Morgunblaðið - 04.11.1994, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 4. NÓVEMBER 1994 19
ERLEINIT
Hátíðarhöld vegna frelsunar Auschwitz fyrir 50 árum undirbúin
Mótmæla þátttöku Arafats
Jerúsalcm. The Daily Telegraph.
ISRAELAR sem lifðu af ofsóknir þýskra nasista
eru æfir vegna frétta um að Yasser Arafat, leið-
toga Palestínumanna, verði boðið að vera við-
staddur hátíðarhöld í tilefni þess að 50 ár verða
senn liðin frá því að Þjóðveijar yfirgáfu Ausch-
witz-fangabúðirnar. „Arafat bar ábyrgð á því
að gyðingar voru drepnir af því að þeir voru
gyðingar. Hann drap unga sem aldna, konur og
börn“, sagði Dov Shilansky, fyrrum þingforseti,
en hann var sjálfur í Dachau-fangabúðunum.
Sagði Shilansky að með því að bjóða Arafat
til Auschwitz væri verið að móðga og smána
ísraelsku þjóðina og einkum þá sem lifðu af
Helförina.
Rauði herinn tók fangabúðirnar í lok janúar,
nokkrum dögum eftir að Þjóðverjar hurfu það-
an. Búðirnar eru í Póllandi og er talið að allt
að tvær milljónir gyðinga hafi látið þar lífið.
Friðarverðlaunahöfunum boðið
Fulltrúar Lech Walesa Póllandsforseta segja
að öllum friðarverðlaunahöfum Nóbels verði
boðið þangað í janúar. Arafat deildi sem kunn-
ugt er verðlaununum á þessu ári með þeim Yitz-
hak Rabin, forsætisráðherra ísraels, og Shimon
Peres utanríkisráðherra fyrir skemmstu og voru
þau veitt vegna friðarsamninga ísraela og Frels-
issamtaka Palestínu, PLO, í fyrra.
Shilansky, sem er stjórnarandstæðingur úr
Likud-flokknum, sagðist hafa ritað þeim Rabin
og Peres bréf og hvatt þá til að hundsa boðið
ef Arafat yrði viðstaddur. Talsmenn Rabins og
Peres sögðu að ekki hefðu borist nein formleg
boð frá pólsku stjórninni enn þá og neituðu að
tjá sig frekar um málið á miðvikudag.
Þekktur gyðingaleiðtogi, sem tók þátt í upp-
reisn gyðinga gegn þýska hernámsliðinu í Var-
sjá 1943, Stefan Grayek, sagðist styðja sam-
komulagið við Palestínumenn en lýsti andstöðu
við að Arafat tæki þátt í athöfninni. „Hann hef-
ur aldrei tjáð sig um Helförina", sagði Grayek.
Sumir þeirra sem lifðu af ofsóknirnar eru á
öðru máli.
Þeir telja m.a. að með því að mæta muni
Arafat formlega viðurkenna að gyðingar hafi
orðið að þjást vegna ofsóknanna en palestínskir
leiðtogar hafa oft reynt að gera lítið úr harm-
leik gyðingaofsóknanna.
Sól-
myrkvi í
Chile
SÓLMYRKVI varð í gær og sást
hann best á suðurhveli jarðar.
Myndirnar eru teknar í Putre í
Chile. Sólmyrkvinn varði í tvær
mínútur og 50 sekúndur og sást
frá allmörgum löndum.
Fjöldi fólks, sem kom hvaðan-
æfa að, frá Indlandi til Okla-
homa, hafði safnast saman í
Putre til að fylgjast með sólinni
myrkvast. Þetta er síðasti sól-
myrkvinn á suðurhveli jarðar á
öldinni.
Karl Bretaprins í
stj ömuheiminum
Los Angeles. The Daily Telegraph.
KARL Bretaprins er nú í heim-
sókn í Los Angeles og skoðaði
hann á miðvikudag fátækrahverfi
í borginni. Hann var síðan við-
staddur frumsýningu bresku kvik-
myndarinnar „Frankenstein Mary
Shelley" sem Kenneth Branagh
leikstýrir og heilsaði upp á frægar
kvikmyndastjörnur í Hollywood.
Indversk ást í meinum?
