Morgunblaðið - 29.09.1994, Síða 22
22 FIMMTUDAGUR 29. SEPTEMBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
Kringlan
World Press Photo
ljósmy ndasýningin
LJÓSMYNDASÝNINGIN World
Press Photo 94 verður opnuð á
morgun, föstudaginn 30. septem-
ber, í Kringlunni. Þetta er þekkt-
asta samkeppni í heiminum á sviði
fréttayósmyndunar. Sýningin er á
1. og 2. hæð Kringlunnar og stend-
ur til 15. október.
World Press Photo-samkeppnin
hefur verið haldin árlega síðan
1955, en að henni stendur sjóður
sem hefur aðsetur í Hollandi. Að
þessu sinni bárust í keppnina
22.775 myndir 2.439 ljósmyndara
frá 93 löndum og er hún stærsta
samkeppni fréttaljósmyndara í
heiminum.
Það er 9 manna alþjóðleg dóm-
nefnd sem velur verðlaunamynd-
irnar. í ár verður sýning á þeim
sett upp í um 70 borgum í 30 lönd-
um. Verðlaunamyndirnar í World
Press Photo hafa verið sýndar hér
á Iandi árlega síðan 1984 í Lista-
safni ASÍ, en í fyrra var ákveðið
að hafa alia sýninguna í Kringl-
unni.
Sýningunni er skipt í flokka og
veitt verðlaun fyrir þrjár bestu
myndirnar í hveijum flokki, bæði
fyrir myndaraðir og einstakar
myndir. Sýningin er flokkuð í
fréttaskot, fólk í fréttum, vísindi
og tækni, daglegt líf, íþróttir, list-
ir, náttúra og umhverfi og al-
mennar fréttir. Alls eru þetta um
190 myndir og eru allar verð-
launamyndirnar á sýningunni í
Kringlunni. Við hveija mynd er
ítarlegur og fróðlegur texti um
myndefnið á íslensku.
Fréttamynd ársins
Fréttaljósmynd ársins er mynd
sem kanadíski Ijósmyndarinn
Larry Towell tók af drengjum á
Gaza-svæðinu með trébyssur á
lofti. Myndimar á sýningunni eru
víðsvegar að, frá byltingartilraun-
inni í Moskvu, flóðunum miklu í
Bandaríkjunum, striði í Bosníu og
Sómalíu og náttúrahamförum.
Einnig era á sýningunni skemmti-
legar myndir úr daglega lífinu,
íþróttum og menningu og listum.
World Press Photo gefur út
árbók með verðlaunamyndunum
og fæst hún í verslun Hans Peters-
ens í Kringlunni. Helstu alþjóð-
legu styrktaraðilar sýningarinnar
eru fyritækin Canon, KLK og Kod-
ak. Að sýningunni hér á landi
standa Kringlan, Hans Petersen
og DV í samstarfi við Listasafn
ASl og Jóna hf. flutningaþjónustu.
\í
Morgunverðarfundur
föstudaginn 30. september 1994
kl. 08.00 - 09.30, i Skálanum, Hótel Sögu
ISLENSK LIST A
ALÞJÓDAMARKADI
Mat sérfræðings frá Sotheby's
Einn reyndasti framkvæmdastjóri Sotheby's í London
og víðkunnur fyrirlesari um listaverlcasölu,
David Battie, skilgreinir alþjóðlega listaverkamarkaðinn
og spáir í stöðu íslenskrar listar á þeim vettvangi.
Fyrirlesarinn svarar spurningum þeirra
Jóns Ásbergssonar, framkv.stj. Útflutningsráðs,
Ingólfs Arnarsonar, myndlistarmanns,
Þórunnar Hafstein, deildarstj. í Menntamálaráðun.
og fyrirspurnum fundarmanna.
Fundurinn er opinn en tilkynna verður þátttöku fyrírfram
í síma 886666 (kl. 08- 16).
Þátttökugjald (morgunverður innifalinn) kr. 1.200.■
VERSLUNARRAÐ ISLANDS
LISTIR
Glennur
og gaddavír
MYNDLIST
Nýlistasafniö
INNSETNING OG
BLÖNDUÐ TÆKNI
Ólafur Lárasson
Opið alla daga kl. 14-18
til 9. október.
