Morgunblaðið - 23.10.1994, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 23.10.1994, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23. OKTÓBER1994 B 13 MERKI Köngullóarinnar, tengsla- og gagnanets kvenna á íslandi. konur á íslandi. Þóra segir að net- ið hafi upphaflega verið ætlað kon- um en karlar séu einnig farnir að sýna því áhuga og aldrei sé að vita hvort þeir fái aðgang að net- inu. „Við gefum út fréttabréfið Vefinn á tveggja mánaða fresti og karlar geta verið áskrifendur að því hafi þeir áhuga,“ segir hún. Köngullóin er verkefni sem kom til um áramótin 1992-93 og hlaut styrk úr svokölluðum „15 milljóna króna sjóði eða Jóhönnusjóði", að sögn Þóru. Hún rifjar upp fyrir blaðamanni tilurð tengslanetsins um leið og hún sinnir dóttur sinni sem kemur hlaupandi öðru hvoru og þarf að fá leyst úr sínum málum. „Ég tók þátt í ráðstefnu í Sví- þjóð árið 1991 ásamt níu öðrum konum, þar sem verið var að ræða tengsl á milli kvenna í atvinnulífinu. Ég fór með það loforð í farteskinu að ég gerði eitthvað í málinu ef grundvöllur skapaðist til þess. Síðan var haldin ráðstefna á Akureyri í júní 1992 sem hét Að taka málin í eigin hend- ur. Þar var ég með fyrirlestur um tengslanet almennt og þann mögu- leika að koma á slíku neti fyrir konur á íslandi.“ Á þriðja hundrað konur skráðar í tengslanetið Þóra segir að áhugi hafi strax verið töluverður og átján konur skráðu sig á lista. „Skipuð var verkefnisstjórn sem Valgerður Bjarnadóttir jafnréttisfulltrúi á Akureyri og Elín Antonsdóttir hjá Átaksverkefninu Vaka eru í auk mín. Síðan var sótt um til félags- málaráðuneytisins til að koma verkefninu af stað og nú eru á þriðja hundruð konur skráðar í Köngullóna," segir hún og bætir við með örlitlu stolti í röddinni: „Þeim fjölgar hratt, enda er netið stórsnjallt, einkum fyrir þær konur sem vinna einar að sínum málum. Það getur verið erfitt að vinna einn og fá aldrei neina svörun við því sem verið er að gera.“ Þóra segir að til þess að gerast þátttakandi þurfi einungis að fylla út skráningarblað, en hún taki einnig við skráningu í gegnum síma. — Hveijir geta sótt um? „Allar konur á íslandi.“ — Hver er tilgangurinn með tengslanetinu? „Að koma á tengslum milli kvenna til þess að þær geti skipst á reynslu og eins þeim til hagsbóta sem stunda einhvern atvinnurekst- ur.“ Netið nýtist bæði fyrii-tækjum og einstaklingum Til að skýra mál sitt enn betur nefnir Þóra dæmi um konu sem starfar sem skóla- bílstjóri og hafði áhuga á að tengj- ast öðrum konum sama starfi. Með því að leita í gagnabankanum tókst mér _ að koma á tengsl- um,“ segir hún. „Við skulum taka annað dæmi, sem er allt annars eðlis. Fjöldinn all- ur af handverks- hópum hefur verið stofnaður um allt land að undanförnu. I tengslum við þá hafa margar kvennanna hringt og spurt hvar hægt væri að fá upplýsingar um fýrirtækja- stofnun, t.d. með tilliti til hvaða form hentar hveiju sinni. Þá hef ég getað bent þeim á hópa sem hafa reynslu og sagt þeim það sem ég veit.“ Hún nefnir einnig dæmi um fyrirtæki, sem þurfti að láta hand- pijóna lopapeysur fýrir skömmu. Var haft samband við Köngullóna til að fá nöfn á handverkshópum sem gætu tekið verkið að sér og dæmið gekk upp. „Nú er ég t.d. að skrá konur sem vilja fara í sameiginleg innkaup á hráefni meðal annars til skart- gripagerðar. Hugsanlega gæti myndast innkaupasamband úr því,“ segir hún og greinilegt er að tengslanetið á mikil ítök í henni. Þóra segir að fram til þessa hafi ekki verið tekið árgjald, þar sem Köngullóin hafi verið rekin á styrkjum. Á næsta ári verði eflaust breyting þar á, því styrkveitingar fari minnkandi. „Enda er verkefn- inu sem slíku lokið,“ segir hún. Hins vegar er ljóst að þrátt fyr- ir að tilraunaverkefninu sé lokið mun Köngullóin spinna vefi sína um allt land í nánustu framtíð. Því öflugri verða vefirnir sem fleiri konur taka þátt í starfseminni. „Nú er ég t.d. oð skrú konur sem vilja fara í sameiginleg inn- kaup ó hrúefni meðal annars til skartgripa gerðar. Hugsanlega gæti myndast inn- kaupasamband úr því," segir Þóra. KOMIÐOG PflNSlÐ dæstu námskeið l.éttaRÐU 29.og30.okt. DANSSVEIFLU Á TVEIM dögumí 62070Q Áhugahópur um almenoa dansþátttöku a íslandi hringdu núna Er kvennabaráttan í íþróttum vonlaus? Ráðstefna um stöðu kvenna innan íþróttahreyfing- arinnar verður haldin f íþróttamiðstöðinni, Laugar- dal, fimmtudaginn 27. október kl. 20.00-22.30 DAGSKRÁ: Setning: Unnur Stefánsdóttir, formaður Umbótanefndar ÍSÍ. Baráttumál: Sigrar og ósigrar: Lovísa Einarsdóttir, íþróttakennari og stjórnarmaður ÍSÍ Alþingiskonur og íþróttir kvenna: Kristfn Einarsdóttir, alþingismaður. Betur má ef duga skal: Ingimar Jónsson, doktor í íþróttasögu. Eru kvennaíþróttir rétt markaðssettar? Birna Einarsdóttir, viðskiptafræðingur. Ráðstefnustjórar: Unnur Stefánsdóttir og Þórdís Gísladóttir. Þátttökugjald kr. 500 (kvöldhressing innifalin). j Allt áhugafólk um konur og íþróttir er hvatt til að mæta! Veljum íslenskt Sunnudagsblaöi Morgunblaösins, 30. október nk., fylgir blaöauki sem heitir Veljum íslenskt. í þessum blaöauka veröur m.a. fjallaö um markmiö átaksins, íslenskt - já takk, þátttakendur í átakinu, viötöl viö forsvarsmenn ýmissa atvinnugreina, hver árangurinn var af átakinu í fyrra og hvað framundan er. Hvaö segja neytendur, innkaupastjórar og atvinnurekendur? Þeim, sem áhgua hafa á ab auglýsa í þessum blahauka, er bent á ab tekib er vib auglýsingapöntunum til kl. 16.00 mibvikudaginn 26. október. Nánari upplýsingar veita Jónína Pálsdóttir og Rakel Sveinsdóttir, starfsmenn auglýsingadeildar, í síma 69 11 71 eba símbréfi 69 11 10. - kjarni málsins!

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.