðslu
Island sem köld
og blaut eyðimörk
David Sanders
David Sanders var
alinn upp á sauð-
fjárbúi í Ástralíu
og þykir öllum hnútum
kunnugur hvað land-
græðslu snertir. í starfi
sínu og ferðum um heim-
inn hefur hann aflað sér
mikillar þekkingar á jarð-
vegseyðingu og leiðum til
úrbóta. Markmið heim-
sóknar hans er meðal ann-
ars að kanna möguleika á
samvinnu við erlendar
þjóðir og ráðgjöf og ræða
möguleika íslands í al-
þjóðastarfi á sviði jarð-
vegsrannsókna og -vernd-
ar. Hann er jafnframt öt-
ul! talsmaður þess að auka
ábyrgð almennings í þessu
samhengi.
í hverju er starf þitt
fólgið!
„Aðildarlöndin eru um 170 sem
stendur og við ráðleggjum þeim
einkum um atriði sem snerta land-
búnað. Mitt starfssvið lýtur eink-
um að jarðvegsvemd í tengslum
við uppblástur og eyðingu lands
og ástæða þess að mér var boðið
til íslands er sú gífurlega gróðu-
reyðing sem á sér stað hérlendis
og ég hef séð með eigin augum
síðustu daga.“
Og hvað fmnst þéfl.
„Þær skemmdir sem unnar hafa
verið á umhverfinu frá því landið
byggðist eru ansi umfangsmiklar.
Það má segja í stuttu máli að land-
ið líkist kaldri, blautri eyðimörk,
hversu mótsagnakennt sem það
kann að hljóma. Þeir staðir sem
ég hef kynnt mér eru lítið frá-
brugðnir eyðimerkursvæðum Mið-
austurlanda.“
Kom það þér að óvöruml
„Já, ég var hissa. Það eru til
svæði þar sem einn metri jarðvegs
eða meira hefur fokið upp í tímans
rás. Stór svæði þar sem gróður
er nánast horfinn. Og í umhverfi
þar sem veðurfar er jafn óblítt og
hér tekur það langan tíma fyrir
þessi svæði að jafna sig.“
Er veðrinu um að kenna að ein-
hverju ieyti!
„Nei, ástæðan er sú hvernig
maðurinn nýtir landið. Það tekur
þúsundir ára að skapa jafnvægi í
vistkerfinu, fyrir dýr og plöntur
að þróast í samræmi við
aðstæður í náttúrunni.
Síðan kemur maðurinn
og raskar þessu jafn-
vægi og það sem við
reynum að leggja
áherslu á er sjálfbær búskapur.
Það sem sem gerst hefur hér er
það að landið hefur ekki verið
nýtt í samræmi við náttúrulegar
aðstæður. Ofbeit ér eitt dæmið.“
Er hún aðalástæðatí!
„Svo virðist vera ef marka má
það sem ég hef skoðað á þessum
stutta tíma.“
Hvað með jarðrask og sandfok
af völdum jökulhlaupa. Getur það
ekki átt einhvern hlut að málP.
„Umhverfið hér er afar við-
kværnt vegna þess hversu ungt
landið er jarðfræðilega. Landið er
enn í mótun og þess vegna er land-
rof eitthvað sem ekki má líta fram-
hjá. En vandinn er sá að landið
er nýtt á þann hátt að eyðingin
er hraðari en ella. Ef landið hefði
ekki byggst væri landslagið allt
öðruvísi. Hér væri meiri gróður,
til dæmis. Ef ekkert verður að
gert munu aðstæður fara versn-
andi en ég er búinn að skoða það
sem gert hefur verið og mér virð-
ist sem næsta skref hljóti að vera
að auka vitund almennings. Fólk
hefur vanist landeyðingunni og
lítur því á málin sem svo að- um
náttúnilegt fyrirbæri sé að ræða.“
Hvað getum við gerf!
„Aukið fræðslu hjá yngra fólki
►DAVIÐ Sanders, doktor í
jarðvegsfræðum, hefur verið
yfirmaður jarðvegsverndunar-
sviðs Matvæla- og landbúnaðar-
stofnunar Sameinuðu þjóðanna
frá árinu 1979. Hann hóf störf
hjá áströlsku Iandgræðslunni
árið 1958 og dvelur hérlendis
þessa viku til þess að kynna sér
jarðvegseyðingu á íslandi og
veita ráðgjöf um stefnumörkun
og skipulag landgræðslustarfs
hérlendis.
svo það öðlist aukinn skilning á
umhverfi sínu. Landeyðing er al-
þjóðlegt vandamál og ég ætla að
kynna þær hugmyndir sem upp
hafa komið í öðrum löndum og
helst mega koma að gagni hér.
Helsta áherslubreytingin sem orð-
ið hefur í landgræðslu á undan-
förnum árum er sú að hvetja al-
menning til þess að leggja sitt af
mörkum I stað þess að reiða sig
á hið opinbera.
Þetta hefur ekki gengið sem
skyldi því vandinn er svo stór og
því hefur verið brugðið á það ráð
að auka fræðslu. Almenningi verð-
ur að skiljast áð vandamálip er
hans frekar en stjómvalda. í Ástr-
alíu hafa ýmis byggðarlög tekið
málin í sínar hendur og stofnað
hópa að undirlagi stjómvalda.
Þeir setja síðan á fót ýmis verk-
efni. Bændur á tilteknum stöðum
geta til dæmis lagst á eitt og
æskt fjárframlaga frá
stjórnvöldum.
Einnig má nefna
skólabörn. í Ástralíu fá
böm sérstakan útbúnað
svo þau geti safnað
upplýsingum um gróðurfar. Mælt
vaxtarhraða tijáa eða grass og
safnað upplýsingum fyrir fagfólk
í landgræðslu. Þannig verða þau
beinir þátttakendur, áhuginn
eykst og þau afla sér þekkingar
sem fylgir þeim út ævina.“
Hvað tekur það langan tíma að
hvetja almenning til dáða?
„Það veltur á því hversu mikið
fé stjórnvöld leggja til í upplýs-
ingaherferð ef út í það verður far-
ið. Ég býst við að 5-10 ár séu
ekki fjarri lagi en vegna smæðar
landsins og hás menningarstigs
ætti það að vera frekar auðsótt."
Hversu langt er í það að land-
eyðing hér megi teljast komin úr
böndununf!
„Ég myndi segja að svo væri
þegar komið. Mér brá þegar ég
sá ástandið á nokkrum stöðum.
Þetta hefur gerst á svo löngum
tíma, gegnum aldirnar býst ég
við, að fólk er orðið vant því. Það
gerir sér ekki grein fyrir því að
þetta er af mannavöldum."
Sagt er í íslendingabók að ís-
land hafi verið skógi vaxið milli
ijalls og fjöru.
„Það mætti kannski ganga út
frá þeim punkti til að virkja al-
menning."
Brá þegarég
sá ástandið
sums staðar