Morgunblaðið - 29.09.1994, Page 46
46 FIMMTUDAGUR 29. SEPTEMBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
Bestu þakkir til allra sem glöddu mig á 80 ára
afmœli mínu, þann 16. ágúst.
Guðbjörg Sigurðardóttir,
Þangbakka 10.
TRYGGINGASTOFNUN
Ó7RÍKISINS
Styrkir til bifreiðakaupa
Tryggingastofnun ríkisins veitir viðtöku um-
sóknum vegna styrkja sem veittir eru hreyfi-
hömluðum til bifreiðakaupa. Nauðsyn bifreiðar
vegna hreyfihömlunar skal vera ótvíræð.
Umsóknareyðublöð vegna úthlutunar 1995 fást
hjá afgreiðsludeild og lífeyrisdeild
Tryggingastofnunar ríkisins, Laugavegi 114,
og hjá umboðsmönnum hennar um land allt.
Umsóknarfrestur er til 15. október.
Tryggingastofnun ríkisins.
tækniskóli
islands
Menntun - atvinnulíf
Opinn fundur um tæknimenntun og atvinnulíf á 30 ára afmæli
Tækniskóla íslands, föstudaginn 30. september kl. 13.30-16.30.
Fundurinn verður haldinn í húsnæði skólans, Höfðabakka 9, Reykjavík.
Allir áhugasamir eru velkomnir á meðan húsrúm leyfir.
Dagskrá:
Ólafur G. Einarsson, menntamálaráðherra
ávarp
Margrét Björnsdóttir, aðstoðarmaður iðnaðar-, viðskipta- og
heilbrigðisráðherra
ávarp
Sveinbjörn Björnsson, rektor Háskóla íslands
Tækniskóli íslands í samfélagi skólanna, gamlar og nýjar hugmyndir.
Guðrún Pétursdóttir, lífeðlisfræðingur og stjórnarkona í Aflvaka
Nýsköpun og formleg menntun.
Kaffihlé
Davíð Lúðvíksson, verkfræðingur hjá Samtökum iðnaðarins
Tæknimenntun fyrir (slenskan iðnað.
Alda Möller, matvælafræðingur, þróunarstjórl hjá Sölumiðstöð
hraðfrystihúsanna
Tæknimenntun hjá sjávarútvegsþjóð.
Steinar Steinsson, fyrrverandi skólastjóri Iðnskólans í Hafnarfirði
Framhaldsnám fyrir iðn- og verkmenntað fólk ÍTækniskóla íslands.
Guðbrandur Steinþórsson, rektor Tækniskóla íslands.
Sjábu hlutina
í víbara samhengi!
-kjarni málsins!
ÍDAG
VELVAKANDI
Svarað í síma 691100 frá 10-12 og 14-16 frá mánudegi til föstudags
Allir undir sömu
sökina seldir
ÞAÐ ER ekki annað hægt
en undrast aðför fjöimiðla
að Guðmundi Árna Stef-
ánssyni þessa dagana.
Minnir þetta um margt á
brottför Alberts Guð-
mundssonar úr íslenskum
stjórnmálum.
Vekur það furðu hvernig
hægt er að taka einn
ákveðinn stjórnmálamann
út í þessari umfjöllun þegar
vitað að þeir eru allir u.idir
sömu sökina seldir, bæði
ljóst og leynt.
NN
Hvar er gert við
postulín og
sokkabuxur?
GUÐRÚN Pétursdóttir
hringdi til Velvakanda með
þessa fyrirspurn og vonast
eftir svari sem fyrst.
Tapað/fundið
Gleraugu fundust
GLERAUGU í brúnni um-
gjörð fundust í Barmahlíð
sl. mánudag. Eigandinn
hringi í síma 18613 eftir
kl. 19.
Gleraugu fundust
DÖKK gleraugu í gylltri
umgjörð fundust á göngu-
stígnum við elliheimilið
Grund sl. föstudag. Eig-
andinn hringi í síma
14706.