Aðgangur ókeypis.
í FEBRÚAR síðasta vetrar hélt
Ólafur Lárusson sýningu á innsetn-
ingu í Gallerí einn einn, sem hann
gaf yfirskriftina „Svo lítið ...“. Nú
hefur hann sett upp aðra innsetn-
ingu, að þessu sinni í mun stærra
rými, þar sem allir salir Nýlista-
safnsins eru lagðir undir. Hér er
greinilega um nokkurt framhald af
hinni fyrri sýningu að ræða, en ein-
hverra hluta vegna nær þessi fram-
kvæmd ekki sömu tökum á undirrit-
uðum og hin fyrri.
Að þessu sinni hefur listamaður-
inn gefið sýningunni yfirskriftina
„Kannski...! KANNSKI...?“ og
virðist með því byggja upp nokkra
eftirvæntingu, sem er tæpast fylgt
eftir hér og nú. Efniviðurinn er fá-
brotnari en áður; hér
notar Ólafur eingöngu
gaddavír og smjör við
innsetningamar, en
auk þeirra er að finna
í einum salnum tæt-
ingslegar glennumynd-
ir af kvenfólki, sem eru
endurunnar með tölvu-
tækni, og yfirmálaðar
með slagorðum.
Efnin sjálf eiga sér
vissulega ýmsar tilvís-
anir, þó þær séu færri
í myndlistinni en á öðr-
um vettvangi. Gaddav-
írinn skiptir löndum og
hamlar ferðum, hann
markar brautir og ógnar þeim sem
koma of nærri; í myndlistinni er
auðvelt að sjá hann á sama hátt
og Magnús Tómasson gerði í verki
sínu „Handhægt sett“, þ.e. sem
efnið í þyrnikórónu Krists. Joseph
Beuys notaði fitu og smör á mark-
vissan hátt í innsetningum, gjöm-
ingum og.jafnvel í höggmyndum,
þannig að þessi efni hafa bæði áður
komið fram í listsköpun á þessari
öld.
Samhengi efnanna hér verður þó
Olafur Lárasson
aldrei skýrt. Stundum er smjörið
notað líkt og til að mýkja gaddavír-
inn, leysa hann upp og gera skað-
lausan; í öðrum tilvikum er það í
hlutverki límsins, sem heldur vírun-
um saman. Þessar andstæður
ganga ekki upp, og fyrir vikið verð-
ur heildarmyndin sundurlaus, á
sama tíma og rýmið sjálft nánast
gleypir verkin.
Efsti salurinn kemur
best út að þessu sinni.
Bæði er það vegna þess
að þar er úr mestu að
moða fyrir áhorfand-
ann, og þar verða einn-
ig til vissar andstæður
milli glennulegra ljós-
myndanna, gaddavírs-
ins og Smjörsins, sem
hér er einnig notað með
sjálfstæðum hætti.
Þetta nægir þó ekki til
að lífga sýninguna við.
Áðurnefnd yfirskrift
blasir við gestum þeg-
ar þeir koma í húsið,
krotuð með blýanti, en
að öðru leyti fylgir
Ólafur sýningunni ekki eftir á nokk-
urn hátt né auðveldar fólki aðgang-
inn; hvergi er að finna neinar upp-
lýsingar, skrá eða heiti. Þó lista-
maðurinn hafi á stundum haft þenn-
an mátann á með sýningar sínar,
gengur þetta illa upp hér, og fyrir
vikið verður sýningin nánast sem
tómlegt eintal, sem í mesta lagi nær
til innvígðra áhugamanna; aðrir
hverfa væntanlega vonsviknir á
braut.
Eiríkur Þorláksson
Nú er mál
að linni
Leikþátta-
samkeppni
SHI
STÚDENTALEIKHÚSIÐ hyggst
í samvinnu við Stúdentaráð Há-
skólans efna til samkeppni um
gerð frumsaminna leikþátta fyrir
svið. Ætlunin er að taka væntan-
lega verðlaunaþætti til sýningar
eftir áramót.
Samkeppnin er öllum opin, inn-
an HÍ sem utan, en þó eru þeir
undanskildir sem þegar hafa átt
verk á fjölum atvinnuleikhúsanna.
