Morgunblaðið - 29.09.1994, Page 20
20 FIMMTUDAGUR 29. SEPTEMBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
Litadýrð
flúrsins
MYNPLIST
Ilafnarborg
MÁLVERK/GLER&
GRAFÍK
Margrét Þ. Jóelsdóttir/Dröfn Guð-
mundsdóttir og Margrét Guðmunds-
dóttir. Híifiuirborg: Opið kl. 12-18
alla daga nema þriðjudaga til 10.
október. Aðgangur ókeypis.
Margrét Þ. Jóelsdóttir
ÞAÐ er afar misjafnt hversu
mikið listamenn leggja til þegar
halda skal sýningar;
sumir láta sér nægja
að sýna nokkur verk,
eins konar úrval af
því sem þeir hafa ver-
ið að fást við, en aðrir
sýna mun meira, og
gefa þá ef til vill eins
konar yfirlit yfir vinnu
margra ára. 'Fjöldi
verka á einkasýningu
kann þannig að segja
nokkuð um hvað iista-
fólkið ætlar sér með
sýningunni.
Margrét Þ. Jóels-
dóttir er í raun að
koma inn á sýninga-
vettvanginn á ný, eftir
langt hlé; fyrri einka-
sýningar hennar voru
haldnar í kringum
1970. Hún hefur þó
átt verk á ýmsum
samsýningum í gegn-
um tíðina, en aðeins
þremur á síðustu
fimmtán árum, þann-
ig að segja má að list-
unnendur séu hér að
kynnast henni á nýjan
leik.
Þetta er mjög stór
sýning, því hér eru
yfir sjötíu myndir
unnar með olíulitum,
olíupastel og vatnslit-
um á síðustu átta
árum. Það fyrsta sem vekur at-
hygli er litaspjaldið; í myndunum
rísa á móti áhorfandanum skærir
og heitir gulir, rauðir, grænir og
jafnvel fjólubláir litir, sem geta
gengið þokkalega upp, og má þar
t.d. benda til verka eins og
„Tengsl“ (nr. 4) og „Undiralda“
(nr. 2) meðal olíumálverkanna.
I mörgum öðrum myndum verð-
ur þessi litadýrð hins vegar aðeins
til að undirstrika ofhlæði mynd-
byggingarinnar, sem er misjafn-
lega markviss; þegar best lætur
er miðlægur reitur eða hringur vel
markaður, en síðan er fyllt út í
jaðrana með flúri og skrauti, sem
á stundum yfirtekur verkið og
truflar fremur en styrkir heildina.
Þetta á einkum við olíumálverkin,
og sést einna best þeg-
ar litið er til einfaldari
forma pastelmynda
eins og „Vernd“ (nr.
31) og „Lófalandslag"
(nr. 36), þar sem
klipptir fletirnir
mynda skýra heild.
Hinir skæru litir
verka einnig misvel
eftir þeim miðlum sem
listakonan notar. Lit-
urinn getur verið þétt-
ur og heill í litlum
pastelmyndum eins og
„Leikur“ (nr. 13), en
nær sjaldan sömu fyll-
ingu í olíumyndunum;
vatnslitirnir geta einn-
ig verið erfiðir að
þessu leyti, en meðal
þeirra verka eru bestu
verkin þau sem byggja
á einföldum formum
og heilum litflötum, og
jafnvel skiptingu
verksins eins og í „Vit-
und IV“ (nr. 61).
Sá myndheimur,
sem Margrét er að fást
við hér, snýr í senn að
tilurð lífsins og heimi
leiks og bama; yfir-
skriftin „Gluggað"
bendir til að þar getum
við aðeins horft á utan
frá. Það kraðak, sem
oft einkennir fletina,
er hins vegar ekki líklegt til að
gera þann heim aðlaðandi, og er
nokkuð á skjön við þá nálgun
málverksins, sem við sjáum víðast
í dag; þar ræður oftar en ekki ein-
faldari myndbygging ríkjum, líkt
og í þeim verkum sem njóta sín
best hér.
Dröfn Guðmundsdóttir og
Margrét Guðmundsdóttir
Þær stöllur Dröfn og Margrét
eru ef til vill ágætir fulltrúar hóps,
sem hefur undanfarin ár verið
vaxandi hluti þeirra, sem útskrif-
ast frá listaskólum hér á landi.