Úlpa og leikfimidót
týndist
RAUÐ HM-úlpa með
munstruðu fóðri á ca. átta
ára og leikfimisdót í tau-
poka tapaðist líklega í ná-
grenni við Víðistaðaskóla í
Hafnarfirði. Skilvís
finnandi vinsamlega hafi
samband í síma 53388.
Jakki í óskilum
RÚSKINNSJAKKI á karl-
mann var nýlega skilinn
eftir á ljósmyndastofunni
Skyndimyndir, Templara-
sundi 3. Eigandinn getur
vitjað hans þar.
Græna kortið
GRÆNA kortið fyrir
strætó fannst. Upplýsingar
í síma 877563.
Úr tapaðist
GULLÚR af gerðinni Gucci
á svartri ól tapaðist í Ing-
ólfscafé aðfaranótt sl.
sunnudags. Finnandi vin-
samlega hringi í síma
671587.
Gæludýr
Páfagaukur fannst
PÁFAGAUKUR fannst á
Lambastaðabraut, Sel-
tjarnarnesi, sl. mánudag.
Eigandi er vinsamlega beð-
inn að hafa samband í síma
612224.
Týndur köttur
GRÁBRÖNDÓTTUR 6
mánaða fressköttur týndist
laugardaginn 24. sept-
ember nálægt St. Jósefssp-
ítala í Hafnarfirði.
Finnandi vinsamlelga
hringi í síma 52597 eða
694680, því hans er sárt
saknað.
Páfagaukur
GULUR og grænn páfa-
gaukur fannst við Lau-
fengi 80 sl. föstudag. Eig-
andi hringi í síma 875574.
Kettlingar
TVEIR sjö vikna ljósgráir
síðhærðir kettlingar eru í
heimilisleit. Upplýsingar í
síma 876678.
Týnt fress
GRÁR fressköttur með
hvíta bringu og bletti á
afturfótum, tæplega árs-
gamall, tapaðist frá
Kringlunni sl. laugardag.
Hafi einhver orðið ferða
hans var er hann vinsam-
lega beðinn að hringja í
síma 811229.
Svartur köttur
SVARTUR hálfnorskur
skógarköttur (síðhærður
með mikið skott) hvarf frá
heimili sínu á Leifsgötu
fyrir rúmri viku. Hann sást
síðast á Mánagötu og var
þá með dökkrauða flauel-
sól. Viti einhver um ferðir
hans eftir það er hann vin-
samlega beðinn að hringja
í síma 12259. Fundarlaun-
um er heitið fyrir kisa.
BRIDS
IJm.sjón (■uðmtindur l’nll
Arnnrson
Vestur komst yfir fyrstu
hindrunina þegar hann
valdi að spila út hjarta gegn
sex tíglum. Meiri hugsuðir
hefðu lagt niður spaðaás
eftir svo villtar sagnir.
„Hugsuðimir" hefðu ekki
þurft að hugsa meira um
þetta spil, því spaðaásinn
gefur það í einu vetfangi.
Hjartaútspilið virðist vera
jafn afgerandi á hinn veginn,
en sagnhafi er þó ekki alveg
úrræðalaus. Hann drepur á
hjartaás og spilar þremur
efstu í laufi. Þegar austur
fylgir lit í þriðja laufið,
trompar suður með kóng.
Og nú er slemman í húsi ef
vestur hendir hjarta. Suður
, t spilar spaðakóng og trompar
„ þeM&s Uiurmiklu, verrút þe<JO*~ , út ásinn. Stingur svo lauf
moÁUr 5Ír heÍLdarrrtyndiflOil' hátt og hendir hjarta niður
Farsi
Vestur gefur; NS á hættu.
Norður
♦ -
V Á2
♦ G9762
♦ ÁKDG103
Austur
♦ 109875
V K65
♦ Á8
♦ 987
Suður
♦ KD432
y 87
♦ KD103
♦ 62
Vestur Norður Austur Suður
2 hjörtu 4 pönö' 5 hjörtu! 6 tíglar
Pass Pass Pass
Útspil: þjartadrottning.