Bresk dagblöð héldu áfram að
fjalla um nýútkomna ævisögu
Karls og beindu athyglinni að ind-
verskri konu, Zoe Saliis, sem kem-
ur þar við sögu. Sallis er nú 54
ára og fyrrverandi eiginkona
bandaríska kvikmyndaleikstjór-
ans Johns Hustons. Hún er búdd-
isti og kynntist prinsinum tveimur
árum áður en samband hans og
Díönu prinsessu hófst. Þau urðu
nánir vinir og Karl segist hafa
fengið mikinn áhuga á búddatrú
og skyldleika helstu eingy'ðistrú-
arbragða heims vegna kynna
sinna af Sallis. Embættismenn
Bretadrottningar bundu enda á
vináttuna; aðspurð sagði Sallis að
þau hefðu aðeins verið góðir vinir
og aldrei sofið saman.
Reuter
KARL prins ræðir við kvikmyndaleikarann Jack Nicholson eft-
ir frumsýninguna á Frankenstein Mary Shelley.
Reuter
Mynd birt af laun-
dóttur Mitterrands
París. Reuter.
FRANSKA tímaritið Paris-Match
birti í gær mynd af ungri konu
sem það sagði vera óskilgetna
dóttur Francois Mitterrands
Frakklandsforseta, Mazarine að
nafni. Er þetta í fyrsta skipti sem
franskur fjölmiðill brýtur óskráð
samkomulag um að ekki sé sagt
frá einkamálum ráðamanna í
óþökk þeirra.
Mazarine er tvítug og að sögn
Paris-Match nemi við hinn virta
háskóla Ecole Normale Superiuer.
Franskir fjölmiðlar fjalla yfir-
leitt ekki um einkalíf stjórnmála-
manna. Tímaritið hafði hins vegar
eftir blaðamanninum Philippe
Franskt tímarit
brýtur óskráð sam-
komulag um að ekki
sé fjallað um einka-
mál ráðamanna
Alexandre, er ritað hefur bók um
forsetann sem kemur út í þessari
viku, að rétt væri að fjalla opin-
berlega um samband forsetans
við hjákonu sína og dóttur þar
sem að þær hefðu búið í opinber-
um bústöðum og ferðast á kostn-
að franskra skattgreiðenda.
„Það er ekki til blaðamaður í
Frakklandi sem vissi ekki af þessu
vegna þess að forsetinn reyndi
ekki að dylja sambandið. Hins
vegar áttu allir franskir blaða-
menn aðild að þagnarsamsæri,"
sagði Alexandre.
„Hvað með það?“
Flestir franskir fjölmiðlar
greindu einungis stuttlega frá
frétt tímaritsins eða hunsuðu
hana algjörlega. Le Monde birti
þó frétt undir fyrirsögninni „Hvað
með það?“ og sagði forsetann
hafa sagt á morgunverðarfundi
með blaðamönnum árið 1984; „Já
ég á dóttur. Hvað með það?“
Prófkjör sjálfstæðismanna á Suðurlandi laugardaginn 5. nóvember
EGGERT HAUKDAL í 2. sæti
Sjálfstæðisflokkurinn er flokkur allra stétta.
Þau sjónarmið verða að endurspeglast í þingliði flokksins.
Þingmenn flokksins verða því að koma úr öllum stéttum
atvinnuveganna til lands og sjávar.
Á þann hátt einan speglar Aiþingi viija allra landsmanna — þess vegna má Alþingi aldrei verða
sérfræðingastofnun sem stjórnað verður af ráðamönnum Evrópusambandasins.
Eggert Haukdal er bóndi að Bergþórshvoli í Rangárvallasýslu. Hann hefur setið á Alþingi í 16 ár.
Hann hefur ætíð barist fyrir frelsi einstaklinga til athafna og um leið gegn skrifstofuveldi og
viðskiptaáþján erlendra þjóðarbandalaga og afnámi okurvaxta og lánskjaravísitölu.
Eggert er þekktur fyrir:
• sjálfstæðar skoðanir sem hann heldur fast við,
• þor til þess að gagnrýna og horfast í augu við staðreyndir,
• en umfram allt óþreytandi eljusemi við að gæta hagsmuna
Sunnlendinga og landbúnaðar á íslandi.
Eggert Haukdal er þingmaður dreifbýlisins, verðugur fulltrúi fólksins um allt land.
_________________________________________ Stuðningsmenn.
Tryggjum Eggerti Haukdaí 2. sætið í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins á Suðuríandi