Hér er um að ræða fólk sem snýr
sér fyrst að listnámi á miðjum
aldri, eftir að hafa áður sótt
menntun og störf á öðrum sviðum;
áhuginn á listinni knýr það til
nýrra átta. Þess má vænta að fleiri
einstaklingar úr þessum hópi komi
fram á næstu árum, en sýningin
í kaffistofu Hafnarborgar er með
fyrstu sýningum þeirra beggja.
Dröfn sýnir hér nokkur gler-
verk, og þar má segja að gleðin
ríki á yfirborðinu; hér eru fallegir
fiskar á ferð, og líflegir hestar
hoppa um. Mótvægið felst hins
vegar í dökkum grímum, þar sem
breytingin úr gleði í sorg verður
sterk, og er vel mótuð, t.d. í „Um-
breyting 11“ (nr. 13). Flest eru
verkin úr flötu gleri, glæru eða
lituðu, en í öndvegi situr „Víðblá-
inn“ (nr. 1), þar sem fjölþættari
eigindi eru á ferðinni.
Margrét vinnur sín verk í graf-
ík, bæði á hefðbundinn hátt og
með aðstoð myndbandstækninnar.
í flokki mynda með heitum árstíð-
anna er litanotkun afar hóflega
mótuð, en í myndröðinni „Biðin“
er leikið á mismunandi hátt með
sama myndefnið; nr. III_ kemur
einkar skemmtilega út. í vídeo-
grafík byggir Margrét á myndefni
um golf, og hefur hún einnig unn-
ið skjálistaverk út frá því efni, sem
m.a. var valið til sýningar á Nor-
disk Forum í sumar. Þannig er
ljóst að grafíkin heldur áfram að
bjóða upp á ýmsa kosti, um leið
og nýjar listgreinar njóta góðs af
hefðum hennar.
Hér eru á ferðinni vel frambæri-
leg verk hjá þeim stöllum, sem
hefðu átt skilið betra og aðgengi-
legra rými til að njóta sín að fullu.
Eiríkur Þorlákgson
Morgunblaðið/Anna Ingólfsdóttir
Guðlaug Sveinsdóttir
Ijósmóðir.
Guðlaug
Sveinsdóttir
ljósmóðir
heldur list-
sýningu
Guðlaug Sveinsdóttir ljósmóðir hef-
ur opnað myndlistarsýningu á Eg-
ilsstöðum. Sýninguna heldur Guð-
laug í tilefni 70 ára afmælis síns
og tileinkar hana íslenskri náttúru.
Sýndar eru 60 myndir og að auki
leirmunir, glermunir og málaðir tré-
diskar. Myndirnar eru unnar með
vatnslitum, pastel, olíu og einnig
er málað á silki. Flest verkanna eru
unnin á síðustu árum og efni þeirra
er sótt til náttúrunnar. Guðlaug
starfaði sem ljósmóðir á Egilsstöð-
um til fjölda ára, en síðustu ár hef-
ur hún sótt mörg námskeið í mynd-
list, svo sem vatnslitamálun, leirl-
ist, glerlist, tauþrykki. Sýningin er
haldin á Egilsstöðum, í húsnæði
Svæðisskrifstofu málefna fatlaðra
á Austurlandi, og stendur til 2.
október.
-----» ♦ -----
Mæðgin sýna í
listmunahúsi
Ófeigs
MÆÐGININ Iris og Ulf Liljeblad frá
Svíþjóð opna myndlistarsýningu í
listmunahúsi Ófeigs, Skólavörðustíg
5, á morgun, föstudag, kl. 17.
Á sýningunni verða verk Ulfs,
skúlptúrar úr tré og bronsi, vatnslita-
myndir, grafíkverk og teikningar.
Öll verk Irisar, sem er á tíræðis-
aldri, eru unnin með vatnslitum.
Þau mæðgin verða bæði viðstödd
opnunina. Sýningin verður opin alla
virka daga frá kl. 10-18 og laugar-
daga frá kl. 11-16. Sýningin stendur
til 26. október.
Margrét
Guðmundsdóttir
Dröfn
Guðmundsdóttir.
Ljóð, söngur
og sinfónía
á Húsavík
Húsavík, Morgunblaðið.