Vestur
♦ ÁG6
V DG10943
♦ 54
♦ 54
í spaðadrottningu.
Vömin hefur auðvitað síð-
asta orðið ef vestur hendir
strax spaða. Hann getur þá
losað sig við tvo spaða í lauf-
in og stungið í spaðadrottn-
inguna þegar þar að kemur.
Víkveiji skrifar...
Fyrir nokkru birtist frétt um það
í Morgunblaðinu að óprúttnir
kartöflu- og grænmetisþjófar hefðu
farið í garða krakka í skólagörðun-
um og hirt sumaruppskeruna. Ekki
þarf að hafa mörg orð um sorg
barnanna sem urðu fyrir þessu og
hversu ómerkilegt athæfi sem þetta
er. Um svipað leyti kynntist skrif-
ari raunum annarra ungra garðeig-
enda.
Ung vinkona hans hafði beðið í
ofvæni eftir að geta tekið upp úr
garðinum sínum og ekki þarf að
hafa að mörg orð um vonbrigði
hennar er í ljós kom að uppskeran
var meira og minna ónýt. Ef rétt
er munað átti það bæði við kartöfl-
ur og rófur. Skorkvikindi höfðu
orðið á undan garðeigendum og
tekið stóran toll af uppskerunni.
Rófurnar reyndust ormétnar og þó
kartöflurnar litu fallega út urðu þær
svartar og óætar nokkrum dögum
eftir upptöku. Þetta fannst krökk-
unum eðlilega súrt í brotið og þeg-
ar þau leituðu svara var þeim sagt
að þetta hefði gerst áður, það væri
alls konar óværa í garðinum, ekki
dýgði lengur að eitra og garðinum
yrði sennilega lokað næsta sumar.
xxx
Fréttir hafa birst um það undan-
farið að landinn hyggi í stór-
um stíl á utanlandsferðir í haust
og vetur; verslunarferðir alls konar,
golfferðir og sólarreisur til Kanarí-
eyja eru ofarlega á blaði. Smugu-
veiðar og góður loðnuafli hafa skil-
að dijúgu í launaumslög víða um
land og sjávargullið er fljótt að
berast í þéttbýlið á Suðvesturhorn-
inu.
Frá áhuga Vestfirðinga á utan-
landsferðum er greint í BB á Isafirði
fyrir nokkru og segir í fyrirsögn:
„Hundruðir Vestfirðinga á leið í
verslunarferðir". Skrifari geturekki
látið hjá líða að benda þeim kolleg-
um á BB á að þarna hefði átt. að
standa „Hundruð Vestfirðinga..."
Þessi villa er síður en svo einskorð-
uð við vestfirska blaðaútgáfu, hún
hefur sést á bestu bæjum, en er
ekkert betri fyrir það.
xxx
Knattspyrnuvertíðinni er um það
bil að ljúka og glæsilegur
árangur kvennalandsliðsins kórónar
ágætt knattspyrnusumar. Reyndar
eiga landsliðin nokkra leiki eftir og
þar á meðal á a-landsliðið eftir að
leika við HM-lið Sviss og Tyrki á
útivelli. Eins og venjulega hafa
margir verið kallaðir á þessu sumri,
en aðeins fáir útvaldir. íslands-
meistarar eru Akranes og Breiða-
blik og bæði lið vel að sigrinum
komin.
Víkveiji hefur alltof oft séð og
heyrt talað um sigurvegara í deild-
um sem íslandsmeistara. Þannig
sagði í blaði Borgnesinga að Skalla-
grímur væri íslandsmeistari í þriðju
deild. Þetta er ekki rétt. Með fullri
virðingu fyrir glæstum árangri
Borgnesinga eru þeir sigurvegarar
í deildinni, en aðeins Skagamenn
eru Islandsmeistarar í karlafótbolt-
anum.