Engar kvaðir eru lagðar á um efni
eða efnistök, en höfundar beðnir
um að taka tillit til líklegrar sam-
setningar leikhópsins. Hér er um
áhugaleikhús að ræða og leikend-
ur flestir í yngri kantinum.
í fréttatilkynningu segir að:
„ekki sé endilega verið að biðja
um leikrit í fullri lengd, allt eins
þætti sem skeyta mætti saman í
eina sýningu. Stúdentaleikhúsið
áskilji sér rétt til að verðlauna einn
til þijá þætti eftir atvikum. Verð-
launin nemi 300.000 kr., sem
skiptast á milli höfunda".
Þáttunum skal skila inn undir
duinefni. Lokað umslag með réttu
nafni, heimilisfangi og síma skal
fylgja með, merkt dulnefninu.
Þeim skal skila inná skrifstofu SHÍ
merktum Stúdentaleikhúsinu.
Skilafrestur er til 1. desember
1994.
Kripalujógá
Kynning
Laugardaginn 1/10 kl. 13.
Allir velkomnir.
Byrjendanámskeið hefst
mánudaginn 3/10.
JÓGASTÖÐIN HEIMSLJÓS,
^SkeHunni 19, 2. hæB, s. 889181 (kl. 17-19)^
KVIKMYNPIR
Bíóborgin
SONUR BLEIKA PARDUS-
INS „THE SON OF THE
PINK PANTHER" 0
Leikstjóri: Blake Edwards. Handrit:
Edwards og fleiri. Aðalhlutverk:
Roberto Benigni, Jennifer Eidwards,
Herbert Lom, Claudia Cardinale.
MGM/UA. 1992.
SONUR Bleika pardusins er von-
andi lokatilraun leikstjórans Blake
Edwards til að hagnast á gömlu
myndunum sínum um Bleika pard-
usinn með Peter heitnum Sellers í
aðalhlutverki. Hún er ömurleg
þvæla þar sem í ljós kemur að
Claudia Cardinale átti son með Sell-
ers í fyrstu pardusmyndinni, „The
Pink Panther" (1964), en hann er
nú lögreglumaður í Frakklandi sem
fær það verkefni hjá mesta haturs-
manni föður síns, Herbert Lom, að
hafa upp á prinsessu í haldi mann-
ræningja. ítalski grínleikarinn Ro-
berto Benigni leikur soninn en eins
og allt annað í þessari mynd er
hann hræðilega slæmur.
Snilld Sellers í hlutverki Clouse-
aus lögregluforingja verður ekki
borin saman við þessa afskræm-
ingu. Það sem Benigni reynir að
innleiða af gömlu Clouseau-töktum
Sellers í túlkun sína á syninum
kemur út sem hreinn fávitaháttur.
Benigni er gersamlega ófyndinn
eins og reyndar myndin öll. Edw-
ards virðist hafa glatað að fullu
lagni sinni til að kvikmynda brand-
ara og er gersamlega fyrirmunað
að skapa annað en ófyndinn ærsla-
leik og leyfír sér að samsama hann
ærslabröndurum Marxbræðra í einu
af verri brandaraatriðum myndar-
innar.
Leikararnir eru samsafn af leik-
urum gömlu myndanna eins og
Cardinale og Lom og nýjum andlit-
ÍTALSKI grínleikarinn
Roberto Benigni.
um eins og Benigni og Robert Davi,
sem leikur óþokkann og fær alla
samúð áhorfandans. Atriðið þegar
Benigni hefur dulbúið sig sem lækni
og ætlar að gera að_ sárum hans
er hreinlega sorglegt. Italski grínar-
inn hefur svosem ekki úr miklu að
moða því Edwards virðist ekki hafa
haft neitt í höndunum þegar hann
byrjaði að kvikmynda.
Eftir að Sellers lést hefur Blake
Edwards reynt að hagnast á mynd-
unum um Bleika pardusinn, sem
voru bestu gamanmyndir Sellers og
bestu gamanmyndir síns tíma, með
viðlíka furðuverkum og þessu. Nú
er mál að linni.
Arnaldur Indriðason
JMtriJWMltMS* - kjarni málsins!