Síðustu daga hafa Húsvíkingar átt
þess kost að heyra ljóðalestur, söng
og sinfóníutónleika. Safnahúsið og
Húsavíkurbær hafa á ýmsan hátt
minnst 50 ára lýðveldisafmælisins
með listviðburðum. Nýlega var
ljóða- og listakvöld og þá komu
fram og lásu úr verkum sínum ljóð-
skáldin Ingibjörg Haraldsdóttir,
"Steinunn Sigurðardóttir og Einar
Már Guðmundsson. Kristinn Sig-
mundsson og Jónas Ingimundarson
héldu tónleika á föstudaginn var
og síðan liðu ekki nema tveir dagar
þar til Sinfóníuhljómsveitin heim-
sótti bæinn.
Á ljóðakvöldinu las Ingibjörg ein-
göngu óprentuð ljóð, sem væntan-
lega koma út í næstu ljóðabók henn-
ar í upphafi næsta árs. Steinunn
og Einar Már lásu bæði upp úr
bókum sínum og einnig óprentuð
ljóð.
Kristinn Sigmundsson óperu-
söngvari og Jónas Ingimundarson
píanóleikari skemmtu Húsvíkingum
á fjölsóttri söngskemmtun á föstu-
Morgunblaðiö/Silli
INGIBJÖRG, Einar Már og Steinunn.
dagskvöld í sal Tónlistarskólans.
Listamennirnir fluttu sex aukalög,
eftir sextán laga prógram, svo þess-
ir tónleikar stóðu í réttar tvær
klukkustundir.
Sinfóníuhljómsveit íslands hélt
svo tónleika á Húsavík á sunnudag-
inn, á ferð sinni um Norðurland.
Þessir hljómleikar voru líka haldnir
í sal Tónlistarskólans við góða að-
sókn. Hljómsveitarstjóri var Osmo
Vánska og einleikari Sigrún Eð-
valdsdóttir. Tónverkið Díafónía eft-
ir Þorkel Sigurbjörnsson vakti eftir-
Kristinn og Jónas á Húsavík. tekt og ánægju margra áheyrenda.
Vald örlaganna
Gunnsteinn Olafsson
stjórnar næstu sýningum
FRÁ og með 30. sept-
ember verða þær breyt-
ingar á Valdi örlaganna
í Þjóðleikhúsinu að
Gunnsteinn Ólafsson,
kórstjóri og aðstoðar-
hljómsveitarstjóri, tek-
ur við hljómsveitar-
stjórn verksins af
Maurizio Barbacini.
Mun hann stjórna á
næstu fjórum sýning-
um. Eftir það stjórna
þeir til skiptis Rico
Saccani, Maurizio
Barbacini og Gunn-
steinn.
Gunnsteinn Ólafsson.
stundaði nám í fiðluleik
við Tónlistarskóla Kópavogs og Tón-
listarskólann í Reykjavík, í tónsmíð-
um og píanóleik við Franz Liszt-tón-
listarakademíuna í Búdapest, og í
hljómsveitarstjórn og tónfræði við
Tónlistarháskólann í Freiburg.
Gunnsteinn stjórnaði kór Mennta-
skólans í Kópavogi meðan hann var
þar við nám og leiddi háskólahljóm-
sveit í Freiburg sem sótti ísland heim
haustið 1992. Eftir að
námi lauk hefur Gunn-
steinn stjómað Sinfón-
íuhljómsveit íslands,
Kammersveit Reykja-
víkur, Caput-hópnum,
tekið þátt í Sumartón-
leikum í Skálholti og
æft Kór íslensku óper-
unnar. Þá hefur þann
sótt námskeið á Ítalíu
og í Ungveijalandi.
Gunnsteinn er braut-
ryðjandi í flutningi
verka eftir Claudio
Monteverdi hér á landi.
Hann skipulagði og
stjómaði m.a. flutningi
á fyrstu óperu tón-
skáldsins, Orfeo, haustið 1993, en
þar tóku þátt tónlistarmenn víðsveg-
ar að úr Evrópu, auk íslenskra lista-
manna. Vorið 1994 varð Gunnsteinn
í öðru sæti í keppni ungra norrænna
hljómsveitarstjóra sem haldin var í
Björgvin í Noregi. Hann hefur síðan
unnið að undirbúningi kórs og hljóm-
sveitar fyrir uppfærslu Þjóðleikhúss-
ins á Valdi örlaganna.
Gunnsteinn
Ólafsson
I
ft
ft
í
I
ft
I
l
»
i
s
»
(
»
»
.